Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 8.–11. ágúst 201446 Menning
Úr vegabréfi Sigmundar Ernis
Ljósið sem
Legson kveikti
Uppi á hásléttunni, suður af gömlu
höfuðborginni Zomba, strýkur
Legson litli kviðinn eftir að hafa
fengið svolítið að éta af nsima,
bragðdaufa kornmatnum sem er
eiginlega það eina sem eftir er af
mat í leirkofa fjölskyldunnar. Vana
lega hafa akrarnir í grennd við kot
in skilað þokkalegri uppskeru, en
nú ber nýrra við eftir langvarandi
þurrkatíð með tilheyrandi bolloki
og búksorgum; hefðbundnar mál
tíðir, sem í fyrstu voru skornar nið
ur í tvær á dag, eru núna orðn
ar að einni – og það sem verra er;
allt útlit er fyrir að þessi þyrrking
ur að morgni nýrrar aldar eigi eftir
að plaga fólkið í Malawi um langa
hríð.
Legson litli hefur lítið við að
vera; skólahaldi hefur verið af
lýst um skeið af því krakkarnir úr
sveitunum í kring hafa ekki leng
ur kraft til að ganga drjúgan spöl
til mennta í syðsta hverfi Zomba.
Það finnast Legson vera afleit býtti,
því þótt svengdin hrelli auðvitað
ræmulegan skrokkinn veit hann
sem er að ekkert nærir hugann
betur en lestur góðra bóka; þær
opna krökkum ekki aðeins leið
inn í undurfurður ævintýranna,
heldur og hafa þær svör við öllu.
Og einn daginn getur Legson ekki
beðið lengur eftir næstu bók; hann
kóklast kunna leið eftir móstu
gráum malarstígnum og unir sér
ekki hvíldar fyrr en komið er á
bókasafnið í hverfinu sem eitthvert
fólk ofan úr Evrópu hafði eitt sinn
fært í plássið. Þrjár bækur tekur
hann með sér í þetta sinn; söguna
um Robinson Krúsó, fræðslubók
um tunglið og aðra til um galdra
rafmagnsins, allt saman þýtt á
tungu hans, chewa. Og næstu daga
er bókvitið að mestu í askana látið,
annað er vart að hafa.
Með fullri virðingu fyrir tungl
inu og Krúsó, finnst þessum vísa
dreng, sem varla sleppir tekt í aldri,
mest til koma að kynnast kúnst
ugu rafmagninu – og svo heillaður
verður hann af þessu galna fyrir
brigði sem allt í senn getur skapað
afl og yl og ljós og líf, að hann ein
setur sér að bera birtu inn undir
stráþakið á litla myrka leirkofa fjöl
skyldunnar. Næstu vikurnar verður
hann sér úti um aflóga hreyfil úr
bílflaki úti á haugum og enn frekar
hýrnar yfir þeim stutta þegar hann
finnur lítinn dínamó úr þeirri og
sömu sópdyngju. Mestur tíminn
fer þó í að útbúa sjálfan ljósgjaf
ann; það eru nefnilega engin efni á
peru í allri sveitinni og því hleypur
heldur betur á snærið þegar gutt
inn snuðrar uppi drjúgan eirþráð
á einum bænum í þurrkasamri
sveitinni.
Þessi þrjóskufulla árátta unga
piltsins spyrst að lokum út – og
öðru hverju eiga sveitungar hans
það til að bregða einu auganu á
þessar kostulegu tilfæringar, fullir
samúðar á svip. En sá svipur á eftir
að breytast þegar þær fréttir heyr
ast að dag einn í sveitinni sunnan
Zomba ætli Legson litli að kveikja
ljósið. Og það má heyra undrun
aröldu ríða yfir hlaðvarpann þegar
forvitið fólkið mænir á Legson
magna rafið eftir þræðinum og
þaðan inn í hús – og kofann ljóma
um stund á eftir.
