Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Blaðsíða 2
2 Fréttir Vikublað 1.–3. júlí 2014 Blandar sér ekki í umræðuna Síðastliðinn fimmtudag birtist í dálkinum Orðið á götunni á Pressunni undir fyrirsögninni „Vill enn og aftur launahækkun“ sú fullyrðing að Sigurður Erlings- son, forstjóri Íbúðalánasjóðs, væri ósáttur við kaup sitt. „Forstjór- inn er ekki af baki dottinn og hef- ur nú farið fram á það við stjórn sjóðsins að hann fái greidda sérstaklega mikla yfirvinnu að undanförnu og hefur beiðni þar að lútandi verið til skoðunar inn- an stjórnarinnar að undanförnu. Er þar um að ræða umtalsverð- ar fjárhæðir,“ var fullyrt í Orðinu á götunni. Telja má líklegt að Orðið á götunni hafi fengið þessar upp- lýsingar beint úr velferðarráðu- neytinu. DV sendi Sigurði tölvu- póst vegna þessa og óskaði eftir að heyra hans hlið á þessu. Svar- ið var stutt og laggott: „Ég kýs að blanda mér ekki í þessa umfjöll- un. Kv Sigurður“. Hallur gjaldþrota Skiptum er lokið á búi Halls Magnússonar, fyrrverandi sviðs- stjóra Þróunarsviðs Íbúðalána- sjóðs og fyrrverandi kosninga- stjóra Framsóknarflokksins. Fram kemur í Lögbirtingablað- inu að engar eignir hafi fundist upp í rúmlega 30 milljóna króna skuldir Halls. Búið var tekið til gjaldþrotaskipta þann 26. mars síðastliðinn og skiptum var lokið 16. júní. Spyr um hagsmuna- tengsl Jóns Steinars Sveinn Andri segir Jón jafnframt vilja komi höggi á Benedikt Bogason H æstaréttarlögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson og Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttar- dómari, hafa átt í ritdeilum að undanförnu, þó ekki á sama vett- vangnum. Tilefnið er kæra Hreiðars Más Sigurðssonar á hendur Bene- dikt Bogasyni hæstaréttardómara, en Sveinn Andri gerði athugasemd- ir við grein Jóns Steinar á Face- book-síðu sinni. Hann segir þar að svo virðist sem Jón Steinar hafi haft aðgang að kæru Hreiðars Más, því hann hafi talað um hluti sem eru í kærunni sem voru hins vegar aldrei til umfjöllunar hjá Fréttablaðinu sem greindi frá málinu á forsíðu. Sveinn Andri velti því fyrir sér hvern- ig Jón Steinar hafi fengið aðgang að kærunni og spyr jafnframt hvort að einhver hagsmunatengsl séu á milli Jóns og Hreiðars Más. Þá spyr hann að lokum hvort Jón hafi fengið greitt frá Hreiðari fyrir ráðgjöf, óbeint eða beint. Fékk kæruna frá lögfræðingi Í samtali við DV segir Jón Steinar að hann hafi fengið kæruna senda frá lögfræðingi Hreiðars Más, Herði Fel- ix Harðarsyni. Það er þó athyglisvert í ljósi þess að Hreiðar Már skrifaði sjálfur undir kæruna, en ekki Hörður fyrir hönd Hreiðars. Jón Steinar segist hafa kannast við Hörð lengi. „Áður en ég skrifaði greinina reyndi ég að fá svörin sem ég var að leita að en þær upplýsingar sem ég fékk fólu þau ekki í sér heldur ýttu frekar undir þær. Ég hafði samband við lög- fræðing hans, sem ég veit hver er. Allir starfandi lögfræðingar og lög- menn sem starfa á þessu sviði vita af hverjum öðrum en ég þekki hann ekki persónulega,“ segir Jón Steinar. Hann segir jafnframt að hann hafi kosið að birta spurningarnar opinber lega til að fá svör við þeim opinberlega, fremur en að tala sjálf- ur við Benedikt. Þá segist hann ekki hafa