Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Side 15
Ég vil skilja eftir brosandi andlit Við erum öll ábyrg fyrir því samfélagi sem við búum í Sveinn Kristjánsson stofnaði Ævispor þar sem netverjar geta skilið eftir minningar. – KastljósEgill Ólafsson hefur gengið til liðs við Lýðræðisvaktina – DV.is Tryggjum þjóðareign í stjórnarskrá Spurningin „Ég hef verið að hlusta mikið á Nirvana.“ Tómas Magnússon 32 ára listamaður „Reggí.“ Þórsteinn Sigurðsson 25 ára leikmaður „Ég er búin að vera að hlusta á Enya.“ Tanya Pollock 31 árs tónlistarkona „Hip-hop, rokk, ætli það ekki. Hef mikið verið að hlusta á hljómsveitina Giza.“ Dagur Kaveh 24 ára matreiðslumaður „Þunga tónlist. Það er ekki endilega stefna, bara tónlist með þungum hljómblæ og tilfinn- ingum eins og Sigur Rós, Yann Tierson, Rammstein eða Tom Waits.“ Simon Martins 20 ára ferðamaður Hvað hlustar þú mest á þessa dagana? 1 Kannabisverksmiðja í vegkanti Vegfarandi gekk fram á stóran ruslahaug í borginni. Þar var allt til kannabisframleiðslu. 2 Risahagnaður á hrunárinu Eignarhaldsfélagið GAM Management hagnaðist um rúmlega 330 milljónir króna árið 2008. 3 Mátti ekki verða dóttur sinni til skammar þegar hann hitti Ryan Gosling Dóttir spjall- þáttastjórnanda heimtaði að faðir hennar tæki viðtal við leikarann. 4 Ástfangin af hundi Kim Kardashi-an er sögð æfa sig í foreldrahlutverkinu með því að gæta hvolps systur sinnar. 5 Má ekki lengur skrifa Bak-þanka í Fréttablaðið Kolbeinn Proppé, blaðamaður á Fréttablaðinu, var settur út í kuldann vegna skoðana sinna. 6 Faðernisprófi gegn Jordan vísað frá Dómstóll í Georgíu í Banda- ríkjunum hefur vísað frá faðernismáli gegn körfuboltagoðsögninni. Mest lesið á DV.is N ú er ögurstund í stjórnar- skrármálinu. Sögulegur ferill stjórnarskrárbreytinga með beinni aðkomu þjóðarinnar hefur skilað okkur heildstæðu frumvarpi um nýja stjórnarskrá. Ekki er hins vegar nægur stuðningur á Al- þingi við að samþykkja það frumvarp óbreytt og ljóst að það kæmi einungis til atkvæða með því að beita neyðar- úrræði í þingsköpum sem heimilar að umræða sé stöðvuð og gengið til at- kvæða. Það kunna að vera rök fyrir því að grípa til slíkra ráða í undantekn- ingartilvikum, ef um er að ræða af- markað mál sem fengið hefur ítarlega umræðu í þinginu. Slík vinnubrögð samrýmast hins vegar illa frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár í 115 greinum, sem borin er fram í miklum ágrein- ingi. Til að bregðast við þeirri stöðu og koma í veg fyrir að málið allt dagaði uppi í málþófi, lagði formaður Sam- fylkingarinnar ásamt formönnum VG og Bjartrar framtíðar fram sáttaleið, sem felur í sér farveg til að tryggja málinu framhaldslíf yfir á næsta kjör- tímabil og umbúnað sem geri kleift að ljúka því með sóma á næsta þingi. Því til viðbótar hafa þingflokksformenn Samfylkingarinnar og VG auk undir- ritaðs og Árna Þórs Sigurðssonar lagt fram breytingartillögu í samráði við forystumenn stjórnarflokkanna um nýtt auðlindaákvæði, sem að margra mati er mikilvægasta ákvæði frum- varps að nýrri stjórnarskrá. Breytingar- tillaga okkar er samhljóða lokaútgáfu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á því auðlindaákvæði sem stjórnlagaráð samþykkti og lagði fyrir þingið 29. júlí 2011. Hið nýja auðlinda- ákvæði er niðurstaða ítarlegs sam- ráðsferils þar sem að hafa komið allar fagnefndir Alþingis, Feneyjanefndin