Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2013, Page 12
O pinberir starfsmenn í Taílandi hafa stundað skipulögð viðskipti með flóttamenn sem komið hafa til landsins frá nágranna- ríkinu Búrma. Þetta leiðir rannsókn, sem fréttamenn breska ríkisútvarps- ins, BBC, hafa unnið að undanfarnar vikur, í ljós. Átök í Búrma hafa orðið til þess að þúsundir einstaklinga af Rohingya- þjóðarbrotinu hafa flúið land undan- farna mánuði en verst hafa átökin verið í Rakhine-héraði á vesturströnd Búrma. Fjölmargir flóttamenn hafa farið með bátum yfir Andaman-haf til nágrannaríkisins Taílands í von um betra líf. Samkvæmt umfjöllun BBC eru þær vonir þó í sumum til- fellum byggðar á sandi. Oftar en ekki hefur taílenska strandgæslan hendur í hári þessara flóttamanna og til eru dæmi þess að umræddir flóttamenn séu seldir í hendur mansalsmanna í Malasíu. Yfirvöld í Taílandi segjast líta ásakanirnar alvarlegum augum og hafa lofað að rannsókn fari fram. 13 daga á siglingu Í nóvember síðastliðnum ákvað sjó- maðurinn Ahmed, átta barna faðir, að yfirgefa átökin í héraðinu. Fisk- veiðibátur hans hafði eyðilagst í átök- um milli Rohingya-þjóðarbrotsins og Rakine-búddista á vesturströndina og vonaðist Ahmed til að fá vinnu í Taílandi. Hann kvaddi eiginkonu sína og hélt af stað ásamt 60 öðrum af sama þjóðarbroti yfir Andaman- haf. Eftir 13 daga siglingu, eða þegar líða fór að lokum ferðarinnar, kom taílenska strandgæslan auga á bátinn og voru allir flóttamennirnir um borð handteknir. Ahmed taldi að þar með væri möguleikinn úti og hann yrði sendur aftur rakleiðis til baka. Raun- in varð þó önnur. Þetta kvöld voru flóttamennirnir færðir í nokkra flutningabíla þar sem þeir voru bundnir niður og vandlega faldir. Við tók löng bílferð í suður í átt til Malasíu og endaði ferðin síð- an í bænum Su Ngai Kolok sem er í Malasíu við landamærin að Taílandi. „Lyktin var hræðileg“ „Þeir grófu fyrir okkur holur sem við áttum að nota sem klósett. Við borðuðum, sváfum og gerðum þarf- ir okkar á sama staðnum,“ segir Ah- med um staðinn sem flóttamennirn- ir voru fluttir til. „Lyktin var skelfileg. Þeir börðu mig með járnstöngum og keðjum,“ segir hann. Samkvæmt umfjöllun BBC höfðu misyndismennirnir keypt flótta- mennina og eina markmiðið var að græða á þeim. Ahmed og hinir í hópnum fengu að hringja í fjöl- skyldur sínar og óska eftir aðstoð. Ef þeir gætu útvegað peninga fengju þeir að fara – annars ekki. „Sá sem hafði milligöngu um viðskiptin sagði að hann hefði keypt okkur af lög- reglunni. Hann sagði að ef við mynd- um ekki skila þeim hagnaði fengjum við ekki að fara. Hann sagði sig engu skipta þótt við dæjum,“ segir hann. Til að sleppa þurfti Ahmed að safna sem samsvarar rúmum 160 þúsund krónum. Hann hringdi í eiginkonu sína og sagði henni frá aðstæðum sínum. Hún brá á það ráð að selja nautgrip í eigu fjölskyldunnar og dugði það fyrir helmingnum af upp- hæðinni. Vini Ahmeds sem búsettur er í Taílandi tókst að skrapa restinni saman og var Ahmed leyft að fara eft- ir að hafa verið rúman mánuð í haldi. Ætla að rannsaka málið Veðurskilyrði á Andaman-hafi eru hagstæð þessa dagana