Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2013, Page 2
2 Fréttir 31. maí–2. júní 2013 Helgarblað
H
runið fór með þetta,“ segir
Magnús Ver Magnússon
kraftajötunn – og lengi vel
sterkasti maður heims – sem
var úrskurðaður gjaldþrota
þann 4. apríl síðastliðinn. Magnús
hefur verið í fasteignabransanum en
þrjú félög tengd honum fóru í þrot,
tvö árið 2010 og eitt í janúar í ár.
„Ég var í fasteignabraski. Það fór
ekki vel,“ útskýrir Magnús: „Það er
bara eins og gerist.“ Félögin sem um
ræðir eru FS 45 ehf. , Fasteignafélag
Kópavogs ehf. og Veitull ehf. FS 45 fór
í þrot nú í janúar. Magnús er hvergi af
baki dottinn þrátt fyrir þetta bakslag:
„Þetta er bara svona. „Shit happens“.
Menn brotna ekkert,“ segir hann og
hlær.
„Ég er búinn að vera
óvinnufær mjög lengi“
Það er þó ekki einungis hrunið sem
setti strik í reikninginn hjá Magn-
úsi. „Ég lenti í bílslysi 2007. Raunar
tveimur bílslysum,“ segir Magnús.
„Fyrst var ekið fyrir mig,“ segir hann
og í kjölfarið glímdi hann með-
al annars við eymsli í hálsi. „Svo
nokkrum mánuðum seinna var
keyrt aftan á mig þar sem ég var á
mótorhjólinu. Það lagaði það ekki.“
Meiðslin voru lokaáfallið: „Það
kláraði þetta alveg. Þá hætti mað-
ur að reyna að berjast í þessu. Ég
er búinn að vera óvinnufær mjög
lengi.“ Aðspurður hvernig verkirnir
hafi áhrif á hann nefnir Magnús að
hann hafi stundum ekki getað stað-
ið eðlilega upp úr rúminu: „Það hef-
ur komið fyrir að ég vakna þannig
að ég kemst ekki upp úr rúminu
nema með því að halda um höfuðið
og reisa mig upp þannig.“
„Maður hefur reynt að halda sér
í einhverju smá formi“
Meiðslin hafa ekki einungis komið
niður á rekstrinum heldur einnig
íþróttaiðkuninni. Magnús er
geysiöflugur íþróttamaður og sann-
kallað heljarmenni enda var hann
sterkasti maður heims árið 1991,
næststerkastur næstu tvö ár og síð-
an aftur sterkasti maður heims þrjú
ár í röð eftir það. Enn lengur hélt
hann titlinum sem sterkasti maður
Íslands.
Hann hefur svo sannarlega ekki
lagt kraftlyftingarnar á hilluna enda
heldur hann utan um Jakaból, lík-
amsræktarstöð fyrir hreystimenni,
og dæmir oft í kraftlyftingakeppn-
um. Aðspurður hvernig kraftlyft-
ingarnar hafi gengið segir Magnús:
„Ég hef verið að reyna eitthvað, en
ekki eins og ég hefði viljað gera.
Maður hefur reynt að halda sér í
einhverju smá formi. En alltaf þegar
maður er að komast á gott skrið
kemur bakslag í þetta. Það hefur
verið að gerast undanfarið. En mér
sýnist að ég sé loks að ná mér upp
úr þessu núna.“
„Ég held að þetta
sé allt að jafna sig“
Magnús hefur undirgengist með-
ferðir vegna meiðslanna en hann
telur þó ekki að hann muni ná sér
að fullu. „Maður lærir að lifa með
þessu.“
Það er þó ekki þar með sagt að
meðferðirnar hafi ekki skilað ár-
angri. „Ég hef verið í nuddi og svo-
leiðis. Svo þurfti ég að láta sprauta
allan hálsinn, það virðist loksins
hafa haft tilætluð áhrif,“ segir hann
og á þar við kortísól sterameðferð
sem hann gekkst undir. „En þetta
er búið að vera í lagi núna í rúmt
ár. Ég held að þetta sé allt að jafna
sig.“ n
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Magnús Ver
í gjaldþrot
n Sterkasti maður heims í bobba n „Menn brotna ekkert“
Heljarmenni á Jakabóli Magnús Ver
Magnússon sér um Jakaból, líkamsrækt-
arstöð fyrir hreystimenni, og er hvergi af
baki dottinn þrátt fyrir gjaldþrotið.
