Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Page 20
Helgarblað 8.–11. ágúst 201420 Fréttir Erlent
KOMAST NÆR KJARNA LÍFSINS
n Evrópa setur mark sitt á geimferðasöguna n Meira fé varið til geimrannsókna en áður
E
vrópska geimvísindastofn-
unin, ESA, náði hugsanlega
sínum stærsta áfangasigri
á miðvikudag þegar tíu ára
ferðalagi gervihnattarins
Rósettu í átt að halastjörnunni 67P/
Churyumov–Gerasimenko lauk.
Gervihnötturinn hefur nú ferðast
sex milljarða kílómetra um geiminn
og mun fylgja halastjörnunni eftir í
um ár í átt að jörðu.
Halastjarnan er um fjórir kíló-
metrar í þvermál og svífur á um 55
þúsund kílómetra hraða á sporbaug
um sólina. Ferðalag hennar endar
mitt á milli Mars og jarðarinnar þar
sem hún snýr við og heldur aftur í
átt að plánetunni Júpíter. Hún er nú
stödd á milli Júpíters og Mars, um
405 milljónir kílómetra frá jörðu.
Rósetta heldur sig nú í um 100
kílómetra fjarlægð frá halastjörn-
unni. Gervihnötturinn mun svo
nálgast hana jafnt og þétt og taka
nákvæmar myndir af yfirborðinu,
meðal annars til að greina hvort þar
sé hægt að lenda litlu ómönnuðu
geimfari í nóvember. Þetta geim-
far á svo að bora niður fyrir yfirborð
halastjörnunnar og safna margs
konar sýnum.
Nýjar upplýsingar
Evrópskum vísindamönnum hefur
nú tekist í fyrsta skipti í heims-
sögunni að koma geimfari fyrir
samsíða halastjörnu á sporbaug
hennar um sólina, sem mun enn
fremur fylgja henni eftir á nákvæm-
lega sama hraða. Aldrei áður hefur
sýnum verið safnað af halastjörnu
á ferð hennar um geiminn, en árið
1986 tókst ESA að senda gervihnött-
inn Giotto nálægt hinni þekktu
Halleys-halastjörnu til að taka yfir-
borðsmyndir.
„Eftir tíu ára, fimm mánaða
og fjögurra daga ferðalag í átt að
áfangastað, fimm hringi í kringum
sólina og hátt í 6,4 milljarða kíló-
metra, erum við hæstánægð með
að tilkynna að við erum loksins
komin þangað,“ sagði Jean-Jacques
Dordain, framkvæmdastjóri ESA,
á miðvikudag við blaðamenn sem
voru viðstaddir beina útsendingu
frá fluginu.
„Við höfum náð ótrúlegum ár-
angri frá því að þessa hugmynd bar
fyrst á góma á seinni hluta áttunda
áratugarins og hún var fyrst sam-
þykkt árið 1993. Nú erum við til-
búin að opna þessa fjársjóðskistu
í heimi vísindanna sem mun án
efa endurskrifa kennslubækur um
halastjörnur,“ sagði Alvaro Gimé-
nez, yfirmaður vísindarannsókna
ESA.
Vatnsmiklir hnettir
Rósetta hefur nú þegar gert áður
óþekktar grunnrannsóknir á
halastjörnunni sem munu varpa
ljósi á efnasamsetningu halastjarna
og eðli. Meðal þess sem hefur kom-
ið vísindamönnum á óvart er að
hún gefur frá sér um 300 millilítra
af vatni á sekúndu vegna geisla frá
sólu, en hitastig halastjörnunnar
er að jafnaði -70 gráður. Yfirborð
halastjörnunnar virðist heldur ekki
vera ísi lagt eins og talið var, heldur
hrjóstrugt og þakið geimryki. Von-
ast er til að Rósetta gefi vísinda-
mönnum nákvæmari upplýsingar
um samsetningu halastjörnunnar,
Hversu stór er
hún? Hér má sjá stærð
halastjörnunnar 67P/
Churyumov–Gerasimenko
samanborið við aðrar
þekktari stærðir.
Gleði í ESA
Rósetta var í dvala
í þrjú ár til að spara
orku og glöddust
starfsmenn ESA
gríðarlega þegar
samband náðist við
hana á ný í sumar.
Hágæða yfirborðsrannsóknir Vonast er til að
myndirnar og sýnin frá Rósettu opni nýjar dyr í heimi
vísindanna.
Róbert Hlynur Baldursson
skrifar frá Brussel
„Nú erum við
tilbúin að opna
þessa fjársjóðskistu í
heimi vísindanna sem
mun án efa endurskrifa
kennslubækur um
halastjörnur.
T
veir leiðtogar Rauðu kmer-
anna voru á fimmtudag
dæmdir í lífstíðarfangelsi
fyrir glæpi gegn mannkyn-
inu í Kambódíu. Mennirnir voru
æðstu leiðtogar flokksins sem enn
lifa, Nuon Chea, „ bróðir númer
tvö“, og Khieu Samphan, forseti
landsins er Pol Pot réð ríkjum. Ein-
ræðisherrann Pol Pot lést árið 1998
en hann fór huldu höfði í regnskóg-
um landsins eftir að honum steypt
af stóli af víetnamska hernum árið
1979. Dómari réttarhaldanna,
Nil Nonn, sagði að báðir væru
þeir sekir um „útrýmingar morð,
pólitískar ofsóknir ásamt öðrum
ómannlegum glæpum“. Þjóðar-
morð Rauðu kmeranna er það
stærsta í mannkynssögunni sé litið
til hlutfalls þjóðar sem var myrt en
fjórðungur Kambódíumanna lét
lífið á aðeins fjórum árum. Talið er
að heildarfjöldi myrtra liggi á bil-
inu 1,7 til 2 milljónir manns.
Chea og Samphan eru fyrstu
liðsmenn Rauðu kmeranna sem
réttað hefur verið yfir en báðir neit-
uðu þeir alfarið sök. Báðir héldu
þeir því fram að ásakanir á hendur
þeim væru áróður og uppspuni frá
rótum. Niðurstaða dómsins var að
Chea hefði verið einn helsti hug-
myndafræðingur ógnarstjórnar-
innar meðan Samphan hafi verið
helsta andlit hennar. Þeir hafi báð-
ir komið að mótun stefnu stjórnar-
innar sem hafði það að markmiði
að snúa við iðn- og borgarvæðingu
landsins. n
hjalmar@dv.is
Liðsmenn Pol Pot fá lífstíðardóm
Fjórðungur Kambódíumanna lést undir stjórn Rauðu kmeranna
Dæmdir Bæði Nuon Chea og Khieu
Samphan voru dæmdir í lífstíðarfangelsi
fyrir glæpi gegn mannkyninu. Þeir voru
háttsettir í stjórn Rauðu kmeranna.