Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2011, Qupperneq 24
24 | Sport 3. ágúst 2011 Miðvikudagur
V
iðræður milli eigenda
NBA-liðanna og leik-
mannasamtakanna
sigldu enn einu sinni í
strand á mánudaginn
þegar allir aðilar hittust undir
forystu Davids Sterns, yfirmanns
NBA-deildarinnar. Deildin er
frosin eins og staðan er og hefur
ekkert lið hafið æfingar. Ef svo
fer sem horfir verður engin NBA-
deild í vetur en deilendur virð-
ast alls ekki geta komist að sam-
komulagi.
Deilan snýst að sjálfsögðu
um peninga en eigendur lið-
anna vilja róttækar breytingar
á launastrúktúr deildarinnar.
Þeir segjast hafa tapað yfir 300
milljón dollurum á síðasta ári
eða því sem nemur 35 milljörð-
um króna. Leikmannasamtökin
undir forystu Laker-mannsins
Dereks Fischers viðurkenna tap-
ið en segja það ekki jafnmikið og
eigendurnir vilja halda fram. Þeir
eru aftur á móti harðlega á móti
nýja harða launaþakinu sem eig-
endurnir vilja, launaskerðing-
unni sem fyrirhuguð er og hversu
langir samningar mega vera.
Bæði leikmenn og eigendur
hafa komið með hinar og þessar
tillögur en í grunninn vilja báð-
ir aðilar fá sem mestan pening.
Sagði David Stern að nákvæm-
lega ekkert hefði þokast áfram
á fundi á mánudaginn. Eins og
staðan er virðist lausn ekki ná-
lægt því að vera í sjónmáli sem
þýðir að íþróttaáhugamenn
verða án NBA í vetur.
Margar NBA-stjörnur hafa
sagst vera tilbúnar að spila í Evr-
ópu í ár og gæti þar orðið algjör
gósentíð hjá liðum sem hafa efni
á risastjörnum. Besti körfubolta-
maður heims, Kobe Bryant, hef-
ur meira að segja sagst vera klár í
að spila með Besiktas í Tyrklandi
finni þeir milljón dollara á mán-
uði til að leggja inn á hann.
Miðað við körfubolta-
áhugann í Besiktas sem kristall-
aðist með komu Allens Iversons
síðasta sumar til liðsins er ekki
ólíklegt að svo fari. tomas@dv.is
Hæpið að spilað verði í NBA
n Deilur eigenda og leikmanna sigla í strand
Gæti farið til Tyrklands Kobe Bryant hefur sagst vilja milljón dollara á
mánuði til að spila með Besiktas verði engin NBA-deild. MynD ReuTeRs
Meistaraliðin
mætast
Pepsi-deild karla hefst aftur í
kvöld, miðvikudag, eftir versl-
unarmannahelgi. Fimm leikir
eru á dagskrá en þar ber lík-
lega hæst viðureign Íslands-
meistara Breiðabliks og bikar-
meistara FH. Fyrir norðan geta
Þórsarar farið að kveðja fall-
drauginn endanlega hafi þeir
sigur á Fram. Víkingar eiga
gríðarlega mikilvægan heima-
leik gegn Stjörnunni og þá
taka Valsmenn á móti Grinda-
vík. Allir þessir leikir hefjast
klukkan 19.15 en leikur Fylkis
og ÍBV hefst í Árbænum klukk-
an 18.00. Leik KR og Kefla-
víkur er frestað vegna farar
Vestur bæinga til Georgíu.
Redknapp
snýr sér að
Llorente
Leit Tottenham að heims-
klassa framherja sem getur
komið liðinu aftur í Meist-
aradeildina heldur áfram.
Um helgina mistókst Lund-
únafélaginu að landa Mirko
Vucinic frá Roma en hann
samdi við Juventus. Er Harry
Red knapp nú aftur farinn að
skoða spænska landsliðsfram-
herjann Fernando Llorente
sem skoraði 19 mörk með
Bilbao í fyrra. Verðmiðinn hef-
ur þó ekkert breyst á Llorente
en hann er falur fyrir 43 millj-
ónir punda samkvæmt klásúlu
í samningi hans. Tottenham
hefur áður hætt við kaup á
Llorente vegna þessarar upp-
hæðar sem og Englandsmeist-
arar Manchester United, en
Tottenham-menn eru að verða
nokkuð örvinglaðir í leit sinni.
Uppgjör
efstu liða
Valskonur geta komist á
topp Pepsi-deildar kvenna á
fimmtudagskvöldið þegar þær
sækja heim topplið Stjörn-
unnar. Stjarnan er með tveggja
stiga forskot á Íslands- og bik-
armeistara Vals sem hafa verið
á miklu skriði og fengu nýlega
til sín landsliðskonuna Hólm-
fríði Magnúsdóttur. Þegar liðin
mættust á Vodafone-vellinum
í þriðju umferð hafði Valur
betur, 2–1. Sigur Stjörnunnar
kæmi henni í þægilegt fimm
stiga forskot og er því allt und-
ir á gervigrasinu í Garðabæ á
fimmtudaginn.
