Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1990, Side 9
Inngangur
Introduction
1. Gerð verslunarskýrslna
A general note on the external trade statistics
Heimildir og skráning Sowces and registration.
Verslunarskýrslur eru gerðar eftir aðflutningsskýrslum
innflytjenda og útflutningsskýrslum útflytjenda. Fram
til ársins 1988 voru skýrslumar allar skráðar í Hag-
stofunni. Frá ársbyrjun 1988 hófst tölvuskráning
aðflumingsskýrslna hjá Tollstjóranum í Reykjavík og
seint á því ári var tekin upp sams konar skráning í
Hafnarfirði. A árinu 1989 var einnig farið að tölvuskrá
aðflutningsskýrslur á Akureyri, Isafirði og Eskifirði.
Jafnharðan hefur verið hætt að skrá skýrslur ffá þessum
umdæmum í Hagstofunni, en í þess stað fékk Hagstofan
aðgang að gagnaskrám Ríkistollstjóra og sækir þangað
með vélrænum hætti þær upplýsingar úr aðflumings-
skýrslum sem nauðsynlegar eru fyrir gerð verslunar-
skýrslna. Þessar upplýsingar eru yftrfamar eins og
kosmr er, og villur sem finnast eru leiðréttar eins og
jafnan hefur verið gert. Hagstofan hélt á árinu 1989
áfram að taka við samritum af aðflumingsskýrslum úr
öðrum tollumdæmum, yfirfara þær og tölvuskrá.
Innflutningsskýrslur vom því unnar með tvennum hætti
á árinu. Tollyfirvöld hafa ekki hafið tölvuskráningu
útflumingsskýrslna og því fór skráning þeirra enn ffam
á Hagstofunni á árinu 1989 eins og verið hefur.
Flokkun Classification. Flokkun vörutegunda í
verslunarskýrslum byggist á tollskrá. Til ársloka 1987
var útflutningur þó flokkaður samkvæmt sérstöku
flokkunarkerfi Hagstofunnar þar sem tollskrá þótti
ekki gefa færi á nægilegri sundurliðun sjávarafurða.
Frá og með árinu 1988 er útflutningur flokkaður
samkvæmt tollskrá á sama hátt og innflutningur en
jafnffamt em útflutningsafurðir flokkaðar eftir svipuðu
kerfi og Hagstofan beitti áður.
Ný tollskrá tók gildi hinn 1. janúar 1988 skv. lögum
nr. 96/1987 um breyting á tollalögum nr. 55/1987. Með
þessari tollskrá varð gjörbreyting á vömflokkun í hátt
við þær breytingar, sem þá höfðu verið gerðar á hinni
alþjóðlegu vömflokkunarskrá Tollasamvinnuráðsins í
Bmssel. Þessi skrá er nefhd hið samræmda flokkunar-
kerfi og er þekkt undir skammstöfuninni HS eftir hinu
enska heiti sínu (the Harmonized Commodity
Description and Coding System). HS-skráin var
viðtekin með samningi Tollasamvinnuráðsins í Brussel
í júní 1983 og gefin út árið 1985. Islendingar vom
aðilar að þessum samningi og var hann fullgilmr af
íslands hálfu í júní 1986. HS-skráin var tekin í notkun
af flestum aðildarríkjum Tollasamvinnuráðsins frá og
með 1. janúar 1988.
HS-skráin eða tollskrárfyrirmynd Tollasamvinnu-
ráðsins er sex stafa flokkunarkerfi þar sem tveir lyrstu
stafimir mynda kafla frá 01-97. Þau ríki sem hafa
undirritað samninginn um upptöku þessa samræmda
kerfis, hafa skuldbundið sig til þess að fylgja þessu sex
stafa kerfi, en þeim er frjálst að beita nákvæmari
flokkun með fleiri stöfum. Flest ríki sem tekið hafa HS-
skrána í notkun, nota fleiri stafi en sex og sum allt upp
í tíu. Islenska tollskráin er átta stafa skrá, þar sem HS-
skránni er fylgt á sex stafi en í ýmsum tilvikum eru
síðustu tveir stafimir notaðir til nákvæmari flokkunar
miðað við íslenskar þarfir. Tollskráin frá 1988 er mun
sundurgreindari en tollskráin frá 1978. Þetta stafar
mest af því að HS-skráin, sem er sex stafa skrá, er
miklum mun ítarlegri en fyrri skrá Tollasamvinnu-
ráðsins, svonefhd CCCN-skrá, sem byggðist á flokkun
á fjóra stafi. HS-skráin telur alls rösklega 5.000
vörunúmer en CCCN-skráin taldi alls um 1.920 númer.
Árið 1989 voru nær 6.700 tollskrámúmer í íslensku
tollskránni en þau voru tæplega 2.900 í tollskránni ffá
1978. Þess má geta að á árinu 1989 kom einhver
innflutningur fram í um 5.050 tollskrámúmerum en
útflutningur kom aðeins fyrir í um 780 númemm.
Sem fyrr segir er útflutningur flokkaður samkvæmt
tollskrá frá og með ársbyrjun 1988, en áður hafði
flokkun útflutnings byggst á sérstöku kerfi
Hagstofunnar. Hagstofuflokkunin, sem svo var nefnd,
var sex stafa skrá, sem dregin var saman í kafla eftír
tveimur fyrstu stöfum skrárinnar. Eftir að farið var að
flokka útflutning eftir tollskrá árið 1988 var sex stafa
hagstofuflokkunin aflögð, en um leið tekin upp ný
flokkun vegna innlendra þarfa. í þeirri flokkun er
útfluttum vömm raðað eftir nýrri þriggja stafa skrá
Hagstofunnar og er hún hliðstæð eldri sundurgreiningu
í tveggja stafa kafla. Nýja hagstofuflokkunin er töluvert
sundurgreindari en hin eldri og telur fleiri vöruliði, en
skrámar em þó að mestu sambærilegar.
Aðaltöflur verslunarskýrslna (töflur V og VI) sýna
sundurliðun innflutnings og útflutnings eftir
tollskrámúmerum, en tafla IV sýnir útflutning eftir
hinni sérgreindu flokkun Hagstofunnar. Aðrar töflur
sýna utanríkisverslunina eftir vörudeildum/flokkum
(töflur I—III) og eftir hagrænum flokkum (notkunar-
flokkum, töflur VII og VIII) auk þess sem útflutningur
er flokkaður eftir vinnslugreinum (tafla IX).
Sundurliðun eftir vörudeildum eða vömflokkum
byggist á alþjóðlegri vöruskrá hagstofu Sameinuðu
þjóðanna (Standard Intemational Trade Classification,