Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 21
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Fréttir Erlent 21
KOMAST NÆR KJARNA LÍFSINS
þar á meðal vatnsmagn og kolefni.
Myndir sem teknar voru úr
130 kílómetra fjarlægð frá 67P/
Churyumov–Gerasimenko sýna
stórkostlegt landslag á yfirborði
halastjörnunnar, með klettum
sem sumir hverjir eru á stærð við
hús. „Hin evrópska Rósetta er
fyrsta geimfar sögunnar sem hitt-
ir á halastjörnu. Þetta er gríðarleg-
ur áfangi í að kanna uppruna okk-
ar. Frekari uppgötvanir munu nú
hefjast,“ sagði Dordain. n
Halastjörnur
og upphaf
sólkerfisins
Sagt er að halastjörnur, sem taldar
eru vera hraðfleygustu fyrirbæri
sólkerfisins, hafi orðið til á sama tíma
og reikistjörnur heimsins, fyrir um
fimm milljörðum ára. Yfirborðsmyndir
sem teknar hafa verið af halastjörnum
hingað til benda til þess að þær séu
gríðarstórir íshnettir þaktir geimryki.
Þegar þær nálgast innra sólkerfið
eykst virkni þeirra vegna mikillar
uppgufunar. Þá myndast hjúpur, eða
hali, aftan úr stjörnunni sem beinist í
átt frá sólinni.
Sumir vísindamenn telja að
halastjörnur og loftsteinar sem rákust
á jörðina fyrir milljörðum ára eigi sinn
þátt í því að líf hafi skapast þar. Þessir
íshnettir hafi komið vatni til jarðarinn-
ar og búið til lífræn efnasambönd.
Halleys-halastjarnan er ein
þekktasta vísindauppgötvun heims.
Hana má sjá frá jörðu á 75 til 76
ára fresti. Fer hún fjærst sólu að
plánetunni Plútó og næst mitt á milli
Merkúrs og Venusar. Hún sást síðast
við jörðu árið 1986. Þá sendu Japanir,
Sovétmenn, Bandaríkjamenn og
ESA ómönnuð geimför til móts við
halastjörnuna til að gera rannsóknir
á henni. Besta árangrinum náði
Giotto, geimfar ESA, sem komst
í um 600 kílómetra fjarlægð frá
Halleys-halastjörnunni. Giotto náði
nákvæmum myndum sem voru þær
fyrstu sinnar tegundar og gögnuðust
vísindamönnum til að greina sam-
setningu halastjörnunnar. Halastjarna
Halleys mun næst sjást við jörðu árið
2061.
Fram til þessa hafa verið borin
kennsl á um eitt þúsund mismunandi
halastjörnur og eru þær alla jafna
nefndar í höfuð þeirra einstak-
linga sem tilkynna um þær fyrst.
Ferðalag þeirra um sporbaug tekur
mjög mismunandi tíma. Þótt 67P/
Churyumov–Gerasimenko sé með
stuttan sporbaug sem tekur aðeins
sex og hálft ár að ljúka, þurfa aðrar
stjörnur meira en tvö hundruð ár til að
komast aftur á upphafspunkt.
Evrópsku
geimvísinda-
áætlanirnar
Evrópska geimferðastofnunin, ESA,
var stofnuð árið 1975 með það að
markmiði að auka umsvif Evrópuríkja í
geimrannsóknum og -ferðum. Tuttugu
ríki eiga fulla aðild að ESA og eru
öll jafnframt aðilar að Evrópusam-
bandinu.
Rósetta er meðal stærstu einstöku
verkefna sem ESA hefur unnið að.
Hingað til hefur um 200 milljörðum
króna verið varið í rannsóknina.
ESA er að stórum hluta fjármögn-
uð af Evrópusambandinu í gegnum
Galileó- og Copernicus-geimvísinda-
áætlanirnar, sem saman munu fá
úthlutað um 1.700 milljörðum króna
fram til ársins 2020. Stofnunin
þróar geimför, tæki og áætlanir sem
nauðsynlegar eru fyrir þessi verkefni.
ESA vinnur nú að því að koma upp
sínu eigin gervihnattakerfi, GNSS, sem
á að vera sambærilegt bandaríska
GPS-kerfinu. Kerfið á að taka í notkun
árið 2019 og tryggir Evrópu sjálfstæði
og öryggi ef hvort tveggja GPS- og
rússneska GLONASS-kerfin verður
óstarfhæft. Samhliða því verður sett
upp evrópskt viðvörunarkerfi vegna
umhverfis- og varnarmála.
