Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1955, Page 8
6'
Vcrzlunarskýrslur 1953
liðun, en hún er látin nægja, til þess að skráin sé meðfærileg og sem flest lönd geti
fullnægt henni. Þessum 570 númerum er svo skipt á 150 vöruflokka (,,groups“),
sem ganga upp í 52 vörudeildir (,,divisions“), sem svo aftur mynda 10 vöru-
bálka (,,sections“). Vörubálkarnir hafa númerin 0—9 (sjá töflu I, bls. 1). Vöru-
deildirnar eru táknaðar með 2 tölustöfum, þ. e. með númerum 0—9 aftan við númer
vörubálksins (sjá töflu II, bls. 2), og vöruflokkarnir með númerum 0—9 á eftir
númeri vörudeildanna. Þeir eru því táknaðir með þriggja stafa tölu, sem sýnir
jafnframt, í bvaða deild og bálki viðkomandi flokkur er. Heiti binna 150 vöruflokka
sjást í töflu IV A (bls. 12—70), þar sem þau eru prentuð með bfli á milli bókstafa
ásamt 3ja stafa tölu framan við. Vörugreinarnar eru táknaðar með númerum frá
01—99 aftan við viðkomandi flokksnúmer, og er haft bandstrik þar á milb til hægðar-
auka. Er þannig rúm fyrir 99 vörugreinar innan bvers vöruflokks. — Tákntölu-
kerfið, sem hér um ræðir, er þá þannig:
xxx-xx er vörugrein.
xxx er vöruflokkur.
xx er vörudeild.
x er vörubálkur.
Tollskráin íslenzka er allmiklu meira sundurgreind heldur en alþjóðlega vöru-
skráin. í hinni fyrr nefndu eru um 1600 vörunúmer, þar af koma tæplega 1200
fyrir í innflutningi, en svo bætast við um 45 vörutegundir, vegna skiptingar Hag-
stofunnar á tollnúmerum. Tala vörugreina í alþjóðlegu vöruskránni er 570, og falla
því oft tvö eða fleiri tollskrárnúmer undir vörugrein í vöruskránni, þó að hitt sé
líka algengt, að tollskrárnúmer og vörugrein sé eitt og það sama. í töflu IV (bls.
12—77) sést, hvernig vörunum er í heild niðurraðað í verzlunarskýrslunum. Heildar-
tölur (magn og verðmæti) vörubálka, vörudeilda, vöruflokka og vörugreina eru
gefnar upp í sömu línu og heiti þeirra standa, með mismunandi letri, en tollskrár-
númer, sem er ekki jafnframt vörugrein, kemur á eftir viðkomandi vörugrein með
smærra letri. í útflutningnum (tafla IV B, bls. 71) þarf oft að hafa tvöfalda flokkun
undir hverri vörugrein. Þar er hver sjálfstæður liður auðkenndur með htlum bók-
staf, og í línunni til bægri er, ef svo ber undir, samtala eftirfarandi vörutegunda,
sem settar eru með sama letri, en ekki auðkenndar með bókstaf.
Sjálf töfluskipunin er óbreytt frá því, sem var fyrir 1952. Aðaltöflur eru eftir
sem áður 9 talsins (3 þeirra tvískiptar), þ. e. III, IV og V og heiti þeirra svo að
segja hin sömu og verið hafa. Hins vegar hefur niðurröðun vara í töflunum ger-
breytzt. Hún er mjög frábrugðin þeirri niðurröðun, sem notuð er í tollskránni,
og því er aftan við þennan inngang (á bls. 32*) skrá, röðuð eftir tollskrárnúmerum,
þar sem tilgreint er, undir livaða vöruskrárnúmer hvert þeirra feflur. Þessi skrá
er þannig lykill að því, hvar í verzlunarskýrslunum hvert tollskrárnúmer er að fínna.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 hefur innflutningurinn í verzlunarskýrsl-
um eingöngu verið talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutningslandinu (fob-
verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er affermd á ákvörðunar-
stað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og vátryggingu. í Verzlunarskýrsl-
um 1951 og framvegis er innflutningurinn einnig gefinn upp á fob-verði,
en þó aðeins í töflum II og IV A. í hinni síðar nefndu eru allar vörutegundir sam-
kvæmt tollskrá taldar með magni og verðmæti hverrar um sig. Hinar stórvirku
skýrsluvélar, er Hagstofan tók í notkun árið 1949, hafa gerbreytt vinnubrögðum
og afköstum við úrvinnslu innflutningsskýrslna, og meðal margs annars gert mögu-
legt að fínna og birta fob-verð sérhverrar innfluttrar vöru, auk cif-verðsins. Þetta
eykur notagildi verzlunarskýrslnanna, og auk þess hefur það mikla þýðingu við