Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 3. ágúst 2011 Miðvikudagur
„Við ætlum að opna aðra búð á
Garðatorgi í Garðabæ á haustdög-
um,“ segir Eiríkur Sigurðsson, eig-
andi verslunarinnar Víðis, í Skeif-
unni. Ekki eru nema tveir eða þrír
mánuðir síðan fyrsta verslun Víðis
var opnuð í Skeifunni.
Spurður hvort opnun nýrrar
búðar megi rekja til þess að rekst-
urinn hafi farið vel af stað segir Ei-
ríkur að svo sé. „Það hefur gengið
mjög vel. Við erum þakklát fyrir
það hvað við höfum fengið mikið af
kúnnum. Ástæðan fyrir því að við
erum að opna aðra verslun er sú
að neytendur hafa tekið okkur vel,“
segir Eiríkur sem rekur verslunina
ásamt eiginkonu sinni, Helgu
Gísladóttur. Hann segir ekkert hæft
í því að bróðir hans, Matthías í Eu-
ropris, sé með honum í rekstrinum.
„Þetta eru bara við hjónin,“ segir
hann.
Góðar móttökur
Þegar fyrsta verslunin var opn-
uð var rætt um að Eiríkur, sem er
gjarnan kenndur við 10-11, hefði
í hyggju að opna fjölmargar versl-
anir á höfuðborgarsvæðinu. Hann
segir ekkert ákveðið í þeim efnum.
„Það gengur vel núna og við finn-
um að það er eftirspurn í dag. Það
er hins vegar alltaf þannig að kúnn-
inn ræður ferðinni,“ segir Eiríkur
sem neitar því að fleiri verslanir
séu þegar í farvatninu. Hann segist
aðspurður finna fyrir því að neyt-
endur fagni aukinni fjölbreytni á
matvörumarkaði. „Fólk hefur tek-
ið okkur virkilega vel,“ segir hann
ánægður. Til stendur að opna búð-
ina í lok september eða byrjun
október. Hann segist ekki vera bú-
inn að ráða í öll störf. „Við erum að
leita að fólki.“
Næstlægstir
Ljóst má vera að með tilkomu Víðis
hefur aukin harka færst í sam-
keppni um viðskiptavinina. Val-
möguleikarnir eru fleiri og Víðir
hefur gefið sig út fyrir að vera svo-
kölluð lágvöruverðsverslun. Í verð-
könnun sem verðlagseftirlit ASÍ
gerði um mánaðamótin júní-júlí
kom í ljós að Víðir var sú verslun
sem næstoftast bauð lægsta verð-
ið. Bónus var með lægsta verðið í 38
tilvikum af 79 en á hæla Bónus kom
Víðir, sem var með lægsta verð-
ið í 15 tilvikum. Víðir skaut þannig
verslunum á borð við Krónuna og
Fjarðarkaup ref fyrir rass. Víst má
telja að með opnun annarrar versl-
unar velgi Eiríkur risunum á mark-
aði undir uggum.
Eiríkur segist þó aðspurður ekki
hafa fundið fyrir óvild í sinn garð
eða andstöðu við áform sín.
n Eiríkur Sigurðsson í Víði opnar aðra búð í haust n Búðin verður á Garðatorgi
í Garðabæ n Kúnninn ræður ferðinni, segir Eiríkur n Næstoftast ódýrastir
Ræðst gegn
þeim stóRu
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Færa út kvíarnar Víðir hefur
komið vel út úr verðkönnunum og
neytendur virðast kunna vel að
meta valkostinn. MyNd Eyþór ÁrNaSoN
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
RAFSTÖÐVAR
Arges einfasa Rafstöð HD6500
Bensín m/rafstarti 5,2KW
98.900,-
Arges einfasa Rafstöð HD3800
Bensín m/rafstarti 3,2KW
87.900,-
„Við erum að
leita að fólki.
Önnur búðin Víðir opnar í Garðabæ í haust. MyNd Eyþór ÁrNaSoN
Heppinn ökumaður:
Sofandi á
ofsahraða
Lögreglan á Vestfjörðum stöðvaði í
vikunni mann sem ók á 130 kílómetra
hraða. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu kvaðst maðurinn hafa sofnað
undir stýri. Hann þakkaði lögreglu-
mönnunum fyrir að hafa gefið sér
merki um að stöðva, því hann hafi
rankað við sér þegar farþegar í bílnum
bentu honum á að lögreglan væri að
gefa honum bendingu um að stöðva.
