Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2014, Qupperneq 17
Helgarblað 16.–19. maí 2014 Fréttir 17
„Farsæll bæjarstjóri í erFiðu árFerði“
Reynslubolti Halldór Halldórs
son, borgarstjóraefni Sjálfstæð
isflokksins, á langan stjórnmála
feril að baki. Mynd SigtRygguR ARi
n Áralangur taprekstur og erfiðleikar sem þurfti að yfirstíga n Langur stjórnmálaferill og ekki átakalaus n Segist hafa skilað góðu búi miðað við aðstæður
Þann 24. mars árið 2010 gerði Halldór Ísa
fjarðarbæ að þátttakanda í baráttufundi
útgerðarmanna gegn breytingum á kvóta
kerfinu og var sjálfur fundarstjóri á fundin
um. Málið var aldrei borið upp í bæjarráði
og var Halldór gagnrýndur fyrir að misnota
nafn bæjarins í annarlegum tilgangi.
„Engir fræðimenn eða sveitarstjórnar
menn sem lýst hafa efasemdum um
kvótakerfið fá þar að tala, aðeins
þeir sem stutt hafa sjónarmið LÍÚ og
Sjálfstæðisflokksins,“ skrifaði Sigurður
Pétursson, bæjarfulltrúi Ílistans, í bæjar
blaðið BB og hélt því fram að með þessu
hefði Halldór kastað af sér grímunni
sem „talsmaður stórútgerðarinnar og
kvótakerfisins“.
Nokkrum árum áður hafði Ólína
Þorvarðardóttir, eiginkona Sigurðar
og fyrrverandi þingkona Samfylk
ingarinnar, lagt fram stjórnsýslukæru
á hendur bæjar stjórn Ísafjarðarbæjar
eftir að vefritinu Skutull.is var synjað
um sambærilegt rými á vef bæjarins og
BB.is hafði fengið. Þá hafði Skutull ekki
fengið auglýsingar bæjarins til birtingar
og töldu aðstandendur vefjarins að þeim
væri mismunað á grundvelli stjórnmála
skoðana enda hafði Halldór Halldórsson
sakað vefmiðilinn um að vera pólitískt
hlutdrægur og ganga erinda Ílistans.
Sem kunnugt er hafa Skutull og Ólína
gagnrýnt fiskveiðistjórnunarkerfið harð
lega um árabil og hvatt til þess að þjóðin
fengi aukna hlutdeild í arðinum af fiski
við Íslandsstrendur.
Samgönguráðuneytið hafnaði kröfu
aðstandenda Skutuls en í pistli á vefsíðu
sinni benti Ólína á að Ísafjarðarbær ætti
í umtalsverðum viðskiptum við BB.is og
að á tæplega tveimur árum hefðu meira
en fjórar milljónir runnið til miðilsins
úr sjóðum bæjarins. Um leið fengi
bæjarstjórinn sérstakan sess á BB.is,
flýtihnapp sem tengdi lesendur beint inn
á hans persónulegu bloggsíðu.
Tók afstöðu með útgerðarmönnum
Lenti upp á kant við fjölmiðil og hélt umdeildan baráttufund
Þann 13. febrúar árið 2010 tók Halldór Halldórsson að sér að fylgjast
með tvítugsafmælisveislu fyrir foreldra tveggja vina sonar síns.
Athygli vakti að partíið skyldi haldið í Stjórnsýsluhúsinu þar sem
bæjar skrifstofur Ísafjarðarbæjar eru til húsa. Ljósmyndir sem DV hefur
undir höndum og teknar eru þetta kvöld sýna 17 og 18 ára framhalds
skólanema skemmta sér með bjór við hönd auk þess sem sjá má Hall
dór sjálfan í bakgrunni. Nokkur umræða skapaðist um þetta meðal
foreldra á Ísafirði, enda tíðkast það ekki að unglingadrykkja eigi sér
stað í Stjórnsýsluhúsinu. Einnig var fundið að því að veislan skyldi
eiga sér stað í kringum prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum á Ísafirði, en
Guðfinna Hreiðarsdóttir, eiginkona Halldórs, sóttist eftir fyrsta sæti
á lista og höfðu 16 ára og eldri atkvæðisrétt. Í tölvupósti frá Halldóri
kemur fram að vegna mjög sérstakra aðstæðna hafi þau hjónin verið
beðin um að aðstoða við skemmtanahaldið og orðið við þeirri beiðni.
Salurinn hafi verið leigður, en foreldrum afmælisbarnanna hafi sárnað
sú umræða sem fór af stað á Ísafirði vegna veislunnar.
Beðinn um að fylgjast með
Unglingafjör í Stjórnsýsluhúsinu
Í fyrra kom í ljós að
sem bæjarstjóri
hafði Halldór
samþykkt árið 2008
að bærinn greiddi
kostnað við ferðalag
kerfisstjóra Ísa
fjarðarbæjar til Kína.
Þetta kom fram í
svari bæjarins við fyrirspurn Jónu Benediktsdóttur bæjar
fulltrúa og greindu Skutull.is og Smugan.is frá málinu.
Bærinn greiddi ferðakostnað og dagpeninga kerfis
stjórans auk þess sem hann var á fullum launum meðan
á ferðinni stóð. Rætt var við Jónu sem sagði undarlegt að
málið hefði aldrei komið til tals í bæjarstjórn, en ferðin var
skipulögð af Nýherja hf. sem var og er stór viðskiptavinur
Ísafjarðarbæjar. Á þessum tíma sá fyrirtækið um allan
tölvubúnað sveitarfélagsins.
„Þá gerði Ísafjarðarbær nýlega samning við Nýherja til
5 ára, að upphæð um 70 milljóna króna um tölvuþjónustu
fyrir sveitarfélagið. Í framhaldi af þeim samningi hætti
Valtýr [kerfisstjórinn, innsk. blm.] störfum hjá bænum og
réð sig til starfa fyrir Nýherja,“ segir á vef Skutuls.
Kerfisstjórinn
sendur til Kína
Á kostnað Ísafjarðarbæjar án umræðu í bæjarstjórn
FAGURLISTADEILD - FRJÁLS MYNDLIST
Námið í Fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem
veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist. Nemendur fá nauðsynlega
þjálfun og tilsögn sem gerir þá hæfari til að takast á við ólík
viðfangsefni og fjölbreyttar aðferðir í listsköpun sinni.
Námseiningar: 180
LISTHÖNNUNARDEILD - GRAFÍSK HÖNNUN
Í grafískri hönnun er lögð áhersla á tækniþekkingu og frumlega
framsetningu hugmynda. Á þremur árum öðlast nemendur
yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í faginu, sem gerir þá hæfa til að
fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla og
margmiðlun.
Námseiningar: 180
MYNDLIST - HÖNNUN - ARKITEKTÚR
Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum. Listrænn og
tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar,
hönnunar og arkitektúrs. Eins árs hnitmiðað 72ja eininga
heildstætt nám í sjónlistum.
auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið 2014-2015
Umsóknarfrestur til 4. júní. Nánari upplýsingar á www.myndak.is Sími 462 4958
Skóli með sterkan prófíl
1974-2014