Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Side 26
Helgarblað 8.–11. ágúst 201426 Umræða
Umsjón: Henry Þór BaldurssonHarkan sex
S
taða íslenskrar tungu hefur
verið nokkuð til umfjöllunar
undanfarið og því jafnvel ver-
ið hreyft að hún kunni að vera
í hættu á næstu áratugum ef
ekkert verði að gert. Samkvæmt ný-
legri skýrslu er staða hennar veik bor-
ið saman við önnur mál í Evrópu og er
þar ekki síst horft til stafrænnar upp-
lýsingatækni og tölvuumhverfis í dag-
legu lífi.
Íslenskan á tölvuöld
Af þessum sökum var sett fram, að
mínu frumkvæði, og samþykkt þings-
ályktunartillaga um að gera áætlun
sem miðar að því efla tungutækni
og styrkja stöðu tungunnar að þessu
leyti. Um þetta mál ríkti þverpólitísk
samstaða – enda mikið í húfi. Í til-
lögunni segir: „Alþingi ályktar að fela
mennta- og menningarmálaráðherra
að skipa nefnd sérfræðinga í málvís-
indum og upplýsingatækni sem geri
áætlun um aðgerðir er miði að því að
gera íslensku gjaldgenga í stafrænni
upplýsingatækni og stuðla að notkun
hennar á þeim vettvangi. Áætlunin
feli í sér tímasett yfirlit um aðgerðir og
áfanga, kostnaðarmat og fjármögnun.
Nefndin leggi áætlun sína fram í síð-
asta lagi 1. september 2014.“ Að baki
þessari þingsályktun býr góður vilji og
henni þarf auðvitað að fylgja vel eftir.
Ég vænti þess að svo verði strax við
gerð fjárlaga fyrir árið 2015. Fjárfesting
í máltækni er gríðarlega mikilvægur
þáttur í íslenskri málstefnu.
Læsi og móðurmál
Það er mitt mat að við umræðu um
læsi á Íslandi verði ekki hjá því litið að
ræða læsi í víðum skilningi og stöðu
tungunnar almennt. Sjálf fékkst ég
áður við máltöku- og móðurmáls-
fræði og verð þess greinilega vör að
enska sækir ákaft á í daglegum sam-
skiptum barna og ungmenna sem þó
eiga íslensku að fyrsta máli. Því verður
vissulega að halda til haga að íslenska
er notuð á öllum sviðum samfélags-
ins og tekur til æ fleiri viðfangsefna,
að því leyti er staða hennar sterk. Aft-
ur á móti þarf að gæta að því að enska
leikur æ stærra hlutverk í málumhverfi
og málnotkun barna og unglinga. Þar
eru blikur á lofti og margt sem bend-
ir til að málkennd og orðaforði veikist
jafnt og þétt.
Ef íslenskt mál á undir högg að
sækja í daglegu lífi barna og unglinga
er rétt að velta fyrir sér hvaða áhrif
það hefur á almennt læsi og lesskiln-
ing. Ef til vill er sá læsisvandi sem þyk-
ir blasa við í íslensku skólakerfi og var
meðal annars lýst í nýlegri Hvítbók um
áherslur í skólamálum ekki síst í því
fólginn að málskilningur á íslensku
kann að vera á hröðu undanhaldi.
Raunar sakna ég þess að málskiln-
ingur almennt sé ræddur í nýrri hvít-
bók menntamálaráðherra. Mál og læsi
þarf að skoða í samhengi og mál sem
þarf að styrkja á mikið undir stuðningi
stjórnvalda, skýrri stefnumörkun og
fjármagni á öllum sviðum. Þá er ekki
nóg að benda á umfang móðurmáls
í námskrá eða mælingar á prófum,
heldur þarf að vinna að stuðningi við
tunguna um allt samfélagið.
Hvað er til ráða?
