Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Page 44
Helgarblað 8.–11. ágúst 201444 Menning
G
rétar Mar Sigurðs
son – Mar – hyggst í
byrjun næsta árs ferð
ast frá Spáni til Ind
lands. Það væri ekki í
frásögur færandi nema fyrir þær
sakir að hann ætlar að fara á
puttanum, gista á ókunnugum
sófum á leiðinni og borða ávexti
og grænmeti úr ruslatunnum.
Á Indlandi ætlar hann að reyna
að finna náttúrulegar leiðir til
að komast á annað vitundar
stig. Reynslunni vill hann síðan
miðla í gegnum list sína.
Mar er fjöllistamaður sem
reynir að tjá sig á sem flesta
mögulega vegu. Hann sendi ný
verið frá sér myndband, sem
hann leikstýrði sjálfur, við lag
sitt Twisted Figures. Lagið er af
stuttskífu Mars, Mellows, sem
kom út í maí og hefur fengið
góðar viðtökur. „Ég er búinn að
reyna að koma list minni á fram
færi í gegnum alla miðla. Þegar
ég fæ hugmynd reyni ég að velja
þann miðil sem mér finnst
geta varpað skærustu ljósi
á hana. Að sama skapi er
þetta besta leiðin til að ná
til sem flestra,“ segir Mar
en í list sinni andæfir hann
neyslusamfélagi nútímans
og tilhneigingu þess til að
steypa fólk í sama mót. „Í
einstefnusamfélagi nútím
ans, þar sem flest skila
boð og upplýsingar sem
við fáum eru mörg en svip
uð, er mótvægi mikil vægt.
Allar auglýsingar spila til
dæmis inn á hvöt okkar
til að fullnægja einhverj
um grunnþörfum, og nota
hana til að selja okkur
óþarfa; þær eru í raun
klám.“
Náttúruleg hugvíkkun
Mar sækir innblástur víða,
einkum inn á við. Áður
notaði hann ofskynjunar
lyf til að styrkja eigin andagift
en hann segir eftirköst slíkrar
neyslu næstum því jafn slæm
og víman er góð. „Þetta er svo
lítið eins og himnaríki og helvíti.
Það er rosalega mikil fegurð í
því að komast á eitthvert ann
að vitundarstig. Þegar maður til
dæmis tekur inn efni og kemst
á einhvern stað þar sem tilfinn
ingar eru sterkari og fallegri. En
svo þarf maður að gjalda fyrir
það þegar víman dvínar.“
Það var helvítið sem fékk Mar
til leita náttúrulegri leiða að
æðri svæðum heilans, himna
ríki. „Mér fannst á tímabili, áður
en ég byrjaði að hugleiða, hug
breytandi efni eina vitið. Eini
tilgangurinn. Mér finnst hugar
ástandið ennþá mjög spennandi
en maður greiðir alltaf gjald fyrir
þessa upplifun. Vegna þessa fór
ég að stúdera hvaða leiðir væru
til að gera þetta algerlega nátt
úrulega; komast í hugbreytandi
ástand án hugbreytandi efna.
Þannig kviknaði áhugi minn á
hugleiðslu og jóga.“
Mekka
Þar eð Indland er af mörg
um talið Mekka hugleiðslu og
annarrar andlegrar iðkunar
Listamenn
ræða saman
Í dag, föstudaginn 8. ágúst, klukk
an 17.00 fer fram Listamanna
spjall í Skaftfelli á Seyðisfirði. Þar
munu gestalistamenn Skaftfells
sem eru nýkomnir til Seyðisfjarðar
halda stuttlega kynningu á vinnu
aðferðum sínum og fjalla um
nokkur verk. Listamennirnir eru
Daníel Björnsson, Maria Glyka og
Vassilis Vlastaras. Listamenn geta
sótt um í Gestalistastofu Skaft
fells til 1. september en á hverju
ári dvelur fjöldi erlendra og inn
lendra listamanna á Seyðisfirði og
vinnur að verkum sínum.
Hughrif tónanna
Föstudaginn 8. ágúst munu
flautuleikarinn María Ösp Ómars
dóttir og píanóleikarinn Sólborg
Valdimarsdóttir halda tónleikana
Hughrif tónanna í Salnum í Kópa
vogi. Tónleikarnir eru á vegum
Kammer tónlistarhátíðar sem nú
er haldin í sjötta sinn en hátíðin
er hliðarhátíð Tónlistarhátíðar
unga fólksins. Verkin á tónleikun
um eru mjög ólík en eiga það þó
sameiginlegt að vera samin eft
ir árið 1950. Verkin eru eftir Finn
Karlsson, Báru Gísladóttur, Þorkel
Sigurbjörnsson, Þóru Marteins
dóttur, O. Messian, A. Piazzolla og
Arvo Pärt, en verkin eftir Báru og
Finn voru samin sérstaklega fyrir
þessa tónleika. Tónleikarnir hefj
ast klukkan 20.00.
