Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2011, Blaðsíða 18
18 | Umræða 3. ágúst 2011 Miðvikudagur
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Sofandi ísland
Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar:
Bókstaflega
Vantrú og biskup
n Félagið Vantrú hefur ekkert sér-
stakt álit á Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands. Í nýlegri blogg-
færslu vekur
félagið athygli á
því að biskup-
inn er sam-
kvæmt tekju-
blaði DV með
tæplega milljón
á mánuði í
laun. Vakin er
á því athygli
að Prestafélag Íslands lét í ljósi
þá skoðun að laun biskupsins
væru of lág. Þá hafi prestar, sem
eru með laun á bilinu 500 til 700
þúsund á mánuði, lagt áherslu á
nauðsyn þess að þeir fái launa-
hækkun.
Strigakjaftur
snýr aftur
n Bloggarinn Jónas Kristjánsson
er einn af frumkvöðlum í skrifum
á netinu. Hann er einn af fyrstu
bloggurunum og hefur verið með
hvað mest úthald allra. Árum
saman hefur varla fallið úr dagur. Í
upphafi síðasta mánaðar brá hann
sér í stóra hjartaaðgerð og liðu
nokkrar vikur án þess að færslur
birtust. Einhverjum til léttis dúkk-
aði kappinn þó upp fyrir versl-
unarmannahelgi og hundskamm-
aði framsóknarmenn. Það gladdi
marga að fá strigakjaftinn aftur á
umræðusviðið þótt aðrir hefðu
kosið að hann héldi sér saman.
Björn Ingi fjárþurfi
n Mikil sigling hefur verið á Vef-
pressunni undanfarin misseri
og hefur hver vefsíðan af annarri
litið dagsins
ljós. Björn Ingi
Hrafnsson út-
gefandi hefur
enda verið á út-
opnu við að ná
í peninga utan
að til rekstrar-
ins. Auk þess að
reka Pressuna
hafa bæst við menn.is, bleikt.is og
síðast eyjan.is. Þessu fylgir mik-
ill mannskapur og sumpart dýr.
Nú heyrist af því að Björn Ingi sé
kominn á stúfana til að biðja um
meiri peninga sem hlutafé. Beitan
er enn einn vefurinn, blatt.is sem
ætlað er að vera til hægri í stjórn-
málum.
Kastljóskvikindið
n Sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan
þykir vera laus við þá yfirborðs-
mennsku sem á stundum hellist
yfir sjónvarps-
stjörnur. Helgi
er á meðal
grimmari spyrla
í sjónvarpi og
hefur velgt
mörgum undir
uggum. Undan-
farin sumur
hefur hann
brugðið sér á sjóinn á aflaskipinu
Aðalsteini Jónssyni frá Eskifirði og
náð þannig að hífa upp takmörk-
uð ríkislaun sín. Um borð nýtur
Helgi virðingar sem mikill jaxl og
gengur gjarnan undir viðurnefn-
inu „Kastljóskvikindið“.
Sandkorn
S
tór hópur vel upplýstra Íslend-
inga hefur áttað sig á því að
hrunið var ekki stjórnmála-
mönnum eða bankaeigend-
um að kenna. Þetta bara gerðist og
ástæðulaust að rýna í ástæðurnar.
Það er fráleitt að kenna fyrrverandi
stjórnarherrum, Davíð Oddssyni og
Halldóri Ásgrímssyni, um það að öfl-
ugir ríkisbankar skyldu falla í hend-
ur afglapa. Félagarnir seldu Lands-
bankann í góðri trú mönnum sem
virtust hafa auðgast mikið á bjórsölu
í útlöndum.
Þ
að er ekki hægt að kenna Dav-
íð og Dóra um það að þessir
menn virtust ekki kunna fót-
um sínum eða löngum fingr-
um forráð. Þar er öllu heldur við al-
menning að sakast að hafa tekið þátt
í ruglinu. Einn forráðamanna hinna
föllnu banka benti einmitt á með-
virkni almennings. Á meðan banka-
topparnir átu gull í Mílanó og svifu
um heiminn á einkaþotum var lýð-
urinn heima á Íslandi í óðaönn að
kaupa flatskjái sem bankarnir lán-
uðu þeim nauðugir fyrir.
