Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Qupperneq 34
Helgarblað 8.–11. ágúst 201434 Neytendur
Forrit sem passar
upp á prinsippin þín
Segir þér hvort vörukaup þín stangist á við sannfæringu þína
N
ú er komin einföld leið fyrir
neytendur til að standa vörð
um sannfæringu sína og
skoðanir í verslunum með
aðstoð smáforrits
sem segir þér samstundis
hvort tiltekin vara frá til-
teknum framleiðanda
stangist á við prinsippin
þín. Hvort heldur sem
þú kýst að sniðganga
vörur frá fyrirtækjum á
grundvelli umhverfissjónar-
miða, mannréttinda, velferðar
dýra eða annarra ástæðna þá er smá-
forritið Buycott eitthvað sem þú ættir
kannski að kíkja á.
Þúsundir sniðganga Ísrael
Smáforritið, sem er ókeypis, er afar
einfalt í notkun. Notendur skrá sig
inn, velja sér málstað til að styðja og
skanna síðan inn strikamerki vöru
með myndavél símans. Að baki for-
ritinu er stór og mikill gagnagrunn-
ur sem upplýsingarnar eru keyrðar í
gegnum og það rekur eignarhaldið og
sýnir hvort fyrirtækið að baki vörunni
brjóti gegn hugsjónum þínum eða
skoðunum.
Undanfarnar vikur hefur verið
mikið í umræðunni að fjöldi fólks
kjósi að sniðganga vörur frá Ísrael eða
erlendum fyrirtækjum sem starf-
rækt eru í eða styðja og tengj-
ast með einum eða öðrum
hætti landinu. Einn vinsæl-
asti málstaðurinn í Buycott-
forritinu tengist einmitt því
að sniðganga vörur frá Ísrael
en hundruð þúsunda notenda
eru skráð í það verkefni til stuðn-
ings Palestínumönnum. En forritið
hjálpar þér ekki aðeins að sniðganga
vörur frá tilteknum löndum.
Barnaþrælkun og pálmaolía
Ef þú ert á móti erfðabreyttum mat-
vælum þá getur forritið hjálpað þér
að sniðganga vörur sem innihalda
þau. Fleiri dæmi um málstaði og vör-
ur sem forritið hjálpar þér að snið-
ganga eru snyrtivörur sem ýmist inni-
halda skaðleg efni eða eru prófaðar á
dýrum, súkkulaðivörur frá fram-
leiðendum sem tengdir eru
barnaþrælkun, vörur frá fyrir-
tækjum sem ekki styðja aðgerð-
ir gegn kynbundnu launamis-
rétti. Í raun og veru allt milli
himins og jarðar. Annar vin-
sæll málstaður er tengdur
pálmaolíu. Pálmaolía hefur
verið mikið til umræðu
undanfarið en hún leynist
í ótal vörum og er ein vin-
sælasta og ódýrasta jurta-
olían á markaðnum í dag
og mikil eftirspurn eftir
henni. Pálmaolíufram-
leiðsla er hins vegar afar
skaðleg umhverfinu og
er til að mynda stærsta
orsökin eyðingar regnskóga í Indó-
nesíu. Í Danmörku er talið að pálma-
olía fyrirfinnist í þriðju hverri vöru í
matvöruverslunum. Ekki er ósenni-
legt að hlutfallið sé svipað hér á landi.
Veist þú hvaðan varan kemur?
Eins og gefur að skilja þá miðast for-
ritið við erlendar vörur en getur engu
að síður verið öflugt verkfæri fyrir
íslenska neyt-
endur sem vita
oft ekki hvað býr
að baki vörunni
sem þeir kaupa
úti í næstu búð. Þú getur verið
að brjóta gegn prinsippum þínum
daglega en með forritum á borð við
Buycott þá getur þú verið upplýstur
neytandi og lesið þér til um hvað
býr í raun og veru að baki vörunni í
hillunni. Forritið er fáanlegt í bæði
iPhone og Android-síma í App Store
og Google Play. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Einfalt í notkun
Með smáforritinu
Buycott getur þú
með einföldum hætti
skannað inn strika-
merki vöru og komist
að því um leið hvort
framleiðandinn sé þér
að skapi eður ei.
Mynd ÞorMar Vignir
gunnarSSon
Margir
flokkar
Það er úr
ótalmörgum
flokkum
að velja í
forritinu og
hver þeirra
inniheldur
marga málstaði
sem stofnað
hefur verið til af
notendum. Mynd
Buycott.coM
Sekta Nettó
vegna bóka-
tilboðs
Neytendastofa hefur lagt 750.000
króna stjórnvaldssekt á Samkaup
hf. rekstraraðila Nettó vegna til-
boðs á bókum. Fyrir jól kynnti
Nettó ýmsar bækur á tilboðs-
verði. Neytendastofa fór fram á
að fyrirtækið sannaði að bækurn-
ar hefðu verið seldar á því verði
sem auglýst var sem fyrra verð
eins og reglur um útsölur gera
kröfu um. Í úrskurði Neytenda-
stofu segir að þrátt fyrir að versl-
unin hafi borið við mistökum og
villu hafi Nettó ekki getað lagt
fram nein gögn til stuðnings því
að bækurnar hafi verið seldar á
tilgreindu „útsöluverði“ hvorki
fyrir né eftir að mistökin voru
leiðrétt. Eins og DV hefur áður
fjallað um er bannað að bjóða
vörur á lækkuðu verði hafi þær
aldrei verið seldar á tilgreindu
fyrra verði. Útsölu eða tilboðs-
verð, þar sem selt er á lækkuðu
verði, má því aðeins auglýsa eða
tilkynna ef um raunverulega
verðlækkun er að ræða.
