Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Page 4
S
ími Einars Sveinssonar, fjár
festis og fyrrverandi stjórn
arformanns Íslandsbanka
og Sjóvár, var hleraður í
tengslum við rannsókn
ir sérstaks saksóknara. Nafn Einars
tengist rannsóknum embættisins
á viðskiptum eignarhaldsfélagsins
Vafnings en hann var einn af hlut
höfum félagsins. Lárus Welding og
Guðmundur Hjaltason voru ákærð
ir og dæmdir í Vafningsmálinu í
fyrra og gaf Einar vitnaskýrslu í Hér
aðsdómi Reykjavíkur um vitneskju
sína í málinu. Þar að auki gaf Ein
ar skýrslu hjá embætti sérstaks sak
sóknara þegar Vafningsmálið var til
rannsóknar.
Aðkoma Einars að viðskiptum
Vafnings var ekki mikil en fléttan
snérist um endurfjármögnun á
hlutabréfum eignarhaldsfélagsins
Þáttar International í Glitni, áður
Íslandsbanka, í febrúar árið 2007.
Líkt og Einar greindi frá fyrir dómi
var hann staddur erlendis þegar
Glitnir endurfjármagnaði hlutabréf
Þáttar International í Vafningi. Ein
ar undirritaði því umboð sem hann
sendi með rafrænum hætti til Ís
lands en samkvæmt því var Bjarna
Benediktssyni, syni bróður Einars
og formanni Sjálfstæðisflokksins,
veitt heimild til að veðsetja hluta
bréf hans í Vafningi fyrir láninu frá
Glitni sem notað var í endurfjár
mögnuninni.
Bjarni fær svör um símhleranir
Einar Sveinsson er því einn af þeim
aðilum sem embætti sérstaks sak
sóknara hefur hlerað símann hjá
síðastliðin ár. Í svari Ögmundar
Jónassonar innanríkisráðherra við
fyrirspurn áðurnefnds Bjarna Bene
diktssonar um fjölda símhlerana
á Íslandi frá bankahruninu 2008
kom fram að embætti sérstaks sak
sóknara hefði beðið um heimild til
að hlera síma 116 sinnum frá árinu
2009. Héraðsdómar landsins sam
þykktu allar 116 beiðnir sérstaks
saksóknara til símhlerana. Beiðn
in um að hlera síma Einars Sveins
sonar hefur verið þar á meðal.
Allir voru látnir vita
Í öllum tilfellum sem símar sak
borninga og vitna voru hleraðir hjá
embætti sérstaks saksóknara var
þeim aðilum sem hlerað var hjá til
kynnt um það að hlerunum lokn
um. Yfirleitt liðu nokkrir mánuðir,
frá fjórum til tólf, frá því að hlerun
um lauk og þar til þeim aðilum sem
hlerað hafði verið hjá var tilkynnt
um það. Einari hefur því verið til
kynnt um símhleranirnar líkt og öll
um öðrum sem lentu í þeim vegna
rannsókna sérstaks saksóknara.
Í svari Ögmundar við fyrirspurn
Bjarna kom fram að í heildina hefðu
héraðsdómum landsins borist 868
beiðnir um hleranir frá löggæslu
yfirvöldum og rannsóknaraðilum
á tímabilinu 2008 til 2012 og var
einungis sex af þessum beiðnum
hafnað. n
Sími EinarS
hlEraður
4 Fréttir 1.-3. mars 2013 Helgarblað
„Þetta er gríðarlegt áfall“
n Forstjóri þvertekur fyrir að um falsanir hafi verið að ræða
V
ið tökum þetta grafalvarlega og
erum að fara ofan í hvern ein
asta þátt,“ segir Guðjón Brjáns
son, forstjóri Heilbrigðisstofn
unar Vesturlands á Akranesi, um mál
Hlédísar Sveinsdóttur. Dóttir hennar,
Sveindís Helga, fæddist á sjúkrahúsinu
fyrir tveimur árum og varð fyrir mikl
um heilaskaða vegna vanrækslu og
gáleysis starfsmanna heilbrigðistofn
unarinnar. Hlédís er þó reiðust yfir við
brögðum starfsmannanna í kjölfarið.
Mikils ósamræmis gætir í skýrslum og
öðrum gögnum um fæðinguna og tel
ur hún að reynt hafi verið að fegra mál
ið til að firra sjúkrahúsið ábyrgð.