og því streyma fjölmargir flóttamenn yfir hafið í átt til Taílands. Örlög 73 manna hóps sem tekinn var hönd- um við komuna til Taílands þann 2. janúar síðastliðinn urðu þau sömu og hjá fyrri hópnum. BBC staðfesti að aðilar í Malasíu hefðu greitt emb- ættismönnum í Taílandi sem sam- svarar 6,4 milljónum króna fyrir hópinn. Fólk af Rohingya-þjóðarbrotinu er ekki með ríkisborgararétt í Búrma þrátt fyrir að hafa búið á svæðinu frá örófi alda. Farið var með upplýs- ingarnar sem BBC aflaði í utanrík- isráðuneyti Taílands og hét ráðu- neytið því að rannsaka málið. „Við getum fullvissað ykkur um að við munum komast til botns í þessu,“ hefur BBC eftir embættismanni í ráðuneytinu. n FLÓTTAMENN TIL SÖLU FYRIR SLIKK 12 Erlent 23. janúar 2013 Miðvikudagur Bretar aðstoði við áfrýjun n 56 ára amma dæmd til dauða n Mannréttindasamtök ósátt L indsay June Sandiford, 56 ára bresk amma, hefur verið dæmd til dauða í Indónesíu fyrir að smygla 4,7 kílóum af kókaíni til landsins. Dómurinn hefur vakið furðu margra, meðal annars mann- réttindasamtaka, enda fóru sak- sóknarar í málinu fram á fimmtán ára fangelsisdóm. Sandiford var stöðvuð á flugvellinum í Balí í maí síðastliðnum þar sem efnin fundust. „Niðurstaðan kom okkur á óvart því okkur grunaði aldrei að hún fengi dauðadóm,“ sagði settur verj- andi Sandiford, Ezra Karo Karo, eft- ir dómsuppkvaðninguna. Dómar- ar ákváðu hámarksrefsingu vegna þess að Sandiford sýndi enga iðrun vegna smyglsins. Verjandi hennar gagnrýnir dómarana hins vegar fyrir að taka ekki tillit til þeirra aðstæðna sem Sandiford var í. Hún hefði fallist á að smygla fíkniefnunum fyrir menn sem hótuðu að vinna fjölskyldu hennar mein. Bresku mannréttinda- samtökin Reprieve, sem láta sig mál- efni fanga um víða veröld varða, segja í yfirlýsingu að dómurinn gangi allt of langt. „Hún hefur staðfastlega haldið því fram að hún hafi gert þetta af ótta um öryggi fjölskyldu sinnar. Hún er augljóslega enginn fíkniefna- mógúll enda hefur hún ekki efni á lögmanni, ferðakostnaði mögulegra vitna eða jafnvel á nauðsynjavörum eins og mat og drykkjarvatni,“ segja samtökin. Þá hafi hún verið sam- vinnufús við rannsókn málsins en þrátt fyrir það fengið hámarksrefs- ingu og á meðan gangi mennirnir sem stóðu fyrir smyglinu lausir. „Það er mikilvægt að bresk yfirvöld geri allt sem þau geta til styðja við bakið á henni og aðstoði hana við að áfrýja málinu til æðra dómstigs,“ segja sam- tökin en að óbreyttu verður Lindsay leidd fyrir aftökusveit. einar@dv.is „Við borðuðum, sváfum og gerð- um þarfir okkar á sama staðnum. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is n Yfirvöld í Taílandi sökuð um mansal n Ásakanir litnar alvarlegum augum Átökin í Rak- hine-héraði n Grunnt hefur verið á því góða á milli Rakhine-búddista og Rohingya- múslíma í langan tíma. Mikil átök blossuðu upp í maí síðastliðnum þegar ungri konu sem tilheyrir Rakhine- búddistum var nauðgað og hún síðan myrt. Talið er að vegna átakanna undanfarna mánuði hafi allt að 100 þús- und Rohingya-múslímar yfirgefið heimili sín og fjölmargir af þeim flúið land. Tala látinna er á reiki en ekki þykir