Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Blaðsíða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 23. janúar 2013 Flestir fluttu til Noregs n Flestir brottfluttra árið 2012 voru á aldrinum 20–24 ára Á rið 2012 fluttust 3.015 íslensk­ ir ríkisborgarar til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar af 4.066 alls. Flestir þeirra flutt­ ust til Noregs, eða 1.395. Þetta kem­ ur fram í upplýsingum um búferla­ flutninga árið 2012 sem Hagstofa Íslands birti á þriðjudag. Á síðasta ári fluttust 319 fleiri frá landinu en til þess og dró úr brottflutningi mið­ að við árið 2011 þegar 1.404 fluttust úr landi umfram aðflutta. 2.181 er­ lendur ríkisborgari flutti frá landinu og fóru flestir þeirra til Póllands, eða 740. Þaðan komu líka 886 erlendir ríkisborgarar. Árið 2012 voru flestir brottfluttra á aldrinum 20–24 ára, flestir þó 24. Fjölmennasti hópur aðfluttra var á aldrinum 25–29 ára og algengasti aldur þeirra var 26 ár. Þá fluttu 300 fleiri karlar úr landi en til landsins á síðasta ári og 19 fleiri konur fluttu frá landinu en til þess. Fram til ársins 2003 fluttust að jafn­ aði fleiri konur til landsins en karlar. Þessi þróun snerist við á tímabilinu frá 2004–2008. Á þeim árum flutt­ ust til landsins 4.215 fleiri karlar en konur. Á undanförnum fjórum árum hafa hins vegar 4.114 fleiri karlar en konur flust úr landi umfram aðflutta. Hlutfall kynjanna hefur því jafnast á nýjan leik. Í upplýsingum Hagstofunnar er einnig að finna tölur um innan­ landsflutninga. Þeir náðu hámarki á góðærisárinu 2007 en það ár voru tilkynntir flutningar 58.186 einstak­ linga. Eftir það fækkaði þeim jafnt og þétt og náðu þeir lágmarki árið 2010 þegar 46.535 einstaklingar skiptu um lögheimili. Árið 2011 varð aftur á móti fjölgun í fyrsta sinn frá árinu 2007 en þá mældust innan­ landsflutningar 49.398. Innanlands­ flutningar voru 48.893 árið 2012 sem er fækkun um 505 milli ára. n L andsbankinn hefur afskrifað nærri 246 milljóna króna skuldir Fasteignafélags Suðurnesja ehf. Félagið var í eigu Sparisjóðabanka Ís­ lands, Steinþórs Jónssonar, Sverris H. Geirmundssonar og Sparisjóðsins í Keflavík. Þetta kemur fram í Lög­ birtingablaðinu. Skiptabeiðandi í málinu var Landsbankinn en hann tók við eignasafni Sparisjóðsins í Keflavík árið 2011. Engar eignir fundust í búi fé­ lagsins sem átti nokkrar fasteignir í Reykjanesbæ. Dýrasta fasteign félagsins var á Brekkustíg 39 í Reykjanesbæ en hún var metin á 140 milljónir króna í árslok 2009. Þá átti félagið einnig hlutabréf í öðrum fé­ lögum: Blikavöllum, Gullmolanum og Hvalvík. Skuldir félagsins við Sparisjóðinn í Keflavík námu tæp­ um 264 milljónum króna í árslok 2009 en skuldirnar við Landsbanka Íslands námu rúmum 24 milljónum króna. Sonur sparisjóðsstjórans Sverrir H. Geirmundsson, sem átti 20 prósenta hlut í félaginu, er sonur fyrrverandi sparisjóðsstjóra Spari­ sjóðsins í Keflavík, Geirmundar Kristinssonar. Fasteignafélag Suður­ nesja var því tengt Sparisjóðnum í Keflavík. Líkt og komið hefur fram í fjöl­ miðlum voru félög tengd Sverri stór­ ir lántakendur hjá Sparisjóðnum í Keflavík á árunum fyrir hrun. Með­ al annars var hann eigandi félags­ ins Fossvogshyljar ehf. en tæplega 700 milljóna króna skuld þess félags var afskrifuð áður en sparisjóður­ inn var yfirtekinn af íslenska ríkinu eftir hrun. Þá hafði sparisjóðurinn verið búinn að taka Fossvogshyl yfir og Sverrir var búinn að tilkynna úr­ sögn sína úr félaginu. Sparisjóður­ inn