Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Blaðsíða 6
SENDIR MÁL TENGT SUNDI TIL SÉRSTAKS S kiptastjóri IceCapital, áður Sunds, hefur ákveðið að senda mál tengt þrotabúinu til embættis sérstaks sak- sóknara. Málið snýst um að eigendur fjárfestingafélagsins Sunds, Jón Kristjánsson og Páll Þór Magn- ússon, hafi látið eignarhaldsfélagið yfirtaka 600 milljóna króna skuld eignarhaldsfélags sem var í eigu við- skiptafélaga þeirra, Símonar Sigur- pálssonar, eftir bankahrunið árið 2008. Lánið var upphaflega tilkomið vegna fjárfestingar í stofnfjárbréfum í Byr. Þetta kemur fram í stefnu skiptastjórans, Ómars Arnar Bjarn- þórssonar, gegn Símoni og Mið- búðinni fjárfestingarfélagi ehf., sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavík- ur þann 10. janúar síðastliðinn. Í stefnunni er þess krafist að Sím- on verði dæmdur til að greiða þrota- búi IceCapital 200 milljónir króna til baka en það er sá hluti upphæðar- innar sem hann persónulega fékk lánaða frá IceCapital í nóvember 2007. Til vara er þess krafist að Mið- búðin fjárfestingarfélag verði dæmt til þess að greiða IceCapital þessa fjárhæð. Símon var viðskiptafélagi Jóns og Páls Þórs og sat í stjórnum félaga sem þeir áttu að hluta til eða öllu leyti, meðal annars fasteignafélags- ins D-1 ehf. og fjárfestingarbankans VBS. Um svipað leyti og félag Símon- ar seldi IceCapital bréfin í Byr seldu háttsettir stjórnendur í Byr stofn- fjárbréfin sín í sparisjóðnum inn í einkahlutafélagið Exeter Holdings með láni frá Byr. Þeir Ragnar Z. Guð- jónsson og Jón Þorsteinn Jónsson hafa verið dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik vegna þeirra viðskipta. Þá seldu þeir Jón Kristjánsson og Páll Þór Magnússon einnig bréf sem þeir áttu persónu- lega í Byr um þetta leyti. Orðrétt segir í stefnunni um til- kynninguna á málinu til sérstaks saksóknara: „Rétt er að upplýsa að skiptastjóri mun í samræmi við 84. gr. laga nr. 21/1991 tilkynna emb- ætti sérstaks saksóknara um að hann telji mögulegt að þeir gerningar sem að framan er lýst séu falsaðir og óska eftir rannsókn á því hvort háttsemi þeirra sem undirrita nefnd skjöl feli í sér brot gegn ákvæði 155. gr. laga nr. 1940.“ Tekið skal fram að stjórn Byrs, sem tók við sjóðnum eftir banka- hrunið, sendi einnig ábendingu um þessi viðskipti til sérstaks saksóknara á sínum tíma. „Falsaður málamyndagerningur“ Telur skiptastjórinn að kaupsamn- ingurinn í málinu, þar sem félag Sím- onar seldi IceCapital stofnfjárbréf í Byr fyrir rúmlega 600 milljónir króna, hafi verið falsaður og dagsettur aftur í tímann. Samningurinn er dagsettur 18. ágúst 2008, fyrir bankahrunið, en skiptastjórinn telur að viðskiptin hafi raunverulega átt sér stað þann 10. október 2008, eftir fall allra viðskipta- bankanna þriggja. Um þetta segir í stefnunni: „Á því er byggt af hálfu stefnanda að kaup- samningurinn sem sagður er dag- settur 18. ágúst 2008 sé falsaður málamyndagerningur sem eingöngu var gerður í því skyni aðkoma verð- mætum og fjármunum undan fulln- ustuaðgerðum skuldheimtumanna. [...] Hið rétta er að kaupsamningur- inn var undirritaður 10. október 2008 en ekki 18. ágúst sama ár eins og skjalið sjálft ber með sér. [...] Á því er byggt af hálfu stefnanda að stofnfjárbréfin hafi í raun verið verð- laus hinn 18. október 2008 … Til- gangur fyrirsvarsmanna stefnanda með gerð kaupsamningsins hafi í raun verið tvíþættur. Annars vegar að „hreinsa út skuld“ viðskiptafé- laga síns stefnda Símonar úr bókum stefnanda fyrir gjaldþrot stefnanda. Hins vegar var tilgangurinn sá að losa stefnda, einkahlutafélagið Mið- búðina fjárfestingarfélagið, sem var alfarið í eigu stefnda Símonar, undan lánsskuldbindingum sínum annars vegar við Byr sparisjóð og hins vegar við Landsbankann.