Alls voru 29 ökumenn kærðir fyrir
of hraðan akstur á Vestfjörðum í síð-
ustu viku, en sá ofangreindi var sá
sem hraðast ók. Þá voru tveir stöðvað-
ir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna
og einn fyrir akstur undir áhrifum
áfengis. Sex umferðaróhöpp urðu, þar
af tvö þar sem fólk slasaðist lítillega.
Þá drápust tvær ær og eitt lamb þegar
ekið var á dýrin í vikunni.
Á dansleik í íþróttahúsinu á Torf-
nesi varð það óhapp að einn gesta fór
upp á sviðið, en ekki fór betur en svo
að hann datt fram af sviðinu og lenti
illa á andlitið. Meiðsli hans voru talin
það alvarleg að hann var fluttur með
þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík.
Ekki er vitað um líðan mannsins.
Helgi skipaður
vararíkis
saksóknari
Helgi Magnús Gunnarsson hefur
verið skipaður í embætti vara-
ríkissaksóknara við embætti
ríkissaksókn-
ara. Það var
Ögmund-
ur Jónasson
innanríkis-
ráðherra sem
skipaði Helga
í embættið
á þriðjudag.
Helgi Magnús
er fæddur 4. desember 1964.
Hann lauk embættisprófi í lög-
fræði frá Háskóla Íslands 1998
og stundaði framhaldsnám á há-
skólastigi í rannsókn og saksókn
efnahagsbrota við Polithøgskolen
árin 2004 og 2005.
Helgi Magnús hefur verið sak-
sóknari efnahagsbrotadeildar rík-
islögreglustjóra frá árinu 2007, en
hefur verið í leyfi frá þeim störfum
síðan haustið 2010 þegar hann var
kosinn varasaksóknari Alþingis.
Umsækjandi hjá RÚV æfur vegna birtingar lista:
„Ég er mjög prívat manneskja“
Mátti birta listann RÚV var heimilt að
opinbera lista yfir umsækjendur.
Persónuvernd hefur fellt þann úr-
skurð að RÚV hafi mátt birta pers-
ónuupplýsingar um konu sem sótti
um sumarstarf hjá fyrirtækinu í vor.
Konan var ósátt við að listi yfir um-
sækjendur um sumarafleysingastörf
á fréttastofu RÚV hefði verið birt-
ur opinberlega. Það hefði ekki verið
tekið fram þegar hún sótti um starfið.
„Ég fer fram á að þetta verði tek-
ið fyrir hjá Persónuvernd þar sem ég
er mjög prívat manneskja og starfa
mikið með öðrum miðlum og mun
þetta því geta eyðilagt önnur verk-
efni fyrir mér. Ósk mín um að um-
sóknin væri dregin til baka var ekki
virt, né það að ég hef engan áhuga
á því að vera partur af einhverjum
„fjölmiðlasirkus“ sem kemur í kjölfar
að svona nafnalisti er birtur á helstu
netmiðlum landsins,“ skrifaði konan
í kvörtuninni. Hún sagði enn fremur
að hatrammt stríð væri á milli miðl-
anna sem hún hefði engan áhuga á
að taka þátt í. „Ég hélt að RÚV, rík-
issjónvarp allra landsmanna, væri
stýrt með faglegri starfsháttum en
þetta. Hér með sendi ég málið til
Persónuverndar og lít málið mjög al-
varlegum augum.“
RÚV svaraði því til að því bæri
að útbúa umræddan lista yfir nöfn,
heimilisföng og starfsheiti þeirra
einstaklinga sem sóttu um stöðuna.
Í úrskurði Persónuverndar segir að
þar sem RÚV er sjálfstætt hlutafélag
í opinberri eigu gildi upplýsingalög
um aðgang almennings að gögnum
í vörslum þess. Því hafi RÚV verið
heimilt að afhenda almenningi pers-
ónuupplýsingar um umsókn kon-
unnar.
baldur@dv.is