Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1940, Page 176
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar itarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum, og fást þau lceypt einstök. Menn geta lika
gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með þvi að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
Á hverju ári kemur út eitt hefti af verslunarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt liefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta i sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um itarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 1 króna og 50 aurar
um ái'ið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út lcominn 1. árg.
1930. Kostar 3 krónur.
IV. Manntal á íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vidalin. Er það prentað i heild sinni, og kemur
út eitt hefti á ári. Komin eru út 14 hefti, sem ná yfir alt landið,
nema lítinn liluta af Árnessýslu. í viðauka verður birt manntal
í 3 sýslum frá árinu 1729.