Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Side 14
Sandkorn É g er þátttakandi í þessu, ég ber ekki ábyrgð á hruninu, en ég tók þátt í því að tjakka upp blöðr­ una sem íslenskt viðskiptalíf var og axla mína ábyrgð á því, sagði Pálmi Haraldsson fjárfestir í viðtali við DV á fyrri hluta árs 2010. Pálmi var að vísa til þess hvernig hann var þátttakandi í því á árunum fyrir hrun íslensku bankanna árið 2008 að búa til falska mynd af verðmæti þeirra fyrirtækja og eigna sem hann og við­ skiptafélagar hans seldu á milli sín. Meðal annars olíufélagið Skeljung og danska flugfélagið Sterling. Þetta er eitt af púslunum sem við lítum svo á í dag að hafi átt þátt í að orsaka hrunið: Eignir gengu kaupum og sölum á uppsprengdu verði á milli sömu aðilanna sem réðu í einhverjum tilfellum einnig yfir fjármálafyrirtækj­ unum sem lánuðu peningana í við­ skiptunum. Selja þurfti eignirnar á hærra verði en þær voru keyptar á til að viðhalda eignabólunni og þeirri tálsýn að einhver verðmætamyndun hefði átt sér stað frá kaupunum á eign­ inni og þar til hún var seld. Og til þess að selja eignirnar þurfti að fá hærri lán úr bönkunum sem aftur tóku frekari lán í erlendum bönkum. Þessi þróun gat ekki gengið endalaust: Hún var eins og eitt stór píramídasvindl. Álíka bólur hafa sprungið víða um heim á liðnum árum, til dæmis fasteigna­ bólurnar á Spáni og Írlandi. Slíkar bólur, þar sem verðmæti til­ tekinna eigna fer upp í hæstu hæðir tímabundið áður en verðhrun á sér stað, verða vitanlega ekki til af sjálfum sér, án afskipta aðila á markaði, það er að segja mannanna. Á bak við efna­ hagsbólur standa yfirleitt aðilar sem sjá gróðatækifæri í eignum sem kunna að vera of lágt metnar og sem þeir telja að eigi möguleika á að hækka í verði. Að átta sig á vanmati á verðmæti eigna er eitt af einkennum kænna viðskipta­ manna því þá geta þeir nýtt sér tæki­ færið og hagnast á þessum eignum. Með kaupum þeirra á eignunum, og frekari viðskiptum með þær, er hugs­ anlegt að þessar eignir fari að hækka í verði og skili hagnaði til kaupenda þeirra. Síðastliðna viku hefur í DV verið fjallað um eitt slíkt mál þar sem eitt tiltekið fjárfestingarfélag, GAM Management, telur sig hafa séð hagn­ aðartækifæri í uppkaupum á íbúðum miðsvæðis í Reykjavík. Fyrirtækið hefur síðastliðna mánuði keypt upp 140 íbúðir í miðbænum, Vestur­ bænum og Hlíðunum fyrir um fjóra milljarða króna. Framkvæmdastjóri félagsins útskýrir uppkaupin þannig að hann telji íbúðir á þessu svæði of lágt metnar og að líklegt sé að þær muni hækka í verði á komandi árum. Á meðan leigir GAM þessar íbúðir út til leigjenda, hagnast væntanlega á hverri íbúð fyrir sig og eignast með tíð og tíma meira í hverri íbúð fyrir sig. Ef fleiri slík fasteignafélög koma fram á sjónarsviðið vegna fordæmis GAM og vilja einnig stökkva á þenn­ an vagn. Þá gæti „venjulegt fólk“, sem ekki hefur yfir að ráða digrum sjóðum líkt og fjárfestingarfélag, átt erfiðara um vik að kaupa eignir á svæðinu þar sem það er að keppa um eignir við miklu fjársterkari aðila. Slík þró­ un gæti leitt af sér bólu á fasteigna­ markaðnum á svæðinu þar sem eignir verða verðlagar út af markaðnum fyrir óbreytta borgara. Þessi þróun er kannski sérstak­ lega varhugaverð í því andrúmslofti til fjárfestinga sem ríkir á Íslandi í dag. Gjaldeyrishöft og lítt virkur og máttlaus hlutabréfamarkaður gera það að verkum að tækifæri fjársterkra aðila til að koma peningunum sín­ um í umferð á Íslandi eða jafnvel úr landi eru heldur fá. Fjárfestingar í fasteignum eru því einn af þeim kost­ um sem margir peningamenn horfa á til að koma aurunum sínum í gagn­ ið. Í fasteignafjárfestingum felst yfir­ leitt minni áhætta en í fjárfestingum í hlutabréfum. Einnig verður að