Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2014, Blaðsíða 30
Vikublað 10.–11. september30 Sport
Græða mest á
sölu leikmanna
n Porto trónir á toppnum og græðir langmest n Þrjú ensk félög í hópi 10 söluhæstu
P
ortúgalska stórveldið Porto
er það félag í heimsfótbolt-
anum sem græðir mest á
sölu leikmanna ef litið er til
undanfarinna tíu ára. Þetta
leiðir úttekt sem vefritið Bleacher
Report framkvæmdi á dögunum í
ljós, en stuðst var við upplýsingar
frá Transfermarkt sem heldur utan
um félagaskipti leikmanna um allan
heim. Frá sumrinu 2005 og þar til
félagaskiptaglugginn lokaði um síð-
ustu mánaðamót hefur Porto selt
leikmenn fyrir 626 milljónir evra,
96,3 milljarða króna. Hér að neðan
má sjá þau félög sem grætt hafa
mest á sölu leikmanna á undan-
förnum árum. n
1 Porto
Sem fyrr segir eru forsvarsmenn Porto
snjallastir allra í að finna unga og efnilega
leikmenn, veita þeim gott knattspyrnulegt
uppeldi og gera þá tilbúna til að taka stærra
skref. Þó svo að Porto selji undantekningar-
laust sína bestu leikmenn hefur félaginu
tekist að halda sér á toppnum í Portúgal.
Þannig hefur félagið orðið meistari sjö sinn-
um á síðustu tíu árum. Það er augljóslega
vel haldið um taumana hjá Porto.
Helstu sölur:
Eliaquim Mangala
Seldur til: Manchester City (2014)
Söluverð: 8,2 milljarðar króna
Fernando
Seldur til: Manchester City (2014)
Söluverð: 2,3 milljarðar
James Rodriguez
Seldur til: Monaco (2013)
Söluverð: 6,9 milljarðar
Joao Moutinho
Seldur til: Monaco (2013)
Söluverð: 3,8 milljarðar
Hulk
Seldur til: Zenit (2012)
Söluverð: 8,5 milljarðar
Radamel Falcao
Seldur til: Monaco (2013)
Söluverð: 7,2 milljarðar
Anderson
Seldur til: Manchester United (2007)
Söluverð: 4,8 milljarðar
2 Tottenham
Tottenham hefur í gegnum tíðina átt erfitt
með að halda í sína bestu leikmenn. Þannig
hafa Gareth Bale, Dimitar Berbatov og
Luka Modric verið seldir á síðustu árum fyrir
stórfé. Frá árinu 2005 hefur Tottenham
selt leikmenn fyrir 486 milljónir evra, 75
milljarða króna. Þetta hefur haft sitt að
segja því Tottenham virðist ekki líklegt til
stórræðanna gegn bestu félögum ensku
úrvalsdeildarinnar eins og sakir standa. Hér
að neðan er stiklað á stóru um helstu sölur
Tottenham-liðsins en bent á að Tottenham
hafi selt fjölda annarra leikmanna og fengið
ágætis pening fyrir. Má þar nefna Gylfa Þór
Sigurðsson, Steven Caulker, Tom Huddle-
stone, Sandro og Jake Livermore sem dæmi.
Helstu sölur:
Gareth Bale
Seldur til: Real Madrid (2013)
Söluverð: 14,4 milljarðar
Luka Modric
Seldur til: Real Madrid (2012)
Söluverð: 4,6 milljarðar
Dimitar Berbatov
Seldur til: Manchester United
Söluverð: 5,8 milljarðar
Michael Carrick
Seldur til: Manchester United (2006)
Söluverð: 4,1 milljarður
Tveir góðir
James Rodriguez
og Radamel
Falcao eru
leikmenn sem
Porto seldi
fyrir stórfé.
3 Liverpool
Liverpool hefur fengið góðar tekjur vegna
sölu leikmanna á undanförnum árum og
ber þar helst að nefna Fernando Torres
og Luis Suarez. Ætli félagið sér að komast
í fremstu röð í Evrópu að nýju þarf það að
halda sínum bestu leikmönnum og halda
áfram að gera skynsamleg kaup eins og
raunin hefur orðið eftir að Brendan Rod-
gers tók við félaginu. Auk þeirra sem hér
að neðan eru nefndir hefur Liverpool selt
leikmenn eins og Craig Bellamy, Peter
Crouch og Andy Carroll á því tímabili sem
miðað er við.
