Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Side 8
Helgarblað 8.–11. ágúst 20148 Fréttir
B
jörgólfur Thor Björgólfsson,
fjárfestir og fyrrverandi að
aleigandi Landsbankans,
borgaði milljarða króna úr
sameignarsjóðum (e. trusts)
sem hann á í skattaskjólinu Jersey á
Ermarsundi í skuldauppgjöri sínu.
Talsmaður hans og fjárfestingarfé
lagsins Novator, Ragnhildur Sverris
dóttir, staðfestir að kröfuhafar Björg
ólfs hafi haft aðgang að fjármunum
hans á Jersey í skuldauppgjörinu.
„Hann borgaði úr þessum sjóðum.“
1.200 milljóna uppgjör
Björgólfur Thor greindi frá því á
miðvikudaginn að hann hefði lok
ið skuldauppgjöri sínu og á endan
um greitt um 1.200 milljarða króna
til lánardrottna sinna. Í tilkynningu
frá Björgólfi segir meðal annars:
„Skuldauppgjöri mínu og fjár
festingarfélags míns við alla lánar
drottna er nú lokið, mun fyrr en áætl
að var. Ég var alla tíð ákveðinn í að
ganga frá uppgjörinu með sóma. Til
að svo mætti verða þurfti mikla og
þrotlausa vinnu til að hámarka virði
þeirra eigna sem lágu til grundvall
ar uppgjörinu. Þegar tilkynnt var um
uppgjör mitt í júlí 2010 kom fram að
skuldir myndu verða gerðar upp að
fullu og ekki gefnar eftir. Við það hef
ég staðið.“
Staðan ekki gefin upp
DV fjallaði talsvert um þessa sam
eignarsjóði árið 2010 þegar greint
var frá því að Björgólfur Thor færi
í skuldauppgjör við lánardrottna
sína. Þá sagði Ásgeir Friðgeirsson,
sem vann að samskiptamálum fyrir
Björgólf Thor á þessum tíma, að stór
hluti eigna hans væri í slíkum sjóðum
á Jersey. „Stór hluti af eignum Björg
ólfs var í þessum félögum [á Jersey,
innsk. blm.] og jafnvel heilu félög
in, eins og Play í Póllandi … Þetta er
allt hluti af uppgjörinu; þetta er allt
tekið með. Það eru allar eignir uppi á
borðinu.“
Í DV á þeim tíma kom fram að ein
af ástæðunum fyrir því að kröfuhafar
fyrirtækja Björgólfs Thors sættust á
skuldauppgjörið hafi einmitt verið
að Björgólfur veitti þeim aðgang að
sameignarsjóðunum og greiddi úr
þeim. Ekki fékkst uppgefið hversu
mikla fjármuni Björgólfur Thor átti í
þessum sjóðum.
Ragnhildur vill ekki greina frá því
hvort Björgólfur Thor noti ennþá
þessa sameignarsjóði í fjárfestingum
sínum. Hún segist nú, fjórum árum
síðan, heldur ekki vita hversu mikla
fjármuni Björgólfur Thor greiddi út
úr sjóðunum til kröfuhafa sinna. „Ég
þekki það ekki og hef ekki sérstaklega
lagt mig fram um að kynna mér það.“
„Engar eignir undanskildar“
Í tilkynningu frá Björgólfi kom
fram að um 100 manns hafi unnið
að skuldauppgjöri hans og að all
ar eignir hans hafi verið undir. „Um
100 manna her lögfræðinga, endur
skoðenda og annarra sérfræðinga
vann að skuldasamkomulaginu. Ég
lagði allar eignir mínar undir. Þá
fengu lánardrottnar aðgang að öllum
bankareikningum mínum og allra fé
laga minna nokkur ár aftur í tímann
og gátu þannig gengið úr skugga um
að engar eignir voru undanskild
ar. Sú rannsóknarvinna erlendra
sérfræðinga (forensic accounting)
stóð í tæpt eitt og hálft ár og lauk í
apríl 2012. Ég fullyrði að svo gagnsæ
vinnubrögð hafa ekki verið viðhöfð í
uppgjörsmálum neinna annarra í ís
lenska bankakerfinu.“
Meðal þessara eigna voru inni
stæðurnar á sjóðunum á Jersey. Í DV
árið 2010 kom fram, líkt og segir hér
að framan, að Björgólfur Thor hafi
meðal annars átt pólska farsímafyrir
tækið Play í gegnum Jersey. Ragn
hildur segir að vöxtur Play hafi ver
ið ein helsta ástæðan fyrir því að
Björgólfur Thor lauk skuldauppgjör
inu fyrr en ætlað var. Björgólfur á nú
50 prósent í Play eftir að hafa keypt
hlutabréf sem Straumur átti í fyrir
tækinu. „Hann keypti 50 prósent í
Play á nýjan leik með því að kaupa
hlut Straums núna. Það var svona
lokahnykkurinn í þessu. Nú er búið
að aflétta veðum sem kröfuhafarnir
voru með í hlutabréfum í Play og
kaupa Straum út,“ segir Ragnhildur
en Play er með um 11 milljónir áskri
fenda. n
n Átti milljarða á Jersey n Veitti aðgang að öllum reikningum sínum
Björgólfur borgaði úr
skattaskjólinu Jersey
Sameignarsjóðirnir og Play lykilmál Opnun Björgólfs Thors Björgólfssonar á sameignarsjóðum sem hann átti á Jersey á Ermarsundi
og vöxtur símafyrirtækisins Play voru tvö lykilatriði í skuldauppgjöri hans.
