Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2011, Qupperneq 26
26 | Fólk 3. ágúst 2011 Miðvikudagur
Sátu í
hlandlykt
Rithöfundurinn Tobba Mar
inós sleikir nú sólina á Tene
rife ásamt kærasta sínum,
borgarfulltrúanum Karli
Sigurðssyni. Ferðin byrjaði
ekki alveg nógu vel hjá þeim
skötuhjúum en þau fengu
sæti aftast í vélinni og var Kalli
ekki alls kostar sáttur við það.
Hann skrifaði inn á fésbókar
síðu sína áður en vélin fór í
loftið að þau sætu aftast hvort
í sinni sætaröðinni í Iceland
Express vél og væru farin að
finna hlandlykt og vélin ekki
einu sinni komin í loftið. Þau
virðast þó samkvæmt fésbók
arfærslum hafa lifað ferðina af
og komist á áfangastað þrátt
fyrir lyktina og njóta nú ljúfa
lífsins í sólinni.
Reif sig úr
Steindi Jr. vakti gríðarlega lukku
þegar hann steig á sviðið í Herj
ólfsdal um helgina. Steindi sá
um að skemmta þjóðhátíðar
gestum á laugardagsnóttinni og
var gríðarleg stemning í brekk
unni þegar hann tók helstu
slagarana sína. Það ætlaði svo
allt um koll að keyra þegar
Steindi reif sig úr að ofan í
mesta hamaganginum. Það var
umtalað á meðal hátíðargesta
að Steindi hefði stolið senunni
en á hátíðinni komu fram ekki
minni spámenn en Páll Óskar,
Bubbi og Dikta.
S
ævar Ciesielski var
jarðsunginn í Dóm
kirkjunni á þriðjudag
inn. Margmenni var við
útförina en fjöldinn all
ur af þjóðþekktum einstakling
um vottuðu Sævari virðingu
sína. Það var séra Örn Bárður
Jónsson sem jarðsöng Sævar.
Fráfall Sævars hefur vak
ið mikið umtal í þjóðfélag
inu um Guðmundar og
Geirfinnsmálið en Sævar var
einn þeirra sem sakfelldir
voru í tengslum við málið.
Sævar þurfti, af þeim sem
handteknir voru í tengslum
við málið, að þola hvað mest
harðræði. Hann sat í ein
angrun í rúm tvö ár og þurfti
að þola hinar ýmsu pynt
ingar. Sævar barðist alla tíð
fyrir rétti sínum og endur
upptöku málsins en hafði
ekki erindi sem erfiði. Sæv
ar barðist fyrir rétti sínum
allt þar til hann féll frá þann
12. júlí síðastliðinn í Kaup
mannahöfn.
Mikið hefur verið rætt um
það undanfarnar vikur að Al
þingi setji á laggirnar sérstaka
rannsóknarnefnd sem fari
ofan í saumana á þessu um
talaðasta sakamáli Íslands
sögunnar.
Illugi Jökulsson var einn
þeirra sem báru kistu Sævars
í gær en hann sendi vini sín
um hinstu kveðju á bloggsíðu
sinni. „Hann var ódeigur bar
áttumaður fyrir réttlæti, og nú
stendur það upp á okkur sem
eftir lifum að halda baráttu
hans áfram.“
Lagður til hinstu hvílu
n Sævar Ciesielski var jarðsunginn n Barðist til síðasta dags n Margmenni við útförina
Össur, Hrafn og Illugi Össur Skarphéðinsson ræddi við bræðurna Hrafn
og Illuga Jökulssyni, en Illugi var einn þeirra sem báru kistu Sævars út úr
kirkjunni.
Ómar Ragnarsson Ræðir við séra Örn Bárð, félaga sinn úr stjórnlaga-
ráðinu.
Beggi og Sigrún Vottuðu vini virðingu sína.
Birgitta Jónsdóttir alþingiskona Ein þeirra sem
barist hefur fyrir endurupptöku málsins. Hún sendi
Sævari kveðju á Facebook-síðu sinni: „Blessuð sé minn-
ing þín Sævar minn – megi allar góðar vættir vaka yfir
þér. Réttlætið mun sigra að lokum.“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Guðrún
Ögmundsdóttir Voru á meðal þó nokkurra alþingis-
manna sem mættu við útförina.
Egill Ólafsson Söng Hvert örstutt spor.Mikil sorg Sævar var lagður til hvílu í Stóra-Núps-
kirkjugarði.
Þéttsetið Margmenni var við athöfnina.
Borinn til grafar Sævar Ciesielski
var jarðsunginn í Dómkirkjunni á
þriðjudag klukkan 13.00.
MyndIR GunnaR GunnaRSSon
Keypti spritt
fyrir róna
Blaðamaðurinn Eiríkur Jóns
son skrifar um það á bloggsíðu
sinni fyrir helgi að hann hafi
keypt spritt fyrir tvo ógæfu
menn sem sátu fyrir utan Bón
us á Granda. Eiríkur sá aumur
á þeim og fór inn og keypti
fyrir þá handspritt sem selt
er við kassann. Hann lét þó
ekki staðar numið þar heldur
laumaði tveimur bjórum með
sem hann tók úr
skottinu á bíln
um sínum.
Ógæfumenn
inir voru þakk
látir Eiríki og
sögðu bjórinn
þynna vel út
sprittið. Þeir
bættu því
svo við
að þeir
drykkju
allt sem
rynni
nema
hjólbör
ur.