Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 29
okkur í tugi ára. Opið hús höfum við
nokkrum sinnum á vetri þar sem sam-
an er tvinnað gamni og alvöru.
Fyrir rúmu ári fengum við endur-
bætta aðstöðu fyrir stjórnarfundi,
sem við erum afar þakklát fyrir. Þá að-
stöðu greiðir Hafnarfjarðarbær leigu
fyrir okkur sem og allt húsnæði okkar
í félagsmiðstöð okkar sem er um 700
fermetrar sem er í eigu Verkalýðs-
félagsins Hlífar, en Hlíf hefur verið
okkur mjög jákvæð í allri samvinnu.
Félagsstarfið stærra en
nokkru sinni
Það má segja að starfsemin
í Hraunseli sé að springa vegna fjölda
þátttakenda í starfi okkar og verðum
við að fara líta til annarrar félagsmið-
stöðvar og þá á Vellina í Hafnarfirði á
næstu mánuðum og árum.
Félagið hefur látið til sín taka í
mannlífinu á landsvísu og ekki verið
alveg sátt við hvernig ríkisvaldið hefur
haldið á málum eldri borgara á liðn-
um árum vægt til orða tekið. Spurn-
ingin er sú hvernig eldri borgarar eigi
að koma sínurn málum enn frekar til
urnræðu í þjóðfélaginu? Ekki höfum
við verkfallsrétt svo hvað er þá til ráða?
Það er táknrænt að í aðdraganda
alþingiskosninga núna kornu mál-
efni eldri borgara þessa lands ekki
inn á topp tíu í skoðanakönnun hjá
landsmönnum um helstu áherslumál
landsmanna. Eiga ekki allir foreldra,
ömmur og afa sem þjóðfélagsþegnar
vilja allt hið besta á efri árum?
Að mínu mati þurfa eldri borgarar
að herða róðurinn og slípa baráttuvilj-
ann til bættra kjara eldri borgurum
til handa. Við þurfum að skerpa bar-
áttuviljann og ekki vera feiminn við
að segja hvað okkur býr í brjósti. Við
eigum stærstan þátt í þessu þjóðfélagi
sem við skilum til afkomenda okkar.
Ellimóð
Ég kaus nú
bjartlýðræðis-
framtíðarheim-
ilisflokkinn!
íþrótta- og heilsuhátíð!
2013
3LANDSMÓT
UMFÍ 50 +
3.Landsmót UMFÍ50+
Vík í Mýrdal 7.-9. júní 2013
• Iþróttakeppni í fjölda greina
• Allir 50 ára og eldri hafa keppnisrétt
• Opnir hóptímar
• Heilsufarsmælingar
» Fræðsla um hollustu og heilbrigðan lífsstíl
• Fritt á alla skemmtiviðburði
• Nokkrar greinar opnar öllum aldurshópum
• íþrótta- og heilsuhátíð fyrir fólk á besta aldr
Nánari upplýsingar á www.landsmotumfi50.il
29