Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Síða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 20. mars 2013
Benni dæmdur til sektargreiðslu
Ráðherra úthlut-
aði styrkjum
Guðbjartur Hannesson velferðar
ráðherra veitti á þriðjudag styrki
til sex verkefna í velferðarþjón
ustu sem nema samtals 2,2 millj
ónum króna. Styrkirnir voru veitt
ir til verkefna í velferðarþjónustu
sem tengjast samþættingu heil
brigðis og félagsþjónustu og eiga
að stuðla að umbótum, nýbreytni
eða auknum gæðum þjónustunn
ar, samkvæmt frétt á vef ráðu
neytisins.
Styrkirnir sex fóru til verk
efnis um að koma á samstarfs
vettvangi og útfæra hugmyndir
um sameiginlega líknardeild
og líknarteymi á Norðurlandi,
samstarfsverkefnis heilsugæslu
og félagsþjónustu á Snæfells
nesi til að bæta inntak, gæði og
fyrir komulag heimaþjónustu við
eldri borgara, sjúka, öryrkja, fatl
að fólk og aðra á svæðinu, þróun
Geðheilsustöðvar sem er liður í
þróunarverkefni í Breiðholti sem
gengur út á að bæta og efla geð
þjónustu í nærumhverfinu, verk
efni um aukna heilbrigðisþjón
ustu í þjónustuíbúðum á vegum
þjónustumiðstöðvar Laugardals
og Háaleitis, verkefnis um aukna
þjónustu við útskriftir aldraðra
af bráðamóttöku Landspítala
og loks verkefnis á vegum fé
lagsþjónustu Norðurþings um
forvarnir vegna vanlíðunar og
sjálfsskaðandi hegðunar meðal
unglinga.
Styrkirnir hafa verið veittir ár
lega frá árinu 2001.
Deilt um
auðlindagjald
Finnbogi Vikar Guðmundsson,
viðskiptalögmaður og sjómaður,
hefur sent þingmönnum Bjartrar
framtíðar, Samfylkingarinnar
og Vinstri grænna opið bréf þar
sem hann deilir harkalega á
breytingartillögu þeirra við frum
varp um breytingar á stjórnar
skrá. Í breytingartillögunni er
lagt til að leyfi til afnota eða hag
nýtingar auðlinda sé veitt gegn
eðlilegu gjaldi.
Bendir Finnbogi á að um 90
prósent þeirra sem kusu um
stjórnarskrárbreytingarnar þann
20. október síðastliðinn hafi
greitt atkvæði með auðlinda
ákvæðinu um afnot á auðlind
um gegn fullu gjaldi. „Þessi
breytingartillaga felur í sér
gríðarlega eignatilfærslu á eign
um þjóðarinnar til örfárra fjöl
skyldna næstu 20 árin og þetta
þýðir líka að bankar hafa styrk
ari óbein veðréttindi í gegnum
fiskiskip á nýtingarrétti auð
lindarinnar, aflahlutdeildinni
(kvótanum) í 20 ár hið minnsta,“
segir í bréfi Finnboga.
I
nni á heimasíðu sem ber yfir
skriftina Íslenska fylgdarþjón
ustan er boðið upp á kynlífs
þjónustu íslenskra kvenna.
Ekki er vitað hver stendur að
baki síðunni en gefið er upp bæði
tölvupóstfang og íslenskt síma
númer á síðunni. Ólöglegt er á Ís
landi bæði að kaupa vændi og
hagnast á vændi annarra.
DV sendi bæði póst á netfangið
sem gefið er upp á síðunni og hafði
samband símleiðis en ekki náðist
í þann sem fyrir henni stendur.
Greinilegt er að síðan er miðuð að
ferðamönnum sem hingað koma
en hún er á ensku. Inni á síðunni er
sérstaklega tekið fram að konurn
ar sem veiti kynlífsþjónustuna séu
allar íslenskar og séu á aldrinum
27–41 árs.
Þegar DV hafði samband við
lögregluna á höfuðborgarsvæðinu
vegna málsins þá hafði hún ekki
heyrt um síðuna en til stendur að
rannsaka málið. „Þetta er komið til
lögreglunnar og það verður örugg
lega fylgst með þessu,“ segir Björg
vin Björgvinsson aðstoðaryfirlög
regluþjónn. Karl Steinar Valsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn segist
ekki hafa séð þessa síðu áður og
geti því ekki tjáð sig um málið að
svo stöddu en það verði skoðað.
Kynlífsmatseðill
Á síðunni er að finna Menuflipa,
sem þýða mætti sem matseðil. Þar
er að finna verðlista yfir hinar ýmsu
kynlífsathafnir sem samkvæmt síð
unni, er hægt er að fá gegn gjaldi.
Þar er ýmislegt í boði; til að mynda
endaþarmsmök með einhverju sem
kallast „Sænsk ending“ sem kostar
200 evrur, eða 32 þúsund krónur,
endaþarmsmök með konu á 250
evrur, eitthvað sem heitir „Enda
þarms kokteill“ og þá er það konan
sjálf sem ákveður verðið. Einnig er
hægt að kaupa 30 mínútur af kyn
lífi með endaþarmsmökum á 400
evrur, 45 mínútur kosta 450 evrur
og klukkutími kostar 480 evrur, eða
78 þúsund krónur. Einnig er hægt
að kaupa kynlífsleiki fyrir lengra
komna. Bindi, drottnunar og
hlutverkaleikir eru í boði og einnig
er boðið upp á sænskan endi á
leikjunum. 30 mínútur í slíkum leik
kosta 150 evrur, 45 mínútur eru á
210 evrur og klukkustundarleikur er
á 250 evrur samkvæmt þessum svo
kallaða „matseðli“ síðunnar. Þrjá
tíu mínútur í einhverju sem kall
ast „Hard domination“ eða „Hörð
drottnun“ í lauslegri þýðingu kosta
200 evrur, „Urine sex“ þar sem,
samkvæmt nafninu, þvag kemur
líklega við sögu, með svokölluðum
„sænskum endi“ kostar 100 evrur.