P
rófessor nokkur, Robert
Wade, og spúsa hans, Silla
Sigurgeirsdóttir, voguðu sér
að skrifa greinarkorn í það
virta blað Le Monde þar sem sú frá-
leita niðurstaða er fengin að hrun-
ið megi rekja til Davíðs og afglapa
hans. Einhvern veginn í ósköpun-
um datt þeim í hug að velheppnuð
einkavæðing og enn betur heppn-
uð aðgerð til að gera Ísland að fjár-
málamiðstöð heimsins hefði or-
sakað hrunið. Augljóst er að þau
hafa aldrei kynnt sér eða ígrundað
flatskjáskenninguna. Þau nefna að
Davíð hafi skipað sjálfan sig sem
seðlabankastjóra. Það er alveg rétt
en þar réði föðurlandsástin ein.
D
avíð var búinn að sjá fyrir
hrunið, eins og sá virti pró-
fessor Hannes Hólmsteinn
Gissurarson hefur marg-
sinnis áréttað. Því vildi Davíð fara
í Seðlabankann og reyna að bjarga
málum. Hann kom og einbeitti
sér að ástarbréfum en það var of
seint. Seðlabankinn varð gjald-
þrota. Og Davíð hefur margsagt að
það hafi verið einum óreiðumanni
að kenna en sá fékk lánaða 1.000
milljarða króna. Auðvitað var ekki
við bankastjórana eða eigendur
að sakast. Þeir máttu sín einskis
í vörninni gegn gráðugum lýðn-
um sem vildi flatskjái eða óreiðu-
manninum sem þurfti milljarða.
Svona var þetta vaxið. Nánustu
bandamenn Davíðs hafa nú risið
upp honum til varnar og benda
á að grein þeirra Sillu og Róberts
sé byggð á samsæriskenningum
og rangindum. Davíð er orðhag-
ur maður og eftir hrunið hrutu af
vörum hans eftirfarandi rök sem
eru gulls í gildi og leiðarljós öllum
hugsandi mönnum: „Það sjá þetta
allir“.
V
onandi sér almenning-
ur sína eigin sök þar sem
hann situr framan við risp-
aða flatskjáina frá 2007. Og
vonandi iðrast óreiðumaðurinn
sem sótti þúsund milljarða króna
inn í bankana. Allt þetta fólk fór á
bak við bankastjórana og stjórn-
arherrana sem höfðu það göfuga
markmið að gera Ísland að fjár-
málamiðstöð heimsins og tryggja
að þeir og vinir þeirra gætu grætt
á daginn og grillað á kvöldin. Þetta
var allt saman eyðilagt með græðgi
almennings og eins óreiðumanns
sem tók 1.000 milljarða að láni.
„Það sjá þetta allir“.
D
oði og sofandaháttur einkenn-
ir Ísland. Í loftinu liggur að
annað áfall eigi eftir að dynja
yfir land og þjóð að óbreyttu.
Atvinnulífinu blæðir stöðugt á með-
an ríkisstjórnin kann fá ráð önnur en
að hækka skatta og álögur. Í stað þess
að veita súrefni inn í einkageirann
er blindnin á vandann og lausnirnar
ráðandi. Alvarlegar vísbendingar eru
uppi um að okkur miði aftur á bak en
ekki áfram.
Mistök ríkisstjórnarinnar eru þau
helst að átta sig ekki á því að grund-
völlur hagvaxtar er að framleiðslan í
landinu gangi snurðulaust fyrir sig.
