Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 19
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Fréttir 19 Sektaður fyrir skrif um lögregluofbeldi „Stofufélagar þessa unga manns sögðu mér að bæklun hans væri af völdum útkastara og lögreglu. Þessu vildi ég þá ekki trúa svona fyrirvaralaust og spurði bæði lækna og sjúkralið að þessu. Jú, rétt var það: þarna var komið eitt af fórnardýrum löggæslunnar í næturlífi Reykjavík- ur.“ Árið 1986 var Þorgeir Þorgeirsson dæmdur fyrir greinar sem hann skrifaði um lögreglu­ ofbeldi í Morgunblaðið þremur árum áður. Var hann dæmdur fyrir skammaryrði, eða móðg­ anir, við opinberan starfsmann. En í lögunum kom fram að jafnvel þótt aðdróttunin væri sönnuð gæti hún varðað sektum ef hún væri borin fram á ótilhlýðilegan hátt. Var Þorgeiri gert að greiða 10 þúsund krónur í sekt auk sakarkostnaðar. Þorgeir kærði dóminn til Mannréttindadómstóls Evrópu. Dómstóllinn komst einróma að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Þorgeiri á 10. grein Mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi. n Fangelsis­ dómur fyrir að óvirða nasistafánann Ljóðskáldið Steinn Steinarr var dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar árið 1933 ásamt félögum sínum, Þóroddi Guðmunds­ syni og Eyjólfi Árnasyni, fyrir að skera niður hakakrossfánann, rífa hann og trampa á honum. Voru þeir kærðir fyrir að óvirða fána erlends ríkis og var það talið móðgun við og árás á þýska ríkið. Félagarnir sátu þó aldrei í fangelsi því þeir fengu sakaruppgjöf. n Úrelt meiðyrðalöggjöf„Erum eftirbátar í tjáningarfrelsi 200 krónur fyrir að kalla Adolf Hitler sadista Rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson var dæmdur til 200 króna sektar og greiðslu málskostnaðar vegna meiðandi ummæla um Adolf Hitler í greinum í Alþýðublaðinu árið 1934. Þórbergur var dæmdur fyrir að „smána erlenda þjóð“ eftir að hafa kallað Hitler sadista og blóðhund í einni greinanna. n Í gjaldþrot eftir að hafa sagt Aratúnshjón „siðblint ofbeldisfólk“ Í nóvember 2011 var Andrés Helgi Valgarðs­ son pistlahöfundur dæmdur fyrir skrif sín um nágrannaerjur í Aratúni. Í ummælum sem birtust á bloggi og Facebook­síðu Andrésar lýsti hann framkomu Aratúnshjóna í garð nágranna sinna. Var hann dæmdur á grund­ velli 235. greinar og 241. greinar almennra hegingarlaga. Andrési var gert að greiða Margréti Lilju Guðmundsdóttur bætur vegna meiðyrðanna og málskostnað. Samtals féll á hann kostnaður upp á tæpa milljón til viðbótar vegna eigin lögfræðikostnaðar. Í kjölfarið lýsti Andrés yfir gjaldþroti. Eftirfarandi ummæli voru dæmd dauð og ómerk: 1. Siðblint ofbeldisfólk 2. Brynja og Kalli hafi lent í alveg ótrúlegu ofbeldi af hálfu nágranna sinna á Aratúni 34, þeirra … og Margrétar Lilju Guðmundsdóttur 3. og núna fyrir tveimur vikum ráðast þau á þau með piparúða, þegar Brynja er með 2ja ára dóttur sína á fanginu. n Dæmdar fyrir að fjalla um nektardansstaði Árið 2012 unnu Erla Hlynsdóttir og Björk Eiðsdóttir dómsmál gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Málin höfðuðu þær eftir að bæði héraðsdómur og Hæstiréttur höfðu dæmt þær sekar í meiðyrðamálum vegna umfjöllunar þeirra í DV og Vikunni um nektardansstaði á Íslandi. Ummælin sem þær voru dæmdar fyrir höfðu þær beint eftir nafngreindum viðmælendum sínum. Mannréttindadóm­ stóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ríkið hefði brotið gegn 10. grein mann­ réttindasáttmála Evrópu um tjáningar­ frelsi. n yfirlýstu stefnu stjórnvalda og í kjölfar þess að Mannréttinda­ dómstóll Evrópu úrskurðaði árið 2012 að íslenska ríkið hefði brotið á tjáningarfrelsi blaðakvennanna Erlu Hlynsdóttur og Bjarkar Eiðs­ dóttur sem höfðu verið sakfelldar hvor í sínu lagi fyrir meiðyrði var refsiréttarnefnd fengin til að gefa álit sitt á mögulegum breytingum á lögunum. Nefndin var jákvæð gagnvart mögulegu afnámi refsi­ ákvæðanna. Slíkar breytingar hafa þó ekki enn komið til framkvæmda. Björg tekur þó fram að úrbætur hafi verið gerðar á lögum sem varða tjáningarfrelsi fjölmiðla á Íslandi. „Nú hafa reglur um ábyrgð fjöl­ miðla og blaðamanna verið teknar til gagngerrar endurskoðunar og í nýjum lögum um fjölmiðla eru nú skýrari og afdráttarlausari reglur um þessi efni,“ segir Björg. „Næsta skref er að kanna hvernig eigi að haga refsiviðurlögum í meiðyrða­ málum og þá tel ég alveg augljóst að það eigi að fella mögulega fang­ elsisrefsingu niður og íhuga hvort það eigi ekki líka að fella niður sektarrefsingar fyrir ærumeiðingar. En miða þá fyrst og fremst við að það verði hægt að dæma menn til greiðslu miskabóta, sem renna til þess sem krefst þeirra, eins og nú er almennt gert á grundvelli skaða­ bótalaga.“ Í gegnum tíðina hafa fjölmargir Íslendingar verið dæmdir fyrir að tjá sig. Nokkur þekktustu málin eru tekin saman hér á opnunni. Taka ber fram að ekki eru öll lögin sem um ræðir enn í gildi. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.