Guðjón gaf út yfirlýsingu vegna
fjölmiðlaumfjöllunar um mál Hlédísar
fyrr í vikunni en þar tekur hann fyrir að
gögn hafi verið fölsuð eða þeim með
ásetningi breytt á einhvern hátt.
Guðjón segir að sjúkrahúsið hafi
á síðustu misserum skerpt á ýms
um atriðum og að sú vinna hafi ver
ið komin af stað áður en Sveindís
fæddist. Hann vill ekki gefa upp hverju
hefur verið breytt en segir að það verði
kunngjört fljótlega.
„Það voru þarna gerð mannleg mis
tök. Tæknin var í lagi og þetta átti að
vera hægt að sjá fyrir, en það var ekki
gert og við viljum ekki skella skuldinni
á neinn. Fyrst og fremst viljum við læra
af þessu og tryggja aðstöðuna betur og
sem allra best.“ Guðjón bendir þó á að
ekkert sé algjörlega fyrirsjáanlegt í líf
inu og alls ekki við þessar aðstæður.
„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir ljós
mæðurnar sem eru búnar að starfa
hérna í tugi ára. Við viljum ekki að
svona gerist nokkurs staðar, nokkurn
tíma aftur.“ n
n Bjarni Ben lagði fram fyrirspurn um símhleranir á Alþingi
Hleraður Einar Sveinsson lenti í því, ásamt á annað hundrað öðrum aðilum sem tengjast
rannsóknum sérstaks saksóknara, að síminn hans var hleraður.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Spurði um hleranir Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk svör við
fyrirspurn sinni um símhleranir í vikunni.
Akranes Guðjón, forstjóri Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands, vill ekki gefa það
upp strax hverju hefur verið breytt síðan
Sveindís fæddist.
Framsóknarmenn
halda málþing
Frambjóðendur Framsóknar
flokksins í komandi alþingiskosn
ingum blása í dag, föstudag, til
málþings um Ólaf Jóhannesson,
sem forðum var formaður flokks
ins. Á málþinginu mun Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður
flokksins, flytja hátíðarávarp, Páll
Pétursson, fyrrverandi þingmaður
og ráðherra Framsóknarflokksins,
flytja framsögu undir heitinu Leið
togi og landsfaðir og Ágúst Þór
Árnason, formaður lagadeildar
Háskólans á Akureyri, flytja fram
sögu undir heitinu „Stjórnarskrár
hugmyndir Ólafs Jóhannessonar“.
Málþingsstjóri verður Vigdís
Hauksdóttir, alþingismaður í
Reykjavík. Málþingið er haldið í til
efni af 100 ára fæðingardegi Ólafs
en það fer fram að Suðurlands
braut 24 á milli klukkan 17 og 19.
Styrkja
RIFF áfram
Reykjavíkurborg ætlar að styrkja
Reykjavík International Film Festi
val, eða RIFF, um níu milljónir
króna í ár. Áður hafði verið ákveðið
að hætta að styrkja kvikmynda
hátíðina. Eins og DV greindi frá
hefur menningar og ferðamálaráð
Reykjavíkurborgar farið með skýrslu
eftirlitsnefndar um kvikmynda
hátíðina sem trúnaðarmál. Hátíðin
er fjármögnuð að mestu leyti með
styrkjum, meðal annars frá Reykja
víkurborg, en af um 56 milljóna
króna tekjum hátíðarinnar árið
2011 voru 40 milljónir tilkomnar
vegna styrkveitinga. Hátíðin hefur
verið haldin síðastliðin níu ár en
á henni eru sýndar kvikmyndir
víða að úr heiminum og koma
leikarar og leikstjórar gjarnan hing
að til lands í tengslum við hátíðina.
Framkvæmdastjóri hátíðarinnar er
Hrönn Marinósdóttir sem jafnframt
er eini eigandi og stjórnarmaður
rekstrarfélags hátíðarinnar, Alþjóð
leg kvikmyndahátíð í Reykjavík ehf.
Á hverju ári hefur Reykjavíkurborg
styrkt hátíðina um 8 til 9 milljónir
króna en hátíðin hefur einnig fengið
styrki frá öðrum aðilum, til dæmis í
gegnum menntamálaráðuneytið.