Lífsafkoma Íslendinga ræðst af því
að fyrirtækjunum gangi sæmilega. Sá
arður sem skapast streymir sem súr-
efni út í mannlífið. En þessu er ekki
svo farið. Málsmetandi menn hafa
bent á að launahækkunum í sumar
hafi gjarnan verið mætt með upp-
sögnum starfsmanna. Sama gildir
um hækkanir á sköttum á fyrirtæki
og einstaklinga. Þeim er mætt með
niðurskurði og þannig eykst vandinn
koll af kolli þar til ríkið sjálft fer í
greiðsluþrot.
Við öllum blasir sú sorglega staða
að ríkisstjórnin veldur illa verkefni
sínu. Orðaleikir um hagvöxt og upp-
risu þjóðar úr djúpri kreppu eru inni-
haldsrýrir. Nú ríkir í besta falli kyrr-
staða sem markar lognið á undan
stormi annars hruns. Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra hef-
ur boðað enn eina lausn vandans.
Hann „útilokar ekki“ að enn þurfi að
koma til skattahækkana. Ráðherr-
anum virðist vera gjörsamlega hul-
ið að nauðsynlegt er að skera í burtu
alla óþarfa fitu í ríkisrekstrinum en
hlúa að framleiðslufyrirtækjunum.
Draga þarf úr útgjöldum ríkisins í
stað þess að reyna í blindni að ná
peningum frá þeim sem standa und-
ir þjóðinni. Fækka þarf opinberum
starfsmönnum og leggja niður óþarfa
starfsemi sem lifir á almannafé.
Skattar eru álögur á undirstöð-
ur atvinnulífsins en ekki gjafir frá
almættinu. Ofsköttun hefur sínar
hroðalegu aukaverkanir sem dýpka
kreppu og færa samfélagið enn
lengra frá hagsæld. Og sjaldnast er
tilganginum náð. Tölur á blaði eru
allt annað en raunveruleg niður-
staða. Ríkisstjórnin er að verða þess
áþreifanlega vör þessa dagana þeg-
ar áætlaðar skattahækkanir skila sér
ekki í öðru en aukinni eymd atvinnu-
lífsins. Ísland flýtur sofandi á hægu
reki í átt að feigðarósi.
„Það sjá Þetta allir“
Svarthöfði
„Nasistarnir tóku
allt vatn af
okkur og við
urðum að flýja.“
n Guðmunda Elíasdóttir sem
sagði frá því í viðtali í helgarblaði Dv
þegar hún þurfti að flýja á hjóli undan
nasistum í Danmörku. Hún hafði eignast
dóttur sína tíu dögum áður. – DV
„Það gæti hins vegar líka
þýtt að nauðganir séu
[mun] fleiri í ár en þær
hafa verið undanfarin ár.“
n Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta, segist ekki muna eftir að áður
hafi verið vitað um svo margar nauðganir
strax eftir verslunarmannahelgina. – vis-
ir.is
„Mig dreymir um
að áður en ég fer
frá nái ég að
sættast við til-
veruna, verði kominn á
lygnan sjó og búinn að
bæta fyrir misgjörðir
mínar; þann hrottaskap
sem ég hef stundum sýnt
í gegnum lífið.“
n Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri segist
eiga margt óuppgert. – DV
„Fyrst þarf að
selja, svo þarf
að kaupa.“
n Gunnar I. Birgisson
bæjarfulltrúi í kópavogi
minnkar við sig en ætlar ekki að flytja úr
kópavoginum. – DV
„Það var mjög óvænt og
skemmtilegt að fá viður-
kenningu af þessu tagi.“
n Handboltakappinn Aron Pálmarsson
var valinn í lið ársins í þýsku deildinni.
– mbl.is
Mun ástin
blómstra?
„Já, já. Alveg
tvímælalaust,“
segir Hulda Birna
Albertsdóttir,
verkefnastjóri
grasagarðs vest-
fjarða í Bolungar-
vík. grasa-
garðurinn verður
formlega vígður í ástarvikunni sem
Bolvíkingar halda upp á í næstu
viku.Ætla má að ástin blómstri í
garðinum.
Spurningin
„Fækka þarf opin-
berum starfs-
mönnum.