horfa til þess að íslensku bankarnir hafa verið tregir til að selja mikið af því atvinnuhúsnæði sem þeir hafa yfir­ tekið eftir hrunið 2008. Svo virðist sem bankarnir vilji frekar eiga væn­ legar, stórar eignir sjálfir en að selja þær til fjárfesta. Fyrir vikið er minna framboð á fasteignum til að fjárfesta í en ella og minni eignir eins og íbúðir komast í sigti fjárfesta. Spurningin sem vaknar vegna fjár­ festinga GAM í þessum 140 fasteign­ um er því hvort hið opinbera ætti að fara út í einhvers konar fyrirbyggj­ andi aðgerðir til að koma í veg fyrir að slík viðskipti geti haft bólumyndandi áhrif á íslenska fasteignamarkaðinn. Í slíkum fyrirbyggjandi aðgerðum gæti meðal annars falist að auka eftirlit hins opinbera með þessum markaði til að koma í veg fyrir að sami aðilinn, eða tengdir aðilar, kaupi upp gríðar­ legt magn eigna á sama svæðinu. Þá væri hægt að setja einhvers konar kvóta á leyfilegt hámark eigna sem tengdir aðilar mega eiga á sama svæðinu eða í sama póstnúmerinu. Ef GAM gat keypt 140 íbúðir fyrir fjóra milljarða á nokkrum mánuðum af hverju gæti þá ekki einhver annar enn fjársterkari aðili keypt 1.400 íbúðir fyrir 40 milljarða nú eða þá 14.000 íbúðir fyrir 400 milljarða? Hvað áhrif myndu slík uppkaup hafa á fasteignamarkaðinn og fyrir íslenskt efnahagslíf? Ákall um lögsókn n Kröfur Gunnars Þorsteins- sonar í Krossinum á hendur Vefpressunni og talskonum hóps kvenna sem saka Gunnar um kynferðislegt áreiti hafa vakið athygli. Björn Ingi Hrafnsson, aðaleigandi Vefpressunnar, og félagar hans eru krafðir um fimm milljónir króna vegna málsins. Þá eru talskonurnar einnig krafðar um bætur. Nokkurri furðu sætir að Gunnar krefur fyrr­ verandi mágkonu sína og aðrar úr hópi ásakenda ekki um bætur þrátt fyrir ákall þeirra um að verða lögsóttar. Þorsteinn Már reiður n Samherji á Akureyri er í lykilhlutverki þegar kemur að styrkjum til íþróttastarfs. Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri og félagar hans hafa verið einkar örlátir undan­ farin ár. En nú hefur orðið breyting á og hafa styrkirnir ekki borist í einhverjum tilvikum með tilheyrandi kreppu fyrir íþróttafélögin. Einhverjir rekja þetta ástand til harkalegra aðgerða Seðla­ bankans sem hefur um margra mánaða skeið haldið Samherja í spennitreyju vegna rannsóknar á meintu misferli með sölu á fiski. Öll­ um er ljóst að Þorsteinn Már er fjúkandi reiður. Villi rektor n Vilhjálmur Egilsson, fram­ kvæmdastjóri Samtaka at­ vinnulífsins, lætur af störf­ um á næstu mánuðum til að taka við emb­ ætti rektors Háskólans á Bifröst. Þetta vekur nokkra athygli þar sem Vilhjálmur hefur verið áberandi og í valdastöðu. Hins vegar er talið að hann hafi fundið að staða hans innan SA var orðin veikari en áður. Svo virtist sem honum væri haldið til baka sem málsvara af stjórn samtakanna. Nú mun hann sem sagt ganga í endurnýjun lífdaga. Svartur reykur n Ofurspenna er innan Sjálfstæðisflokksins vegna þess að Evrópuarmur flokksins er á flótta undan Davíð Odds- syni og um­ bjóðendum hans. Þykir þetta skýra að einhverju leyti fylgishrunið sem fram kemur í könnunum. Jón Atli Játvarðarson á Reykhólum orti af þessu tilefni: Evrópusambandið engan fær leik hjá örlitlum sjálfstæðiskróum Meðan þeir sjá aðeins svartan upp reyk svífa í Hádegismóum. Verða að gera betur Þetta er eldgamalt mál Vigdís Hauksdóttir um gagnrýni Bjarna Benediktssonar á Framsóknarflokkinn. – DV Björn Zoëga um að sjúklingum sé ráðlagt að drekka ekki vatnið á Landspítalanum. Að tjakka upp bólur„Ég tók þátt í því að tjakka upp blöðr- una sem íslenskt viðskiptalíf var E ftir fjögur ár á þingi kemur það manni því miður ekki á óvart hvernig staðan á þeim bænum er nú í lok þessa undarlega kjör­ tímabils. Fyrirsagnir síðustu