Einnig er hægt að kaupa langtíma
bindingu eins og það er orðað; þá
er einstaklingurinn bundinn í einn
og hálfan tíma, og kostar 320 evrur.
Athygli vekur að sérstaklega er tek
ið fram að stúlkan sé ekki inni í her
berginu þann tíma.
Nektarsýningar og
piparsveinapartí
Á síðunni er einnig hægt að fá
nektar sýningu með alls kyns auka
hlutum og einnig er boðið upp á
leigu á konum í piparsveinapartí,
afmæli eða bara fyrir: „kvöld úti
með strákunum“ eins og það er
orðað. Þá er einnig hægt að panta
sjálfsfróunarsýningu sem kostar
170 evrur en ekki er nánar tekið
fram hvað hún felur í sér. Þá er
samkvæmt listanum einnig hægt
að panta vændi með tveimur kon
um auk þess sem par getur pantað
sér konu til þess að stunda kynlíf
með fyrir 380 evrur. Í enda listans
má svo sjá að hægt er að panta
fimm tíma matarstefnumót fyrir
820 evrur eða tæpar 134 þúsund
krónur.
Stelpurnar eru 100% íslenskar
Í gestabók á síðunni er að finna
skilaboð frá einhverjum sem virð
ast hafa nýtt sér þjónustuna. Þar er
þess óskað að nöfn stúlknanna séu
gefin upp á síðunni. Eigandi síð
unnar svarar þeim á ensku en svar
ið birtist hér þýtt: „Stelpurnar eru
alíslenskar og það er ástæðan fyrir
því að við gefum ekki upp fullt nafn
þeirra. En ef nöfnin skipta máli
þá eru þau: Sara, Sandra, Þóra,
Guðrún, Sigríður, Ásta. Og þær eru
á aldrinum 27–41 árs, öll þjónusta
er veitt, og verðin eru á síðunni
okkar (menu),“ segir sá eða sú sem
svarið veitir. „Viðskiptavinir okkar
eru mjög sáttir og ánægðir með
okkur og þjónustu okkar, þannig
við höfum fulla stjórn á þessu.“ n
n Íslensk vændissíða býður kynlíf með konum á aldrinum 27–41 árs
Bjóða íslenskar
vændiskonur Vændi Á síðunni er boðið upp á ýmsa kynlífsþjón-ustu gegn gjaldi. Konurnar eru allar sagðar íslenskar og á aldrinum 27–41 árs.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„En ef nöfnin
skipta máli þá eru
þau: Sara, Sandra, Þóra,
Guðrún, Sigríður, Ásta.
Og þær eru á aldrinum
27–41 árs.
„Stelpurnar
eru 100%
íslenskar og það er
ástæðan fyrir því
að við setjum ekki
fullt nafn þeirra við
Kaup á vændi
er ólöglegt
Kaup á vændi á Íslandi eru refsiverð auk
þess sem ólöglegt er að hagnast á vændi
annarra.
Í grein 206 almennra hegningar
laga segir:
n Hver sem greiðir eða heitir greiðslu eða
annars konar endurgjaldi fyrir vændi skal
sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
n Hver sem greiðir eða heitir greiðslu
eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi
barns undir 18 ára aldri skal sæta sektum
eða fangelsi allt að 2 árum.
n Hver sem hefur atvinnu eða viðurværi
sitt af vændi annarra skal sæta fangelsi
allt að 4 árum.
n Sömu refsingu varðar það að ginna,
hvetja eða aðstoða barn yngra en 18 ára
til vændis.
n Sömu refsingu varðar það einnig að
stuðla að því að nokkur maður flytji úr
landi eða til landsins í því skyni að hann
stundi vændi sér til viðurværis.
n Hver sem stuðlar að því með ginning-
um, hvatningum eða milligöngu að aðrir
hafi samræði eða önnur kynferðismök
gegn greiðslu eða hefur tekjur af vændi
annarra, svo sem með útleigu húsnæðis
eða öðru, skal sæta fangelsi allt að 4
árum en sektum eða fangelsi allt að 1 ári
ef málsbætur eru.
n Hver sem í opinberri auglýsingu býður
fram, miðlar eða óskar eftir kynmökum
við annan mann gegn greiðslu skal sæta
sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.
Konurnar Á
síðunni eru þessar
sagðar konurnar
sem veita kynlífs-
þjónustuna.
Fylgdarþjónusta? Hér sést forsíða
síðunnar sem heitir Icelandic Escort
Service. Þar virðist vera á boðstólum
kynlífsþjónusta.
„Matseðillinn“ Undir flipanum Menu á
síðunni er að finna hvað er á boðstólum.
Upplýsingar Hér má sjá hvar hægt er
að fá upplýsingar til þess að geta keypt
þjónustuna.