Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 29
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Fólk Viðtal 29 „Ég er algjörlega tilbúinn til þess að eignast barn“ hann, eins og margir aðrir í nám­ inu, um sumarstarf og fékk vinnu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í afleysing­ um. Eftir það varð ekki aftur snúið. Fékk næstum taugaáfall Sjálfur segist Sölvi hafa séð sig fyrir sér í blaðamennsku fremur en í sjónvarpinu. Ástæðan er sú að hann þjáðist lengi fram eftir aldri af mikilli feimni. „Ég var ekki félags­ málatröllið þegar ég var í mennta­ skóla og háskóla, síður en svo. Það var því mikil áskorun fyrir mig að fara í sjónvarp og á skömmum tíma þurfti ég að yfirvinna mjög margar hindranir í sjálfum mér,“ segir Sölvi en honum var hent í djúpu laugina strax á fyrsta degi. „Fyrsta fréttin mín var um sumarhátíð í Hafnar­ firði. Ég átti að taka viðtöl við nokkra krakka sem voru að halda tónleika á hátíðinni og ég ætlaði varla að koma upp úr mér orði. Ég var svo stressaður,“ rifjar Sölvi upp og hlær við tilhugsunina. „Fyrstu vaktina sem ég var sendur í alvöru, harða frétt, á þriðja eða fjórða degi, átti ég síðan að fá viðbrögð frá for­ mönnum stjórnmálaflokkanna við fjölmiðlafrumvarpinu, sem var aðalmálið sumarið 2004 eins og margir muna. Kristján Már Unnars­ son var vaktstjóri á þeim tíma og hann sendi mig í þessa frétt rétt upp úr klukkan fimm en fréttatíminn er, eins og flestir vita, klukkan hálf sjö. Ég kom í hús með þrjú löng viðtöl klukkan sex og átti þá eftir að klippa þau og skrifa fréttina. Þetta átti að verða önnur frétt. Ég man bara eftir því að ég var enn inni í klippiher­ bergi þegar fréttin átti að fara í loft­ ið og þá var ekki búið að setja neitt myndefni yfir hana. Ég var við það að fá taugaáfall. Eftir þennan dag fór ég heim og hugsaði með mér að þetta starf væri ekki fyrir mig.“ Líður vel í beinni Sölvi gafst hins vegar ekki svo auð­ veldlega upp og mætti brattur í vinnu daginn eftir. Sem betur fer, því þetta var aðeins upphafið að afar farsælum, en á tímum stormasöm­ um, ferli. Hann segir beinar út­ sendingar alltaf hafa átt vel við sig. „Fyrsta beina útsendingin mín var í Ártúnsbrekkunni um verslunar­ mannahelgi, mjög týpísk frétt, en eftir hana var mér hrósað í hástert af myndatökumönnum, sem voru ánægðir með nýliðann. Það hefur verið mjög þversagnakennt hjá mér frá fyrsta degi að þegar ég fer í bein­ ar útsendingar þá er eins og slokkni á öllu nema einbeitingunni. Þá er enginn valkostur að vera að hugsa. Þú ferð í eitthvert ástand, sem margir íþróttamenn kannast til dæmis við, þar sem þú ert bara í flæði og hugsar ekkert um hvað þú ert að gera – þú bara gerir.“ NFS-ævintýrið Eftir sumarafleysingarnar buðust Sölva áframhaldandi störf hjá fyrir­ tækinu. Fyrst færði hann sig yfir í netfréttir en síðan í morgunfrétt­ irnar. Það var einn skemmtileg­ asti tíminn, segir hann, fyrir utan ókristilegan vinnutíma. Árið 2005 hóf NFS síðan göngu sína – sem var tilraun 365 miðla til þess að senda út fréttir á sér fréttastöð stærstan hluta sólarhringsins. „Þetta var áhugaverður tími. Við vorum tveir, ég og Sindri Sindrason, sem lás­ um fréttir í beinni útsendingu allan daginn. Þetta var frábær skóli. Þá kom fyrir að maður las fréttir á hálftíma fresti, frá fyrsta fréttatíma klukkan sjö á morgnana að kvöld­ fréttum klukkan hálf sjö. Þetta voru því um tuttugu og fimm fréttatímar sem maður las í beinni útsendingu á einum degi,“ rifjar Sölvi upp. Eins og kunnugt er var NFS­ ævin týrið tilraun sem ekki gekk upp en fréttastöðin hætti út­ sendingum ári síðar. Þá fór Sölvi yfir í Ísland í dag. „Ég var svo hepp­ inn þegar ég var á Stöð 2 að ég fékk stöðugt að endurnýja mig og prófa eitthvað nýtt.