Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 40
Helgarblað 8.–11. ágúst 201440 Lífsstíll
Súkku laðimús
Þessi holla og góða súkkulað-
imús er frábær eftirréttur fyrir
þá sem vilja sneiða hjá sykri og
annarri óhollustu en samt gera
vel við sig á góðum degi.
Innihald
n 2 stórar lárperur
n ½ bolli ósætt kakóduft
n 6 msk. hunang
n ¼ bolli undanrenna
n 1 tsk. vanilludropar
n 1 tsk. instant-kaffi eða
espresso-kaffiduft
Til skrauts Ristaðar kókosflögur,
Appelsínubörkur, Sjávarsalt.
Aðferð Setjið allt hráefnið í mat-
vinnsluvél og vinnið þar til blandan
verður kekkjalaus. Setjið plastfilmu
yfir skálina og kælið blönduna í
ísskáp í a.m.k. 30 mínútur. Hún má
þó vel standa yfir nótt. Setjið í fjórar
skálar eða falleg glös og skreytið
með kókosflögum, appelsínuberki
og sjávarsalti. Berið fram kalt.
„Eins og að ganga
inn í bíómynd“
n Hefur búið á Íslandi í 50 ár n Lærði eldamennsku af móður sinni
É
g er enn í fullu fjöri og hef
alveg ofboðslega gaman
af vinnunni minni,“ segir
smurbrauðsjómfrúin Mar-
entza Poulsen í samtali við
DV. Marentza hefur rekið hinn sí-
vinsæla veitingastað Café Flóru í
Laugardal í ein 17 ár og er ekkert að
hætta. Hún flutti til Íslands frá Fær-
eyjum þegar hún var 14 ára og segir
talsverðan mun á íslenskri og fær-
eyskri matargerð.
Fólk leitar í sumarið
Marentza segir sumarið hafa geng-
ið vel á Café Flóru, þrátt fyrir slæmt
veður.
„Það er nokkuð ljóst að Café
Flóra er búin að festa sig í sessi hjá
landsmönnum og mér sýnist að
fólk leiti þangað sem sumarið er.
Þó að það sé rigning og leiðindi úti
þá er alltaf hlýtt og notalegt í garð-
skálanum. Það er líka yndislegt að
rölta í gegnum garðinn í alls konar
veðri því ilmurinn og blómadýrðin
er jafnvel meiri þegar rignir.“
Í gegnum tíðina hefur Café Flóra
eingöngu verið opið á sumrin en í
ár verður breyting þar á. Gestum
mun nefnilega gefast kostur á að
njóta haustuppskeru úr Grasa-
garðinum í september og október.
„Mig langar til að fólk njóti
haustsins í garðinum sem og upp-
skerunnar okkar. Við ræktum mest
allt grænmetið sem við notum
sjálf og heilmikið af uppskerunni
tengist haustinu, svo sem kartöflur
og rauðrófur, þannig að við ætlum
að njóta þess að útbúa mat úr því,“
segir Marentza.
Lærði af móður sinni
„Það kom aldrei neitt annað til
greina en að fara þessa leið,“ segir
Marentza, en hún hefur alla tíð
starfað við eitthvað sem tengist mat
og matargerð.
„Ég hef alltaf haft gaman af
matar gerð því ég er alin upp við
þetta. Mamma mín hafði mikið dá-
læti á matargerð og var mjög snið-
ug í henni. Ég ólst upp í pínulitlu
þorpi í Færeyjum og þegar til dæm-
is var brúðkaup í bænum þá var
bara opið hús. Það var ekkert boðið
til veislu heldur kom allur bærinn
í veisluna og rúmlega það. Þetta
voru kannski 200 til 300 manns og
mamma mín stjórnaði oft þessum
veislum. Við systkinin höfum öll
erft áhugann frá henni og höfum
öll gaman af því að elda mat.“
Ætluðu að vera í ár
Marentza er fædd og uppalin í
bænum Skopun á Sandey í Fær-
eyjum. Fjórtán ára flutti hún ásamt
fjölskyldu sinni til Íslands og hefur
því búið hér í ein 50 ár.
„Fimmtíu ár hljóma svo mikið
en mér finnst ég ekki vera svona
gömul,“ segir Marentza og hlær.
„Mamma mín hafði verið á Ís-
landi sem ung stelpa, hún var „au
pair“ fyrir norðan, og hana dreymdi
alltaf um að koma aftur til Íslands.
Svo var það þannig að pabbi minn
var sjómaður, eins og flest all-
ir Færeyingar á þessum tíma, og
þeir sóttu mikið sjóinn til Íslands
og Grænlands. Á þessum tíma
voru bræður mínir, sem voru 14
og 16 ára, farnir að fara á sjó með
pabba en það var yfirleitt þannig
að menn voru í burtu í sex til níu
mánuði í einu. Mömmu fannst dá-
lítið mikið að svona ungir strákar
væru að heiman í svona langan
tíma í senn og hana langaði að hlúa
að þeim svo mamma og pabbi tóku
ákvörðun um að koma til Íslands og
vera hér í eitt ár. En við fórum aldrei
aftur til baka og okkur hefur alltaf
liðið alveg ofboðslega vel á Íslandi.“
Eins og að ganga inn í bíómynd
En hvernig var fyrir Færeying að
flytja til Íslands?