ólíklegt að þúsundir hafi týnt lífi í átökunum. Rohingya-hópurinn er ekki viðurkenndur af yfirvöldum í Búrma og ekki heldur í Bangladess þar sem stór hópur hefst einnig við. Vilja yfirvöld í Búrma meina að Rohingya-múslímar séu ekkert annað en ólöglegir innflytjendur frá Indlandi og öðrum nágrannaríkjum Búrma. Þjóðarmorð Fjölmargir af Rohingya-þjóðarbrotinu hafa látist í átökunum. Hér sést einn úr hópnum sem búsettur er í Malasíu mótmæla þjóðarmorði á fólki af sama þjóðarbroti. MYND REUTERS Laminn Ahmed sýnir hér áverka sem hann hlaut eftir að hafa verið barinn með járnstöngum og járnkeðjum. Sendu flug- vélar eftir þegnum Rússnesk yfirvöld sendu á mánu- dag tvær flugvélar til Sýrlands til að flytja heim um það bil hundrað rússneska ríkisborgara sem þar eru. Ástæðan er það eld- fima ástand sem nú er í Sýrlandi en uppreisnarmenn, sem berjast gegn stjórn Bashar Assad Sýr- landsforseta, hafa gefið það út að rússneskir ríkisborgarar séu „réttmæt skotmörk“ vegna stuðn- ings Rússa við Sýrlandsstjórn. Stjórnmálaskýrendur telja þó að ákvörðun Rússa beri þess merki að þeir hafi ekki lengur trú á að Assad forseti sé rétti maðurinn til að koma á friði í landinu. Þrátt fyrir mikinn þrýsting heima fyrir ætlar Assad ekki að segja af sér embætti. Hann hefur þó lofað að nýjar kosningar verði boðaðar innan skamms og fólki verði gefið færi á að kjósa samhliða um nýja stjórnarskrá. Samkvæmt upplýs- ingum Sameinuðu þjóðanna hafa yfir 60 þúsund manns fallið í átök- unum í landinu síðan í mars 2011. Þjófar teknir af lífi í Íran Tveir karlmenn sem gerðust sekir um þjófnað á götu úti í Íran í nóv- ember síðastliðnum voru teknir af lífi á sunnudag. Upptaka náðist af því þegar mennirnir sem voru á mótorhjólum, óku upp að vegfar- anda, hótuðu honum með hnífi og tóku af honum jakka, tösku og reiðufé. Myndbandið rataði síðan á myndbandavefinn Youtube en fórn- arlambið meiddist ekki. Bandaríska blaðið Los Angeles Times greindi frá því á miðvikudag að mennirnir hefðu verið hengdir úti á götu í mið- borg Tehran af viðstöddum áhorf- endum. Eru aftökurnar sagðar vera til marks um meiri hörku yfirvalda í baráttu gegn götuglæpum sem hafa aukist nokkuð samhliða versnandi efnahagsástandi. Ætlaði að myrða fleiri Fimmtán ára drengur, Nehemiah Griego, sem skaut foreldra sína og þrjú systkini til bana í Nýju- Mexíkó um helgina ætlaði að myrða fleiri. Þetta kemur fram í lögregluskýrslum málsins sem bandarískir fjölmiðlar fjölluðu um á miðvikudag. Samkvæmt þeim var drengurinn búinn að hlaða hríð- skotariffil sinn á ný og sagðist hann við yfirheyrslur hafa ætlað að fara á „fjölfarinn stað“ og skjóta handa- hófskennt á vegfarendur. Þegar lög- regla kæmi á staðinn sagðist hann hafa hugsað sér að skiptast á skot- um og falla loks fyrir kúlum lög- reglunnar. Þær áætlanir fóru út um þúfur þegar hann sendi kærustu sinni mynd af látinni móður sinni. Hafði stúlkan samstundis samband við lögreglu sem kom á vettvang og handtók drenginn. Dauðadæmd Saksóknarar fóru fram á 15 ára fangelsi en dómarar dæmdu hana engu að síður til dauða. MYND REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.