Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2013, Qupperneq 60
52 Fólk 31. maí–2. júní 2013 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
31.maí–2. júní
Föstudagur31
maí
Laugardagur1
júní
Sunnudagur2
júní
Heiðurstónleikar
Rage Against the
Machine er heiðruð
fyrir þrotlausa
baráttu í þágu
mannréttinda sem
hún kýs að koma
á framfæri í formi
rokktónlistar. 20 ár
eru liðin síðan fyrsta plata sveitarinnar
kom á markað og setti hún mark sitt á
rokksöguna með pólitísku rappi/rokki á
eftirminnilegan máta. Hljómsveitina sem
heiðrar Rage Against the Machine skipa
Egill „Tiny“ Thorarensen, Franz Gunnars
son, Arnar Gíslason og Guðni Finnsson.
Græni Hatturinn Kl. 22.00
Síðasti heimaleikurinn
Næstkomandi laugar
dag munu stelpurn
ar okkar taka á
móti Skotum á
Laugardalsvelli
og hefst leik
urinn kl. 16.45.
Liðið undirbýr
sig af kappi fyrir
úrslitakeppni EM, sem
hefst í Svíþjóð 10. júlí. Þetta er síðasti
heimaleikur stelpnanna fyrir stóru átökin
í sumar.
Laugardalsvöllur Kl. 16.30
Óskalög sjómanna
Í tilefni af 100 ára
afmæli Reykja
víkurhafnar og 75.
sjómannadagsins
verða seglin þanin
í Hörpu og vinsæl
ustu sjómannalög
okkar Íslendinga
flutt af úrvali íslenskra
tónlistarmanna. Söngvarar verða Valdi
mar Guðmundsson, Ragnar Bjarnason,
Sigríður Thorlacius, Guðrún Gunnarsdótt
ir, Kristján Kristjánsson ( KK), Magnús
Eiríksson, Gylfi Ægisson, Magni Ásgeirs
son, Matthías Matthíasson og Þorvaldur
Halldórsson. Tónlistarstjóri verður Jón
Ólafsson en Örn Árnason kynnir.
Eldborg, Harpa Kl. 17.00
Bubbi í Grindavík
Síðustu tónleikar
Bubba Morthens
í tónleikaröð
hans sem
hefur staðið
yfir síðustu
mánuðina.
Á sjómanna
daginn spilar
hann í Grindavík en
á efnisskránni verður blanda af gömlu og
nýju efni, svona klassískir Bubbatónleikar
eins og hann hefur haft þá í gegnum
tíðina.
Grindavíkurkirkja Kl. 20.30
Englar alheimsins
– aukasýning
Ein vinsælasta
íslenska skáld
saga síðari ára
í nýrri leikgerð.
Verkið
lýsir árekstri
tveggja heima;
brjálseminnar
og hversdagsleik
ans, og lýsir af miklu innsæi heimi hins
geðveika, einsemd hans og útskúfun, og
átökum hans við sjálfan sig og samfélag
ið.Ógleymanlegt verk, fullt af sársauka
en jafnframt hlýju og húmor.
Þjóðleikhúsið Kl. 19.30
F
yrsta alþjóðlega barnakvik-
myndahátíð í Reykjavík var sett
með pompi og prakt í Bíó Para-
dís á miðvikudag. Á opnun há-
tíðarinnar var menningarelíta
landsins mætt með börn sín.
Gestir, stórir sem smáir, fengu
karamellupopp og Svala og hlýddu á
tónlist Dj Flugvél & Geimskip af mik-
illi hrifningu.
Geta mús og björn verið vinir?
Frumsýnd var franska myndin Ernest
og Celestine og bauð sendiherra
Frakklands á Íslandi, Marc Bouteill-
er, gesti velkomna. Þá setti borgar-
stjóri Reykvíkinga, Jón Gnarr, hátíð-
ina. „Geta mús og björn verið vinir?“
spurði hann bíógesti og fékk blendin
svör þeirra minnstu í salnum.
Sannkölluð kvikmyndaveisla verð-
ur fyrir börn og unglinga í Bíó Paradís
vikuna 29. maí–4. júní og á hátíðinni
má horfa á áhugaverðar barna- og
unglingakvikmyndir sem hlotið hafa
viðurkenningar um allan heim, sem
og gamlar sígildar myndir á borð við
Karate Kid, sem foreldrar geta rifjað
upp með börnum sínum. n
kristjana@dv.is
Menningarelítan
mætti með börnin
Stuð í bíó Ragnar Ísleifur Bragason með
Sögu, Ronju og syni sínum Ara Ísleifi.
Góð saman Margrét Vilhjálmsdóttir leik
kona með þeim Íseyju Lilju og Mikael Þey.Mæðgur Elsa Yeoman með dóttur sinni og vinkonu.
Skemmtileg stemning Börn og
foreldrar skemmtu sér vel á fyrstu opnun
Alþjóðlegrar barnakvikmyndahátíðar í
Reykjavík.
n Fyrsta alþjóðlega barnakvikmyndahátíðin í Reykjavík
n Karamellupopp og fjörugur plötusnúður vöktu lukku
Karamellupopp Ágúst
Garðarsson framleiddi góm
sætt karamellupopp sem fór
vel í bíógesti.
Spenntir gestir DjFlugvél & Geimskip náði að heilla yngstu gestina.
Með pabba og
dúkku Það verða
ófáir foreldrarnir
sem verða dregnir
í bíó um helgina ef
börnin fá að ráða.