Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Síða 23
Fólk 23Miðvikudagur 20. mars 2013 Þ etta er dálítið fyndið og ég væri til í að vita hvort hún hafi einhvern tímann lent í þessu líka, segir Hera Hjartardóttir söngkona. Hera er búsett í Christchurch á Nýja-Sjálandi og þýskur blaða- maður sem búsettur er í bænum tók við hana viðtal á dögunum og birtist viðtalið í dagblaðinu FAZ - Frankfurter Allgemeine Zeitung. Viðtalið var afar persónulegt og nákvæmt en blaðamaðurinn fylgdi Heru eftir í smá tíma. Þegar við- talið birtist var hins vegar mynd af annarri Heru með viðtalinu, söngkonunni Heru Björk Þórhalls- dóttur. „Þeir hljóta bara að hafa gúglað Hera Iceland og fengið þessa mynd upp,“ segir Hera hlæj- andi. „Það er greinilegt að sá sem hefur sett viðtalið upp hefur ekki lesið lýsingar af mér,“ segir hún en blaðamaðurinn sem tók við- talið er sem fyrr segir búsettur í Christchurch líkt og Hera, og sendi viðtalið til dagblaðsins, ásamt myndum sem átti að birta með. Hera segist ekki vita af hverju þetta hafi farið svona en henni finnst þetta nokkuð skondið. Þetta sé ekki í fyrsta skipti sem þeim nöfn- um sé ruglað saman. „Þetta hefur gerst áður en það væri gaman að vita hvort Hera Björk hafi líka lent í þessu, ég væri mikið til í að vita það,“ segir Hera hlæjandi. Rífast og slást í myndbandinu Það er nóg um að vera hjá Heru sem hefur búið á Nýja-Sjálandi undan- farin ár ásamt eiginmanni sín- um Hirti Arasyni. Nýlega gaf hún myndband við lagið Issues sem hún gerði ásamt Jed Parsons. „Við höfum verið að spila mikið saman undanfarið og erum að taka upp „live“-plötu sem kemur vonandi út á næstunni,“ segir Hera. Í mynd- bandinu við lagið setja þau Jed upp sparibrosið þegar þau koma fram að syngja og spila. En um leið og þau eru komin baksviðs þá byrja þau að rífast og slást. „Þetta fjallar í raun um þessa grímu sem fólk er alltaf að setja upp,“ segir hún. Jed og Hera hafa spilað víða saman og héldu meðal annars tónleika í leynigarði ekki alls fyrir löngu. „Það var leyndarmál hvar garður- inn var og fyrst ætluðum við bara að hafa 80 manns en það endaði í 200 manns.“ Hera segir tónleikana hafa verið afar skemmtilega en þau buðu meðal annars upp á vín, kökur og kex innan um eldlista- menn í fallega leynigarðinum. Mikil samkennd eftir jarð- skjálftana Mikið tjón varð í bænum þar sem þau búa eftir að stórir jarðskjálftar riðu þar yfir árið 2011. Mikið tjón var af skjálftunum og segir Hera að enn megi víða sjá ummerki um þá. „Það er enn verið að rífa niður hús eftir skjálftana og gera við götur. Maður er orðinn vanur þessu,“ segir hún. Margir hafa átt um sárt að binda eftir hörmungarnar en hún segir samkenndina mikla í bæn- um. Menningar- og listalíf hafi líka blómstrað í bænum eftir skjálftana og listamenn vinni saman að því að búa til skemmtilega menningu og list. „Það er mikið um að vera og svo margir að skapa eitthvað skemmti- legt. Það er alltaf eitthvað um að vera úti um allan bæ,“ segir hún. Ekki endilega á leið heim Hera segist ekki vita hvort þau komi á næstunni í heimsókn til Íslands. Síðast komu Hera og Hjörtur til Íslands sumarið 2010 og giftu sig þá með stæl. „Við höfum ekkert ákveðið hvenær við ætlum að koma heim en Jed langar mikið að koma til Íslands. Næst þegar við komum þá langar okkur að hafa stóran hóp með okkur og ferðast um landið, jafnvel með einhverja tónleika og sýningu, kannski bara svona fjöllistahóp.“ n viktoria@dv.is Herum ruglað saman„Þetta hefur gerst áður en það væri gaman að vita hvort Hera Björk hafi líka lent í þessu, ég væri mikið til í að vita það. Hera og Jed Þau Hera og Jed hafa mikið spilað saman undanfarið og stefna á að gefa út plötu á næstunni. Mikil samkennd Hera segir mikla sam- kennd ríkja í Christchurch eftir jarðskjálftana og að menningarlíf blómstri í bænum. Viðtalið Hér má sjá viðtalið, en því fylgdi mynd af annarri íslenskri Heru. Viðtalið var mjög persónulegt og ítarlegt. Hera Nóg er að gera hjá Heru í tónlistinni. Hún hefur mörg járn í eldinum og vinnur nú að nýrri plötu. n Þýskt blað birti mynd af Heru Björk með viðtali við Heru Hjartardóttur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.