“ Símon skuldaði Sundi 190 milljónir Í stefnunni er rakið hvernig IceCapi- tal greiddi Miðbúðinni fyrir stofnfjár- bréfin í Byr sem seld voru. Í fyrsta lagi var um að ræða skuldajöfnun upp á rúmar 200 milljónir króna vegna 190 milljóna króna láns sem Símon hafði fengið í nóvember 2007. Þetta lán var komið upp í rúmar 200 milljón- ir króna um haustið 2008 og krefst skiptastjóri IceCapital þess nú að Símon greiði lánið aftur til búsins. Þá yfirtók IceCapital lán Mið- búðarinnar við sparisjóðinn Byr upp á rúmlega 233 milljónir króna og einnig tæplega 188 milljóna lán frá Landsbanka Íslands. Heildarupp- hæðin í viðskiptunum nam rúmum 600 milljónum króna, líkt og áður segir, og tók IceCapital við þessum skuldbindingum frá félagi Símonar. Meðal þess sem fólst í skuldajöfnun- inni við Símon var í reynd afskrift á skuld hans við félagið þar sem stofn- fjárbréfin í Byr voru orðin verðlítil. Niðurstaðan sem skiptastjórinn kemst að í stefnunni er að viðskipt- in á milli IceCapital og Símonar og Miðbúðarinnar hafi ekki verið gerð á viðskiptalegum forsendum og byggir riftunarkrafa hans meðal annars á því. Orðrétt segir um þetta í stefn- unni: „Það blasir við, hvernig sem á málin er litið, að kaupsamningurinn var afar óhagstæður fyrir stefnanda og byggði ekki á viðskiptalegum forsendum. Skýring þess að fyrir- svarsmenn stefnanda tóku ákvörðun um að kaupa verðlaus stofnfjárbréf í Byr sparisjóði var sú að stefnandi var, á þeim tíma sem kaupin áttu sér stað, þann 10. október 2008, ógjaldfært fé- lag.“ n 6 Fréttir 23. janúar 2013 Miðvikudagur Hjúkrunarfræðingar ósáttir n Ummæli framkvæmdastjóra á Landspítala vekja furðu hjá hjúkrunarfræðingum E lsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, segir að ummæli Jóns Hilmars Friðrikssonar, fram- kvæmdastjóra barna- og kvennasviðs Landspítalans, í Morgunblaðinu á mánudag vera út í hött. Stórt hlutfall hjúkrunarfræðinga á þessum deild- um sagði upp í síðasta mánuði en mikillar reiði gætir meðal hjúkrunar- fræðinga sem telja Jón Hilmar hafa gert lítið úr sérhæfni þeirra og þekk- ingu með að segja að brugðist verði við fjöldauppsögnum hjúkrunar- fræðinga með tilfærslum. Elsa tekur undir þessa reiði fé- lagsmanna sinna og segist hún hafa talið að þeir sem eru í forsvari fyrir sérhæfð svið Landspítalans áttuðu sig betur á þeirri sérþekkingu og sér- hæfni sem þjónusta spítalans er farin að krefjast af hjúkrunarfræðingum. „Þannig að forystumennirnir ættu að átta sig á því að þú færir ekki fólk á milli eins og hver önnur húsgögn og tæki og ætlast til að ná fram sömu þjónustu. Sérhæfnin er orðin það mikil milli sviða, og jafn- vel milli deilda innan sviðanna, að þú getur aldrei fengið jafn mikla og örugga þjónustu með fólki sem ekki er sérhæft eða vant á sviðinu. Þannig að þessi ummæli þessa fram- kvæmdastjóra eru eiginlega bara út í hött,“ segir formaðurinn. Á þriðja hundrað hjúkrunar- fræðinga sögðu upp starfi sínu vegna óánægju með kaup og kjör í byrjun desember og gangi uppsagn- irnar eftir mun stór hluti hjúkrunar- fræðinga hætta í lok næsta mánaðar þegar uppsagnarfresturinn er liðinn. Elsa óttast að það stefni í óefni því eftir því sem lengra líði á uppsagnarfrestinn verði fleiri hjúkr- unarfræðingar búnir að ráða sig annað eða sætta sig við og ákveða að snúa ekki aftur til starfa. n „Stór blettur á þjóðveginum“ Vegagerðin hefur ekki