Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2013, Síða 3
É
g er ekki viss um að það taki
stuttan tíma að mynda ríkis
stjórn Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks. Það eru
mörg erfið mál sem á eftir að
semja um og það gæti tekið nokkurn
tíma að ganga frá þeim, segir Grét
ar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórn
málafræði við Háskólann á Akur
eyri, um stjórnarmyndunarviðræður
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. For
menn flokkanna lögðu spilin á borðin
um helgina og mun væntanlega draga
til tíðinda á næstu dögum. „Það liggur
fyrir að Sigmundur Davíð Gunnlaugs
son, formaður Framsóknarflokks
ins, setur það sem skilyrði að skulda
vandi heimilanna verði leystur. Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð
isflokksins, setur skattalækkanir á
oddinn og hvernig styrkja megi stoðir
atvinnulífsins en skattlækkanir á fyr
irtæki eru hluti af þeim pakka.“
Útdeiling ráðherraembætta
Grétar Þór segir að ef Framsókn nái
fram hugmyndum sínum um hvern
ig leysa megi skuldavandann sé það
spurning hvað Sjálfstæðisflokkurinn
fái fyrir sinn snúð. „Maður veit ekki
hvernig þessir menn hafa notað tí
mann í síðustu viku en ég held að
stjórnarmyndunarviðræður séu ekki
eitthvað sem menn leysa á örfáum
dögum. Þegar menn hafa náð saman
um málefnin þá tekur við að úthluta
ráðuneytum. Hingað til hafa þungu
ráðuneytin verið forsætis, fjármála
og utanríkis ráðuneyti. Síðasta ríkis
stjórn bjó til tvö súperráðuneyti, inn
anríkis og velferðarráðuneyti en ég
hef á til finningunni að þau ráðuneyti
ásamt umhverfisráðuneytinu séu ekki
efst á óskalistanum hjá Framsókn og
Sjálfstæðisflokki.“ Bjarni Benediksson
sagðist í fréttum á sunnudag ekki gera
kröfu um forsætisráðherraembættið.
„Mér finnst það líklegt að ef Fram
sóknarflokkurinn fær forsætisráðu
neytið þá vilji sjálfstæðismenn fá
fjármála og utanríkisráðuneytið.
Niðurstaðan af ráðherrakaplinum tel
ég ráðast af því hvað hvorum flokki
um sig tekst að koma mörgum af sín
um málefnum inn í stjórnarsáttmál
ann. En menn verða að hafa í huga
að útdeiling ráðherraembætta hefur
alltaf skipt miklu máli í stjórnar
myndunarviðræðum á Íslandi. Ís
lenskir pólitíkusar hafa alltaf lagt
mikið upp úr því hvaða ráðuneyti þeir
fá og það eru engin teikn á lofti um að
það hafi breyst,“ segir Grétar Þór .
Bjartsýnir fótgönguliðar
Sigmundur Davíð og Bjarni
Benedikt sson hófu formlegar við
ræður um myndun ríkisstjórnar
á sunnudag. Ekki fékkst uppgefið
hvar þeir funduðu. Á meðan for
mennirnir ráða ráðum sínum ríkir
bjartsýni meðal flokkssystkina þeirra
um myndun ríkisstjórnar flokkanna
tveggja. Þeir þingmenn innan Sjálf
stæðisflokks og Framsóknarflokks
sem DV ræddi við sögðust bíða þolin
móðir meðan á viðræðunum stendur
og almennt væri góð stemning í her
búðum þeirra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, varafor
maður Framsóknarflokksins, sagðist
ekki vilja tjá sig mikið um viðræðurnar
en sagðist treysta formönnum flokk
anna fullkomlega til að leiða málið til
lykta.
