Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2013, Qupperneq 16
16 Neytendur 6. maí 2013 Mánudagur
Algengt verð 237,6 kr. 236,5 kr.
Algengt verð 237,4 kr. 236,3 kr.
Höfuðborgarsv. 237,3 kr. 236,2 kr.
Algengt verð 237,6 kr. 236,5 kr.
Algengt verð 239,9 kr. 236,4 kr.
Melabraut 240,4 kr. 236,4 kr.
Eldsneytisverð 5. maí
Bensín Dísilolía
Ekki gráta
yfir lauknum
Margir eru afar viðkvæmir fyrir því
að skera lauk og gráta yfir því verki.
Það eru til ýmis húsráð sem ætlað
er að koma í veg fyrir þetta. Eitt
þeirra er að þegar búið er að taka
hýðið af er hægt að klippa laukinn
í stað þess að skera. Það er þá gert
ofan í skál eða krús. Einnig er ráð-
lagt að skola hendurnar oft á með-
an þú ert með laukinn í höndun-
um og svo má líka reyna að skera
laukinn undir rennandi vatni. Það
sem á að minnka áhrifin af laukn-
um er að láta hann liggja í volgu
vatni í smá stund áður en hann er
skorinn auk þess að hafa kertaljós
nálægt skurðarbrettinu.
Körfu í stað kerru
Kaupmenn vita mikið um hvernig
hegðun okkar í matvöruverslun-
um hefur áhrif á hvað við kaupum
og hve miklu við eyðum. Dæmi
um þetta er að vörur sem eru í
neðri hillum eru oft á hagstæðara
verði en þær sem eru í augnhæð.
Við neytendur getum einnig sett
okkur reglur til fara eftir og haft
þannig vit fyrir okkur sjálfum,
svo sem að fara aldrei svöng að
versla. Matarkarfan.is gefur einnig
það ráð að nota alltaf körfu en
ekki kerru. Þegar þú burðast með
körfu um verslunina forðast þú
ósjálfrátt að kaupa óþarfa varning
þar sem karfan þyngist við það.
Þrífðu grillið
eftir hverja
notkun
Nú þegar grilltíminn gengur í garð
er gott að huga að þrifum á grillinu.
Gott er að tileinka sér að umgangast
grillið eins og bakaraofninn, pott-
ana og pönnurnar á heimilinu, og
þrífa það eftir hverja notkun. Það er
gert með því að þrífa grindurnar og
mikilvægt er að hreinsa reglulega
fitu úr botninum. Það léttir þrifin að
hafa grillið í gangi í 10 mínútur eftir
að matreiðslu er lokið til að brenna
fituna. Þá skal setja hlíf yfir grillið
þegar það er ekki í notkun en það
einkum nauðsynlegt fyrir þá sem
geyma grillið úti yfir veturinn.
Farðu betur
með Fötin þín
n 14 ráð til að verja þau sliti n Borðedik er prýðismýkingarefni
M
eðalfjölskylda á Íslandi
eyðir 287.000 krónum
á ári í föt og skó. Þetta
er samkvæmt rannsókn
Hagstofunnar á útgjöld-
um heimilanna 2009 til 2011.
Rannsóknin nær eingöngu til
verslunar hér á landi en ekki til
útgjalda erlendis. Það má því
segja að meðalfjölskylda eyði
töluverðum upphæðum í föt.
Foreldrar finna væntanlega
einna helst til þess hve föt barna
eru fljót að slitna og þurfa því að
endurnýja fataskápinn reglulega.
Á síðunni Money Talk News eru
nokkur ráð til að láta fötin endast
lengur og spara í leiðinni.
Flokkaðu óhreina
þvottinn
Á meðan mörg-
um finnst þetta
sjálfsagt eru
margir sem skella
öllu í einni bendu í
vélina, hvort sem það
eru lituð föt, hvít föt eða föt úr við-
kvæmum efnum. Það er svo ekki
fyrr en nýju rauðu buxurnar lita allt
sem í vélinni er sem viðkomandi
uppgötvar mikilvægi þess að flokka
eftir litum og efnum. Jafnvel þótt
heppnin sé með honum og ljósu
flíkurnar litist ekki í fyrsta þvotti þá
grána þær samt með tímanum.
ekki þvo gallabuxurnar of oft
Það er óþarfi að þvo gallabuxur eftir
hvert skipti sem þú hefur notað
þær. Ef þær eru ekki með blettum
og óhreinindum er nóg að þvo þær
í mesta lagi eftir þriðju hverja notk-
un. Ef þér finnst þær verða víðar við
notkun getur þú prófað að skella
þeim í þurrkarann í nokkrar mín-
útur.