“ Stórkostlegir hlutir Sölvi var í Íslandi í dag í rúm tvö ár og kunni vel við sig. Þátturinn var þá ólíkur því sem við þekkjum í dag og meiri áhersla var lögð á þjóðmála­ umræðu og ítarleg viðtöl sem oftast nær voru tekin í beinni útsendingu. Í kjölfar hrunsins haustið 2008 tóku í senn við skrítnir og áhugaverðir tímar að sögn Sölva. „ Svanhildur Hólm, sem þá var ritstjóri, hætti skyndilega og við vorum bara tvö eftir með þáttinn – ég og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir. Hún var ekki sérhæfð í fréttum af stjórnmálum og viðskiptum þannig að ég fékk að gera alveg stórkostlega hluti hvað reynslu varðar. Ég man til dæmis eftir vikunni þegar Alþjóðagjald­ eyrissjóðurinn kom til landsins. Þá var ég með Geir H. Haarde for­ sætisráðherra í beinni útsendingu um kvöldið og í sömu viku var ég með bæði forsetann og utanrík­ isráðherrann í viðtali í beinni út­ sendingu. Áhorf á allt fréttatengt efni var rosalega mikið á þessum tíma og að mörgu leyti var þetta frábær tími. Ég var aðeins tuttugu og níu ára og ég efast um að margir jafnaldrar mínir og kollegar úti í heimi hafi fengið tækifæri til þess að taka viðtöl við helstu valdamenn sinnar þjóðar í beinni útsendingu, kvöld eftir kvöld, með tuttugu pró­ sent þjóðarinnar við skjáinn.“ Stærsta skúbbið Á stuttum tíma hafði Sölvi komið sér upp sterku tengslaneti og sýndu margir ráðamenn honum mikla velvild og hollustu á þessum tíma. Til marks um það nefnir hann dæmi þar sem hann fékk ábendingu frá Björgvini G. Sigurðssyni, þáverandi viðskiptaráðherra, um að tíðinda væri að vænta á þinginu síðar um kvöldið. Ráðlagði ráðherra honum að vera með beina útsendingu inni í fréttatíma um málið. Um stórfrétt var að ræða því síðar um kvöldið voru sett gjaldeyris höft á Ísland. „Ég fattaði það ekki fyrr en nokkru síðar en þetta var líklega stærsta skúbbið á mínum fjölmiðlaferli. Hvergi annars staðar hafði verið sagt frá þessu.“ Sölvi var fullur sjálfstrausts eft­ ir viðburðaríkt og annasamt haust. Hann hafði fengið mikið hrós inn­ anhúss frá yfirmönnum á 365 miðl­ um og honum meira að segja tjáð að hann fengi að velja sér fólk af fréttastofunni til þess að vinna með eftir áramót. Það kom því flatt upp á hann þegar hann var síðan rekinn skömmu fyrir áramót. Viðtalið við Geira Sölvi hefur áður rætt opinskátt um uppsögnina, meðal annars í við­ tali við DV árið 2009. Þar rifjaði blaðamaður upp þegar Sölvi spurði Geir H. Haarde að því í beinni út­ sendingu hvort hann vissi til þess að lífeyrissjóðsmönnum hefði ver­ ið mútað af fjármálafyrirtækjum. Aðspurður hvort hann liti svo á að tengsl hafi verið á milli þessa viðtals og uppsagnarinnar sagðist Sölvi hafa öruggar heimildir fyrir því að eftir þessa umfjöllun hafi verið haft samband inn á æðstu staði á Stöð 2. Þess má geta að Ari Edwald, þáver­ andi forstjóri 365 