Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Síða 18
18 Lífsstíll 20. mars 2013 Miðvikudagur
Þórunn Högna og Arnar
Gauti í eina sæng á ný
n Ómetanleg áratugalöng vinátta sem ekkert bítur á
Þ
órunn Högnadóttir og Arnar
Gauti Sverrisson hafa ákveðið
að fara í samstarf á ný eftir
nokkurt hlé. Þau unnu saman
að þættinum Innlit Útlit sem
var sýndur á Skjá Einum við frábærar
undirtektir. Arnar hefur söðlað um
og sagði starfi sínu lausu hjá Elite
Fashion Academy Reykjavík á dögun-
um, en hann hefur starfað við tísku og
stíliseringu síðastliðin 20 ár. Þórunn
er þekkt fyrir að vera mikill fagurkeri
og hefur hannað mörg heimili og gert
upp gömul húsgögn og muni á fal-
legan hátt.
Vinir í 20 ár
„Við Arnar erum búin
að vera vinir í 20 ár, við
kynntumst þegar hann
vann í Hans í Kringlunni
og ég vann í Sautján. Sam-
starfið í Innlit Útlit stóð
yfir í fimm ár og var einn
skemmtilegasti tími sem
ég man eftir,“segir Þórunn
um vinskap þeirra Arnars.
Fékk verðlaun fyrir
ljósmynd ársins
„Ég á til dæmis tímarits-
mynd ársins að mati
Blaðaljósmyndarafélagi
Íslands og tímaritsmynd
ársins 2012 og 2013 með
Kristni Magnússyni, ég og hann höf-
um náð alveg ótrúlega vel saman og
gert flotta hluti saman, en við skut-
um einnig forsíðuna af Jóni Ólafssyni
og Jóhannesi kenndum við Bónus og
vöktu þær mikla athygli og var fjallað
um þær í öðrum fréttamiðlum. Svo
hef ég aðvitað komið að ótal tísku-
þáttum,“ segir Arnar um reynslu sína
af fjölmiðlastarfi í gegnum tíðina.
Nýhættur hjá Elite
Hvernig kom til að þið tókuð þá
ákvörðun að hefja samstarf aftur?
„Arnar var nýhættur hjá Elite
og ég var nýbúin að stofna mitt eig-
ið veftímarit og út frá því fórum við
að spjalla um hvort við gætum ekki
gert eitthvað skemmtilegt saman. Og
núna erum við á fullu að undirbúa
nýtt og ferskt tísku- og lífsstílstímarit
ásamt því að vinna að Home
Magazine sem kemur út á næstu dög-
um,“ segir Þórunn.
Hvernig veftímarit verður þetta?
„My Magazine mun fjalla um allt
sem tengist tísku, lífsstíl, menningu
og allt þar á milli, en við munum taka
púlsinn á öllu því frábæra sem er að
gerast hér á landi sem og úti í heimi.“
Á ekki Crocs-skó
Hvaða hönnunarhlut mynduð þið
helst af öllu vilja eignast?
ÞH: „Mig hefur lengi dreymt um
að eignast koníaksbrúnan svan eft-
ir Arne Jacobsen og svartan Eames
„Lounge“-stól. Vona að það stytt-
ist í að ég geti fjárfest í þessum
gersemum.“
AG: „Mig hefur alltaf langað til að
eignast „Lounge“-stól eftir Charles og
Ray Eames, hann er ótrúlega flottur
og er draumurinn.“
Verður aðaláherslan á hátísku-
vörur í rándýra kantinum eða fær al-
menningur að fljóta með?
„Við komum til með að sýna það
sem hönnuðir úti í heimi eru að gera,
en færum það örugglega yfir í klæðn-
að og stíl sem við á Íslandi erum mest
að spá í dags daglega, það verður
mjög flottur hópur sem mun vinna
að þessu veftímariti með okkur,“ segir
Arnar.
Eruð þið alltaf óaðfinnanleg til
fara eða laumist þið stundum í Crocs
(gúmmískór) og flís?
ÞH: „Ég elska föt og skó og allt þar
á milli, þannig að ég reyni eftir bestu
getu að líta vel út á hverjum degi, og
hef gaman af. En það fyrsta sem ég
geri þegar ég kem heim í lok dags,
er að fara í heimafötin mín, sem eru
mjög þægileg, og inniskóna mína
sem eru reyndar ekki Crocs en flís hef
ég ekki farið í í mörg ár.“
AG: „Ég tel mig vera alltaf frekar
vel til fara, en það tekur mig ekki
langan tíma að ákveða í hverju ég ætla
að vera. Ég er bara alltaf með þetta og
myndi ekki velja mér Crocs og flís
dags daglega þó svo að mér finnist
ekkert að því að aðrir kjósi þann stíl.“
Þórunn, nú birtir þú reglulega
á Facebook dásemdarrétti sem fá
okkur margar til að virðast fáránlega
ómerkilegar í eldhúsinu. Eru þetta
stolnar myndir af netinu eða eldar þú
í alvöru svona flottan mat á hverjum
degi?
„Eldamennska er orðin ástríða hjá
mér, ég get verið í eldhúsinu í marga
tíma á dag að undirbúa matinn. Og
nei, þetta eru ekki stolnar myndir af
netinu – mínar myndir og ég er bara
stolt af þeim.“
Myndi aldrei fara í heilgalla
Arnar, ert þú til fyrirmyndar í eldhús-
inu?
„Já, ég er einstaklega duglegur í
eldhúsinu og þá sérstaklega í ítölsk-
um mat, en ég fæ líka ómetanlega
aðstoð í eldhúsinu frá ungunum
mínum, París og Kiljan Gauta.“
Hverju á alls ekki að klæðast kom-
andi sumar?
„Það sem ég ætla að mæla með er
að draga úr dökkum fatnaði, og klæð-
ast ljósum og björtum litum. Það sem
er svo gaman við tískuna er að það er
einhvern veginn allt í tísku, það fer
bara eftir því hvernig maður setur
það saman. Ég hlakka til að fara í
nota Converse-skóna mína, Please-
gallabuxurnar mínar og alla lituðu
jakkana mína,“ segir Þórunn.
Í hverju mynduð þið aldrei láta sjá
ykkur?
ÞH: „Flísgalla og Crocs.“
AG: „Ég held að ég verði að segja
kuldagalla, svona heilgalla, það færi
mér alveg einstaklega illa. Það væri
eins og ég væri að klæðast ferðagufu-
baði, ég er svo nettur líkamlega að
upp úr stæði bara lítill haus.“
Stefnið þið á heimsyfirráð með
samstarfi ykkar?
„Já, engin spurning við ætlum
alla leið saman og höfum mikla trú
á okkur sem teymi,“ segir Þórunn að
lokum. n
iris@dv.is
Svanurinn Þórunni langar mest í stól úr
hönnun Arne Jacobsen.
Fagurkeri Arnar hefur starfað við tísku yfir 20 ár.
Fagmaður Þórunn hefur starfað við
fjölmiðla um langt skeið.
Fallegt Home Magazine
er með fjölda skemmtilegra
hugmynda fyrir páskana í
mat og skreytingu.
Reffilegur Eitt af
verkum Arnars en
ljósmyndina tók
Kristinn Magnússon.
Vatnskóngurinn Arnar stíliseraði þessa mynd af Jóni Ólafs.
Draumurinn Arnar langar til að eignast Eames „Lounge“-stólinn.