Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2013, Blaðsíða 20
Þ
að er klisjulegt með afbrigðum
að tala um gríðarlega spennu
í botnbaráttu í öllum kepp nis
íþróttum en fátt annað á við
um þá stöðu sem uppi er í ensku úr
valsdeildinni eftir leiki helgarinnar.
Tvö félagslið, Reading og QPR eru
þegar fallin, en fræðilega eiga hvorki
færri en átta önnur lið á hættu að bæt
ast í þann hóp.
Það segir kannski alla söguna um
enska boltann þessa leiktíðina að ívið
meiri spenna er á botninum en ofar á
töflunni þar sem Manchester United
hefur fyrir löngu tryggt sér enska tit
ilinn og það með svo miklum mun
að spennustigið hefur verið við núll
punkt.
En leðjuslagurinn við botninn
er skemmtilegur. Ein átta félagslið
geta orðið þriðja liðið sem fellur um
deild að þessu sinni. Allt frá Stoke
City í ellefta sætinu og niður til Wig
an sem situr eins og stendur í síðasta
fallsætinu. Önnur félög sem þurfa að
hafa fyrir því að koma sér í skjól í þeim
tveimur eða þremur leikjum sem eftir
eru af leiktíðinni eru Fulham, Stoke,
Aston Villa, Southampton, Norwich,
Newcastle, Sunderland og fyrrnefnt
lið Wigan.
Wigan og Sunderland sitja í 17.
og 18. sætunum en bæði lið eiga þrjá
leiki til góða sem gefur þeim öllu
betri líkur en Newcastle, Norwich eða
Southampton sem eiga aðeins tvo
leiki eftir en eiga þó þrjú stig á Wigan.
Sérstaklega standa Wigan, Norwich
og Newcastle illa fari svo að markatala
ráði úrslitum en öll þrjú hafa fengið
á sig rúmlega tuttugu mörk meðan
Southampton og Sunderland eru að
eins rúmlega tíu mörk í mínus.
Sunderland leikur í kvöld gegn
Stoke á heimavelli og þrjú stig þar
munu sannarlega fara langt með að
tryggja áframhaldandi veru í efstu
deild. Sömu sögu er að segja af Wig
an sem á leik annað kvöld gegn
Swansea. n
20 Sport 6. maí 2013 Mánudagur
Átta félagslið geta fræðilega fallið
n Þröngt setið á botninum í ensku úrvalsdeildinni
Æ
tli það yrði ekki súrt með
afbrigðum ef úrslitaleik
ur Meistaradeildar
Evrópu milli Borussia
Dortmund og Bayern
München endaði 1–1? Kannski ekki,
en allavega ívið lakari skemmtun
fyrir sparkáhugamenn en undan
úrslitaleikir sömu liða þar sem Bæj
arar hentu Barcelona á grillið og
elduðu hægt meðan leikmenn Dort
mund sýndu Real Madrid að Davíð á
enn í fullu tré við Golíat.
Þurrt jafntefli
1–1 jafntefli varð niðurstaðan í
deildarleik þýsku liðanna um helgina
í leik sem margir biðu sérstaklega
eftir með tilliti til að þessi tvö þýsku
stórlið mætast í úrslitaleik Meistara
deildar Evrópu þann 25. maí næst
komandi.
Viðureignin var, samkvæmt
spekingum erlendra miðla, heldur
klén og fjarri því sú spennandi for
sýning sem búist var við jafnvel þótt
að útlitið hafi verið gott strax á tí
undu mínútu þegar Dortmund skor
aði fyrsta mark leiksins. SuperMario
Gomez jafnaði fljótlega metin fyrir
gestina og þar við sat.
Úrslitin skiptu engu máli
Líklega hefur einhver áhrif að Bayern
hefur fyrir nokkru tryggt sér meist
aratitilinn í þýsku Bundesligunni og
Dortmund situr ósköp þægilega í
öðru sætinu og fer ekkert ofar en það.
Engu að síður var pólska skytt
an Robert Lewandowski fjarri sínu
besta. Kappinn gerði sér lítið fyrir
og misnotaði vítaspyrnu í leiknum.
Kom það heldur ekki Dortmund til
góða að Bæjarar misstu mann af velli
með rautt spjald þegar 25 mínútur
lifðu leiksins.
Hvorugt lið tók leikinn alvar
lega og geymdu þau margar helstu
stjörnur sínar á bekknum. Bæjarar
mættu án Schweinsteiger, Ribery og
Lahm auk þess sem Thomas Müller
og Javi Martinez byrjuðu á bekknum.
Sömuleiðis lét þjálfari Dortmund,
Jürgen Klopp, lykilmenn á borð við
Hummels, Bender og Götze hvíla.
Kannski lék það líka hlutverk í
þessum leik að andinn milli þessara
tveggja félagsliða hefur farið mjög
versnandi síðustu vikur í kjölfar þess
að Bayern nældi í eina helstu stjörnu
Dortmund, Mario Götze, fyrir
skömmu og gerði þar ekkert annað
en bjóða nægilega mikið til. Klásúla
í samningi hans kvað á um að hann
færi fyrir ákveðið verð og það var
nákvæmlega sú upphæð sem Bæjar
ar buðu.