Vægi evrópskra geimvísinda jókst
til muna þegar Lissabon- sáttmálinn
var samþykktur árið 2009. Þá
skilgreindi Evrópusambandið loks
hlutverk sitt í geimvísindamálum,
sem taldi mjög mikilvægt að styðja
slík verkefni til að tryggja öryggi,
sjálfstæði og velferð Evrópubúa til
frambúðar. Á sama tíma hafa banda-
rísk stjórnvöld skorið niður framlög til
geimferðastofnunarinnar NASA.
Sigursæll kalífi
Nærmynd af Abu Bakr al- Baghdadi
E
inn voldugasti maður
Austur landa nær í dag er
maður sem fæstir þekkja,
Abu Bakr al- Baghdadi, leið-
togi Íslamska ríkisins, oft
nefnt ISIS, sem unnið hefur hvern
sigurinn á fætur öðrum á þessu ári.
Fylgismenn hans kalla hann þó ekki
Abu Bakr því meðal þeirra er hann
aðeins nefndur Ibrahim kalífi, leið-
togi allra múslíma, eftir að Íslamska
ríkið tilkynnti nýverið að kalífa-
dæmið hefði verið endurstofnað
eftir að hafa legið í dvala frá lokum
fyrri heimsstyrjaldar. Í kjölfar þess
að Abu Bakr opinberaði sig sem
leiðtoga uppreisnarríkisins og hélt
föstudagmessu í Mosul 5. júlí síð-
astliðinn hefur ævisaga hans orðið
umtalsvert skýrari. Eftir að tilkynnt
var að hann væri hinn nýi kalífi hef-
ur hann verið fyrirferðarmeiri, en
fram til þess hafði hann nær alfar-
ið stýrt uppreisnarher Íslamska rík-
isins bak við tjöldin.
Höfuðlaus trúarbrögð
Þrátt fyrir að vafalaust fæstir
múslímar í heiminum viðurkenni
stöðu Abu Bakr sem trúleiðtoga sinn
þá er tilkynning hans um að hann sé
hinn nýi kalífi merkileg í ljósi þess að
staðan hefur í raun verið auð frá 3.
mars árið 1924. Þann dag var kalífa-
dæmið formlega lagt niður í Tyrk-
landi og Abdülmecid II kalífa steypt
af stóli. Ottómanakeisari hafði ver-
ið kalífi allt frá upphafi 16. aldar og
eftir fall veldisins var engin skýr arf-
taki þrátt fyrir misheppnaða tilraun
Hussein bin Ali, konungs Hejaz – nú
Sádi-Arabía, til þess árið 1924. Því
hefur íslamstrú í raun verið höfuð-
laus trú nú í 90 ár.
Sagður skyldur spámanninum
Ein helsta heimildin um ævi Abu
Bakr er vafasöm ævisaga hans sem
kom út í júlí í fyrra og var rituð af
bareinska öfgaklerkinum Turki al-
Binali. Þrátt fyrir að vera nokkuð
skýrt dæmi um áróðursrit má finna
í ævisögunni mörg sannleiksbrot. Í
bókinni er talsvert fjallað um ættar-
tré Abu Bakr og reynt að sýna fram á
skyldleika hans við Múhameð spá-
mann. Þá viðleitni má skýra með
því að eitt helsta skilyrði þess að
geta verið kalífi í gegnum sögu ís-
lam hefur verið að viðkomandi eigi
rætur að rekja til Quraysh-ættbálks
spámannsins. Í bókinni kemur fram
að Abu Bakr sé af al-Bu Badri-ætt-
bálkinum sem sagður er geta rekið
rætur sínar aftur til spámannsins.
Meðlimir þess ættbálks búa flest-
ir í dag ýmist í borgunum Samarra
eða Diyala, sem báðar í nágrenni
höfuð borgar Íraks, Bagdad.
Imam til innrásar
Í ævisögu Abu Bakr er auk ættar-
trés hans fjallað um menntun hans.
Hann er sagður vera með doktors-
gráðu frá Íslamska háskóla Bagdad
þar sem hann lagði áherslu á shar-
ía-lög í námi sínu. Eftir útskrift sína
úr þeim skóla tók hann til starfa
sem imam, bænaprestur múslíma,
í Ahmad ibn Hanbal-moskunni í
Samarra. Þar boðaði hann guðsorð
þar til innrásar Bandaríkjanna í Írak
kom árið 2003.
Fangi Bandaríkjahers í ár
Í kjölfar innrásar Bandaríkjamanna
stofnaði Abu Bakr ásamt öðrum sam-
tökin Jamaat Jaysh Ahl al-Sunnah
wa-l-Jamaah, sem mætti íslenska
sem her súnníta. Abu Bakr var þó
ekki eiginlegur leiðtogi samtakanna
heldur einungis formaður sharía-
laganefndar samtakanna. Nær allt ár
2004 var honum haldið föngnum af
Bandaríkjaher en var sleppt í desem-
ber það sama ár þar sem ekki þótti
stafa yfirvofandi ógn af honum. Lítið
fór fyrir samtökum hans þar til upp-
hafi árs 2006 þegar þau sóru banda-
lag við al-Kaída í Írak og fóru undir
regnhlífarsamtök hryðjuverkahóps-
ins. Í því nýja fyrirkomulagi starfaði
Abu Bakr fyrst og fremst við sharía-
laganefnd samtakanna.