Þ
að er frekar skrýt-
ið að vera að yfir-
gefa Eyjuna sína. Ég
er náttúrulega búinn
að búa hér í tuttugu
og eitt ár,“ segir miðvörður-
inn frábæri Eiður Aron Sig-
urbjörnsson hjá ÍBV. Sænska
liðið Örebro hefur gengið frá
kaupum á Eiði sem er einn-
ig búinn að semja um kaup
og kjör. Hann spilar sinn síð-
asta leik með sínu uppeldis-
félagi gegn Fylki í Árbænum í
kvöld, miðvikudag, og heldur
síðan utan til Svíþjóðar. Eið-
ur Aron hefur staðið vaktina
í hjarta varnar ÍBV undanfar-
in þrjú ár og orðið betri með
hverjum leiknum. Hann er al-
mennt talinn einn besti mið-
vörður Pepsi-deildarinnar
þrátt fyrir að vera aðeins 21
árs en sérstök dómnefnd fag-
aðila knattspyrnuvefsíðunnar
fotbolti.net valdi hann einmitt
þann besta í deildinni. Á eftir
honum komu þeir Grétar Sig-
finnur Sigurðarson, hjá KR, og
samherji hans í Eyjum, Dan-
inn Rasmus Christiansen.
Útsendarar sáu tapleik
Gengi ÍBV undanfarin tvö
tímabil hefur verið mjög gott
en liðið var hársbreidd frá því
að landa Íslandsmeistaratitl-
inum síðastliðið haust. Liðið
tapar ekki mörgum leikjum en
útsendarar Örebro völdu þó
ekki besta leikinn til að horfa
á. Mættu þeir á 2–0 tap Eyja-
manna gegn fallkandídötum
Grindavíkur. „Umboðsmaður-
inn minn hringdi í mig eftir
þann leik og sagði mér að ein-
hverjir kallar hefðu verið þarna
frá Örebro. Af öllum leikjum
mættu þeir á þennan. Þeir voru
samt víst virkilega hrifnir af mér
og eftir það byrjaði þetta að
rúlla. Þetta hefur gengið nokk-
uð hratt fyrir sig. Það eru tvær
vikur síðan ég heyrði af þessu
fyrst og nú er þetta frágengið,“
segir Eiður Aron sem er ánægð-
ur með hversu vel honum gekk
að semja við Svíana.
„Ég sagði umboðsmannin-
um mínum hvað ég vildi fá og
þeir samþykktu það strax. Það
var alveg rosalega kósí að þurfa
ekki að vera í neinum samn-
ingaviðræðum. Ég var bara ekki
að nenna því núna,“ segir Eyja-
peyinn sem hefur þó ekki kynnt
sér Örebro-liðið mikið. „Jeffsy
[Ian Jeffs innsk. blm] spilaði
þarna og sagði að þarna væru
toppaðstæður og frábært að
búa. Konan hans vildi helst ekki
yfirgefa staðinn þegar hann
þurfti að fara aftur til Íslands.“
Keyptur beint í
byrjunarliðið
Eiður Aron átti að vera farinn
til Örebro en Eyjamenn vildu
að hann spilaði leik til viðbótar
eftir bikartapið gegn Þór. „Það
átti að vera síðasti leikurinn
en Eyjamenn heimtuðu að ég
fengi að enda á sigurleik. Við
munum því gera okkar besta til
að vinna hann. Auðvitað hefði
ég frekar viljað enda á heima-
leik en ég er bara sáttur við að
klæðast hvítu treyjunni einu
sinni enn,“ segir Eiður Aron
sem býst við að ganga beint
inn í byrjunarlið Örebro.
„Umboðsmaðurinn minn
sagði að þeir væru búnir að
selja einn miðvörð og ég færi
því beint í liðið. Það verður
samt auðvitað samkeppni en
þeir eru að kaupa mig í fyrstu
ellefu. Það er gott að staðan
sé mín til að tapa,“ segir hann
en í Örebro, sem er sjöunda
stærsta borg Svíþjóðar, bíður
Eiðs lítil íbúð.
„Þeir eru búnir að redda
fyrir mig pinkulítilli íbúð sem
ég verð í fyrstu vikuna eða
tvær. Svo þurfum ég og kærast-
an mín að leita okkur að ein-
hverju stærra. Kærastan kem-
ur og Örebro borgar fyrir hana
nám. Þeir hugsa greinilega vel
um sína þarna úti eins og Eyja-
menn,“ segir Eiður Aron sem
hefur eytt síðustu dögum í að
kveðja sitt fólk.
„Ég er búinn með stóran
kvóta í Eyjum en ég býst við að
koma upp á land í dag [þriðju-
dag]. Ég á líka skyldmenni í
bænum sem ég þarf að kveðja.
Maður má ekki gleyma nein-
um og skilja einhvern eftir
reiðan,“ segir Eiður Aron Sigur-
björnsson léttur að lokum.
„Heimtuðu
að ég fengi
að enda á
sigurleik“
ungur og efnilegur Eiður Aron
er aðeins 21 árs en hefur staðið í
hjarta varnar ÍBV undanfarin þrjú ár.
MynD FóTbolTi.neT
n eiður Aron sigurbjörnsson gengur í raðir Örebro n spilar kveðju-
leik með ÍbV gegn Fylki á miðvikudagskvöld n Keyptur beint
í byrjunarliðið n svíarnir borga nám fyrir kærustuna
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti „Umboðs
maðurinn
minn sagði að þeir
væru búnir að selja
einn miðvörð og ég
færi því beint í liðið.
Öflugur Eiður Aron í baráttu við Kristin Steindórsson, leikmann Íslands-
meistara Breiðabliks. MynD FóTbolTi.neT