Meiri hiti utanvallar
Þetta leiddi til þess að hiti var utan
vallar í leiknum um helgina þótt
svalara væri á vellinum sjálfum. For
seti Dortmund hafnaði því að snæða
hádegisverð með forráðamönnum
Bayern en slíkt er venja meðal æðstu
manna fyrir leiki. Sömuleiðis lenti
þjálfari Dortmund upp á kant við
þjálfarateymi Bayern meðan á leikn
um stóð.
Allt eru þetta góð tíðindi fyrir
knattspyrnuáhugamenn. Því meiri
ástríður og hiti sem er í leikmönnum
og forráðamönnum því meiri has
ar er líklegur þegar þessi þýsku stór
veldi mætast 25. maí. Afar ólíklegt er
að þar verði um endursýningu síð
asta árs að ræða þar sem lið Chelsea
fór einu sinni út fyrir eigin teig í 90
mínútur og hafði sigur í Meistara
deildinni. n
Takk pabbi, fyrir að ég er ekki Bæjari!
Brottför Mario Götze til Bayern hefur
vakið mikla reiði meðal stuðningsmanna
Dortmund.
n Generalprufa Dortmund og Bayern var ekki upp á marga fiska
Fjandsamlegir Lítil vinátta
hefur verið milli leikmanna
Bayern og Dortmund og nú
hefur syrt enn frekar í álinn.
Örlítið meiri
diskant takk!
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Allt er þegar
þrennt er
Gamli jaxlinn Steve Bruce mun
snúa aftur í ensku úrvalsdeildina
á næstu leiktíð en þetta varð ljóst
eftir að lið hans Hull tryggði sér
farseðil upp um deild um helgina
eftir 2–2 jafntefli við Cardiff. Bruce
sem lék lengi með Manchester
United og þjálfaði með bærilegum
árangri Birmingham á árum áður
var að endurtaka leikinn í þriðja
skiptið. Hann hefur tvívegis leitt
Birmingham upp í efstu deild.
Leikmenn gagn-
rýna Mourinho
Það virðist í tísku meðal leikmanna
Real Madrid að gagnrýna þjálfara
sinn. Nú hefur varnarmaðurinn
Pepe sagt fáránlegt að halda mark
verðinum Iker Casillas á bekkn
um og bætist Pepe þar í hóp Ron
aldo, Xabi Alonso og Sergio Ramos
sem láta í ljósi undrun sína op
inberlega. Mourinho virðist vera
orðinn meyr með árunum því ein
hvern tíma hefði hann sett menn
út í kuldann fyrir slíkt en nú ypptir
hann öxlum og kippir sér varla upp
við slíkt.
Rýmingar-
sala hjá Real
Spænska íþróttablaðið Marca
framkvæmdi fróðlega skoðana
könnun meðal lesenda sinna í vik
unni en þar voru þeir spurðir
hvaða leikmenn Real Madrid ætti
að losa sig við fyrir næstu leiktíð.
Tæplega 200 þúsund manns tóku
þátt og kom í ljós að rúmlega
helmingur vill henda köppum á
borð við Higuaín, Kaká, Essien,
Coentrao og Carvalho fyrir róða.
Mest kom þó á óvart að rúm 65
prósent þátttakenda vilja Mourin
ho burt líka. Kannski það sé
ástæða þess að þjálfarinn er ekk
ert að æsa sig mikið lengur.
Arsenal á pari
við Real
Daily Mail í Bretlandi segist hafa
heimildir fyrir því að eigandi
Arsenal hafi þegar lofað þjálfara
sínum eitt hundrað milljónum
punda til leikmannakaupa fyrir
næstu leiktíð. Það eru gróflega
átján íslenskir milljarðar og slíka
fjármuni hefur Arsene Wenger
aldrei fengið til umráða áður. Sé
þetta rétt má líta svo á að Arsenal
sé orðið stórlið í allri merkingu
þess orðs því þetta er nákvæm
lega sama upphæð og forseti Real
hefur áætlað til leikmannakaupa
hjá spænska stórveldinu í sumar.
Aðdáendur Wigan halda í vonina
Sem stendur virðist staða Wigan slæm en
það gæti fljótt breyst.
Staðan í neðstu sætum
11 Stoke 35 9 13 13 31:41 40
12 Fulham 36 10 10 16 46:57 40
13 Aston Villa 36 10 10 16 44:65 40
14 Southampton 36 9 12 15 47:58 39
15 Norwich 36 8 14 14 34:56 38
16 Newcastle 36 10 8 18 43:66 38
17 Sunderland 35 9 10 16 39:51 37
18 Wigan 35 9 8 18 42:64 35
19 Reading 36 6 10 20 41:67 28
20 QPR 36 4 13 19 29:57 25