Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2013, Blaðsíða 43
35Helgarblað 31. maí–2. júní 2013
samkynhneigða menn myrti óþekktur fjöldamorðingi í San
Francisco árið 1974. Morðinginn fékk viðurnefnið Dútlarinn en hann réðst aðeins gegn
samkynhneigðum mönnum sem hann hafði hitt á börum eða næturklúbbum. Þrír til við-
bótar sluppu lifandi en Dútlarinn stakk fórnarlömb sín með hníf. Dútlarinn fannst aldrei.14
U
m mitt ár 1990 sótti Teresa
Yousef Syriani um skilnað
við eiginmann sinn, Elias
Syriani, og hafði dómstóll
í Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum kveðið upp þann úrskurð
að Elias skyldi flytja af heimili hjón-
anna og halda sig fjarri börnum
þeirra, fjórum að tölu.
Áður en lengra er haldið er vert
að skoða aðeins forsögu hjóna-
bands þeirra. Árið 1974 kom Elias
til Bandaríkjanna, þá 36 ára að aldri,
frá Jórdaníu. Búið var að velja konu-
efni fyrir hann og kvæntist hann
Teresu, sem var tólf árum yngri.
Árið 1986 fluttu hjónin ásamt börn-
um sínum frá Calumet í Illinois-
fylki í kjölfar atvinnumissis Elias.
Í Calumet hafði fjölskyldan notið
þess að vera assyríukristið fólk, líkt
og flestir íbúar Calumet sem var að
stærstum hluta arabískt samfélag.
Því var ekki að heilsa í nýjum
heimabæ þeirra, Charlotte í Norð-
ur-Karólínu.
Útivinnandi eiginkona
Á ýmsu hafði gengið í hjónabandi
Elias og Teresu og Elias var oft laus
höndin og versnaði ástandið til
muna eftir að til Charlotte var kom-
ið. Atvinnumissir Elias hafði valdið
fjárhagsörðugleikum og því ákvað
Teresa að hefja störf á delí-veitinga-
stað í nágrenni heimilis þeirra.
Þessi ákvörðun Teresu gekk frek-
lega í bága við trúarlegan bakgrunn
Elias sem taldi að eiginkonur skyldu
ekki vinna úti, en verja þess í stað
tíma sínum heima við. Þegar Elias
fékk vitneskju um ákvörðun Teresu
brást hann hinn versti við og í einni
rimmunni vegna málsins reyndi
hann að lemja hana með hafna-
boltakylfu.
Skömmu síðar leitaði Teresa
skjóls fyrir sig og börnin í kvenna-
athvarfi og flutti síðar til New Jersey
þar sem hún fékk inni hjá ættingj-
um.
Banvæn árás
Teresa flutti þó að lokum aftur
heim til Charlotte en sótti um skiln-
að, sem fyrr segir, og Elias var gert
að halda sig fjarri heimili þeirra og
börnunum.
Nokkrum dögum síðar var Ter-
esa á heimleið frá vinnu og með
henni í bílnum var tíu ára son-
ur hennar. Vissi hún ekki fyrr en
Elias ók í veg fyrir hana og neyddi
mæðginin inn í sendiferðabifreið
sína.
Þar réðst hann á hana með
skrúfjárni og stakk hana ótal sinn-
um og af svo miklu afli að ein
stungan gekk í gegnum höfuðkúpu
Teresu og inn í heila.
Teresa lifði árásina af, tórði í 26
daga milli heims og helju, en gaf þá
upp öndina, 40 ára að aldri.
Sonur hennar, John, hafði ár-
angurslaust reynt að stöðva föður
sinn en gefist upp eftir fimm mín-
útna vonlausa baráttu og hlaupið
heim og náð í eldri systur sína.
Sex andvökunætur
Eðli málsins samkvæmt hafði at-
vikið mikil áhrif á John sem lýsti
honum sem hryllilegum. Í skólarit-
gerð skrifaði hann um ótta sinn og
tilfinningar í kjölfarið: „Mamma
er fallegasta kona í heimi. Ég hata
fíflið hann föður minn fyrir að hafa
drepið hana … Ég var í bílnum með
henni.“ John sagðist ekki hafa sofið
í sex nætur eftir árásina og óttaðist
um eigið líf.
