Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Page 13
Erlent 13Miðvikudagur 20. mars 2013 n „Samfélagið gaf aldrei ungu fólki þennan rétt“ B andarísku samtökin Family Research Council, sem berjast fyrir framgangi fjölskyldunnar, trúar og frelsis, hafa vakið mikla athygli að undanförnu eftir að Pat Fagan, einn af talsmönnum sam­ takanna, hvatti til þess að einhleypu fólki yrði refsað fyrir að stunda kyn­ líf. Í útvarpsviðtali gagnrýndi Fagan harðlega dómsúrskurð Hæstaréttar Bandaríkjanna sem ógilti lög um að ekki mætti mætti útdeila getnaðar­ vörnum til einhleyps fólks. Hann sagði að með því að ógilda lögin væri dómstóllinn að senda þau skilaboð út í samfélagið að einhleypt fólk hefði rétt til að stunda kynlíf. „ Samfélagið gaf aldrei ungu fólki þennan rétt,“ sagði hann. „Skilvirk samfélög standa í vegi fyrir svoleiðis löguðu, refsa fyrir það og niðurlægja þá sem eiga í hlut.“ Sagði hann að forðum daga hefði löggjafinn staðið í vegi fyrir kyn­ lífi einhleypra. Fólk hafi oft snið­ gengið lögin en alltaf vitað að kyn­ líf fyrir hjónaband væri í eðli sínu rangt. Nú ætti greinilega að losa um allar hindranir á slíku athæfi. „Það að einhleypir eigi rétt á getnaðar­ vörnum þýðir að einhleypir eigi rétt á að stunda kynlíf utan hjónabands. Þannig er árþúsunda gömlum hefð­ um, visku og menningararfi sópað til hliðar.“ Samtökin hafa náin tengsl við Repúblikanaflokkinn og Teboðs­ hreyfinguna og tala þingmenn og for­ setaframbjóðendur repúblikana oft á ráðstefnum þeirra. Þá styrkja þau fjárhagslega frambjóðendur í flokkn­ um sem tala máli þeirra. johannp@dv.is Í litlu þorpi nærri Dehradun, norðarlega á Indlandi, býr sjö manna fjölskylda. Fjölskyldu­ mynstrið er ansi ólíkt því sem þekkist víða hvar á Vesturlöndum. Fjölskyldan saman stendur nefni­ lega af einni eiginkonu, fimm eigin­ mönnum og einum syni; og ekki er vitað hver eiginmannanna fimm er faðir drengsins. „Ein stór fjölskylda“ Rajo Verma er 21 árs indversk kona. Hún giftist fyrsta eiginmanni sín­ um, Guddu, fyrir um fjórum árum. Hún hafði ekki hitt eiginmann sinn fyrir giftinguna en hjónabandið var skipulagt af fjölskyldum þeirra. Síðan hún giftist Guddu hefur hún einnig gifst bræðrum hans fjórum: þeim Ba­ jiu, 32 ára, Sant Ram, 28 ára, Gopal, 26 ára, og Dinesh, 19 ára – sem gift­ ist henni um leið og hann var orðinn 18 ára. „Við stundum allir kynlíf með henni en ég er ekki afbrýðisamur,“ segir Guddu, fyrsti eigin maðurinn í samtali við The Sun og bætir við: „Við erum ein stór fjölskylda.“ Skiptir nóttunum á milli bræðranna Fjölskyldan býr saman í einu her­ bergi þar sem þau sofa á tepp­ um á gólfinu. Nóttunum skipt­ ir Rajo milli eiginmanna sinna og eyðir aldrei tveimur nóttum í röð með sama bróðurnum. Rajo á einn átján mánaða son en veit ekki hver er faðir hans. Henni finnst það ekki skipta neinu máli þar sem þau séu ein stór fjölskylda. Gerir ekki upp á milli þeirra Þessi forni hindúasiður sem kall­ ast fjölveri kann að vera frumlegur í huga Vesturlandabúa en í litla þorp­ inu sem þau búa í hefur hefðin ver­ ið við lýði síðan elstu menn muna. Hefðin er sú að konur giftist einnig bræðrum fyrsta eiginmanns síns. „Í byrjun var þetta frekar vandræða­ legt,“ segir Rajo í samtali við The Sun. „En ég geri aldrei upp á milli þeirra.