Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 4
Helgarblað 6.–9. desember 20134 Fréttir
Fjölbreyttar vörur
í öllum litum fyrir
bæjarhátíðina!
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534
Í
slenskir skátar ætla að taka þátt
í Gleðigöngunni í Reykjavík á
morgun, laugardag, og sýna þannig
mannréttindum virðingu sína,“
segir í tilkynningu frá Bandalagi ís-
lenskra skáta.
Hugmyndin var sett fram í um-
ræðuhópi skáta á vefnum og var strax
vel tekið. Í vikunni barst fyrirspurn til
stjórnar Bandalags íslenskra skáta um
hvort landssamtökin tækju þátt og var
því einnig vel tekið, enda er framtakið
mjög í anda samþykkta síðasta Skáta-
þings, en þar var ályktað mjög ákveðið
að skátar vinni markvisst gegn hvers
kyns mismunun.
„Bandalag íslenskra skáta virðir
sérhverja lífsskoðun sem samræmist
skátaheitinu og skátalögunum. Í skáta-
starfi og við inngöngu nýliða skal virða
og engan greinarmun gera vegna kyn-
þáttar, litarháttar, kynferðis, tungu,
trúar, stjórnmálaskoðana eða annarra
skoðana, þjóðernis, uppruna, eigna,
ætternis, kynhneigðar eða annarra
ástæðna,“ segir í ályktun Skátaþings.
Þetta er jafnframt í samræmi við lög
alþjóðahreyfingar skáta og Mann-
réttindasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna en gengur í raun skrefinu lengra
þar sem kynhneigð er sérstaklega bætt
inn í upptalninguna í lögum BÍS.
Þeir skátar og aðrir sem vilja
ganga með skátum í Gleðigöngunni
á laugardag eru beðnir um að láta
vita af sér á Facebook-viðburðinum
„Stoltir skátar – vagn í gleðigöngu“. n
Skátar mæta í Gleðigöngu
Samræmist ályktun skátaþings um að skátar vinni gegn mismunun
Skátar Myndin tengist fréttinni ekki beint.
20 milljónir í
ferðakostnað
ÁTVR
46 utanlandsferðir voru
farnar í fyrra
Í nýjasta hefti vefritsins Kjarnans
er að finna fréttaskýringu um árs-
skýrslu ÁTVR fyrir árið 2013. Þar
kemur fram að starfsfólk ÁTVR
hafi farið í 46 utanlandsferðir í
fyrra.
Kjarninn
leitaði upp-
lýsinga um
ferðirnar hjá
Sigrúnu Ósk
Sigurðar-
dóttur, að-
stoðarfor-
stjóra ÁTVR,
en í svari
hennar segir
að flestar ferðirnar hafi verið svo-
kallaðar náms- og kynningarferð-
ir starfsfólks. Hún segir flestar
ferðanna hafi verið farnar af for-
stjóra og öðrum stjórnendum.
Kostnaður við utanlandsferð-
irnar er ekki ljós, en í sundurliðun
á stjórnunar- og skrifstofukostn-
aði kemur fram að ferðakostn-
aður, innlendur og erlendur, hafi
verið 19,8 milljónir króna í fyrra.
Ívar Arndal
Undirbýr svar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
er sagður hafa hafið vinnu við að
svara bréfi umboðsmanns Alþing-
is að morgni liðins fimmtudags. Í
samtali við mbl.is sagði aðstoðar-
maður hans, Jóhannes Þór Skúla-
son, forsætisráðherra hafi komið
úr sumarfríi sínu á meginlandi
Evrópu á fimmtudag. Á miðviku-
dag sendi Tryggvi Gunnarsson,
umboðsmaður Alþingis, Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur innanríkis-
ráðherra bréf og óskaði eftir ítar-
legri skýringum á fundum hennar
með Stefáni Eiríkssyni, fráfar-
andi lögreglustjóra. Samhliða því
óskaði hann eftir því að Sigmund-
ur Davíð svaraði hvort siðareglur
ráðherra sem fyrri ríkisstjórn setti
hafi verið samþykktar.