Húsbílaleiga
ekki brotleg
Neytendastofa taldi ekki ástæðu
til aðgerða vegna kvörtunar
Isavia ohf. vegna notkunar
Húsbílaleigunnar á heitinu
„Keflavík Airport Car Rental.“
Isavia taldi heitið brjóta gegn
vörumerkjaréttindum sínum
og fela í sér óréttmæta við-
skiptahætti þar sem fyrirtæk-
ið eigi vörumerkin Keflavíkur-
flugvöllur, Keflavík Airport og
Keflavík International Airport.
Töldu forsvars-
menn veru-
lega hættu
á ruglingi
milli fyrir-
tækjanna.
Húsbíla-
leigan hafnaði
því hins vegar að
um brot á lögum væri að ræða
þar sem um almennt heiti væri
að ræða sem fyrst og fremst hafi
skírskotun til svæðisins og hið
samsetta heiti Keflavíkurflug-
völlur sé frekar staðarheiti held-
ur en heiti á einhverri ákveðinni
starfsemi sem Isavia hafi með
höndum. Neytendastofa taldi
að orðasambandið vísaði ekki
sérstaklega til starfsemi fyrir-
tækjanna þar sem annað hefur
með höndum rekstur flugvallar
en hitt bílaleigu. „Orðasam-
bandið veki fremur hugmyndir
um ákveðið svæði, staðsetningu
eða byggingu. Orðasambandið
væri almennt og lýsti ekki
neinni starfsemi sérstaklega.“
segir í tilkynningu Neytenda-
stofu.
Stóreignafólk endurnýjar lúxusbílana
Kaup á dýrustu bílunum taka kipp hjá fólkinu sem hefur efni á þeim
Þ
að sem ég heyri frá um-
boðunum er að þetta eru bíl-
ar á verðbilinu 1,9 og upp
í 4 milljónir sem mest selj-
ast,“ segir Özur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambands-
ins sem greindi frá því á vef sínum
í vikunni að sala á nýjum bílum
hafi aukist um rúmlega þrjátíu pró-
sent fyrstu sex mánuði ársins. 7.100
fólksbílar hafa verið skráðir en bíla-
leigur eiga stóran skerf af þeirri tölu
og hafa keypt rúmlega fjögur þús-
und bíla. Sala til einstaklinga og
fyrir tækja er þó meiri en í fyrra og
hafa um þrjú þúsund bílar verið
seldir til þeirra sem er 15 prósenta
aukning frá fyrra ári. Özur segir sölu
á dýrustu bílunum einnig hafa tek-
ið kipp þar sem stóreignafólk sé nú
loks að endurnýja lúxusbíla sína frá
því 2007.
Salan er mest sem fyrr segir í bíl-
um á verðbilinu 2–4 milljónir en
síðan kemur nokkurt tómarúm í
sölu á bílum á verðbilinu 4–7 millj-
ónir þar til komið er í dýrari bíla og
lúxusbílana. „Þá er ágæt sala í þeim,
svona hlutfallslega. Það hefur ekki
selst neitt af þessum bílum síðan
2007 en núna er ákveðin endur-
nýjun. Þetta er ekki mikill fjöldi en
maður verður samt sem áður var við
þetta því þetta eru dýrir bílar. Þetta
er fólkið sem á peningana, þetta er
ekki fólkið sem er að taka lán. Það
ber öllum saman um það. Þetta fólk
kemur inn, þess vegna með seðla-
búntin, og staðgreiðir,“ segir Özur
í samtali við DV. „Endurnýjunin í
lúxusbílunum hefur ekki verið nein.
Ástæðan er kannski ekki sú að þessi
hópur hafi átt eitthvað erfiðara eða
ekki haft efni á að endurnýja heldur
hefur hann ekki treyst sér til þess út
á almenningsálitið að gera. Það er
ein skýringin, þetta er ekki algilt. En
það er gott að vita til þess að fólk á
ennþá peninga.“ Özur segir stærsta
muninn í sölu dýrustu bílanna nú
samanborið við 2007 vera þann að
nú sé ekki í gangi það „brjálæði“ þar
sem menn voru að kaupa sér nýjan
Porsche eða Range Rover á 100 pró-
sent láni. „Það fólk er komið aftur
niður í verðflokkinn 2–4 milljónir
núna. Fólkið sem er núna að þessu
er fólkið sem raunverulega hefur
efni á þessu.“ n
mikael@dv.is
Staðgreiða með seðlabúntum Þeir
sem kaupa dýrustu bílana núna eru þeir
sem eiga fyrir þeim, staðgreiða þá jafnvel
með seðlabúntum. Nokkur endurnýjun er
að verða í lúxusbílaflota Íslendinga þar sem
Range Rover hefur verið vinsæll valkostur.