Helstu sölur:
Luis Suarez
Seldur til: Barcelona (2014)
Söluverð: 12,5 milljarðar
Fernando Torres
Seldur til: Chelsea (2011)
Söluverð: 9 milljarðar
Javier Mascherano
Seldur til: Barcelona (2010)
Söluverð: 3 milljarðar
Xabi Alonso
Seldur til: Real Madrid (2009)
Söluverð: 5,4 milljarðar
4 Benfica
Rétt eins og Porto hefur portúgalska
félagið Benfica verið lunkið við að finna
unga og efnilega leikmenn og selja þá svo
á uppsprengdu verði. Og rétt eins og Porto
hefur félaginu tekist að halda sér í hópi
allra bestu liða Portúgals og náð fínum
árangri í Evrópukeppnum. Frá 2005 hefur
Benfica selt leikmenn fyrir 406 milljónir
evra, 62,5 milljarða króna.
Helstu sölur:
Lazar Markovic
Seldur til: Liverpool (2014)
Söluverð: 3,8 milljarðar
Jan Oblak
Seldur til: Atletico Madrid (2014)
Söluverð: 2,5 milljarðar
Nemanja Matic
Seldur til: Chelsea (2014)
Söluverð: 3,8 milljarðar
Axel Witsel
Seldur til: Zenit (2012)
Söluverð: 3,1 milljarður
Fabio Coentrao
Seldur til: Real Madrid (2011)
Söluverð: 4,6 milljarðar
Angel Di Maria
Seldur til: Real Madrid (2010)
Söluverð: 5 milljarðar
David Luiz og Ramires
Seldir til: Chelsea (2010)
Söluverð: 4,1 og 3,4 milljarðar
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
AC Milan er eitt allra stærsta
félagslið heims en má samt
sem áður muna fífil sinn
fegurri. Félagið hefur átt
í fjárhagsvandræðum á
undanförnum árum og þurft
að selja marga af sínum bestu
leikmönnum. Það útskýrir
veru félagsins á listanum
– að hluta til að minnsta
kosti. Liðið hefur ekki unnið
titil síðan 2011 og þá mistókst
liðinu að tryggja sér sæti í
Meistaradeild Evrópu í vor.
Frá 2005 hefur félagið selt
leikmenn fyrir 391 milljón
evra, rúma 60 milljarða
króna. Auk þeirra sem hér að
neðan eru nefndir hefur Milan
selt leikmenn eins og Kevin
Prince Boateng, Alexandre
Pato og Klaas-Jan Huntelaar
svo dæmi séu tekin.
Helstu sölur:
Mario Balotelli
Seldur til: Liverpool (2014)
Söluverð: 3 milljarðar
Thiago Silva
Seldur til: PSG (2012)
Söluverð: 6,4 milljarðar
Zlatan Ibrahimovic
Seldur til: PSG (2012)
Söluverð: 3,2 milljarðar
Kaka
Seldur til: Real Madrid
(2009)
Söluverð: 10 milljarðar
6 Atletico Madrid
Selt fyrir: 58,6 milljarða
Helstu leikmenn: Radamel
Falcao, Diego Costa, Filipe Luis
og Sergio Aguero.
7 Inter
Selt fyrir: 58,5 milljarða
Helstu leikmenn: Samuel
Eto'o, Mario Balotelli, Zlatan
Ibrahimovic, Giampaolo
Pazzini, Philippe Coutinho.
8 Genoa
Selt fyrir: 55 milljarðar
Helstu leikmenn: Rodrigo
Palacio, Ciro Immobile, Diego
Milito, Stephen El Shaarawy og
Domenico Cricito.
9 Udinese
Selt fyrir: 54,6 milljarða
Helstu leikmenn: Juan
Cuadrado, Mehdi Benatia,
Antonio Candreva, Kwadwo
Asamoah, Mauricio Isla, Samir
Handanovic, Alexis Sanchez og
Gokhan Inler.
10 Arsenal
Selt fyrir: 54,5 milljarða
Helstu leikmenn: Thomas
Vermaelen, Robin van Persie,
Alex Song, Cesc Fabregas,
Samir Nasri, Kolo Toure,
Emmanuel Adebayor og
Thierry Henry.
Önnur félög5 AC Milan