Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Blaðsíða 22
22 Menning 23. janúar 2013 Miðvikudagur
Sjónrænar sögur frá jaðri Evrópu
n Ljósmyndasýningin Borderlines opnuð í Norræna húsinu
L
jósmyndasýningin Borderlines
verður opnuð í Norræna hús-
inu laugardaginn 26. janúar
næstkomandi. Um er að ræða
þverevrópskt verkefni sem tólf lista-
menn frá Íslandi, Lettlandi, Portú-
gal og Tyrklandi unnu að. Ljós-
myndararnir sköpuðu verk út frá
sínu eigin landi og heimsóttu jafn-
framt eitt hinna landanna og unnu
verk út frá þeirri heimsókn.
Fulltrúar Íslands voru þrjár ungar
konur. Hallgerður Hallgrímsdóttir
heimsótti Tyrkland og verk hennar
eru blanda af myndum þaðan og frá
Íslandi. Heiða Helgadóttir kynnti sér
hamingjuna og leit fólks að henni,
bæði á Íslandi og í Portúgal. Valdís
Thor klippti saman myndir af sér og
lettneskum karlmönnum sem bera
sama nafn og hún, eða Valdis.
Löndin sem taka þátt í verkefninu
eru öll staðsett á við jaðar Evrópu og
eiga það það öll sameigin legt að lítil
hefð er þar fyrir ljósmyndun í list-
rænu samhengi.
Tilgangur verkefnisins er meðal
annars að skapa umræðu um sam-
tímaljósmyndun og menntun í ljós-
myndum í löndunum sem um ræð-
ir. Þá er verkefnið einnig hugsað
sem stökkpallur fyrir unga og upp-
rennandi ljósmyndara.
Listræna umsjón með verkefninu
höfðu ljósmyndararnir George
Georgiou og Vanessa Winship.
solrun@dv.is
Ungir listamenn Tólf listamenn frá
fjórum löndum unnu að ljósmynda-
verkefninu.
Upplifun fyrir börnin
n Margt í boði fyrir yngstu kynslóðina í leikhúsunum
Ý
mislegt er í boði fyrir yngstu
kynslóðina í leikhúsunum
um þessar mundir. Full-
orðnir sem fylgja börnum
í leikhúsið fá vissulega líka
eitthvað fyrir sinn snúð enda mikið
lagt í sýningar fyrir yngstu kyn-
slóðina. Börnin eru jú kröfuharð-
ir leikhúsgestir, það er nefnilega
ekki auðvelt fyrir litla rassa að sitja
kyrrir í tvær klukkustundir. Í boði
eru bæði sígild leikverk sem flestir
kannast við og verk sem eru nýrri
af nálinni. Leikhúsferð er yfirleitt
mikil upplifun fyrir börn sem njóta
gleðinnar í lengri tíma á eftir.
Þjóðleikhúsið fagnar 100 afmæli
Thorbjörns Egner með því að setja
á svið tvö af vinsælustu leikritunum
hans, Dýrin í Hálsaskógi og Karíus
og Baktus.
Karíus og Baktus
Flestir kannast við
þá félaga Karíus
og Baktus sem hafa
komið sér vel fyrir í
munninum á honum Jens sem
borðar mikið sælgæti og er ekki
nógu duglegur að bursta tennurnar.
Þegar kemur að því að Jens þarf að
fara til tannlæknis lenda Karíus og
Baktus í töluverðum háska enda
þurfa þeir að glíma við tannbursta
og tannlæknabor. Sagan af þeim fé-
lögum kom fyrst út í bók árið 1949
og hefur lifað góðu lífi síðan.
n Þjóðleikhúsið, Kúlan
n Leikstjóri: Selma Björnsdóttir
n Leikarar: Ágústa Eva Erlendsdóttir og
Friðrik Friðriksson.
Dýrin í
Hálsaskógi
Dýrin í Hálsa-
skógi hafa notið
mikilla vinsælda
á Íslandi en verk-
ið er nú sett upp
í fimmta sinn í Þjóðleikhúsinu.
Verkið var frumsýnt í fyrsta sinn
hér á landi árið 1962 og var þá jafn-
framt fyrsta frumsýning verksins
í heiminum þar sem leikarar fóru
með hlutverkin. Áður hafði verkið
einungis verið flutt í brúðuleik-
húsi. Lilli klifurmús og Mikki refur
hafa náð að heilla kynslóð eftir kyn-
slóð upp úr skónum og verkið nýtur
alltaf jafn mikilla vinsælda þegar
það er sett upp.
n Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið
n Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
n Aðalleikarar: Jóhannes Haukur Jóhann-
esson, Ævar Þór Benediktsson, Ólafía
Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason.
Gulleyjan
Leikritið Gulleyjan er samstarfs-
verkefni Borgarleikhússins og Leik-
félags Akureyrar. Það
var sýnt hátt í fimmtíu
sinnum fyrir fullu húsi
norðan heiða áður
en sýningin var flutt í
borgina síðasta haust.
Gulleyjan er ævintýraleg
sýning fyrir alla fjöl-
skylduna, full af göldrum, gulli, bar-
dögum, blekkingum og kostuleg-
um persónum. Handritið skrifuðu
þeir Sigurður Sigurjónsson og Karl
Ágúst Úlfsson. Tónlist Þorvaldar
Bjarna Þorvaldssonar í leikritinu
var tilnefnd til Grímuverðlaunanna
síðastliðið vor.
n Borgarleikhúsið, Stóra sviðið
n Leikstjóri: Sigurður Sigurjónsson
n Aðalleikarar: Björn Jörundur Friðbjörns-
son, Kjartan Guðjónsson, Þórunn Erna Clau-
sen og Sigurður Þór Óskarsson.