„Mér fannst það erfitt fyrstu
árin. Ég talaði auðvitað enga ís-
lensku en það sem hjálpaði mér var
að ég talaði ekki ensku, ég talaði
bara dönsku. Íslendingar töluðu
nefnilega enga dönsku, heldur að-
allega bara ensku,“ segir Marentza
og útskýrir að íslenska og færeyska
séu alls ekki eins lík tungumál og
margir Íslendingar haldi.
„Skrifuð færeyska er ótrúlega lík
íslenskunni, en í töluðu máli er hún
það ekki því framburðurinn er allt
annar og margir héldu reyndar að
við værum Þjóðverjar.“
Marentza segir íslenskt þjóðfé-
lag einnig afar ólíkt því sem hún var
vön í föðurlandinu.
„Mér fannst eins og ég væri
að ganga inn í bíómynd. Mér
fannst þetta einhvern veginn svo
ónorrænt. Allir voru svo rosalega
fínir og stífir og það var svo fínt
inni í öllum húsunum; það var allt
teppalagt, stundum meira að segja
inni á klósettunum, og allir horfðu
á Kanasjónvarp. Mér fannst þetta
svolítið amerískt.“
Ólík matarmenning
En hvað með matarmenninguna?
„Matargerðin er ekkert rosalega
ólík en Færeyingar eiga náttúrlega
sínar hefðir,“ segir Marentza.
„Í Færeyjum hefur til dæmis
ekki verið borðaður mikill reyktur
eða súrsaður matur eins og á Ís-
landi, heldur hafa Færeyingar að-
allega þurrkað og saltað mat. Þar
var mjög mikið um að kjöt, hvalkjöt
og fiskur væri þurrkað og saltað og
enn þann dag í dag færðu svona
mat þegar þú kemur til Færeyja.
Svo er brauðmenning einnig mjög
sterk í Færeyjum og þar hefur ein
máltíð dagsins alla tíð verið brauð
og álegg. Þegar við komum til Ís-
lands fyrst þá var mjög algengt að
hér væri eldað tvisvar á dag, en í
Færeyjum var eldaður hádegis-
matur en undantekningarlaust var
brauðmeti með áleggi á kvöldin.“ n
Vikulegt
fiskát gott
fyrir heilann
Fiskát er allra meina bót og hef-
ur einstaklega góð áhrif á heil-
ann. Það er gömul saga og ný,
en hefur nú fengist staðfest enn
einu sinni af vísindamönnum
við University of Pittsburgh. Ný
rannsókn á þeirra vegum leiðir
í ljós að það að borða bakaðan
eða steiktan fisk einu sinni í viku
er gott fyrir heilann, óháð því
hversu mikið magn af omega-3
fitusýrum er í fisknum. Ýtir þetta
enn fremur undir vísbendingar
þess efnis að lífsstíll skipti mikl-
um sköpum þegar kemur að
heilsu fólks á efri árum en talið er
að fiskát geti til að mynda dregið
úr líkum á elliglöpum og öðrum
heilatengdum meinum.
Vaknaðu
við kaffiilm
Margir geta ekki byrjað daginn
án þess að fá sér kaffibolla en
hafa ekki alltaf tíma til að hella
sér upp á bolla áður en lagt er af
stað til vinnu eða skóla. Breski
vöruhönnuðurinn Joshua Renouf
hefur nú fundið fullkomna lausn
á þessu vandamáli því brátt kem-
ur á markað vekjaraklukka sem
jafnframt hellir upp á kaffi. Varan
ber heitið The Barisieur og virkar
þannig að notendur setja vatn og
malað kaffi í vélina áður en lagst
er til svefns á kvöldin. Vekjara-
klukkan er svo tímastillt þannig
að þegar notendum hentar byrjar
vélin að hella upp á kaffi en með
þessu móti geta kaffiunnendur
ekki aðeins sparað sér tímann
sem fer í að útbúa kaffið heldur
einnig vaknað við hinn ljúfa ilm af
nýlöguðu kaffi. Varan er ekki enn
komin á markað en hægt er að
skrá sig á sérstakan pöntunarlista
á vefsíðu Renouf. Endanlegt verð
hefur heldur ekki verið ákveðið en
klukkan mun kosta á bilinu 30 og
50 þúsund íslenskar krónur.
Ræktar sjálf í garðinum
„Mig langar til að fólk njóti
haustsins í garðinum sem og
uppskerunnar okkar,“ segir
Marentza sem ætlar að hafa
opið á Café Flóru í haust.
Mynd ÞoRMAR VIgnIR gunnARsson
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
„Allir voru svo rosa-
lega fínir og stífir
og það var svo fínt inni í
öllum húsunum.