Og enn ljómar Legson; orðinn
fullvaxta maður, búinn með verk
fræði í boði háskóla í vestri eftir
að sagan fór um sinu. Og sinn
ir núna rannsóknum og kennslu
af meðfæddri fasthygli og glúrni.
Og æ síðan, þegar búimenn ber að
í sunnanverðri Malawi, er sagan
sögð af Legson, jafn sterk og hún er
mikilvæg og merk.
Betri en fyrri myndin
H
ow to Train Your Dragon 2
eða Að temja drekann sinn 2
er sennilega með betri ef ekki
besta framhaldsteiknimynd
sem ég hef séð. Það er vandasamt
verk að gera framhaldið betra en upp
hafið en það tekst DreamWorks að
þessu sinni.
Myndin fjallar líkt og sú fyrri um
víkingana á Birkey (e. Berk). Nú eru
fimm ár liðin frá því að Hiksti (e.
Hiccup) og vinir hans hættu að berj
ast gegn drekunum og fóru þess í stað
að lifa með þeim í sátt og samlyndi.
Hiksti og drekinn Tannlaus (e. Tooth
less) sem er sá eini sinnar tegundar
hafa lítinn áhuga á að dvelja í þorpinu
og sinna skyldum sínum þar. Í staðinn
þróa þeir samvinnu sína í háloftunum
og kanna nýjar lendur. Í einum leið
angra sinna hitta þeir fyrir drekaveiði
menn og komast að því að skelfilegur
óvinur dvelur skammt undan. Sá heit
ir Draco og safnar hann drekum til að
berja þá til hlýðni og nota í her sínum.
Áður en langt um líður þurfa íbúar
Birkeyjar að verja sig og drekana.
Ég sá myndina með íslensku tali
og var tæplega fjögurra ára dóttir
mín með í för. Hún var dolfallin yfir
myndinni og upplifði allan tilfinn
ingaskalann, til að gera langa sögu
stutta. Samt hafði hún sennilega betri
stjórn á upplifun sinni en við for
eldrarnir því myndin er spennandi,
óvænt og dramatísk.
Ég hef aldrei verið mikið fyrir að
horfa á teiknimyndir með íslensku
tali. Þær eru bara ekki jafnfyndn
ar og sannfærandi og hinar. Hins
vegar hefur talsetningu fleygt svo
mikið fram frá því að ég var polli að
ég spáði aldrei í það að myndin væri
á íslensku, sem er til marks um vel
unnið verk. Þeir sem ætla að sjá upp
runalegu útgáfuna verða eflaust ekki
sviknir þar sem stórstjörnur eins og
Cate Blanchett, Gerard Butler og
Jonah Hill ljá persónunum rödd sína.
Það sem gerir myndina svo eftir
minnilega er ekki síst hversu vel gerð
hún er. Hún er sjónrænt konfekt á
köflum og drekabardagarnir eru
ekkert minna en epískir þegar mest
gengur á. How to Train Your Dragon
2 er frábær mynd sem býður upp á
spennu, húmor og dramatík. Í það
minnsta felldu nokkrar mömmur í
salnum tár en sjálfur fékk ég bara salt
úr poppinu í augað. n
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Kvikmynd
How to Train Your
Dragon 2
IMDb 8,4 RottenTomatoes 92% Metacritic 76
Leikstjórn: Dean DeBlois
Handrit: Dean DeBlois og Cressida Cowell
Leikarar: Jay Baruchel, Cate Blanchett,
Gerard Butler og Jonah Hill.
102 mínútur
How to Train Your
Dragon 2 Í þessari mynd
gefst meiri tími fyrir hasar-
inn en í þeirri fyrri.