útskýringar á því hvað veldur svokölluðum vetrar- blæðingum á Hringveginum. Segir á vef Vegagerðarinnar að líklegt megi telja að þýða og frost samhliða því að mikið hefur verið saltað og sandbor- ið valdi þessu þó ekkert sé staðfest í þeim efnum. G. Pétur Matthíasson, upplýs- ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að ekki sé vitað hvað þetta ástand kunni að vara lengi. Er vonast til að veðr- ið eigi eftir að hjálpa til við að laga ástandið en Vegagerðin getur ekki hætt að hálkuverja vegi. Á vef Vegagerðarinnar segir að þeir vegfarendur sem lenda í tjóni eða skemmdum á bílnum vegna blæðinganna eigi að setja sig í sam- band við tryggingafélagið Sjóvá og fylla út tjónaskýrslu. Í framhaldinu verður tekin afstaða til bótaskyldu en þá þarf að sanna hvort Vegagerðin beri ábyrgð á tjóninu. Sé bíllinn hins vegar verulega óhreinn vegna tjöru sem sest hefur á hann er mögulegt að fá beiðni fyrir þrifum hjá Vegagerðinni. Fara þarf á næstu starfstöð Vegagerðarinnar og láta skoða bílinn. Arnar Guðmundsson vörubíl- stjóri ekur mjög oft þessa leið. „Leif- arnar eru frá Kollafirði og alveg niður í Hörgárdal. Þannig að þetta er orðin ansi stór blettur á þjóðveginum,“ seg- ir Arnar. „Þetta var svakalega slæmt í gær (mánudag), eins og að fara upp stóru Giljá og inn Langadalinn. Þetta fer bara strax í dekkin. Um leið og þau hitna þá rifnar þetta upp.“ Hann segir þessar leifar kastast í allar áttir og veit um nokkur tilvik þar sem þetta hefur valdið tjóni. „Þetta er alveg pottþétt eitthvað sem fer í gegnum framrúðu og beyglar bíla,“ segir Arnar. Hann segir blæðingarnar vera slæmar frá Hvammstanga afleggjara og inn að Akureyri. Tryggingafélagið Sjóvá er með samning við Vegagerðina og eiga þeir sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni að setja sig í samband við tryggingafé- lagið. Guðmundur Magnússon hjá Sjóvá segir enga niðurstöðu vera komna í málið hvað varðar ábyrgð á tjóni. „Við köllum eftir upplýsing- um um það sem snýr að málinu og það er ekkert sem liggur fyrir enn- þá. Vegagerðin gefur okkur upplýs- ingar og við förum yfir þær. Þetta er mjög sérstakt mál og þarf að fara vel í saumana á því,“ segir Guðmundur. „Það blasir við, hvernig sem á mál­ in er litið, að kaupsamn­ ingurinn var afar óhag­ stæður fyrir stefnanda og byggði ekki á viðskipta­ legum forsendum. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is n Félag viðskiptafélaga Sundaranna losnaði undan 600 milljóna skuld Til saksóknara Skiptastjóri þrotabús IceCapital, áður Sunds, hefur sent viðskipti félagsins við fjárfestingarfélagið Miðbúðina til sérstaks saksóknara. Jón Kristjánsson var stjórnarformaður og einn af eigendum Sunds. Stefnir í óefni Á þriðja hundrað hjúkrunarfræðinga sögðu upp störfum í byrjun desember. Vandinn er ekki leystur. Vilja breyta nafni Samfylk- ingarinnar Þær Jóhanna Sigurðardóttir, for- maður Samfylkingarinnar, og Mar- grét S. Björnsdóttir, formaður fram- kvæmdastjórnar flokksins, vilja breyta nafni Samfylkingarinnar og munu leggja fram tillögu þess efnis á landsfundi flokksins nú í byrjun febrúar. Margrét og Jóhanna vilja að flokkurinn heiti Samfylkingin - Jafnaðarmannaflokkur Íslands. Nafnið beri í kjölfarið að rita sem slíkt í lög flokksins þar sem það kemur fyrir. Í greinargerð tillögunnar kemur fram að þegar að Samfylkingin var stofnuð árið 2000, á grunni fjögurra stjórnmálahreyfinga, var leitast við að finna nafn sem gæfi ekki til kynna yfirtöku einhverra þessara fylkinga heldur jafnræði allra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.