Hengdu
þvottinn upp
Þótt það sé
ósköp þægilegt
að setja blautu
fötin í þurrkar-
ann þá fer það illa
með þau. Þurrkarar
veikja þræðina í flíkunum mun
hraðar en þegar þau eru hengd
upp til þerris. Auk þess geta fötin
orðið fyrir skemmdum ef þurrkar-
inn bilar.
Passaðu upp
á rennilása
og tölur
Renndu upp
rennilásum á
buxum og peys-
um svo aðrar flíkur
festist ekki í þeim í þvottavélinni.
Það á hins vegar ekki við um tölur
því best er að hneppa þeim ekki
þar sem götin og tölurnar geta
skemmst.
Hafðu fötin á röngunni
Með því að snúa fötunum á
rönguna áður en þau eru sett í vél-
ina og á meðan þau eru straujuð
viðhaldast gæði og litir lengur og
endingartími þeirra lengist.
notið kalt vatn
Það fer betur með fötin að þvo þau
í kaldara vatni því heitt vatn veldur
því að sumar flíkur skreppa saman
og verða krumpuð.
ekki ofþurrka fötin
Mjög heit þurrkun er líkleg til
að minnka fötin. Ef þú vilt nota
þurrkarann hafðu þau í þurrkaran-
um þar til þau eru þurr eða næstum
því þurr og ekki mínútu lengur.
ekki troða í
vélina eða
þurrkarann
Allir eiga það
til að gera
þetta inn á
milli þegar um
tímaþröng er að
ræða. Með því að
troða of miklu í vélina nær vélin ein-
faldlega ekki að þvo fötin almenni-
lega auk þess sem það fer illa með
hana. Það sama á við um þurrkar-
ann. Það skal þó tekið fram að
við megum ekki sóa vatni með því
að þvo alltaf hálfar eða hálftómar
vélar. Það þarf að fara milliveginn.
notaðu borðedik
Edik er ódýrt
mýkingarefni.
Það skilur ekki
eftir sig bletti
né lykt í flíkun-
um. Prófaðu að
setja ¾ bolla af
ediki í aukaskolið.
nærbolir eru málið
Þegar þú klæðist nærbol þá virkar
það sem vernd fyrir yfirflíkina gegn
til dæmis svita. Það er leiðinlegt að
vera með sjáanlega svitabletti og
þeir geta eyðilagt flíkina.
notaðu kaffi eða te
á dökkar flíkur
Þegar svarti litur-
inn er farinn að
dofna er hægt að
bæta sterku kaffi
eða tei í skol-
vatnið en þannig
skerpa dökka litnum.
Farðu úr vinnufötunum þegar
þú kemur heim
Hver vill svo sem vera í dragtinni
eða jakkafötunum heima. Skiptu
frekar yfir í eitthvað þægilegra og
þannig hlífir þú líka vinnufötunum
við blettum og sliti.
lestu þvotta
leiðbeiningarnar
Margir gleyma
þessu eða hugsa
ekki út í mikil-
vægi þessa. Áður
en þú þværð flík-
ina, sér í lagi flík úr við-
kvæmu efni, skaltu lesa vel leið-
beiningarnar og fara eftir þeim. Ef
leiðbeiningar segja að flík þurfi að
fara í hreinsun, farðu þá með hana í
hreinsun. Annars gætir þú gert dýr-
keypt mistök.
skiptu reglulega
Ef þú notar mikið sömu fötin munu
þau vitanlega slitna og eyðileggj-
ast fyrr en önnur föt sem þú átt. Til
að koma í veg fyrir þetta er gott að
skipta um uppáhaldsflíkur reglu-
lega. Settu peysuna sem þú klæð-
ist oftast aftast í röðina og notaðu
önnur föt. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Fötin endast
lengur Sparnaður
fólginn í betri með-
ferð á fötum.