Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2014, Page 62
Helgarblað 16.–19. maí 201454 Fólk
Afmæli og
tískupartí
Fatahönnuðurinn og listakonan
Harpa Einarsdóttir fagnaði af
mæli sínu með tískupartíi á
Slippbarnum á miðvikudags
kvöld. Þar sýndi hún hönnun
sína, Ziska. Sóley Kristjánsdóttir,
betur þekkt sem Dj. Sóley, æsku
vinkona Hörpu, var kynnir og fór
með ljóð henni til heiðurs. Fjöl
menni var í tískupartíinu en þar
mátti meðal annars sjá leikar
ann Magnús Jónsson, leikkon
una Svandísi Dóru Einarsdóttur,
Snorra Engilbertsson, leikara
og unnusta Hörpu, og dansar
ana Katrínu Johnson og Nadíu
Katrínu Banine.
Eignaðist dreng
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir,
ungfrú heimur 2005, eignaðist
sitt annað barn á dögunum. Lítill
drengur kom í heiminn 30. apr
íl en þetta er annað barn Unn
ar og unnusta hennar, Péturs
Árna Heimissonar. Fyrir eiga
þau dótturina Erlu Rún og Pétur
átti fyrir dóttur úr fyrra sam
bandi. Fjölskyldan er því orðin
stór hjá fegurðardrottningunni
fyrrverandi. Unnur útskrifaðist
sem lögfræðingur fyrir nokkrum
árum og starfar á Íslensku lög
fræðistofunni.
Fögnuðu
með Sólveigu
Sólveig Káradóttir, fatahönnuð
ur og dóttir Kára Stefánssonar,
fagnaði þrítugsafmæli sínu um
helgina. Sólveig er búsett í Los
Angeles ásamt eiginmanni sín
um, Dhani Harrison, sem er son
ur bítilsins George Harrison. Til
þess að fagna afmælinu flugu
vinir hennar til London þar sem
haldin var heljarinnar afmæl
isveisla þar sem gestir mættu í
búningum. Meðal þeirra sem
mættu í afmælið voru söngkon
an Þórunn Antonía, Emilíana
Torrini, Þóra Hilmarsdóttir kvik
myndagerðarkona, Saga Sig
urðardóttir ljósmyndari og Ísak
Freyr förðunarfræðingur.
„Þetta var ást
við fyrstu sýn“
Kærustuparið Tatíana Ósk og Eddi Demo eru bæði á samningi hjá Next
V
ið erum dugleg að mæta
í partí og fara á viðburði.
Það skiptir nefnilega máli
að mynda tengsl ef maður
ætlar sér að vera í þessum
skapandi bransa. Svo þetta getur al
veg verið glamúrlíf,“ segir fyrirsætan
Tatíana Ósk Hallgrímsdóttir, kærasta
tónlistarmannsins Edda Demo úr
hljómsveitinni Steed Lord.
Bæði hjá Next
Tatíana hefur verið með annan fót
inn í Los Angeles þar sem kærasti
hennar býr ásamt öðrum meðlim
um hljómsveitarinnar, þeim Svölu
Kali og Einari Mega. Hún fékk ný
lega samning við alþjóðlegu módel
skrifstofuna Next en kærastinn er á
samningi hjá sömu skrifstofu. „Eddi
er búinn að vera hjá Next í fjögur ár
og hefur komið að fjölda auglýsinga
herferða, meðal annars fyrir Levi's
og Converse. Honum hefur gengið
mjög vel,“ segir Tatíana sem er 21 árs
en Eddi 25 ára.
Eins og lygasaga
Þau hafa verið saman í eitt og hálft
ár en þau kynntust á Kaffibarnum á
sínum tíma. „Þegar við kynntumst
bjó ég í London en hann í Los Ang
eles. Við hittumst á djamminu og
dönsuðum saman í tvo tíma án þess
að kynna okkur. Svo stakk ég hann
bara af. Við hittumst svo aftur og viku
seinna vorum við bara byrjuð saman
og höfum verið saman síðan.
Þetta hefur gengið rosalega vel
þótt það hafi eiginlega allt verið á
móti okkur. Við bjuggum hvort í sínu
landinu og í rauninni trúði enginn
að þetta myndi ganga hjá okkur. En
þegar maður vill eitthvað nógu mik
ið þá lætur maður það virka. Við viss
um að þetta var það sem við vildum
og börðumst fyrir því; við sjáum sko
ekki eftir því.