„Það var
svona loka
hnykkur inn í þessu
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Margir flýttu sér
út úr bænum
Lögreglan á höfuðborgarsvæð
inu myndaði brot 79 ökumanna á
Suðurlandsvegi síðasta föstudag.
Fylgst var með ökutækjum sem
ekið var Suðurlandsveg í aust
urátt, að Bláfjallavegi, að því er
fram kemur í tilkynningu frá lög
reglunni.
Á einni klukkustund, eftir
hádegi, fóru 658 ökutæki þessa
akstursleið og því óku allnokkrir
ökumenn, eða 12%, of hratt eða
yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu
var 105 kílómetrar á klukkustund
en þarna er 90 kílómetra há
markshraði. Tíu óku á 110 kíló
metra hraða eða meira en sá sem
hraðast ók mældist á 139.
Vöktun lögreglunnar á Suður
landsvegi er liður í umferðar
eftirliti hennar á höfuðborgar
svæðinu, að því er fram kemur í
tilkynningunni.
Lítill afgangur
af vöruskiptum
Á fyrstu sjö mánuðum ársins
var vöruskiptahalli á viðskiptum
við útlönd 3,6 milljarðar króna.
Greiningardeild Íslandsbanka
spáir því að vöruskipti reynist
hagstæðari þá mánuði sem eftir
eru af árinu. Ástæða þess hve lít
ill afgangur af vöruskiptum hef
ur verið er meðal annars sú að
dregið hefur lítillega úr útflutn
ingi sjávarafurða vegna lélegrar
loðnuvertíðar. „Þá var álverð
mjög lágt framan af ári, en það
hefur raunar hækkað talsvert síð
ustu vikurnar eins og að framan
greinir,“ segir í morgunkorni.
„Þetta er stórmál“
n Ísland ekki á bannlista Rússa n Tækifæri eða ógn?
Þ
etta er stórmál,“ segir Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri Sam
herja, um innflutningsbann
sem Rússar settu í gær. Rússar
hafa bannað innflutning á ávöxtum,
grænmeti, kjöti, fiski og mjólkurvör
um frá Evrópusambandinu, Banda
ríkjunum, Noregi, Kanada og Ástralíu.
Bannið er svar við þvingunaraðgerð
um sem Rússar hafa verið beittir fyrir
hernað í Úkraínu og fyrir að innlima
Krímskaga. Samkvæmt upplýsingum
frá utanríkisráðuneytinu er Ísland ekki
á bannlista Rússa.
Samherji er eitt stærsta sjávarút
vegsfyrirtæki Íslands en nánast allur
útflutningur til Rússlands og Úkraínu
frá Íslandi er sjávarafurðir. „Við erum að
skoða málið í þessum töluðu orðum en
þetta er stórmál. Annars vegar þar sem
tækifæri skapast á Rússlandsmarkaði
þegar Norðmenn detta þar út. Hins
vegar gæti samkeppni á öðrum mörk
uðum harðnað mikið þegar Norðmenn
þurfa að koma sinni vöru annað.“
Þorsteinn segir að erlend dóttur
fyrirtæki Samherja flytji lítið af
afurðum til Rússlands en mikið magn
sé flutt frá Íslandi. „Þetta er aðallega
síld, makríll, kolmunni og loðna. Árið
2012 voru flutt til Rússlands frá Íslandi
um 78 þúsund tonn og árið 2013 var
það um 101 þúsund tonn.“ Ómögulegt
sé að segja til um áhrifin. „Það er í raun
mikil óvissa uppi núna um hvað gerist
næst.“ Utanríkisráðherra hefur sagt að
bannið breyti ekki afstöðu Íslands til
Úkraínu, en ríkisstjórnin styður mál
stað þeirra. Kolbein Árnason, fram
kvæmdastjóri LÍÚ, sagði á Bylgjunni
að í fyrra hafi löndin tvö flutt inn sjávar
afurðir fyrir 30 milljarða króna. Norska
sjávarútvegsfréttasíðan iLaks.no
greindi frá því í gær að hlutabréf í eldis
risanum Marine Harvest hefðu fallið
um 10,2% á aðeins tveimur tímum eftir
að kynnt var um bannið en Norðmenn
flytja gríðarlegt magn sjávar afurða til
Rússlands. n asgeir@dv.is
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Þorsteinn Már Mikil óvissa hefur skapast.
Mynd SIgTRygguR ARI