Til að styrkja stöðu tungunnar þarf
að fylgja nefndri þingsályktun eftir
með myndarlegum hætti og auka hlut
íslensku í tungutækni en ekki síð-
ur að efla bókasöfn, þýðingar, inn-
lenda dagskrárgerð, innlenda kvik-
myndagerð, leikhús og sköpun og
síðast en ekki síst kennslu og rann-
sóknir í menntun, lestrar- og móður-
málsfræðum. Hvítbók má sín lítils ef
þessa samhengis er ekki gætt, flókið
og margslungið viðfangsefni verður
ekki leyst með þröngri nálgun. Sér-
staklega er varhugavert að einblína
um of á niðurstöður prófa um læsi og
lesskilning í því starfi sem framund-
an er. Þvert á móti er brýnt að horfa
á viðfangsefnið í víðara samhengi og
stöðu móðurmálsins í samfélaginu
öllu. Hér er hvatt til þess að mennta-
málaráðherra leiti til allra þeirra sem
best til þekkja og horfi ekki framhjá
mikilvægi rannsókna og nýsköpunar
í þessu efni. n
N
ú er u.þ.b. mánuður þar til Al-
þingi kemur saman að nýju og
fjárlagafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar fyrir árið 2015 verður
lagt fram.
Þrátt fyrir að ný ríkisstjórn hafi
sinkað þingsetningu í fyrrahaust
reyndist fjárlagafrumvarpið þá varla
hálfklárað. Markmiðið að ná halla-
lausum fjárlögum var jákvætt en úti-
lokað að styðja þá leið sem var valin
til að ná markmiðinu. Hefja átti að
nýju niðurskurð í heilbrigðiskerfinu,
lækka barnabætur og vaxtabætur auk
þess sem nefskattar og gjöld á sjúk-
linga og nemendur voru hækkuð.
Boðuð var tekjuskattslækkun einung-
is hjá þeim tekjuhærri. Sjávarútveg-
urinn fékk lækkun á sínum gjöldum
sem og ferðaþjónustan.
Það verður að segja þinginu til
hróss að það tókst að bæta og breyta
miklu frá fjárlagafrumvarpinu. Þar
réð miklu barátta stjórnarandstöðu,
launþegahreyfingarinnar og almenn-
ings.
Alþingi hækkaði framlög til heil-
brigðismála og til löggæslu. Lækk-
un á barnabótum voru að nafninu til
dregnar til baka, sem og hluti lækk-
unar vaxtabóta en frysting og lækkun
tekjuviðmiða varð til þess að mun
færri heimili fá þessar bætur og upp-
hæðirnar eru lægri en fjárlög gerðu
ráð fyrir. Ríkisstjórnin sker þannig
niður framlög til barnafólks og hús-
eigenda um einn milljarð á þessu ári
frá núverandi fjárlögum.
Eykst misskipting að nýju?
Niðurskurður er boðaður í fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár. Hvar lendir
hann? Hverju verður bætt við?
Má treysta því að félags- og hús-
næðismálaráðherra fái fjármagn til
að breyta húsnæðiskerfinu, taka upp
húsnæðisbætur og jafna stöðu leigj-
enda og eigenda húsnæðis og tryggja
húsnæði fyrir þá tekjulægri? Fær ráð-
herra nauðsynlegt fjármagn til að
bæta stöðu þeirra sem minnst hafa í
samfélaginu eða velur ríkisstjórnin
að auka misskiptinguna enn frekar?
Verða stigin skref til að minnka kyn-
bundinn launamun?
Fær heilbrigðisráðherra nægjan-
legt fjármagn til að efla heilsugæslu,
auka forvarnir og byggja upp og bæta
aðstöðu og þjónustu á sjúkrahúsum?
Verður það fjármagn sótt í frekari
gjaldtöku af sjúklingum eða með
einkavæðingu heilbrigðisþjón-
ustunnar? Verður aukið fjármagn
til að framfylgja hugmyndum um
eflingu starfs- og verknáms, bæta
læsi, styrkja stöðu innflytjenda og til
endurskipulagningar skólakerfisins?
Næst að styrkja velferðarþjón-
ustuna um leið og skattstofnar eru
lagðir af? Auðlegðarskatturinn verður
ekki framlengdur og þar lækka tekj-
ur ríkissjóðs á næsta ári um nærri 10
milljarða. Hvaða áhrif hefur það?
Öflug andstaða mikilvæg
Ég nefndi hér að framan mikilvægi
öflugrar stjórnarandstöðu á Alþingi
og aðhalds almennings. Það er hægt
að hafa áhrif.
