Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2014, Blaðsíða 11
Vikublað 10.–11. september Fréttir 11
Krónur á mánuði 2015
1. Hækkun virðisaukaskatts á matvælum úr 7% í 12% -3.520
2. Hækkun virðisaukaskatts á öðru úr 7% í 12% -1.860
3. Lækkun á almennu þrepi úr 25,5% í 24% 2.372
4. Niðurfelling vörugjalds 3.488
5. Áhrif skattabreytinga á ráðstöfunartekjur 479
6. Áhrif barnabóta 1.586
7. Áhrif á ráðstöfunartekjur (6.-5.) 2.065
*Miðað við 465 þúsund Króna heildarútgjöld á Mánuði (sKattsKyldar teKjur 580 þús.Kr)
*vægi Matvæla og dryKKjarvöru 16,2% af heildarútgjölduM
Áhrif breytinga á vsk. og vörugjöldum á ráðstöfunartekjur
Hjón með tvö börn, annað yngra en sjö ára
Maturinn verður dýrari
n Virðisaukaskattkerfi breytt n Vill hafa meiri tekjur af ferðamönnum n Barnabætur hækka n Vörugjöld afnumin n Heimilistæki lækka
„Þetta frumvarp boðar nýja frjálshyggju-
tilraun í íslenskum stjórnmálum,“ segir
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri
grænna, um fjárlagafrumvarpið fyrir árið
2015. Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Vinstri grænum sem send var út
í gær eftir að það hafði verið gert opin-
bert. Vinstri græn telja að ríkisstjórnin
láti velferðarsamfélagið mæta afgangi
og að Ísland fjarlægist önnur Norðurlönd
enn frekar á því sviði. „Með þessu er í
raun verið að boða róttækar samfélags-
breytingar í anda stefnu sem ég hélt að
væri fullreynd hér á landi og mun skerða
kjör almennings verulega. Því miður
virðist vera búið að opna aftur tilrauna-
stofu um nýfrjálshyggju,“ segir Katrín og
vísar þar til áranna fyrir hrun. Þá bendir
flokkurinn á að boðaðar séu tilfærslur á
skattbyrði frá útgerðarfyrirtækjum og
stóreignafólki til almennings í landinu,
en sem kunnugt er verða veiðigjöld og
auðlegðarskattur afnuminn. Ríkissjóður
verður af rúmlega 11 milljörðum króna
vegna þessa en tekjur ríkissjóðs munu
þó aukast samkvæmt áætlunum í
fjárlögum. Vinstri græn hafa þó áhyggjur
af svokölluðum mótvægisaðgerðum og
hvaða áhrif þær muni hafa. „Þingflokk-
urinn mun fara fram á úttekt á áhrifum
þessara skattabreytinga á ólíka tekju-
hópa og krefjast þess að ekki verði ráðist
í neinar skattabreytingar sem hygla há-
tekjuhópum á kostnað tekjulægri hópa,“
segir jafnframt í tilkynningunni. Að
lokum er fjármálastefna ríkisstjórnarinn-
ar sögð ábyrgðarlaus. „Tekjuafgangurinn
er í raun étinn upp af niðurfellingu
auðlegðarskatts, stórlækkun veiðigjalda
og þessari ómarkvissu skuldaniðurfell-
ingu ríkisstjórnarinnar. Þess vegna er
ekki hægt að lækka skuldir eins og gert
hafði verið ráð fyrir,“ segir Katrín. Nánar
má lesa um skuldir ríkissjóðs og hvernig
fjármálaráðherra hyggst taka á þeim á
blaðsíðu 22.
Bótaréttur
styttur
Stefnt er að því að stytta tímabil at-
vinnuleysisbóta úr þremur árum í tvö og
hálft ár. Þetta er á meðal þess sem fram
kemur í yfirliti yfir lagabreytingar sem
gert er ráð fyrir vegna áforma í fjárlaga-
frumvarpinu. Þetta rímar við þær tillögur
sem niðurskurðarhópur ríkisstjórnarinn-
ar lagði til í nóvember í fyrra. Hópurinn
vildi gera breytingar og byggja bæði
bóta- og skattkerfið þannig upp „að það
borgi sig að vera á vinnumarkaði,“ eins
og segir í tillögunum. Hópinn skipuðu
Ásmundur Einar Daðason, Vigdís
Hauksdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir og
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Þá hvatti hópurinn til þess að möguleik-
ar á endurkomu í bótakerfi væru tryggðir,
reyni einstaklingur fyrir sér á vinnumark-
aði. Í dag er fyrirkomulagið þannig að sá
sem hefur fengið bætur í þrjú ár getur
unnið sér rétt til þeirra aftur að ári liðnu,
með því skilyrði að hann hafi starfað á
vinnumarkaðnum í að minnsta kosti sex
mánuði eftir að fyrra tímabilinu lauk og
misst starf sitt af gildum ástæðum. Þá
á viðkomandi einstaklingur rétt á nýju
þriggja ára bótatímabili.
Þá voru margvíslegar fleiri tillögur settar
fram af hópnum en þeirra er þó ekki
getið sérstaklega í tengslum við laga-
breytingar vegna fjárlagafrumvarpsins.
Uppbygging í frumvarpinu
Tækni og samgönguverkefni
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verða framlög til
samgönguverkefna aukin um 850 milljónir króna og
framlög til Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs
aukin um 800 milljónir. Þá verður rekstrargrundvöllur
framhaldsskólanna styrktur um 400 milljónir króna
og 5,4 milljörðum veitt til framkvæmda á Bakka
við Húsavík, byggingar fangelsis á Hólmsheiði og
Norðfjarðarganga.
Ný frjálshyggjutilraun
þjóðræknir mótmælendur Óánægðir borgarar skutu upp kollinum meðan þingsetning fór fram. Sumir héldu á fánum en aðrir á pottum
og pönnum. Mynd þorMar vignir gunnarsson
frá þingsetningu Þingmenn gengu í halarófu á eftir Agnesi og Ólafi eftir kirkjuathöfnina.
Mynd þorMar vignir gunnarsson
Kynnti fjárlögin Fjár-
málaráðherrann Bjarni
Benediktsson gerir ráð
fyrir hallalausum fjárlög-
um annað árið í röð.
Mynd þorMar vignir gunnarsson