Skoppa og Skrítla
Sýning Skoppu og
Skrítlu hefur slegið
í gegn og verið
sýnd hátt í 200 sinn-
um fyrir fullu húsi í
þremur heimsálfum.
Í sýningunni er fjall-
að um flest það sem leikskólabörn
þurfa að fást við í sínu daglega lífi.
Til dæmis liti, tölur og rím. Allt er
þetta svo tengt töfraheimi leik-
hússins á einhvern hátt en áhorf-
endur eru virkjaðir með söng, dansi
og þrautum. Í verkinu er leitast við
að örva og fræða börn allt frá
níu mánaða aldri á skapandi
hátt.
n Borgarleikhúsið, Litla svið
n Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
n Leikarar: Hrefna Hallgríms-
dóttir, Linda Ásgeirsdóttir og Vigdís
Gunnarsdóttir
Mary Poppins
Söngleikurinn
Mary Poppins
er nú settur
upp á hér á
landi í fyrsta
sinn en verkið
verður frumsýnt þann
22. febrúar næstkomandi.
Áhorfendur fylgjast með Mary
Poppins lífga upp á heimilislífið
í Kirsutrjárunni og breyta grárri
Lundúnaborg í litríkt ævintýri þar
sem sótarar dansa um veggi og
loft. Íslenski dansflokkurinn
gengur til liðs við listamenn
Borgarleikhússins í sýningunni
sem inniheldur stórglæsileg
dansatriði. Tónlistina þekkja allir
og margir bíða eflaust spenntir eftir
því að sjá Mary Poppins lifna við á
íslensku leiksviði í fyrsta sinn.
n Borgarleikhúsið, Stóra sviðið
n Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson
n Aðalleikarar: Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Guðjón Davíð Karlsson, Halldór Gylfason,
Esther Thalía Casey og Sigrún Edda
Björnsdóttir.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Nóttin nærist
á deginum
Nýtt verk eftir leikskáldið Jón Atla
Jónasson verður frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu þann 1. febrúar.
Verkið nefnist Nóttin nærist á
deginum og er byggt á smásögu
sem vann Gaddakylfuna, smá-
sagnasamkeppni DV, í fyrra.
Leikritið fjallar um hjón á
fimmtudagsaldri sem standa
allslaus og ein eftir hrunið. Þau
búa í hálfkláruðu einbýlishúsi
með séríbúð í kjallaranum sem
ætluð var dóttur þeirra þegar
hún kæmi heim úr námi. Eigin-
maðurinn reynir að gera allt sem
hann getur til að halda í draum-
inn um það sem átti að verða.
Jón Atli er eitt af leikskáld-
um Borgarleikhússins, en verk
hans hafa verið sett upp víða um
heim. Tvö þeirra, Brim og Djúp-
ið, hafa verið kvikmynduð.
Listamannsspjall
með Ingólfi
Arnarssyni
Fimmtudaginn 24. janúar næst-
komandi verður listamaðurinn
Ingólfur Arnarsson með leiðsögn
og ræðir við gesti um sýninguna
Teikningar sem nýlega var opnuð
í Sverrissal Hafnarborgar. Á sýn-
ingunni eru teikningar Ingólfs frá
síðustu tveimur árum ásamt röð
fjörutíu teikninga frá árinu 2007
sem mynda eina grátóna heild.
Verk Ingólfs eru sjaldan einangr-
uð fyrirbæri heldur eru þau nánast
undantekningalaust hluti af út-
hugsaðri innsetningu og rými sýn-
ingarstaðarins.
Ingólfur lauk listnámi í Hollandi
snemma á níunda áratug síðustu
aldar og hefur haldið sýningar
bæði hér heima og erlendis. Einka-
sýning var haldin á verkum hans á
Kjarvalsstöðum árið 1996 og í lista-
miðstöðinni Chinati Foundation í
Bandaríkjunum árið 1992.
Skrímsli í þrívídd
Pixar-teiknimyndin Skrímsli hf. kom
sá og sigraði árið 2001. Hún er nú
frumsýnd á nýjan leik í þrívídd. Þar
sem liðin eru 12 ár síðan myndin var
frumsýnd má segja að heil kynslóð
kvikmyndaunnenda hafi vaxið úr
grasi. Myndin höfðar þó ekki síður
til fullorðinna en barna.
Skrímsli hf. fjallar um skrímslin
í Skrímslaborg sem fá orku sína úr
öskrum barna sem hræðast þau.
Vandamálið er hins vegar það að
sum skrímslin í Skrímslaborg eru
líka hrædd við börnin. Sífellt reyn-
ist erfiðara að hræða börn og því
fá skrímslin ekki næga orku. Málin
taka óvænta stefnu þegar lítil stúlka
eltir grænbláa skrímslið Sölmund
inn í Skrímslaborg.
Framhald myndarinnar sem
nefnist Skrímslaháskólinn er vænt-
anlegt í kvikmyndahús næsta sumar.
Skrímsli hf. í þrívídd verður
frumsýnd í Sambíóunum þann 25.
janúar næstkomandi.
Börnin kröfuhörð
Nóg er um að vera fyrir
yngstu kynslóðina.