Leiðtogi frá 2010
Síðla árs 2006 skipti al-Kaída í Írak
um nafn og fór þá að titla sig sem
Íslamskt ríki Írak. Með þeim nafna-
skiptum fylgdi skipulagsbreyting
sem fólst í því að gera rekstur sam-
takanna líkari því sem tíðkast
í ríkis stjórnum. Með þessum
breytingum fékk Abu Bakr verulega
stöðuhækkun og varð stjórnandi
sharía-laganefndar sem og stjórn-
armaður í æðstaráði Íslamska ríkis-
ins. Í apríl árið 2010 lést þáverandi
leiðtogi samtakanna, Abu Umar al-
Baghdadi, í sprengjuregni banda-
rískra og írakskra hermanna. Abu
Bakr tók þá við valdataumum sam-
takanna.
Kom á velferðarkerfi
Helstu sigrar Íslamska ríkisins hafa
verið undir stjórn Abu Bakr og er
talið líklegt að það sé fyrst og fremst
vegna nýrrar áherslna hans. Raun-
ar hefur hann gerbreytt samtökum
sem voru við það að hrynja saman
í vel skipulagðan og þjálfaðan her.
Tvær áherslubreytingar hafa í því
samhengi skipt sköpum. Í fyrsta
lagi hafa samtökin, eða raunar ríkið
nú, tekið á sig mýkri mynd gagnvart
almennum borgurum. Þrátt fyrir að
ekki hafi dregið úr harðneskjuleg-
um refsingum þá kemur nú á móti
frumstætt velferðarkerfi. Þess ber
þó að geta að framan greind atriði
eiga nánast eingöngu við um rétta
fólkið. Það sem hefur styrkt sam-
tökin einna helst hernaðarlega séð
er þó ný nálgun Abu Bakr gagnvart
ættbálkum Írak. Hann hefur náð
með skipulögðum hætti að halda í
skefjum ættbálkum sem hafa haft
öll helstu völd í sínum höndum.
Það hefur hann gert með ýmist
launmorði höfðingja eða samið um
innlimun ættbálksins inn í ríki sitt.
Í dag stýrir Abu Bakr einum best
vopnaða og fjármagnaða uppreisn-
arher í heimi. Miðað við gang mála
er ekki harla ólíklegt að her hans
muni hafa sigur gegn írakska rík-
inu. n
Kalífi Abu Bakr kom fram
á sjónarsvið heimsins þegar
hann hélt föstudagsmessu í
Mosul stuttu eftir að Íslamska
ríkið hertók borgina í upphafi
júnímánaðar. Þann 29. júní var
endurstofnun kalífadæmisins til-
kynnt með Abu Bakr sem kalífa.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Í
búar á Hawaii eiga erfiða daga
framundan, en spár hafa sýnt að
tveir fellibyljir muni fara yfir eyj-
una á næstu dögum. Sá fyrri hef-
ur fengið nafnið Iselle og er í styrk-
leikaflokki 1 af 5. Hann gekk yfir í
gærkvöldi. Veðurfræðingur sagði
í samtali við fréttastofu AP að felli-
bylurinn sé ekki sterkur en gæti
„feykt hlutum til.“ Seinni fellibylur-
inn, Julio, er stærri en Iselle og er í
styrkleikaflokki 2. Samkvæmt spám
mun Julio sækja í sig veðrið fram á
sunnudagskvöld og dvína þá aðeins
þegar hann fer yfir eyjuna.
Fregnir af yfirvofandi veðurofsa
hafa sett strik í reikninginn fyrir
ferðaþjónustu á eyjunni og hef-
ur að minnsta kosti eitt flugfélag til
að mynda hætt við ferðir þangað
og eru fleiri félög að meta stöðuna.
Þá hafa yfirvöld á eyjunni lokað al-
menningsgörðum og strandgestir
njóta síðustu sólargeislanna áður
en regnið og rokið skellur á.
Fellibylur gekk síðast yfir Hawaii
árið 1992, en það var fellibylurinn
Inkiki. Þegar hann gekk yfir létust
sex manns í veðurofsanum. n
jonsteinar@dv.is
Búa sig undir fellibylji
Fyrstu fellibyljir sem lenda á Hawaii í 22 ár
Iselle og Julio Iselle er til vinstri við miðja
mynd og Julio er hægra megin. Hawaii má
svo sjá lengst til vinstri á myndinni.