Syngur með
dóttur sinni
n Felix flytur eigin tónlist á Hinsegin dögum n „Þetta eru ástarljóð“
É
g kom fram á fyrstu hátíðinni
okkar 1999 þannig ég hef alltaf
komið við reglulega og alltaf
fundist jafn gaman. En það
verður gaman að vera með
eigið efni að þessu sinni,“ segir Felix
Bergsson, leikari og söngvari með
meiru, en hann mun troða upp á
Regnbogahátíð Hinsegin daga, sem
haldin verður að lokinni Gleði
göngunni á laugardaginn.
„Það er alltaf gaman að taka þátt í
þessari hátíð og fagna fjölbreytileik
anum,“ segir Felix sem hefur oft tekið
þátt áður, gjarnan þá með samstarfs
félaga sínum til margra ára, Gunnari
Helgasyni. Saman þekktir sem Gunni
og Felix. „Ég hef líka stundum sung
ið lokalagið, þjóðsönginn, ég er eins
og ég er,“ segir Felix sem er fullur til
hlökkunar yfir því að fá í fyrsta sinn að
flytja eigið efni á stóra sviði Hinsegin
daga. Hann gaf nýlega út plötuna
Borgin og mun flytja efni af henni á
laugardaginn.
„Ég er svolítill poppari í mér“
„Hún heitir Borgin því ég er mikill að
dáandi borga. Við eigum það sam
eiginlegt, ég og maðurinn minn, við
ferðumst mjög mikið og þá dveljum
við í borgum, þar líður okkur best,“
segir Felix um nafnið á plötunni, en
hún byggir að mestu á poppi með
persónulegum innblæstri. Felix sem
ur flesta textana en Dr. Gunni, Jón
Ólafsson, Eberg og fleiri tóku þátt í að
semja tónlistina.
„Þetta er bara gott popp. Ég er
svolítill poppari í mér. Ég var í Greif
unum í gamla daga og þótt ég hafi
hætt þar þá lifir þetta í mér, svona
popptaugin. Ég hef gaman af góðri
popptónlist.“
Dóttirin með á stóra sviðið í
fyrsta sinn
„Þetta eru ástarljóð, ég er að syngja
til mannsins míns oft á tíðum í mörg
um af þessum lögum,“ segir Felix
um tónlistina. „Ég er hinsegin, ég er
samkynhneigður og er að syngja um
mína tilveru og líf og þá kemur nátt
úrlega sú tilvera við sögu þótt það sé
ekki það eina,“ segir hann og á tón
listin því vel við Hinsegin daga.
„Ég syng líka um börnin mín
og það er náttúrlega einn veruleiki
samkynhneigðra, margir samkyn
hneigðir eiga börn,“ segir Felix en
dóttir hans mun slást með honum í
för á laugardag. „Það eru allar líkur
á því að dóttir mín, Álfrún Perla sem
er orðin 22 ára, stígi á svið með mér á
Hinsegin dögum, það verður í fyrsta
sinn,“ segir hann.
„Ég fæ hana til að spila með mér
í einu lagi. Við prófuðum það einu
sinni og það gekk prýðilega, þannig
að það er aldrei að vita nema ég gefi
henni breik á stóra sviðinu,“ segir
Felix kíminn.
Vegleg dagskrá
Karl Olgeirsson, Stefán Már
Magnús son, Bassi Ólafsson og
Friðrik Sturluson munu spila und
ir hjá Felix á laugardaginn sem og
á útgáfutónleikum Borgarinnar 28.
ágúst. „Ég verð með frábæra lista
menn með mér,“ segir Felix en dag
skrá Regnboghátíðarinnar verð
ur með skemmtilegasta móti í ár.
Ásamt Felix munu koma fram Sigga
Beinteins, Páll Óskar, Lay Low og
Kimono. Gleðigangan sjálf hefst
klukkan 14.00 og verða tónleikarnir
þar strax á eftir. n
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Söngfeðgin Álfrún
Perla stígur í fyrsta
sinn á stóra sviðið
með Felix um helgina.
„Þetta er
bara gott
popp. Ég er svo
lítill poppari í mér.