Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 45
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Menning 45 „Þetta hefur verið frábært ferðalag“ n Dans Brynju Péturs fagnar tvöföldu afmæli á Ingólfstorgi um næstu helgi n Street dans á uppleið á Íslandi S treet dans var ekki til á Ís- landi fyrir tíu árum. Nú eru iðkaðir sjö street dansstílar á Íslandi og þessi menn- ingarkimi er orðinn að veruleika,“ segir Brynja Péturs danskennari en hún fagnar tíu ára starfsafmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð á Ing- ólfstorgi laugardaginn 16. ágúst milli klukkan 14 og 17. En það er tvöföld ástæða til þess að fagna því street danseinvígið, sem haldið var í fyrsta sinn árið 2012, er nú orðið að árlegri keppni og þeirri einu sinnar tegundar hér á landi. Næsta einvígi verður haldið í október næstkomandi. „Þetta hef- ur verið frábært ferðalag og það er blessun að fá að vinna við það sem ég elska. Það besta við þetta er að sjá dansarana okkar vaxa og öðl- ast góða sjálfsmynd,“ segir Brynja og tekur fram að unga kynslóðin sé þegar farin að segja til sín. Brynjar Dagur sem vann Ísland got talent- keppnina í vetur hafi til að mynda opnað nýjar dyr á Íslandi og kynnt alþjóð fyrir popping-stílnum svo- kallaða. „Mér þykir vænst um að hafa allt þetta frábæra fólk í kringum mig. Við erum ein stór fjölskylda og stöndum þétt saman. Það er magn- að að sjá samfélagið okkar stækka en það er eitthvað sem var alltaf bara fjarlægur draumur í mínum huga. Nú má finna marga hæfileik- aríka dansara hér á landi sem eru jafnvígir í fjölbreyttum dansstílum. Stærsta gjöfin sem ég hef fengið er hins vegar að sjá ástríðuna fyr- ir dansinum endurspeglast í yngri kynslóðunum,“ segir Brynja í sam- tali við DV. Um framhaldið hefur hún aðeins eitt að segja: „Við erum rétt að byrja.“ n aslaug@dv.is Afmælishátíð Street dans er tiltölulega nýr á íslandi. Yfir hálfan hnöttinn til himnaríkis n Fjöllistamaðurinn Mar fer á puttanum til Indlands n Nýtt tónlistarmyndband n Ferðast á puttanum og leitar að mat í ruslatunnum ákvað Mar að fara þangað, list sinni og lífi til framdráttar. Hann leggur af stað í byrjun næsta árs frá Cuenca á Spáni og fer alla leið til borgarinnar Tamil Nadu, sem staðsett er syðst á Indlandi. „Flugmiði til Indlands kostar um það bil hundrað þúsund krónur. Mér fannst þeirri fjárhæð bet- ur varið í að ferðast landleiðina,“ segir Mar sem ætlar hugsanlega að fara Norður-Afríku leiðina. Frá Spáni Til Marokkó og þaðan til Alsír, Túnis, Líbíu og í gegnum Egyptaland til Asíu: Frá Ísrael til Palestínu, Jórdaníu, Íraks, Írans, Afganistan og – loks – yfir allt Indland til Tamil Nadu. „Það var alltaf pælingin að fara þessa leið. Meðal annars til þess að losa mig við eigin fordóma um það hvernig hlutirnir eru í heimin- um. En ég veit ekki alveg hvernig það verður, fólki í kringum mig líst ekkert alltof vel á þessa leið.“ Ruslar Sama hvaða leið verður fyrir valinu ætlar Mar að eyða eins litlu fé og mögulegt er og ferðast á puttanum, enda ekkert sér- staklega loðinn um lófana. „Ég ætla að vera duglegur að safna. Kannski nær maður að fara út með um 200 þúsund krónur. Ég er grænmetisæta og þarf ekkert rosalega mikinn mat. Ég ætla að reyna að „dumpster dive-a“, eða rusla eins og það heitir á íslensku svo getur maður eld- að fyrir fólk gegn því að fá að gista á sófanum og hugsanlega fá smá mat,“ segir Mar bjartsýnn en hann starfaði sem kokkur á Grænum kosti áður en sá staður fór á hausinn. Auk þess að vera grænmetisæta sneiðir hann hjá glúteni og sætuefnum. Megin- uppistaðan í mataræði hans á leiðinni verður grænmeti og ávextir, hugsanlega úr ruslaföt- um sem áður greinir. „Það er ör- ugglega lærdómsríkari reynsla að gera þetta svona.“ Mar er ekki búinn að ákveða hversu lengi hann verður á Ind- landi en vonar að þar nái hann að þróast sem listamaður. „Ind- land er svo fáránlega stórt. Mað- ur getur verið þar í mörg ár án þess að láta sér leiðast.“ n „Það er rosalega mikil fegurð í því að komast á eitthvert annað vitundarstig M y n D Þ o R M A R V Ig n IR g u n n A R SS o n Fjöllistamaður Mar er nýbúinn að senda frá sér myndband við lagið Twisted Figures. Í byrjun næsta árs leggur hann land undir fót í leit að innblæstri. MynD ÞoRMAR VIgnIR gunnARS Son
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.