Við erum bara bestu vinir og ætl
um alltaf að vera saman. Það er klisja
en samt satt. Vinkonur mínar segja
að þetta sé bara eins og í lygasögu,
sambandið gengur það vel. Þetta var
ást við fyrstu sýn.“
Á fræga aðdáendur
Auk þess að spila með Steed Lord
starfar Eddi sem sjálfstæður tónlistar
maður. „Þar sem ég er ekki komin
með „atvinnuvisa“ og má ekki vinna
hef ég mikið verið að fylgja honum
eftir. Hann er að spila í klúbbum og
„pródúsera“ fyrir útvarp og aðra tón
listarmenn. Hann er til dæmis að
vinna náið með Red Wine sem er
stór hipphopp pródúsent. Það eru
fleiri stór og spennandi verkefni fram
undan hjá honum. Eddi er bara svo
hógvær, það vantar allt listamanna
egó í hann,“ segir hún hlæjandi og
játar því aðspurð að þau hafi rekist á
frægar stjörnur í Los Angeles. „Eddi
spilar á mörgum flottum stöðum og
á ágætlega stóran hóp aðdáenda. Þar
á meðal eru tónlistarkonan Kelis og
kvikmyndagerðarmaðurinn Spike
Lee. Annars kippir maður sér ekkert
upp við það þótt maður sjái stjörnur.“
Tvær dívur
Eddi bjó með Einari og Svölu áður
en þau Tatíana fóru að vera saman.
„Hann fékk sér íbúð þegar við byrj
uðum saman. Það hefði aldrei virkað
að hafa tvær dívur á einu heimili og
því reyndum við það ekki einu sinni,“
segir hún hlæjandi að lokum. n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Flott par Eddi og Tatíana eru bæði með
samning hjá Next-módelskrifstofunni.
„Vinkonur
mínar segja
að þetta sé bara
eins og í lygasögu
Tatíana Ósk Tatíana hefur verið í fyrir-
sætubransanum frá því hún var 15 ára.
Ung og
ástfangin
Parið kynntist á
Kaffibarnum fyrir
tveimur árum.
Ugla fékk 9 í Karlmenn og karlmennska
Hefur aldrei verið jafn stolt og þegar Conchita sigraði í Eurovision
U
gla Stefanía Jónsdóttir,
sem er að klára BA í fé
lags og kynjafræði, fékk
hvorki meira né minna en
9 í einkunn í áfanganum Karlar og
karlmennska, sem að hennar eigin
mati er frekar kaldhæðnislegt, þar
sem hún er transkona.
Ugla Stefanía, sem hefur verið
áberandi í umræðu um jafnrétti,
segir kúrsinn hafa verið áhuga
verðan en hún mun einmitt hitta
Raywyn Connell, höfund kennslu
bókarinnar, sem einnig er trans
kona, í júní. Aðspurð segir hún
áhugann á kynjafræðum tilkom
inn vegna eigin stöðu. „Og einnig
vegna þeirra kerfa og norma sem
mismuna mér og leyfa mér ekki
að vera ég sjálf,“ segir Ugla sem
er stödd á ráðstefnu hjá Evrópu
ráðinu sem fjallar um hatursræðu
gegn hinsegin fólki.
Ugla segir sigur Conchitu í
Eurovision gríðarlega mikilvægan.
„Ég var ekki svo bjartsýn á að hún
myndi vinna vegna þeirra gríðar
legu fordóma sem ríkja í Evrópu.
Nokkur lönd gengu jafnvel svo
langt að safna undirskriftalistum
til að fá hana dæmda úr keppni.
Sem manneskja sem hefur upp
lifað mikið einelti eins og Conchita
fyrir að passa ekki inn í kassa sam
félagsins er sigur hennar ógleym
anlegt augnablik í mínu lífi. Sjald
an hef ég verið jafn full stolts og
hamingju en þegar það kom í ljós
að hún hafði rústað þessari keppni.
Útlit hennar ögrar svo sterku kerfi
í okkar samfélagi; kerfi sem er
svo kúgandi og þvingandi að það
hindrar og kemur í veg fyrir að
fólk geti fengið að vera það sjálft.
Það takmarkar hamingju fólks
og jaðarsetur þá sem passa ekki
inn í það. Þess vegna er Conchita
og boðskapur hennar gríðarlega
mikil vægur og fallegur.“ n
indiana@dv.is
Ugla Stefanía
Segir sigur Conchitu
í Eurovision
mikilvægan fyrir
manneskju eins og
sig. MyND BjarNI EIríkSSoN