nein hagsmunatengsl við Hreiðar Má. „Þau eru ekki nokkur, það hefur aldrei verið neitt sem gefur tilefni til þess að hægt sé að halda því fram,“ segir Jón Steinar. „Hann er að gefa það í skyn að ég hafi verið fenginn gegn peninga- greiðslu til að skrifa þessa grein. Það er auðvitað algjör fjarstæða,“ bætir Jón Steinar við. Tengir við dóm Baldurs Guðlaugssonar „Aldrei þessu vant kýs Jón Steinar að taka ekki upp símann og heyra í við- komandi, fyrrverandi kollega sínum,“ segir Sveinn Andri í samtali við DV. „Hann kýs að varpa málinu svona fram í fjölmiðlum eingöngu, að mínu mati, til þess að koma höggi á við- komandi dómara. Þetta hafði engan annan tilgang.“ Hann segir það tengj- ast dómi yfir Baldri Guðlaugssyni. „Af því að hann er ósáttur við það að hann [Benedikt] skyldi hafa tekið þátt í því að kveða upp dóminn yfir vini hans Baldri Guðlaugssyni. Það er málið,“ segir Sveinn Andri. „Hefði hann viljað fá opinber svör þá hefði hann getað hringt í Bene- dikt og hvatt hann til þess að svara spurningunum með opinberum hætti. Hann er enginn umboðsmað- ur dómara á Íslandi, hann er enginn verndarengill fyrir réttarkerfið á Ís- landi. Ef hann heldur að hann sé á þeim stalli að allir eigi að taka sig til, standa upp úr stólnum og svara honum á opinberum vettvangi þegar honum þóknast að senda inn opin bréf, þá er hann eitthvað að misskilja sína stöðu í samfélaginu,“ segir Sveinn Andri. Deilt um vettvang Jón Steinar birti grein sína í Morgun- blaðinu, þar sem hann spurði með- al annars hvort að skrifleg beiðni um símahlustun hafi verið lögð fram áður en úrskurður var kveðinn upp, hvar málið hafi verið tekið fyrir og hvort lögreglumenn hafi sótt úr- skurðinn á heimili Benedikts. Sveinn Andri kaus að gagnrýna greinina á Facebook og spyrja Jón spurninga þar. Í kjölfarið vildi Jón Steinar svara, en segist ekki hafa getað gert það því hann sé ekki með aðgang að samfé- lagsmiðlinum og ætli sér ekki að út- búa slíka síðu. Hann sendi því tölvu- póst til Sveins Andra sem hann bað Svein um að birta á sinni síðu. Sveinn Andri varð þó aldrei við því og sagði Jón geta fengið sér aðgang sjálfur eða birt svarið á öðrum vettvangi. Tengist ekki pólitík Sveinn Andri hefur að undanförnu verið áberandi í stjórnmálahreyf- ingunni Viðreisn sem klauf sig úr Sjálfstæðisflokknum, en Jón Steinar skráði sig aftur í hinn síðarnefnda flokk þegar hann hætti störfum sem dómari. Sveinn Andri segir að þessi deila á milli þeirra tengist ekki pólitík. „Ég bara hef skoðan- ir á hlutum og mér fannst það vera óþverrabragð, þetta opna bréf Jóns Steinars.“ n Rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is „Áður en ég skrifaði greinina reyndi ég að fá svörin sem ég var að leita að Jón Steinar „Hann er að gefa það í skyn að ég hafi verið fenginn gegn peningagreiðslu til að skrifa þessa grein. Það er auðvitað algjör fjarstæða,“ segir Jón Steinar. „Hann er enginn verndarengill fyrir réttar- kerfið á Íslandi Sveinn Andri „Hann er ósáttur við það að hann [Benedikt] skyldi hafa tekið þátt í því að kveða upp dóminn yfir vini hans Baldri Guðlaugssyni. Það er málið,“ segir Sveinn Andri um Jón Steinar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.