Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Qupperneq 42
Helgarblað 8.–11. ágúst 201442 Sport
Þéttvaxnir
fótboltamenn
n Fótbolti ekki bara fyrir þá sem eru grannir n Flinkir og feitir knattspyrnumenn
Sterkasti fót-
boltamaðurinn
Englendingurinn Adebayo Akinfenwa er
32 ára hefur leikið með mörgum neðri
deildar liðum á Englandi á ferlinum og
verið mikill markahrókur. Hann leikur nú
með AFC Wimbledon. Hann vakti mikla
athygli í sumar þegar lið hans keppti við
Chelsea í æfingarleik, en Akinfenwa þótti
standa sig vel í leiknum. Varnarmenn
stórliðs Chelsea þreyttust gífurlega
í glímunni við Akinfenwa. Hann er
gríðarlega sterkur og getur tekið 180 kíló
í bekkpressu.
H
inn dæmigerði fótbolta
maður er grannur og lima
langur og í meðalhæð. En
margir af þeim allra bestu í
boltanum eru lágvaxnir og
snarir, eins og til dæmis argentínski
snillingurinn Lionel Messi, sem
nær ótrúlegu jafnvægi á vellinum.
Mjög hávaxnir eða stórir menn eru
sjaldgæfari í fótboltanum en þekkj
ast þó því stundum er gott að geta
notið hæðar og beitt miklum kröft
um. Þéttvaxnir menn, háir sem
lágir, hafa líka slegið í gegn. Brasil
íumaðurinn Ronaldo var í þyngri
kantinum og var einn allra besti fót
boltamaður sögunnar. Fótbolti er
litrík íþrótt og sem betur fer eru til
leikmenn í öllum stærðum og gerð
um eins og í lífinu sjálfu. Kynnumst
nokkrum þéttum mönnum í bolt
anum. n
Helgi Hrafn Guðmundsson
helgihrafn@dv.is
Neyddist til að
spila þungur
Hinn velski Neville Southall
er fæddur 1958 og var
einn besti markvörður
sinnar kynslóðar. Hann
lék lengst með Everton
og vann þar marga
glæsta sigra á níunda
áratugnum. Undir lok
ferilsins bætti hann sífellt á
sig fleiri kílóum en stóð sig samt vel. Árið
2000 starfaði hann sem þjálfari hjá Brad-
ford City sem þá var í úrvalsdeild. Þegar allir
þrír markverðir liðsins meiddust neyddist
Neville Southall til að fara í markið, 41 árs
að aldri, og varð því einn elsti leikmaður
úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Bumba
Southall vakti mikla athygli í fjölmiðlum.
„Hver át allar
bökurnar?“
Framherjinn Micky Quinn lék á níunda
og tíunda áratugnum með liðum á borð
við Portsmouth og Newcastle og var
mikill markahrókur. Quinn var upp-
nefndur „Sumo“ því hann þótti heldur
þéttvaxinn miðað við
ótrúlega snerpu.
Af þessum sökum
sungu áhorfendur
oft sönginn „Who
Ate All the Pies?“
eða „Hver át allar
bökurnar?“ þegar
Quinn spilaði. Hann not-
aði það síðar sem titil á ævisögu sinni.
Gráhærður með
bumbu
Steve McNulty er miðvörður hjá enska liðinu
Luton Town. Hann lék frábærlega á síðasta
tímabili og er elskaður af stuðningsmönnum
og var valinn maður ársins hjá félaginu.
Luton Town komst upp úr Conference-
deildinni og leikur í League Two í vetur, sem
er enska fjórða deildin. McNulty er ekki
eintómur kraftakarl, þrátt fyrir að vera stór
á alla kanta. Hann er mjög flinkur tæknilega
og myndband sem sýnir hann í eldlínunni er
vinsælt á YouTube. Við fyrstu sýn er engu
líkara en að einhver breskur karl hafi kíkt á
völlinn beint af pöbbinum, því McNulty er
gráhærður og með væna bumbu. En allir
heillast af honum þegar hann byrjar að
spila.