daga eru t.d. „Gerir ráð fyrir umræðum fram á nótt“, „Stjórnarskrármálið komið í öngstræti“, „Vantar skýran meirihluta“, „Illa farið með tíma Alþingis“ og „Ásakanir um skemmdarverk í stjórnar skrármálinu“. Margar eru beinar tilvitnanir í orð þingmannanna sjálfra enda falla gífuryrðin á báða bóga oft á dag. Þetta gerist allt saman á þingi sem sjálft ályktaði þann 28. september 2010 „að skýrsla rann­ sóknarnefndar Alþingis sé áfellis­ dómur yfir stjórnvöldum, stjórnmála­ mönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á formfestu“ og „að taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmálamenn­ ingu alvarlega og [Alþingi] leggur áherslu á að af henni verði dreginn lærdómur“. Það verkefni sem þingmenn standa nú frammi fyrir, þ.e. að sam­ þykkja nýja stjórnarskrá, virðist þeim því miður ofviða. Og ekki hjálpar þegar andstæðingar málsins, svo sem Birgir Ármannsson, ræða fjálglega um það úr ræðustól þingsins að þeir séu ekki bundnir af þjóðaratkvæða­ greiðslunni um stjórnarskrármálið þar sem hún hafi einungis verið ráð­ gefandi. Það er gríðarlega alvarlegt að þingmenn telji sig þess umkomna að hunsa vilja þjóðarinnar og sýnir enn betur mikilvægi þess að við setjum okkur ný stjórnlög þar sem fólkinu eru tryggð aukin völd og betri tæki til að veita þinginu og þingmönnum aðhald. Ég minni á að við erum í samningaviðræðum við Evrópusam­ bandið um aðild að því. Án stjórnar­ skrárbreytinga verður þjóðaratkvæða­ greiðslan um samninginn einungis ráðgefandi. Og á Alþingi sitja þing­ menn sem segjast ekki bundnir af ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslum. Sú staða er óásættanleg. Nýkjörinn formaður Samfylkingar­ innar virðist álíta það æðsta form jafnaðarmennsku að láta valta yfir sig. Hann virðist alls ekki vilja nota þann möguleika sem er innbyggð­ ur í þingsköp að meirihluti þings­ ins geti stöðvað málþóf og krafist at­ kvæðagreiðslu um mál. Ég hef nú verið á mörgum fundum um ævina en þingfundirnir eru þeir einu þar sem ekki þykir við hæfi að stöðva endalaus­ ar umræður um ekki neitt. Að mínu mati er það ekki ofbeldisverk að stöðva umræðu sem er komin út í rugl. Það er nauðsynlegt. Þessi grein þingskapanna hefur þó ekki verið notuð síðan 1949 og feimnin við hana því ekki nýtilkom­ in. Nú má enginn skilja mig með þeim hætti að ég vilji að ekkert sé hlustað á minnihlutann og að hann eigi engu að ráða. Svo er ekki. Stjórnarandstaðan á hverjum tíma gegnir mikilvægu hlut­ verki í lýðræðissamfélagi. Hennar er að benda á það sem betur má fara og hún þarf að hafa neyðarhemil til að grípa í þegar í óefni stefnir. Hún á hins vegar ekki að troða upp í þingsal allan sólar­ hringinn, koma í veg fyrir að stjórnvöld komi málum sínum í gegn og í raun taka sér neitunarvald í öllum málum. Og samkvæmt þingsköpum á hún einmitt ekki að hafa það. Sá meirihluti sem setið hefur þetta kjörtímabil virð­ ist hins vegar alls ekki hafa manndóm í sér til að stöðva málþófið. Í síðustu alþingiskosningum fengu þau framboð sem vildu nýja stjórnar­ skrá 76,3% atkvæðanna. Í þjóðarat­ kvæðagreiðslunni þann 20. október s.l. vildu 2/3 kjósenda að tillögur stjórn­ lagaráðs yrðu lagðar til grundvallar nýrri stjórnarskrá og kjósendur sögðu já við öllum hinum spurningunum líka. Getur umboð Alþingis til að klára málið orðið skýrara? Hvort erum við menn eða mýs? Menn eða mýs? Leiðari Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Kjallari Margrét Tryggvadóttir Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALNÚMER RITSTJÓRN ÁSKRIFTARSÍMI AUGLÝSINGAR 14 20. mars 2013 Mánudagur „Nýkjörinn formað- ur Samfylkingarinn- ar virðist álíta það æðsta form jafnaðarmennsku að láta valta yfir sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.