Eftir að Teresa skildi við neituðu
börn hennar að tala um Elias sem
föður eða pabba og fluttu til tveggja
systra hans. Elst systkinanna var
Sarah og reyndi hún eftir fremsta
megni að fylla skarð foreldranna
gagnvart þeim yngri.
Systkinin tengdust sterkum
böndum og með stuðningi sam-
félagsins uxu þau úr grasi og urðu
sterkir einstaklingar, en það er
önnur saga. Eitt var það band sem
styrkti systkinin enn frekar – fyrir-
litning þeirra á föður sínum vegna
gjörða hans.
Dramatísk bernska
Elias var sakfelldur fyrir morð 12.
júní 1991 og dæmdur til dauða.
Hann fullyrti við réttarhöldin að
Teresa hefði barið hann nánast dag-
lega í viðurvist barnanna og hann
hefði kallað lögreglu til nokkrum
sinnum vegna þess. Börn hans báru
gegn þessari fullyrðingu hans.
Elías áfrýjaði dómnum og þegar
áfrýjunin var tekin fyrir barst talið
að æsku Elias í Jerúsalem. Sem tíu
ára assyríukristinn drengur sætti
hann ofsóknum í hinni helgu borg.
Faðir hans var handtekinn og fang-
elsaður og reyndi Elias að sjá fjöl-
skyldu sinni farborða.
Faðir hans fékk taugaáfall í
grjótinu, var sleppt og hann send-
ur til Jórdaníu þar sem fjölskylda
hans sameinaðist honum – þá mik-
ið breyttum og brotnum manni. Að
sögn Elias kom móðir hans þaðan
í frá fram við hann eins og hund –
verr ef eitthvað var.
Verjandi Elias sagði að árás hans
á Teresu hefði verið afleiðing þeirra
áfalla sem Elias hafði upplifað í
æsku. Einnig sagði hann að það of-
beldi sem Elias beitti fjölskyldu sína
væri stjórntæki og almennt viður-
kennt í því samfélagi sem hann
hafði alist upp í.
Fyrirgefning syndanna
Börn Teresu og Elias, John, Rose,
Sarah og Janet, fyrirgáfu föður sín-
um eftir að þau komust á full-
orðinsár. Sögðu systurnar að þær
hefðu ekki gert sér grein fyrir þeim
erfið leikum sem steðjuðu að fjöl-
skyldunni á þeim tíma, en tóku þó
fram að þeir réttlættu hvorki né af-
sökuðu verknað föður síns.
Fóru börnin þess á leit að
dómurinn yfir Elias yrði mildaður
en þau töluðu fyrir daufum eyrum
og beiðninni var hafnað í október
2005. Ákveðið var að Elias yrði tek-
inn af lífi 18. nóvember 2005.
Þann 17. nóvember hafnaði rík-
isstjóri Norður-Karólínu beiðni um
mildun og mætti Elias örlögum sín-
um daginn eftir. Börn hans voru
ekki viðstödd aftökuna en höfðu
heimsótt hann daginn áður.
Í lokayfirlýsingu Elias var þakk-
læti hans honum ofarlega í huga.
„Ég vil þakka Guði fyrir allt sem
gerst hefur í lífi mínu,“ sagði hann
meðal annars. n
Elias Syriani
Banaði eiginkonu
sinni með
skrúfjárni.
n Elias hugnaðist ekki að eiginkonan ynni úti n Gekk í skrokk á henni með skrúfjárni
„Ég vil þakka Guði fyrir allt
sem gerst hefur í lífi mínu
NíðiNgsverk
í Norður-karólíNu
l Dugar eins og tveir sígarettupakkar
l Sama tilfinning eins og reykja nema þú sleppur við tóbakið og öll eiturefnin
l Veldu um tóbaks og/eða mentolbragð
l Gaxa rafrettuna má reykja hvar sem er
Sölustaðir: Gaxa.is, Videomarkaðurinn
Hamraborg 20a - 200 Kópavogur,
Tilboð: 1.990 kr.
Gaxa
helGar-
reTTan
Frábært
í flugið!
Júní tilboð hjá www.gaxa.is og Video-
markaðinum Hamraborg. Þú kaupir 2
helgarrettur og færð 1 að auki frítt með.