“ Fjölveri, að vera gift mörgum eigin mönnum, er við lýði víða um Indland en vinsældir hefðarinn­ ar hafa þó farið aðeins dvínandi undanfarin ár.Hefðin er rakin aft­ ur til fornalda en er líka talin vera til þess að halda ræktunarlandi í fjöl­ skyldunni. Það er algengast norðar­ lega í landinu. Fjölveri er þekkt á fleiri stöðum um heiminn en hefur víðast hvar dáið út með tímanum. Í löndum eins og Indlandi og Kína hefur siðn­ um hins vegar verið haldið við sums staðar vegna þess að mun fleiri karl­ ar eru en konur. Meiri athygli og ást Rajo segist alltaf hafa verið viðbúin því að ef hún giftist þá myndi hún líka giftast bræðrum eiginmanns síns. Þannig var það hjá móður hennar sem átti þrjá eiginmenn. Hún segir hjónalífið ganga vel og þau skiptist á að sofa saman eins og áður kom fram. Þau eiga ekki rúm en hafa nóg af teppum á gólfinu og það fer ekki illa um þau. „Ég fæ miklu meiri athygli og ást en flestar eiginkonur,“ segir Rajo. n Gift fimm bræðrum n Rajo Verma á fimm eiginmenn og skiptir nóttunum á milli þeirra Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Við stundum allir kynlíf með henni en ég er ekki afbrýði- samur. Fjölskyldan Hér sést Rajo fremst með son sinn og svo eiginmenn- ina fimm í bakgrunni. Tvær milljónir fyrir flugfarið Að fljúga til Guantanamo Bay kostar núna rúmar tvær millj­ ónir króna. Þetta er staðan eftir að stjórnendur herstöðvarinn­ ar ákváðu að loka á almenn­ ar flugsamgöngur á milli Flór­ ída og stöðvarinnar. Aðeins blaðamenn, lögmenn, hjálpar­ starfsmenn og þeir sem vinna á herstöðinni komast í flug til Guantanamo. Ekki eru allir á eitt sáttir við þetta nýja fyrirkomulag og segir bandarískur lögmað­ ur að með þessu sé verið að tak­ marka aðgengi fanga á herstöð­ inni að lögmönnum sínum. „En þetta er ekki bara skaðlegt fyrir samband lögmanna og skjól­ stæðinga þeirra,“ segir hann. „Heldur skaðar þetta alla þá sem vinna þarna, hermenn og ástvini þeirra.“ Refsa fyrir kynlíf einhleypra Fjölskyldugildin í fyrirrúmi Hér sést Tony Perkins, formaður samtakanna Family Research Council, taka í höndina á Rick Santorum sem sóttist eftir því að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins í aðdraganda kosninganna í fyrra. Páfinn kyssti börn Frans páfi fyrsti hélt innsetn­ ingarræðu sína í vikunni og hvatti til þess að slegin yrði skjaldborg um móður jörð og hennar minnstu bræður. Að ræðuhöldum loknum var keyrt með páfann um Péturstorg á þaklausum jeppa og í hita leiks­ ins steig Frans út úr bílnum, heilsaði viðstöddum með handa­ bandi og kyssti börn. Þegar guðs­ þjónusta hófst fékk páfinn „hring fiskimannsins“ en athygli vakti að hringurinn var úr silfri en ekki gulli að þessu sinni. Þá var Frans sveipaður þeim hvítu klæðum sem tákna hlutverk hans sem fjárhirðir hinna trúuðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.