Handverks-
hátíðin sett
Handverkshátíðin í Hrafnagili
í Eyjafirði var sett í vikunni í 22.
sinn. Það var Kristján Þór Júlíus
son heilbrigðisráðherra sem setti
hátíðina en þar er að finna fjöl
breytt handverk, þjóðlegan mat
og íslensk húsdýr svo eitthvað sé
nefnt. Í fyrsta sinn er boðið upp á
handverksmarkað sem fram fer
á föstudag og sunnudag. Upp
skeruhátíðin hefst klukkan 19.30
á laugardaginn og er hún öllum
opin. Séra Hildur Eir Bolladóttir er
veislustjóri og meðal þeirra sem
fram koma eru Álftagerðisbræður,
Pálmi Gunnarsson ásamt hljóm
sveit og prestatríó skipað séra
Hildi Eiri, séra Oddi Bjarna og séra
Hannesi Blandon. Hátíðin fékk
að gjöf 1,5 metra háa gestabók
klædda laxaroði og verður hún
staðsett í hjarta sýningarinnar. Eru
gestir hvattir til að rita nafn sitt.
Augnablik sem ekki gleymast
Óskar Páll Elfarsson opnar sína fyrstu sýningu
Þ
að eru komin 10 ár síðan
ég byrjaði að dunda í ljós
myndun og það hefur lengi
verið draumur að halda veg
lega sýningu,“ segir ljósmyndar
inn Óskar Páll Elfarsson sem opn
ar sína fyrstu ljósmyndasýningu í
Perlunni þann 9. ágúst næstkom
andi. Sýningin ber heitið Augna
blik – sem ekki gleymast og þar
birtir hann myndir úr heimsreisu
sem hann fór í árið 2012 með unn
ustu sinni Hrund Þórsdóttur, frétta
manni á Stöð 2. Á ferðalagi sínu
heimsóttu þau sextán lönd í fimm
heimsálfum og lentu í ýmsum æv
intýrum sem Óskar fangaði á filmu.
Draumur Óskars er nú að verða að
veruleika, en eftir heimsreisuna
fannst honum hann loksins vera
kominn með efnivið í einkasýningu.
„Þetta eru myndir sem virka saman
og segja sterka sögu. Þær segja
vissan sannleika sem mig langaði
að miðla áfram. Við vorum víða í
aðstæðum sem fengu mann til að
opna augun og horfa aðeins öðru
vísi á lífið,“ segir Óskar um mynd
irnar sem hann tók í heimsreis
unni. Sama dag og sýningin verður
opnuð munu stuttar sögur, sem til
heyra hverri mynd á sýningunni,
birtast á vefsíðunni moment.is/
syning. Þar verður einnig hægt
að skoða allar myndirnar á sýn
ingunni sem og töluvert fleiri ljós
myndir úr heimsreisunni sem ekki
komust fyrir þar. Óskar Páll hef
ur starfað lengi við ljósmyndun og
myndvinnslu fyrir mörg af stærstu
tímaritum landsins og hlotið ýms
ar viðurkenningar fyrir störf sín.
Hann átti til dæmis Fréttaljósmynd
ársins árið 2011 á vegum Canon og
Nýherja og Tímaritamynd ársins á
sýningu Blaðaljósmyndarafélags
Íslands árið 2010. Sýningin verður
formlega opnuð næsta laugardag
klukkan 16.00 og boðið verður upp
á léttar veitingar. n
solrun@dv.is
Óskar mundar vélina
Myndirnar á sýningunni
eru allar úr heimsreisu sem
Óskar fór í árið 2012.
Yfir hálfan hnöttinn til himnaríkis
n Fjöllistamaðurinn Mar fer á puttanum til Indlands n Nýtt tónlistarmyndband n Ferðast á puttanum og leitar að mat í ruslatunnum
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
Chakras Myndverk frá einkasýningunni
Upplifun sem haldin var á Hótel Kaffistofu í
desember 2013.
Heilög þrenning: Lausn, þula, sjálfsmynd.
Tóm Hljóðskúlptúr frá samsýningunni Veldi sem haldin
var í Skaftfelli á Seyðisfirði 1. mars til 2. júní 2014.