Verða að fá svigrúm
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing
maður Sjálfstæðisflokksins, sagð
ist ekki ætla að spá mikið og
spekúlera í stjórnarmyndunarvið
ræðunum á þessu stigi. Það verði
að gefa formönnunum einhverja
daga til að mynda ríkisstjórn. Í sama
streng tók Ragnheiður Ríkharðsdótt
ir, flokksystir hennar. „Það verður að
gefa þeim svigrúm til að ræða saman
næstu daga.“ DV náði ekki sambandi
við Kristján Þór Júlíusson, annan
varaformann Sjálfstæðisflokksins,
en hann sagði í samtali við Vikudag
á Akureyri að hann telji góð líkindi til
að flokkarnir nái saman í viðræðum
um samstarf í ríkisstjórn og á Alþingi
um þau fjölmörgu verkefni sem bíða
á vettvangi stjórnmálanna.
„Næsta kjörtímabil verður enginn
dans á rósum, sérstaklega að því er
lýtur að ríkisfjármálum, og því afar
brýnt að flokkarnir vandi sig og gefi
sér þann tíma sem þarf til að stilla
saman strengi sína fyrir þau átök
sem bíða við úrlausn erfiðra við
fangsefna,“ sagði Kristján. n
SPARISJÓÐIRNIR
BLÓÐMJÓLKAÐIR
Fréttir 3Mánudagur 6. maí 2013
Hefur skilað 430 milljónum króna
n Álfurinn er mikilvægur þáttur í fjáröflun SÁÁ n Barna- og fjölskyldudeild byggð upp
H
in árlega fjársöfnun SÁÁ hefst
í dag og stendur til 12. maí. Að
þessu sinni verður Álfurinn
seldur til að byggja upp starf
semi barna og fjölskyldudeildar
SÁÁ. Frá því að sala á honum hófst
árið 1990 hafa hreinar tekjur sam
takanna vegna hans verið um 430
milljónir króna og hann verið mikils
verðasti þátturinn í fjáröflun samtak
anna. Þessir fjármunir hafa staðið til
dæmis undir uppbyggingu unglinga
deildarinnar að Vogi, starfsemi fjöl
skyldumeðferðarinnar og gert SÁÁ
fært að þróa úrræði fyrir börn alkó
hólista, ungmenni og fjölskyldur.
Á vef SÁÁ kemur fram að sölu
hagnaður af Álfinum renni til barna
og fjölskyldudeildar SÁÁ. Hann mun
standa undir öflugu forvarnarstarfi
til handa þeim börnum og ungmenn
um sem eru í mestri hættu vegna
áfengis og vímuefnaneyslu, stuðn
ingi við foreldra ungmenna sem
eru í vanda, eflingu foreldrahæfni
ungra foreldra og öðrum úrræðum
til styrktar ungmennum og fjölskyld
um í vanda.
„Nýjar rannsóknir staðfesta mikla
fjölskyldulægni áfengis og vímu
efnasýki. Til að draga úr þeim skaða
sem sjúkdómurinn hefur á einstak
linga og fjölskyldur er því brýnt að
uppfræða sem fyrst þau börn og
ungmenni sem eru í mestri áhættu;
styðja vel við bakið á foreldrum sem
eiga ungmenni í áfengis eða vímu
efnavanda; bjóða ungmennun
um upp á góða meðferð og öfluga
virkniþjálfun sem hjálpar þeim að
verða virk í námi og starfi; aðstoða
unga foreldra sem hafa náð tökum
á neyslu sinni; og veita ungum fjöl
skyldum og fjölskyldum ungmenna
öflugan stuðning með öðrum hætti,“
segir í umfjöllun á vef SÁÁ.
Samtökin hafa í tólf ár rekið sér
staka unglingameðferð sem hefur
skilað miklum árangri. Næsta skrefið
í uppbyggingu þessarar meðferðar er
að styðja enn betur við bakið á ung
mennunum þegar meðferðinni lýk
ur og styrkja þau félagslega; ekki síst
með öflugri fjölskyldumeðferð. n
n Feðgar högnuðust á eigin lagabreytingum n Lagavaldið misnotað í þágu sérhagsmuna
Í hnotskurn
21. júní 1985 Matthías Á. Mathiesen,
viðskiptaráðherra og stjórnarformaður
Sparisjóðs Hafnarfjarðar, átti frumkvæði
að lagasetningu sem tryggði stofnfjár-
eigendum lífeyrissjóða rétt til ágóða af
rekstrarafgangi sparisjóðanna.