„Litli feiti
karlinn“
Ungverski snillingurinn Ferenc Puskas
(1927–2006) var einn allra besti fót-
boltamaður sögunnar. Hann skoraði 84
mörk í 85 landsleikjum fyrir Ungverja-
land, og nánast mark í leik á árum sínum
hjá Real Madrid. Hann var lítill, frekar
þybbinn og aldrei sérstaklega frár á
fæti. En í staðinn var hann frábærlega
skotfastur og klókur fyrir framan
markið. Hann var langbestur á sinni
tíð. Englendingar léku gegn Ungverjum
árið 1953 og fyrir leikinn spurði einn
Englendingurinn: „Hver er þessi litli, feiti
karl?“ Ungverjaland vann 6–3.
150 kílóa mark-
vörður
William „Fatty“ Foulke (1874–1916) var
atvinnumaður í bæði fótbolta og krikket um
aldamótin 1900. Hann var 193 sentimetrar á
hæð og um 150 kíló undir lok ferilsins.
Foulke var einn besti markvörður Englands
á sínum tíma, spilaði með Sheffield United,
og lék einn landsleik. Chelsea keypti hann
árið 1898 og gerði hann að fyrirliða. Foulke
var einstaklega skapstór og gekk
einfaldlega af velli ef honum fannst
varnarmennirnir spila illa. Stundum fóru
framherjar mótherjanna í taugarnar á
Foulke og hann átti þá til að fleygja þeim í
markið eins og bolta. Söngurinn „Who Ate
All the Pies?“ var upphaflega saminn um
Foulke.
Blóðtaka fyrir landsliðið
Jón Arnór verður ekki með í undankeppni Evrópumótsins
J
ón Arnór Stefánsson sem hefur
um skeið verið besti leikmað
ur landsliðsins í körfubolta
verður ekki með í undankeppni
Evrópumótsins 2015 sem hefst
nú á sunnudag. Samkvæmt frétt
Körfuknattleikssambands Íslands
var ákvörðun um þetta tekin í sam
ráði við þjálfara liðsins sem og stjórn
KKÍ. Ástæðan er sögð vera sú að Jón
Arnór er samningslaus og þar af leið
andi ótryggður. Það gerir það verkum
að um er að ræða of mikla áhættu fyr
ir Jón Arnór til að hann taki þátt.
Hann hefur spilað hjá spænska
úrvalsdeildarliðinu CAI Zaragoza
síðastliðin fjögur ár en samningur
hans hjá liðinu rann út eftir afstaðið
tímabil. Jón Arnór glímdi við meiðsli
á síðasta tímabili og er samningslaus.
Mikil missir verður að Jóni Arnóri
á vellinum en hann er fremsti körfu
boltamaður þjóðarinnar um þessar
mundir en til marks um það má
nefna að hann var bæði stigahæstur
sem og stoðsendingahæstur íslenska
liðsins í undankeppninni árið 2012.
Hann hefur leikið um árabil í Evrópu
og hampaði FIBA Evrópubikarnum
með liði Dynamo Sankti Pétursborg
árið 2005.
Fyrsti leikur landsliðsins nú á
sunnudag verður gegn Bretum í
Laugardalshöllinni. Má telja líklegt
að það verði mikil barátta fyrir ís
lenska liðið að standast Bretum
snúning. Ísland er í þriggja liða riðli
og mætir Bosníu á útivelli 17. ágúst
næstkomandi. Ísland þarf að vinna
tvo leiki af fjórum til að geta átt von
á að komast á stórmót í fyrsta skipti í
sögu liðsins. n hjalmar@dv.is
Úr leik Jón er besti leikmaður íslenska landliðsins og
verður mikill missir að honum í liðinu. Hann sá sér ekki
kleift að taka þátt vegna tryggingamála.
Stjörnumenn áfram
Fræklegt jafntefli í Póllandi og sæti í umspili tryggt
Lið Stjörnunnar í Garðabæ er komið áfram í umspil um sæti í
Evrópudeildinni eftir mögnuð úrslit í síðari leik liðsins við ógnar
sterkt lið Lech Poznan í Póllandi á fimmtudag. Stjarnan, sem
vann fyrri leikinn 1–0 á heimavelli, náði markalausu jafntefli í erf
iðum leik. Pólverjar sóttu án afláts í leiknum en sköpuðu sér ekki
mörg opin færi. Þeir áttu alls 17 marktilraunir á móti 5 Stjörnu
manna, sem fengu besta færið í leiknum. Þá brást Heiðari Ægis
syni bogalistin. Stjörnumenn eru komnir í fjórðu umferð, á sínu
fyrsta ári í Evrópukeppni. Það er magnaður árangur.