Evrópuráðið hefur ítrekað bent á
mikilvægi öflugrar stjórnarandstöðu
í þjóðþingum. Ráðið bendir einnig á
mikilvægi óháðra vandaðrar fjölmiðl-
unar sem forsendu lýðræðislegrar
umræðu. Það er beinlínis andstætt
lýðræðinu að ríkjandi stjórnvöld
kveinki sér sífellt undan umfjöllun
um mál, þegar reynt er að draga fram
ólík sjónarmið og viðhorf til að bæta
umræðuna, draga fram sannleikann
og leita bestu lausna.
Alþingismenn, í stjórn og stjórnar-
andstöðu, búa sig undir haustþingið.
Samfylkingin undirbýr sig undir kom-
andi þing með sín grunngildi og al-
mannahagsmuni að leiðarljósi, þar
sem áherslan er á réttindi fólks til
mannsæmandi kjara. Íslendingar
vilja öflugt og réttlátt velferðarkerfi og
jöfnuð en til þess að ná því markmiði
þarf réttlátt skattkerfi sem hefur jöfn-
unarhlutverk og skilar góðum tekjum.
Þá er vonandi að umræðan um
frelsi, réttlæti og eflingu forvarna í
samfélaginu snúist ekki eingöngu
um rétt matvöruverslana til að græða
á sölu áfengra drykkja. Frelsi og rétt-
læti á að snúast um önnur og stærri
mál svo sem almenn mannréttindi
og réttinn til að lifa með reisn í okk-
ar samfélagi. Fólk þarf að hafa þak yfir
höfuðið, eiga kost á góðri heilbrigðis-
þjónustu og menntun óháð efnahag,
búsetu, þjóðerni, trú og félagslegri
stöðu.
Það er verðugt verkefni stjórnar-
andstöðunnar að berjast fyrir hags-
munum almennings gegn sérhags-
munastefnu núverandi ríkisstjórnar
og tryggja að stjórnvöld dragi lærdóm
af hruninu en leiti ekki enn frekar í
sama gamla farið. n
Svandís Svavarsdóttir
alþingismaður
Aðsent
Læsi – hvítbók og staða íslenskunnar
Endurreisn íslensks samfélags – í þágu hverra?
„Sérstaklega er
varhugavert að
einblína um of á niður-
stöður prófa um læsi
og lesskilning í því starfi
sem framundan er.
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
„Munum bara
hverjum það er
að þakka að við
konur erum á þeim stað
sem við erum í dag það
er þessum svokölluðum
„dólgafeministum“
fortíðarinnar að þakka.“
Sigríður Einarsdóttir
gagnrýndi ummæli Evu
Hauksdóttur í viðtali við
Sunnudagsmoggann þar sem hún sagði
„dólgafemínisma“ hafa vaðið uppi á
seinustu árum.
57
Guðbjartur Hannesson
þingmaður
Kjallari
„Það er á svona
hugsun sem
þessir spilltu
pólitíkusar þrífast á …“
Karl Magnússon var ekki
sammála ummælum um að
umfjöllun um lekamálið væri
þráhyggja blaðamanna sem um það
skrifa.
35
„Oh, kjánahrollur.
Í stað þess að
bregðast við
auknum ferðamannafjölda
með því að byggja annan
kamar eða tvo, negla þeir
fyrir þennan eina sem er
á svæðinu. Þetta minnir á
strútinn sem stingur höfðinu
í sandinn.“
Sveini Marínó G finnst út í
hött að ferðamenn skulu þurfa
að ganga örna sinna úti í móa
eftir að neglt var fyrir kamarinn sem
stendur austan við Jökulsárlón.
29
„Sem betur fer
höfum við enn
faglega hæft
fólk í íslenskri stjórnsýslu
sem vinnur sín störf af
kostgæfni. Og sem betur
fer höfum við enn alvöru
rannsóknarblaðamenn
sem láta ekki spillta og
lygna stjórnmálamenn sem
misnota vald sitt beygja sig.“
Bergur Ísleifsson var ánægð-
ur með störf umboðsmanns
Alþingis en hann sendi Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra
annað bréf á dögunum því svör hennar
við fyrri fyrirspurn voru ekki fullnægj-
andi.
18
„Af hverju borða
menn ekki bara
kökur?“
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
undraðist á orðum Brynjars
Níelssonar sem spurði á Face-
book hvers vegna flóttamenn þyrftu
fölsuð skilríki.
14