28. apríl 1993 Ný heildarlög um
viðskiptabanka og sparisjóði voru sett
og veittu stofnfjáreigendum beinan rétt
til arðgreiðslu auk réttar á verðtryggingu
og arði af innborguðu stofnfé ofan á
verðtrygginguna.
21. desember 1999 Finnur Ingólfsson
viðskiptaráðherra átti frumkvæði að
lagasetningu sem breytti Tryggingasjóði
sparisjóðanna í öryggissjóð. Fulltrúar
stofnfjáreigenda skipuðu í stjórn sjóðsins
sem átti meðal annars að hafa eftirlit með
arðgreiðslum og rekstri stofnfjáreigend-
anna sjálfra.
18. maí 2001 Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra átti frumkvæði að laga-
setningu sem veitti heimild til að breyta
sparisjóðum í hlutafélög. Lögin tryggðu
stofnfjáreigendum sparisjóðanna rétt til að
seilast í varasjóði þeirra, sjóði sem áður var
ráðstafað til samfélagsmála og í þágu íbúa
hvers sveitarfélags. Jafnframt heimiluðu
þau sparisjóðum að greiða út arð þrátt fyrir
taprekstur.
28. júní 2002 Fimm stofnfjáreigendur
í SPRON gerðu kauptilboð í sjóðinn og
vildu sameina hann Búnaðarbankanum.
Á meðal fimmmenninganna voru Pétur
H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, og Gunnlaugur M. Sigmundsson,
þáverandi framkvæmdastjóri Kögunar og
faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Fjármálaeftirlitið stöðvaði kaupin.
13. desember 2002 Valgerður Sverr-
isdóttir viðskiptaráðherra átti frumkvæði
að nýjum heildarlögum um fjármálafyrir-
tæki þar sem ekkert bann var lagt við sölu
stofnfjárbréfa til þriðja aðila á yfirverði, en
deilt hafði verið um það hvort setja ætti
á slíkt bann. Þá voru heldur ekki settar
takmarkanir á arðgreiðslur til stofnfjár-
eigenda, heldur staða þeirra tryggð enn
betur.
24. júní 2005 Árni Mathiesen,
fjármálaráðherra og sonur Matthíasar Á.
Mathiesen, seldi stofnfé sitt í Sparisjóði
Hafnarfjarðar fyrir fimmtíu milljónir.
Verðið var svona hátt ekki síst vegna þess
að nýir eigendur höfðu rétt til að seilast í
varasjóðinn samkvæmt lögum Valgerðar
Sverrisdóttur sem Árni hafði sjálfur greitt
atkvæði með á þingi.
4. október 2007 Byr tók á sig
endanlega mynd. Niðurstaðan var sú
að fjórir sparisjóðir, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, Sparisjóður vélstjóra, Sparisjóður
Kópavogs og Sparisjóður Norðlendinga
urðu að Byr.
Apríl 2008 Stofnfjáreigendur Byrs
greiddu sér 13 milljarða arð úr varasjóð-
inum.
21. mars 2009 Fjármálaeftirlitið tók
yfir rekstur SPRON og skipaði skilanefnd
yfir bankann.
23. apríl 2010 Fjármálaeftirlitið tók yfir
starfsemi Byrs og Sparisjóðsins í Keflavík.
Mikilvæg söfnun
Söluhagnaður mun að
þessu sinni renna til
barna- og fjölskyldu-
deildar SÁÁ. Gunnar
Smári Egilsson er
formaður SÁÁ.
Viðræðurnar gætu
dregist á langinn
n Segir Bjarna líklega gera kröfu um fjármála- og utanríkisráðuneyti
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
blaðamaður skrifar johanna@dv.is
Framsóknarforsætisráðherra „Menn
verða að hafa í huga að útdeiling ráðherra-
embætta hefur alltaf skipt miklu máli í
stjórnarmyndunarviðræðum á íslandi,“ segir
Grétar Þór Eyþórsson.
„Verða að fá
svigrúm til
að mynda stjórn
Reyna að ná saman
Bjartsýni ríkir í þing-
flokkum Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks um að
Sigmundi Davíð og Bjarna
Benediktssyni takist að
mynda ríkisstjórn.