og fjölmargir sérfræðingar. Hápunktur langrar þróunar Hið nýja auðlindaákvæði hvílir á göml- um merg og sameinar m.a. það besta úr tillögum auðlindanefndar árið 2000 og stjórnlaganefndar árið 2011 en Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokk- ur hafa vísað í þær tillögur sem góðan grunn til samkomulags um nýtt auð- lindaákvæði. Tillaga auðlindanefndar kvað skýrt á um að náttúruauðlindir sem ekki eru háðar einkaeignarrétti séu þjóðareign og þær megi ekki selja né láta varanlega af hendi til einstak- linga eða lögaðila. Auðlindanefnd og stjórnlaganefnd lögðu báðar áherslu á að nýting auðlindanna þyrfti að byggja á sjálfbærri þróun og auðlindanefnd áréttaði að nýtingarheimildir leiði aldrei til eignarréttar eða óafturkall- anlegs forræðis einkaaðila yfir þeim. Hið nýja auðlindaákvæði heldur öllum þessum meginatriðum til haga. Því til viðbótar er í hinu nýja ákvæði kveðið á um hvernig skuli farið með auðlindir í eigu ríkisins og hvaða auðlindir telj- ist til þjóðareignar. Síðast en ekki síst er að finna í hinu nýja auðlindaákvæði forskrift til stjórnvalda um þau skilyrði sem þurfi að uppfylla varðandi nýtingu auðlindanna. Þau eru í fyrsta lagi að nýtingarleyfi séu veitt til hóflegs tíma í senn, í öðru lagi gegn eðlilegu gjaldi og síðast en ekki síst á jafnræðisgrundvelli. Hvað er í húfi? Ég vil halda því fram að auðlindamál- in séu mikilvægasta hagsmunamál þjóðarinnar til framtíðar litið. Barátt- an um þjóðareign auðlinda snýst um að þjóðin njóti ótvíræðs eignarréttar á sameiginlegum auðlindum sínum, sá réttur sé varinn í stjórnarskrá og þjóðin fái eðlilega og sanngjarna hlut- deild í arðinum af tímabundinni nýt- ingu þessara auðlinda. Höfum í huga að núverandi ríkisstjórn er sú fyrsta í sögunni sem tekur eðlilegt veiðigjald af útgerðinni – fram til 2009 var ein- göngu innheimt málamyndagjald sem nam allt niður í 0,3% af hagnaði út- gerðarinnar! Sögulegt tækifæri Allir stjórnmálaflokkar á Alþingi hafa lýst yfir vilja til að samþykkja auðlinda- ákvæði í stjórnarskrá og fyrrnefndur samanburður á tillögum sem mótaðar hafa verið frá aldamótum sýnir að það er hægur vandi að ná samkomulagi um orðalag, ef vilji er fyrir hendi. Ábyrgð stjórnmálamanna á Al- þingi er mikil að nýta nú tækifærið til að skapa sögulega sátt um að verja auðlindir þjóðarinnar í stjórnarskrá. Samfylkingin leggur áherslu á að Al- þingi ljúki ekki störfum fyrr en auð- lindaákvæði hefur verið samþykkt í samræmi við skýran þjóðarvilja, nú síðast í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október. Umræða 15Mánudagur 20. mars 2013 Ég varð bara að standa við þetta Kristján Úlfarsson fékk sé ÍR–húðflúr í hjartastað. – DV.is „Ég vil halda því fram að auðlinda- málin séu mikilvægasta hagsmunamál þjóðarinn- ar til framtíðar litið. Kjallari Skúli Helgason Í vikunni voru samþykkt ný lög um neytendalán. Meðal efnisatriða þessara nýju laga er að til verður umgjörð um svokölluð smálán. Ekki veitti af því. Þessi nýju lög eru verulegt framfaraskref fyrir neytendur að mínu mati og bæta stöðu þeirra í samskiptum við lánveitendur og fjár- málafyrirtæki. Mikil umræða hefur verið bæði hérlendis og í nágrannalöndunum um hætturnar sem fylgt geta svonefndum smálánum, þ.e. lánum til skamms tíma með mjög háum vöxtum og bágri réttarstöðu þess sem lánið tekur. Svo- nefnd smálánafyrirtæki hófu starf- semi hér á landi í upphafi árs 2010. Bæði hagsmunaaðilar og eftirlitsaðilar á neytendamarkaði hafa lýst yfir mikl- um áhyggjum af uppgangi smálána- fyrirtækja hér á landi enda er hér um að ræða lán á okurkjörum, heildar- kostnaði sem getur numið yfir 600% af lánsfjárhæð á ársgrundvelli. Þessi smálán hafa verið markaðssett sér- staklega gagnvart ungu fólki, þeim sem höllum fæti standa og þeim sem hafa lítið á milli handanna. Umsagnaraðilar samhljóma um nýju lögin Eins og staðan var fyrir tilkomu nýju laganna féll veiting smálána ekki undir ákvæði þáverandi laga um neytendalán vegna undanþágu sem sagði að lánssamningar sem gilda til skemmri tíma en þrjá mánuði væru undanskildir gildissviði laganna. Í ný- samþykktum lögum er ákvæði þess efnis að þau gildi um öll neytendalán óháð fjárhæð, þ.m.t. smálán. Við undirbúning frumvarpsins átti atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið samráð við ýmsa aðila, t.d. embætti umboðsmanns skuldara, hjálparstofnanir, Velferðarvaktina, Fjármálaeftirlitið og Neytendastofu. Þau sjónarmið sem fram komu í um- sögnum þessara aðila voru á þá leið að full ástæða væri til að tryggja hags- muni neytenda með því að fella smá- lán undir lagaramma neytendalána. Hámark á vöxtum Sum nágrannalönd okkar hafa fund- ið sig knúin til að bregðast við upp- gangi smálánafyrirtækja með aukinni reglusetningu til verndar neytendum. Í þessu samhengi er vert að nefna að um helmingur af 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins hefur í löggjöf sinni ákvæði um hámarksvexti. Með tilliti til þessa var ákveðið í ný- samþykktum lögum að setja hámark á árlega hlutfallstölu kostnaðar vegna neytendalána. Hámark á árlega hlut- fallstölu kostnaðar er 50% að viðbætt- um stýrivöxtum Seðlabankans, sem taka á tillit til kostnaðar fjármagns á hverjum tíma. Ekki er gert ráð fyrir að þetta þak á hámarkskostnað muni hafa áhrif á aðra aðila á lánamarkaði en smálánafyrirtæki, enda þekkist ekki hjá öðrum lánveitendum að lögð sé á hærri árleg hlutfallstala kostn- aðar. Tilskipunin frá 2008 sem þessi nýju lög um neytendalán er m.a. ætlað að fela fyrst og fremst í sér tvær megin- reglur þegar kemur að neytenda- vernd vegna lántöku. Annars vegar að neytendum skuli veittar fullnægj- andi upplýsingar sem settar eru fram á samræmdan máta svo þeir geti bor- ið mismunandi lánatilboð saman og tekið upplýsta ákvörðun. Hins vegar skal meta lánshæfi lántaka, svo og greiðsluhæfi ef lánið er yfir tilteknum fjárhæðarmörkum. Frá 15. apríl næstkomandi mun, t.d. smálánafyrirtæki sem innheimt- ir 11.700 kr. í kostnað vegna 60.000 kr. láns til tveggja vikna aðeins heim- ilt að innheimta 1.101 kr. vegna sams konar láns. Með nokkurri einföldun má tala um nafnvexti í stað árlegrar hlutfallstölu kostnaðar og þá má segja miðað við fyrrgreint dæmi að nafn- vextir séu að lækka úr 468% í 44% í kjölfar þess að lögin voru samþykkt. Ný lög um neytendalán eru ótví- rætt framfaraskref, þau efla neytenda- vernd á fjármálamarkaði, bæta stöðu lántaka og koma í veg fyrir óeðlilega há vaxtakjör á stuttum neytendalán- um. Höfundur er atvinnuvega- og ný- sköpunarráðherra. Ný lög um smálánastarfsemi„Þessi smálán hafa verið markaðs- sett sérstaklega gagn- vart ungu fólki, þeim sem höllum fæti standa og þeim sem hafa lítið á milli handanna. Kjallari Steingrímur J. Sigfússon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.