lánaði Fossvogshyl peningana til að kaupa stofnfjárbréf Sparisjóðs­ ins í Keflavík í Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfjarða. Þetta mun hafa verið gert til að koma í veg fyrir að bréfin þynntust út í sam­ runa sjóðanna og til að forða spari­ sjóðnum frá því að fara undir lög­ bundið eiginfjárhlutfall. Þá var Sverrir einnig í persónulegri ábyrgð vegna skuldar upp á 57 millj­ ónir við Sparisjóð Keflavíkur í sept­ ember 2008. Lánið var með veði í íbúð í Reykjavík að andvirði 16,75 milljóna. Eftir því sem fram kom í frétt RÚV árið 2011 afskrifaði faðir Sverris skuld hans upp á um 50 milljónir rétt áður en ríkið tók sjóðinn yfir. 280 milljónir afskrifaðar í fyrra Steinþór Jónsson, afhafnamaður í Reykjanesbæ, fyrrverandi stjórnar­ maður í Sparisjóði Keflavíkur og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks­ ins, átti einnig 20 prósenta hlut í félaginu. Steinþór tengist fjöl­ mörgum félögum sem farið hafa á hliðina eftir hrunið 2008 og sem skilja eftir sig miklar skuldir í banka­ og sparisjóðakerfinu. Þrjú önnur félög sem hann tengist og sem orðið hafa gjaldþrota eru Base ehf., Bergið ehf. og áðurnefnt félag, Blikavellir ehf. Kröfuhafar Bergsins afskrifuðu 3,8 milljarða kröfur á hendur Berginu þegar gengið var frá skipt­ um félagsins síðastliðið sumar og Base ehf. var með neikvætt eigið fé upp á meira en 650 milljónir í árs­ lok 2009. Afskriftirnar á skuldum Fasteignafélags Suðurnesja bætast við 280 milljóna króna afskriftir hjá Blikavöllum ehf., dótturfélagi þess, í fyrra. Afskriftir þessara tveggja félaga nema því meira en hálfum milljarði króna. n n Sverrir H. Geirmundsson og Steinþór Jónsson og fengu háar afskriftir Sonur bankastjóra losnar við risalán „Afskriftirnar á skuldum Fast- eignafélags Suðurnesja bætast við 280 milljóna króna afskriftir hjá Blika- völlum ehf., dótturfélagi þess, í fyrra. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Afskrifa hálfan milljarð Kröfuhafar Fasteignafélags Suðurnesja og Blikavalla hafa afskrifað rúmlega hálfan milljarð af skuldum félagsins. Einn af eigendum Fasteignafélags Suðurnesja var Steinþór Jónsson, athafnamaður í Reykjanesbæ. Fleiri fluttu en komu Árið 2012 fluttust rúmlega þrjú þúsund Íslendingar til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar. neituðu að starfa með nýkjörnum formanni n Ólga í Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur n Gjaldkeri félagsins viðurkenndi skattalagabrot Sjómenn óttast um félagið sitt „Svona þekkist hvergi, að æðsti maður félagsins hafi ekki aðgang að skrifstofunni,“ segir einn sjómaður um deilurnar í SVG. Vill herða eftirlitið Ekki er nóg að efna öðru hvoru til átaks til að berjast gegn svartri atvinnustarfsemi að mati Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, heldur þarf eftirlit með slíku, sem og öðrum brotum fyrirtækja, að vera viðvarandi. Í samtali við RÚV segir Vilhjálmur að SA telji að í dag sé svört vinna mun algengari en áður og að hún fari vaxandi í byggingastarfsemi, persónulegri þjónustu og í ferðamannabrans­ anum. Það sé mikilvægt að taka á málinu, en átaksverkefni dugi skammt. „Við sjáum fram á að þetta þurfi að vera viðvarandi starf­ semi. Að við þurfum sífellt að vera að fylgjast með því hvort verið sé að vinna svart eða ekki, hvort fólk sé að taka atvinnuleysisbætur á sama tíma og það er í vinnu. Hvort fólk sé yfir höfuð á launaskrá og þar fram eftir götunum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.