Landsvirkjun selur
eignir á Akureyri
n Seldu 2.000 fermetra höfuðstöðvar n Viðræður um sölu á rafstöð
L
andsvirkjun er við það að
selja vararafstöð og sumar-
hús, sem fyrirtækið á á Akur-
eyri. Orkufyrirtækið hefur
reynt að selja eignirnar, sem
eru á iðnaðarsvæðinu Rangárvöll-
um norðan Hlíðarfjallsvegar, um
nokkurra mánaða skeið en án ár-
angurs. Væntanlegur kaupandi er
fyrirtækið Íslenskt eldsneyti. Sig-
urður Eiríksson, einn af eigendum
Íslensks eldsneytis, segir viðskiptin
ekki frágengin en að fyrirtækið
hyggist selja vélbúnaðinn úr raf-
stöðinni erlendis ef af þeim verður.
Í desember í fyrra seldi Lands-
virkjun tæplega tvö þúsund fer-
metra húsnæði við Glerárgötu 30
þar sem fyrirtækið hefur verið með
höfuðstöðvar sínar um árabil. Í stað
þess að eiga húsið leigir Landsvirkj-
un nú af fasteignafélaginu, G30
fasteignir ehf., sem keypti húsið að
sögn Harðar Arnarsonar, forstjóra
Landsvirkjunar.
Stendur ekki til að minnka
starfsemina
Hörður Arnarson segir að sala eign-
anna á Akureyri þýði ekki að orku-
fyrirtækið ætli að draga saman
seglin í rekstri sínum á Akureyri.
Hann segir að síðastliðin tvö ár
hafi Landsvirkjun verið með verk-
efni sem gengur út á að selja eign-
ir sem ekki eru hluti af kjarnastarf-
semi fyrirtækisins. „Almennt erum
við að selja eignir utan kjarnastarf-
semi, líka hérna í Reykjavík. Varð-
andi fasteignina á Glerárgötu þá
áttum við miklu stærra húsnæði
en við vorum að nota og vorum að
leigja stórum fyrirtækjum, eins og
Samherja, aðstöðu. Það er ekki okk-
ar hlutverk að leigja út húsnæði. Við
erum bara að losa eignir og minnka
skuldsetningu fyrirtækisins. Það er
ekkert eðlilegt við það að fyrirtæki
eins og Landsvirkjun sé að leigja frá
sér húsnæði. Það eru aðrir betri í
því en við.“
Forstjórinn segir engin áform
uppi um að minnka starfsemina á
Akureyri, þvert á móti.
Rafstöðin lítið notuð
Hörður segir sömuleiðis að vara-
rafstöðin á Rangarárvöllum við
Akur eyri sé lítið notuð og að Lands-
virkjun þurfi ekki lengur á henni að
halda. Í tengslum við fyrirspurn DV
um sölu á eigninni fletti Hörður upp
hversu mikið vararafstöðin hefði
verið notuð síðastliðin ár. „Hún var
komin algjörlega úr rekstri. Hún
hefur ekki verið gangsett síðan árið
2006 og frá 1982 hafa verið fram-
leiddar í henni 0,3 gígavattstundir
og kostnaðurinn við hverja gígavatt-
stund er um 400 dollarar. Þannig að
hennar tími er bara liðinn. Við höf-
um verið að selja hjá okkur eignir
sem liggja hjá okkur en hafa ekkert
hlutverk lengur.“
Hörður segir að ekki þurfi
lengur að hafa vararafstöð á Akur-
eyri þannig að ekki komi til þess að
annarri verði komið upp ef stöðin á
Rangárvöllum verður seld. „Það er
ekki þörf á því lengur. Við þurfum
ekki að vera með vararafstöð. Þetta
var mikið notað fram til 1980, skilst
mér, en hefur verið sáralítið notað
eftir það,“ segir Hörður. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Það er ekkert
eðlilegt við það að
fyrirtæki eins og Lands-
virkjun sé að leigja frá sér
húsnæði.
Selja eignir Landsvirkjun, sem Hörður
Arnarson stýrir sem forstjóri, hefur
síðastliðin ár selt eignir sem ekki teljast
til kjarnastarfsemi fyrirtækisins.