Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Page 2
Helgarblað 8.–11. ágúst 20142 Fréttir
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Tinna vill ganga aftur
inn í fastráðninguna
n Hættir eftir í 33 ár í Þjóðleikhúsinu n Einungis níu mánuðir í eftirlaunaaldur
T
inna Gunnlaugsdóttir þjóð
leikhússtjóri, sem hættir
um áramótin, hefur sótt um
undanþágu frá mennta
málaráðuneytinu til að
ganga aftur inn í þá fastráðningu
sem hún var með við leikhúsið áður
en hún tók við leikhússtjórastarfinu.
Tinna varð þjóðleikhússtjóri árið
2004 og hefur gegnt starfinu í tíu
ár. Þegar Tinna hættir um áramótin
verða einungis níu mánuðir þar til
hún má fara á eftirlaun samkvæmt
hinni svokölluðu 95 ára reglu – sem
byggir á að samanlagður aldur og
starfsaldur ríkisstarfsmanna hafi náð
þeim árafjölda. Tinna er sextug og
hefur starfað í Þjóðleikhúsinu í 33 ár.
Heimildir DV herma að Tinna hafi
gefið það út að hún hyggist hætta í
Þjóðleikhúsinu þegar hún má sam
kvæmt umræddri 95 ára reglu.
Hefði átt rétt á biðlaunum
Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri
Þjóðleikhússins, segir að Tinna hafi
verið fastráðin leikkona við Þjóðleik
húsið áður en hún varð leikhússtjóri.
Hann segir að réttindin sem Tinna
hafði hafi, líkt og annarra leikara við
Þjóðleikhúsið, verið sömu réttindi
og ríkisstarfsmanna. Í því felst með
al annars biðlaunaréttur í eitt, svo
dæmi sé tekið. Ari segir að Þjóð
leikhúsráð hafi meðal annars rætt
málið en að ekkert sé ákveðið um
framhaldið. „Það er ekkert ákveðið,
það er ekkert frágengið,“ segir Ari.
Þjóðleikhúsið virðist því vera að
reyna að finna lausn á starfslokum
TInnu. Ari segist ekki vita til þess
að menntamálaráðuneytið hafi tek
ið ákvörðun um hvort Tinna megi
ganga aftur inn í samning sinn við
leikhúsið. Ef Tinna hættir sem þjóð
leikhússtjóri, og fær ekki áfram
haldandi starf hjá leikhúsinu eða
annað starf, mun hún verða atvinnu
laus eftir 33 ára starf í Þjóðleikhúsinu
einungis níu mánuðum áður en hún
getur farið á eftirlaun.
Boðin tvö hlutverk
Eftirspurn virðist vera eftir Tinnu
sem leikkonu samkvæmt Ara þar
sem tveir leikstjórar hafa óskað eftir
henni í hlutverk eftir næstu áramót.
Ari segir að Þorleifur Örn Arnar
son hafi meðal annars óskað eft
ir henni í hlutverk í uppsetningu
Þjóðleikhússins á Sjálfstæðu fólki og
að Kristín Jóhannesdóttir hafi einnig
beðið um hana í hlutverk í leikritinu
Segulsviði. „Það er líka hagfellt fyrir
Þjóðleikhúsið því þá mun hún vera
á launum sem þjóðleikhússtjóri á
æfingatímanum,“ segir Ari. Ef Tinna
myndi leika í þessum tveimur leik
ritum myndi tíminn sem hún þarf að
vinna áður en hún nær lögbundn
um eftirlaunaaldri eftir 34 ára starf
við Þjóðleikhúsið vera svo gott sem
liðinn. „Það er sannarlega þannig að
þessir leikstjórar óskuðu eftir henni
og hún er ekki að stilla sér upp í
þessi hlutverk. Það er eftirspurn eftir
henni. Ef hún gerir þetta þá er þetta
eiginlega komið og hún getur farið á
eftirlaun á 95 ára reglunni.“ En eins
og Ari segir þá hefur ekkert verið
ákveðið hvað varðar niðurstöðuna
í málinu og er það ennþá rætt inn
an Þjóðleikhússins og væntanlega
menntamálaráðuneytisins. n
„Það er sannarlega
þannig að þessir
leikstjórar óskuðu eftir
henni.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Hættir eftir 33 ár Tinna
Gunnlaugsdóttir þjóðleikhús-
stjóri hættir um áramótin eftir
33 ár í Þjóðleikhúsinu. Hún vill
ganga inn í fastráðningu sem
hún var með við leikhúsið fyrir
tíu árum. Mynd SIgtryggur ArILeiðrétting
Í frétt sem birtist í síðasta tölu
blaði DV, þar sem rætt er við
Guðbjörgu Jónsdóttur um mis
tök sem hún telur að hafi ver
ið gerð í meðferð eiginmanns
síns, er ranglega farið með
nafn krabbameinslæknisins
sem hafði málið í sinni umsjá.
Læknirinn sem um ræðir er Sig
urður Björnsson en ekki Sigurð
ur Böðvarsson eins og haldið
er fram í fréttinni. Beðist er
velvirðingar á þessum mistök
um. Þá segir einnig í fréttinni
að Helgi Sigurðsson læknir hafi
flutt úr landi á árunum eftir
hrun en það mun ekki vera rétt.
Er það hér með leiðrétt.
F
orsætisráðherra hefur enn
ekki staðfest siðareglur fyrir
starfsmenn stjórnarráðsins
líkt og lög um Stjórnarráð Ís
lands kveða á um. Um þriðjungur
er liðinn af kjörtímabilinu og haft
er eftir Jóhannesi Þór Skúlasyni, að
stoðarmanni forsætisráðherra, á vef
RÚV að vinna við gerð nýrra siðar
eglna standi yfir.
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrr
verandi forsætisráðherra, stað
festi siðareglur fyrir ríkisstjórn sína
árið 2011, skömmu eftir að stjórn
arráðslögin voru endurskoðuð. Í 24.
grein laganna kemur fram að for
sætisráðherra beri að staðfesta og
undirrita siðareglur fyrir hönd ríkis
stjórnarinnar sem síðar skuli birtar
almenningi á aðgengilegan hátt.
Lögin kveða á um að við undir
búning reglnanna skuli leita eftir
tillögum frá Siðfræðistofnun Há
skóla Íslands. Salvör Nordal, for
stöðukona Siðfræðistofnunar, stað
festir í samtali við DV að enn hafi
ekki verið leitað eftir tillögum frá
stofnuninni. Þetta bendir til þess að
ferlið sé stutt á veg komið og ólík
legt að nýjar siðareglur komi ríkis
stjórninni að gagni fyrr en seint á
kjörtímabilinu.
Reglur fyrri ríkisstjórnar blasa
enn við á vef forsætisráðuneytis
ins en sitjandi ríkisstjórn hefur þær
til hliðsjónar þegar álitamál koma
upp. Á meðal þess sem reglurnar
kveða á um er að starfsfólk stjórnar
ráðsins gæti að mörkum stjórn
mála og stjórnsýslu og einkalífs og
opinberra starfa. Þá sé starfsfólki
óheimilt að notfæra sér stöðu sína
eða upplýsingar fengnar í starfi í
eiginhagsmunaskyni auk þess sem
því ber að gæta þess að vina, hags
muna og skyldleikatengsl hafi ekki
áhrif á störf þess. n
Engar siðareglur settar
Þriðjungur liðinn af kjörtímabilinu
Engar siðareglur Siðareglur fyrri ríkis-
stjórnar eru ekki lengur í gildi. Undirbúningur
nýrra reglna er skammt á veg kominn.
Ólga nyðra
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í
stjórnmálafræði við HA, kallar eft
ir því í viðtali á
forsíðu Akur
eyrar Vikublaðs
að sveitarstjórn
Svalbarðs
strandarhrepps
endurskoði
ráðningu Ei
ríks Hauks
Haukssonar
sem sveitarstjóra, enda hafi „loðn
um aðferðum“ verið beitt og hann
verið valinn án auglýsingar. Ráðn
ingunni hefur verið harðlega
mótmælt og um 30% kosninga
bærra manna skorað á Svalbarðs
strandarhrepp að auglýsa stöðuna.
Þrír af fimm sveitarstjórnarfulltrú
um höfnuðu því erindi.
Vill vernda
Ísland
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor í stjórnmálafræði við Há
skóla Íslands, telur það áhyggju
efni að um
boðsmaður
Alþingis vísi í
DV sem heim
ild. Þetta kemur
fram í pistli sem
hann skrifar
um lekamálið á
Pressuna. Sem
kunnugt er hef
ur umboðsmaður Alþingis kallað
eftir upplýsingum frá Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur innanríkisráðherra
vegna samskipta hennar við Stefán
Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóra,
meðan lögreglurannsókn stóð yfir.
Í kjölfar umfjöllunar DV ræddi um
boðsmaður við Stefán Eiríksson og
Sigríði Friðjónsdóttur og taldi svo
rétt að óska eftir svörum frá ráð
herra. Hannes telur aðalatriðið í
þessu máli vera að „vernda þetta
litla og friðsæla land okkar fyrir
óboðnum gestum, sem hafa lært
allt aðrar leikreglur en við höfum
vanist“.