Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Page 11
Fréttir 11Miðvikudagur 20. mars 2013 Alcoa fær jafnréttisverðlaun n Álfyrirtækið alræmt fyrir mannréttindabrot A lþjóðlega álfyrirtækið Alcoa hlaut jafnréttisverðlaun Catalyst fyrir árið 2013 en þetta var tilkynnt á ráðstefnu í New York á þriðjudag. Að því er fram kemur í tilkynningu frá Alcoa Fjarðaáli var það ekki síst góður ár- angur Fjarðaáls á sviði jafnréttis- mála sem leiddi til þess að Alcoa fékk verðlaunin og er staða jafn- réttismála þar sögð hafa vakið athygli á heimsvísu. Sérfræðingum Catalyst var falið að skoða stöðuna í álverum Alcoa úti um allan heim en þeir heimsóttu meðal annars Fjarðaál í fyrrahaust. Alcoa hefur margsinnis verið gagnrýnt harðlega fyrir slæman aðbúnað og gróf brot á réttindum verkafólks úti um allan heim. Í skýrslu um starfsumhverfi Alcoa í Hondúras árið 2007 kom fram að verkafólki væri meinað að fara á sal- ernið og neyddist til að hafa hægð- ir og þvaglát í fötin sín. Þá þyrftu konur að sýna öryggisvörðum sér- staklega fram á að þær væru á túr til að fá að fara oftar en einu sinni á klósettið á dag. Einnig hefur ver- ið tilkynnt um fjölda mannréttinda- brota á verkafólki Alcoa í Mexíkó. Í tilkynningu Alcoa Fjarðaáls kemur fram að 20 prósent starfs- manna fyrirtækisins séu konur en langtímamarkmiðið sé að helm- ingur starfsmanna Fjarðaáls verði kvenmenn. „Jafnframt tengir fyrir- tækið jafnréttisstefnu sína við gildi fyrirtækisins sem Alcoa starfar eftir um allan heim,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins. n johannp@dv.is L ena Kristín Einarsdóttir varð tíu ára á fimmtudaginn. Á af- mælisdaginn fékk hún að velja kvöldmatinn og að fara í kökukaffi til ömmu sinnar. Síðan var haldin fyrir hana veisla um helgina þar sem boðið var upp á kökur og fínerí. En þegar að því kom að láta vita hvað hana langaði helst í í afmælisgjöf fór Lena Kristín öll í hnút. Hana langaði ekki í neitt og satt best að segja var spurningin far- in að íþyngja henni. Þangað til móðir hennar benti henni á aðra leið, hún gæti mögulega gefið afmælisgjafirn- ar áfram til bágstaddra. Þá ljómaði Lena. Hefur alltaf viljað hjálpa „Við kaupum það sem börnin vantar,“ segir Sara Hlín Jónsdóttir, móðir Lenu Kristínar, „og flest það sem þau langar í innan skynsamlegra marka,“ segir hún og bætir því við að börnin séu reyndar mjög nægjusöm. Fjölskyldan hefur alltaf gefið mikið í hjálparstarf og þá hafa börnin ávallt tekið þátt í umræðum og fengið ákveðið hlutverk. „Ég hef alltaf verið mjög skýr á því að ef við erum aflögu- fær þá eigum við að gefa af okkur. Ég hef alltaf hugsað þetta þannig og vil endilega koma því yfir til barnanna. Við erum til dæmis fósturfjöl- skylda sex ára stúlku í Brasilíu sem Lena talar alltaf um sem eina úr fjöl- skyldunni. Svo gefum við alltaf jól í skókassa og nú er Lena eiginlega búin að taka það yfir. Henni finnst þetta mjög gaman og hún segir aldrei nei þegar hún er beðin um að taka þátt í svona starfi. Við reynum að útskýra fyrir börnunum af hverju við gerum þetta án þess að það verði byrði á þeim en þannig að þau skilji aðstæður annarra og muni sjálf geta fundið leiðir í framtíðinni til þess að leggja góðum málefnum lið. Það læra jú börnin sem fyrir þeim er haft.“ Heillandi tilhugsun Þannig að þegar Lena fékk fyrirspurn frá frænku sinni um hvað hana lang- aði í í afmælisgjöf sat hún lengi og hugsaði málið, sagði svo að hún ætti nóg af hlutum og vantaði ekkert sér- stakt. Sara spurði þá hvort hún myndi vilja gefa öðrum afmælisgjöfina sína og sýndi henni meðal annars sannar gjafir á heimasíðu UNICEF og fleiri leiðir til þess. „Hún ljómaði alveg þegar við fórum yfir valmöguleikana og hringdi sjálf í ættingjana til að spyrja hvort hún gæti fengið pening í afmælisgjöf til þess að kaupa svona. Það var svo fjöldi þeirra sem hægt var að hjálpa fyrir peninginn sem réð því að hún ákvað að kaupa ormalyf og moskítónet fyrir bágstödd börn, af því að ormalyfin hjálpa 450 börnum. Henni fannst það heillandi tilhugsun að þetta myndi nýtast sem best. Hún fékk alveg að ráða þessu sjálf. Planið er að fjölskyldan fari saman í frí til útlanda á næsta ári þannig að hún var spurð hvort hún vildi ekki frekar fá pening í gjaldeyri en henni fannst það óþarfi. Okkur leist bara vel á þetta, því það sýnir að hún er að hugsa út fyrir rammann og veit að það hafa það ekki allir eins gott og hún og vill gefa eitthvað af sér. Við erum bara þakklát fyrir það.“ n n Lena Kristín varð tíu ára n Bað um pening fyrir bágstadda Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Gaf fátækum börnum afmælisgjafirnar sínar Ljómaði af gleði Lenu Kristínu þótti það íþyngjandi að þurfa að svara spurningum um hvað hún vildi í afmælisgjöf. Þar til hún áttaði sig á því að hún gæti gefið gjafirnar áfram. Þá ljómaði hún. „Henni fannst það heillandi tilhugs- un að þetta myndi nýtast sem best. Verkamenn mótmæla Ítalskir starfsmenn Alcoa efndu til fjölmennra mót- mælaaðgerða í fyrra. BANKASTARFS- MENN ÁKÆRÐIR Kaupþing Landsbanki Hreiðar Már Sigurðsson bankastjóri Kaupþings Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings Ingólfur Helgason aðstoðarforstjóri Kaupþings Magnús Guðmundsson bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg Birnir Sær Björnsson sérfr. í deild eigin viðskipta Kaupþings Einar Pálmi Sigmundsson framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi Björk Þórarinsdóttir framkvæmdastj. fyrirtækjasv. Kaupþings Pétur Guðmarsson verðbréfamiðlari hjá Kaupþingi Bjarki Diego framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Sigurjón Árnason bankastjóri Landsbankans Elín Sigfúsdóttir forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ívar Guðjónsson forstöðumaður deildar eigin fjárfestinga á verðbréfasviði Landsbankans Steinþór Gunnarsson forstöðumaður verðbréfamiðlunar á verðbréfasviði Landsbankans Júlíus Heiðar Hreiðarsson sérfræðingur í deild eigin fjárfestinga á verðbréfasviði Landsbankans Sindri Sveinsson starfsmaður eigin viðskipta Landsbankans Sigurjón Árnason Ívar Guðjónsson Elín Sigfúsdóttir Steinþór Gunnarsson Hreiðar Már Sigurðsson Sigurður Einarsson Ingólfur Helgason Birnir Sær Björnsson Björk Þórarinsdóttir Magnús Guðmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.