„En alltaf
þegar mað-
ur er að komast á
gott skrið kemur
bakslag í þetta
Stal skáldsögu
á flóttanum
Lögreglustjórinn á Selfossi
hefur ákært Matthías Mána
Erlings son fyrir hegningarlaga-
brot sem hann er sagður hafa
framið eftir að hafa strokið af
Litla-Hrauni í desember. Með-
al þess sem Matthíasi er gefið
að sök er að hafa stolið riffli,
haglabyssu, fjórhóli, öxi og
skáldsögu úr sumarbústöðum á
Suðurlandi en eins og frægt er
orðið strauk Matthías Máni af
Litla-Hrauni og var hans leitað
í heila viku áður en hann gaf sig
fram að morgni aðfangadags.
Þá var einnig greint frá því
fyrr í vikunni að Matthías Máni
yrði ákærður fyrir að hafa sleg-
ið fangavörð í höfuðið þar sem
hann var við störf þann 5. mars
síðastliðinn.
Lýður sektaður
um tvær milljónir
Lýður Guðmundsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Exista,
hefur verið dæmdur til að
greiða tvær milljónir króna í
sekt fyrir brot á hlutafélaga-
lögum. Var hann fundinn sek-
ur í Héraðsdómi Reykjavíkur á
fimmtudaginn. Brot Lýðs fólst í
því að hafa greitt einungis einn
milljarð króna fyrir hlut í Ex-
ista sem var metinn á fimm-
tíu milljarða króna að nafn-
virði. Lýði er gert að greiða
málsvarnarlaun verjanda síns,
tæplega 11 milljónir króna, að
hálfu en að hálfu skulu þau
greidd úr ríkissjóði. Ljóst er
að sekt Lýðs er ekki ýkja há í
samanburði við þær upphæð-
ir sem brot hans snerist um en
ekki er víst hvort málinu verður
áfrýjað.
Fjölmenn mótmæli
umhverfissinna
3 Hátt á annað þúsund um-hverfissinna söfnuðust saman
við Stjórnarráðshúsið á þriðjudaginn
til að mótmæla yfirlýsingum ríkis-
stjórnarinnar um fyrirhugaðar stór-
iðjuframkvæmdir. Mikill hugur var
í fundarmönnum sem slógu upp
grænlitri fánaborg og afhentu að-
stoðarmanni forsætis ráðherra áskor-
un um að draga áðurnefndar yfirlýs-
ingar til baka. Áskoruninni fylgdu svo
fjölmargar umsagnir samtaka, stofn-
ana og sveitarfélaga um rammaáætl-
un stjórnvalda. Fjöldi fundarmanna
vakti nokkra athygli, sérstaklega í
ljósi þess að boðað var til fundar-
ins með sólarhringsfyrirvara og það
aðeins fimm dögum eftir að ný ríkis-
stjórn tók formlega við völdum. n
Allri áhöfninni
sagt upp
2 Greint var frá því á dögunum að allri áhöfn frystitogarans
Þórs HF 4 hefði verið sagt upp
störfum. Skipið er gert út af Stál-
skipum í Hafnarfirði en Guðrún
Lárusdóttir, framkvæmdastjóri og
stærsti eigandi fyrirtækisins, segir
ástæðu uppsagnanna vera óvissu
í rekstrarumhverfi sjávarútvegs-
ins og mótmælir veiðigjaldi harð-
lega. Þá hyggst Guðrún fara í mál
við ríkið vegna 35 milljóna sem
hún hefur greitt í auðlegðarskatt
á síðustu árum. Hún krefst þess
að skatturinn verði aflagður hið
snarasta og telur hann brjóta
í bága við eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar. n
Íslendingur grun-
aður um morð
1 Ámundi Jóhannsson er grunaður um að hafa orðið
norska útvarpsmanninum Hel-
ge Dahle að bana. Morðið var
framið aðfaranótt sunnudags í
samkvæmi í bænum Valle í Nor-
egi. Ámundi hefur búið í Noregi
frá tveggja ára aldri en hefur
aldrei áður komist í kast við lög-
in. Samkvæmt sjónarvottum fór
vel á með þeim Ámunda og Hel-
ge en sá fyrrnefndi hafði drukkið
ótæpilega og dró upp hníf í ölæði
með fyrrgreindum afleiðingum.
Eitt af lykilvitnum í málinu er
milljarðamæringurinn Knut-Ax-
el Ugland og hefur málið vakið
mikla athygli í Noregi. n
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni