Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Page 16
16 Neytendur 20. mars 2013 Mánudagur
Nizza karamellueggið best
n Fjögurra manna dómnefnd valdi besta eggið n Börnin dæmdu líka páskaeggin í ár n Dökku eggin stóðust ekki væntingar
N
izza karamellueggið frá Nóa
Síríus þótti best í árlegri
páskaeggjasmökkun DV.
Eggið hlaut meðaleinkunn-
ina 7,6. Konfektegg frá Nóa
Síríus lenti í öðru sæti með 7,4 og
Draumaegg Freyju í því þriðja með
7,3 í einkunn.
Dómnefndina skipuðu þau
Nanna Rögnvaldsdóttir ritstjóri, Axel
Þorsteinsson, bakari og konditoríi,
Völundur S. Völundarson, mat-
reiðslumaður og Þóra Sigurðardóttir,
rithöfundur.
Blind smökkun
DV hafði samband við þrjá helstu
framleiðendur páskaeggja á Íslandi;
Góu, Freyju og Nóa Síríus og fékk
send þau páskaegg sem fyrirtækin
framleiða. Framleiðendurnir tóku
allir vel í það og fékk DV þrjú egg frá
Góu, sjö frá Nóa Síríus og fimm frá
Freyju.
Könnunin var þannig fram-
kvæmd að eggin voru hvert af öðru
brotin í númeraðar skálar sem síðan
voru bornar í herbergi þar sem dóm-
ararnir höfðu komið sér fyrir. Þeir
fengu ekki að vita frá hvaða framleið-
anda hvert og eitt egg var komið, né
heldur fengu þeir að sjá skraut, sæl-
gæti eða annað það sem eggjunum
fylgdi.
Dómararnir voru beðnir að gefa
eggjunum stjörnur frá 0 til 10 auk
þess sem þeir voru hvattir til að gefa
hverju eggi stutta umsögn.
Framleidd með börn í huga
Líkt og í fyrra urðu dómararnir fyrir
ákveðnum vonbrigðum með eggin.
Þau segjast þó vera meðvituð um að
eggin séu aðallega framleidd fyrir
börn og að því leytinu séu þau ágæt.
„Fyrir mér er þetta samt allt annað
en súkkulaði. Súkkulaðiheimurinn
er svo stór og það þyrfti að kynna
alvöru súkkulaði fyrir Íslendingum,“
segir Axel. Þá var dómnefndin sam-
mála um að dökku eggin hefðu ekki
staðið undir væntingum. Svo virðist
sem framleiðendurnir séu að reyna
að búa til súkkulaði sem höfði til
þeirra sem vilji ekki dökkt súkkulaði
og að þau hafi verið betri í fyrra. „Svo
er ég ekki sátt við þennan takka sem
settur var aftan á og allt sælgætið sett
í poka. Ég mundi vilja hafa þetta eins
og áður,“ segir Þóra. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Börnunum fannst
lakkrísegg Góu best
Þ
ar sem páskaegg eru aðallega
ætluð til að gleðja börnin um
páskana ákvað DV að kalla líka
í dómnefnd skipaða börnum.
Í dómnefndinni sátu Guðrún
Ólafía Þorsteinsdóttir 10 ára, Eva
Alice Devaney 6 ára, Lúkas Emil Jo-
hansen 8 ára, Daníel Elí Johansen
4 ára, Sólon Snær Traustason 7 ára,
Ísabella Rakel Caputo 9 ára og Þór-
dís Anna Sigtryggsdóttir 4 ára. Dóm-
nefndin átti erfitt verk fyrir höndum
því eins og einn dómnefndarmaður
sagði; „Öll páskaegg eru bara svo
góð.“
Smökkuðu og dæmdu
Skipulagið var það sama og hjá
eldri dómnefndinni nema hvað
börnin gáfu eggjunum ekki einkunn,
einungis umsögn. Þá nefndu þau
hvert og eitt það egg sem þeim þótti
best.
Kom í ljós að börnin leggja aðrar
áherslur á hvernig eggin eiga að vera
og hvað þeim finnst besta eggið.
Þremur börnum fannst lakkríseggið
frá Góu best og tvö völdu Konfekt egg
Nóa Síríus sem besta eggið. Nizza
karamellueggið og Freyjufjör án
mjólkur fengu svo hvort sitt stigið.
1 Nizza karamelluegg
Meðaleinkunn: 7,6 Framleiðandi: Nói Síríus
Þóra: „Karamellukröns. Flott – fíla það.“
Völundur: „Karamelluegg. Finnst
það gott en gæti ekki borðað mikið.
Nammigrísir gætu rifið þetta í sig.“
Axel: „Þetta slær í gegn hjá krökkum
og fullorðnum. Algjört nammi.“
Nanna: „Nammiegg sem er of sætt
fyrir mig en ekta krakkaegg.“
Hvað segja börnin
Ísabella: „Vont.“
Guðrún Ólafía: „Mjög gott!“
Lúkas: „ Gott-vont.
Karamellan er allt of lítil.
Súkkulaðið er samt alltaf
gott.“
Daníel Elí: „Þetta er best.
Mjög gott.“
Þórdís Anna: „Ekki gott.“
Eva: „Gott.“
Sólon: „Bara ógeðslegt.“
3 Draumaegg
Meðaleinkunn: 7,3 Framleiðandi: Freyja
Þóra: „Fullkomið egg fyrir lakkrísfíkla.“
Völundur: „Lakkrísegg. Minna af lakkrís en bragðbetra
en hitt lakkríseggið.“
Axel: „Minna af lakkrís en í hinu en
það skaðar ekkert. Góður lakkrís
og súkkulaðið með ágætis bragð.“
Nanna: „Gott af lakkríseggi að vera.
Súkkulaðið bragðgott.“
Hvað segja börnin
Ísabella: „Vont, í miðju.“
Guðrún Ólafía: „Allt í lagi.“
Lúkas: „Mmmm, þetta er
mjög gott.“
Daníel Elí: „Liverpool
gott.“
Þórdís Anna: „Frekar gott
með lakkrís.“
Eva: „Gott.“
Sólon: „Namm, má ég fá
meira.“
2 Konfektegg
Meðaleinkunn: 7,4 Framleiðandi: Nói Síríus
Þóra: „Stórt venjulegt Nóa egg, held ég. Klikkar ekki.“
Völundur: „Fínasta egg. Vinnur á. Smá kara-
mellufílingur.“
Axel: „Bragðlítið í byrjun en gott
eftirbragð sem situr eftir.“
Nanna: „Gamaldags og gott.
Ekta páskaegg.“
Hvað segja börnin
Ísabella: „Gott, flott og
stórt.“
Guðrún Ólafía: „Allt
í lagi.“
Lúkas: „Þetta er
mjög gott. Súkkulað-
isæla.“
Daníel Elí: „Ég
mundi borða allt
eggið.“
Þórdís Anna: „Gott.“
Eva: „Gott.“
Sólon: „Þetta er best, ekki
borða það allt. Ég ætla að
klára það á eftir.“
n Velja önnur egg en fullorðna fólkið
„Lakkaðu á þér neglurnar hvað
þetta er gott páskaegg“
„Betra er að róa en
að reka undan“
„Sínum augum lítur
hver á silfrið“
„Stofnaðu sértrúarsöfnuð hvað
þetta er gott páskaegg“
„Þangað kemur kötturinn
sem honum er klórað“
„Eldmóðurinn kemur hjólum
hugmyndaflugsins í gang“
„Grillaðu hamstur hvað þetta
er gott páskaegg“
„Holdið er
torvelt að temja“
Dómnefndin Axel,
Þóra, Völundur og Nanna
völdu besta páskaeggið
MyNDir SiGtryGGur Ari
Barnadómnefndin Þessi fengu það ábyrgðarmikla hlutverk að dæma páskaeggin í ár.
7,6 7,4 7,3