miðla, var með­ al þeirra sem höfðu töluverð tengsl við lífeyrissjóðina innan fyrirtækis­ ins en hann var eins og margir vita formaður í stjórn Gildis lífeyris­ sjóðs áður en hann tók við starfi forstjóra 365. Við rifjum aftur upp þetta sögulega viðtal við þáverandi forsætisráðherra. „Ég tek það fram að ég er löngu búinn að setja þenn­ an kafla aftur fyrir mig, en þetta var skrítið tímabil. Ég fór gagngert í það eftir að ég var rekinn að sækja mér ákveðnar upplýsingar og ég fékk það strax staðfest að það var hringt í Geir H. Haarde þetta sama kvöld af formanni Félags lífeyrissjóða þar sem hann var spurður hvort hann vissi hvaðan ég hefði þessar upp­ lýsingar og hvaða upplýsingar ég hefði nákvæmlega. Þá átti ég einnig fundi með fyrrverandi stjórnar­ mönnum 365 miðla, þar sem þeir sögðust hafa setið fundi þar sem umræðuefnið var að það þyrfti að losna við mig því ég væri farinn að spyrja spurninga sem ég ætti ekkert að vera að spyrja. En það þarf svo sem ekkert mig sjálfan til að upp­ lýsa þetta og ég vitna bara í við­ tal við Róbert Marshall, þáverandi yfirmann fyrirtækisins á sínum tíma, þar sem hann fór ekki í laun­ kofa með þessa hluti,“ segir Sölvi og á þar við ummæli Róberts í DV árið 2010 þar sem hann segir Ara Edwald hafa farið fram á að Sölvi yrði rekinn eftir að frétt hans um Gumball­kappakstur Jóns Ásgeirs fór í loftið. Róbert sagði afskipti Ara enn fremur ekki hafa verið í anda þess sem hann taldi eðlilegt í sam­ skiptum fréttasviðs og forstjóra á fjölmiðli. Kakósúpa með Davíð „Ég tek það sérstaklega fram að minn brottrekstur er ekki merki­ legri en annarra, en ég get alveg viðurkennt að mér fannst þetta skítleg framkoma og ég átti hana ekki skilda, þó ég segi sjálfur frá,“ segir Sölvi í einlægni. „Ég var ekki rekinn vegna þess að ég var að standa mig illa. Hins vegar var ver­ ið að taka ritstjórnarlega ákvörðun um að gjörbreyta þættinum, hætta með alla þjóðmálaumræðu og fjalla fyrst og fremst um dægurmál. Mér hefur verið sagt að ég hafi ekki þótt passa inn í þannig þátt. Það getur vel verið að það sé eina skýr­ ingin fyrir brottrekstrinum, og ég tek henni með glöðu geði, en hún var aldrei lögð fyrir mig með bein­ um hætti.“ Til marks um stemninguna sem ríkti í samfélaginu mánuðina eftir hrun nefnir Sölvi atburðarás sem átti sér stað stuttu eftir að hann var rekinn. „Ég fékk símtal frá Seðla­ bankanum og ég var beðinn að koma á fund við Davíð Oddsson. Ég hafði reynt að fá hann í viðtal á meðan ég var enn á Stöð 2 án ár­ angurs, en í ljós kom að hann vildi fá að vita hvers vegna ég hefði verið rekinn. Ég sat og borðaði kakósúpu og spjallaði við hann í um einn og hálfan tíma. Þetta var í miðri bús­ áhaldabyltingunni og ástandið í samfélaginu öllu var mjög óraun­ verulegt.“ Var hótað lífláti Sölvi segist alls ekki vera bitur vegna uppsagnarinnar. Þvert á móti líti hann fyrst og fremst á tíma sinn á Stöð 2 með miklu þakklæti. „Það er alltaf erfitt að takast á við uppsögn en í raun og veru var ég búinn að gera allt sem mig langaði til að gera og það var kominn tími á breytingar. Þetta var högg daginn sem þetta gerðist og mér leið mjög „Ég fékk til dæmis símtöl frá mönnum sem sitja inni á Litla-Hrauni þar sem mér var hótað lífláti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.