Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Síða 10
10 Fréttir Vikublað 1.–3. júlí 2014
Þær eiga hvergi heima
V
ið erum heimilislaus,“
segir Dagbjört Norðfjörð,
einstæð móðir í Reykjavík
sem vinnur á veitingastað
en er á vergangi. Hún leit-
ar nú að leiguhúsnæði til langtíma
fyrir sig og níu ára son sinn, helst í
miðborg Reykjavíkur þar sem hann
gengur í skóla. Fleiri eru í sömu
stöðu. Eins og þær Ásbjörg Mar-
grét Emanúelsdóttir, Sædís Hrönn
Samúelsdóttir og Ragna Erlends-
dóttir. Viðmælendur DV hafa ólík-
an bakgrunn, eru með mismun-
andi menntun og sögu, en allir eiga
þeir það sameiginlegt að hafa verið
í þeirri stöðu að eiga hvergi heima.
Sögur þessara kvenna má lesa hér
til hliðar, en allar segja þær að
heimilisleysinu fylgi óöryggi, fyrir
þær og fjölskyldur þeirra, en sumar
eru með ung börn á sínu framfæri.
Há leiga
Á leigumiðluninni Leigulistinn má
sjá að tveggja herbergja íbúð við
Klapparstíg í miðbænum, 65 fer-
metra, er leigð út á 170.000 krónur
á mánuði. Óvíst er hvort íbúðin sé
laus til langtíma eða hversu hárrar
tryggingar sé krafist. Dæmi eru um
að fjölskyldur ráði ekki við slíkar af-
borganir á leigu, og eins hefur það
reynst mörgum ofraun að leggja
fram margra mánaða leiguupphæð
sem tryggingu fyrir leigunni.
Reynir á hópinn
Ásgerður Jóna Flosadóttir, fram-
kvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar-
innar, sagðist á dögunum verða vör
við að einhleypir einstaklingar og
einstæðir foreldrar séu á vergangi á
milli aðstandenda til að koma sér í
húsaskjól. Benti hún á að það væri
óhugnanleg staða að vera í þessum
sporum. „Þetta reynir mjög mik-
ið á þennan hóp,“ segir hún. Þeir
sem DV hefur rætt við taka undir
þetta. Það er mikið álag á fjölskyld-
ur jafnt sem einstaklinga að hafa
ekki öruggt húsaskjól. Sem dæmi
má nefna að samkvæmt barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna er skýrt
kveðið á um að réttindi barns til
lífs feli í sér að barnið hafi nóg að
borða, aðgang að læknisþjónustu
og að það eigi sér húsaskjól.
Þá er það beinlínis í lögum um
sveitarfélög að þeim beri að bregð-
ast við bágri neyð íbúa sinna. Í lög-
um um félagsþjónustu sveitarfé-
laga segir meðal annars í 45. grein:
„Sveitarstjórnir skulu, eftir því sem
kostur er og þörf er á, tryggja fram-
boð af leiguhúsnæði, félagslegu
kaupleiguhúsnæði og/eða félags-
legum eignaríbúðum handa þeim
fjölskyldum og einstaklingum sem
ekki eru á annan hátt færir um að
sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra
launa, þungrar framfærslubyrð-
ar eða annarra félagslegra að-
stæðna.“ Þar segir einnig í 46 grein:
„Félagsmálanefndir skulu sjá til
þess að veita þeim fjölskyldum og
einstaklingum, sem ekki eru færir
um það sjálfir, úrlausn í húsnæð-
ismálum til að leysa úr bráðum
vanda á meðan unnið er að varan-
legri lausn.“
Skömmin erfið
Hólmsteinn Brekkan, fram-
kvæmdastjóri samtaka leigjenda
á Íslandi, segir að þeir sem lendi í
þeirri stöðu að vera heimilislausir
veigri sér oft við að leita sér aðstoð-
ar. „Þessu fylgir skömm, þó svo að
það eigi ekki að gera það. Það getur
verið mjög erfitt að horfast í augu
við þessar aðstæður,“ segir Hólm-
steinn. Hann bendir á að tæplega
níu þúsund eignir hafi verið seld-
ar í nauðungarsölu frá hruni. Nán-
ar tiltekið eru þær 8.694 og af þeim
voru 4.730 í eigu einstaklinga en
3.964 í eigu lögaðila. Um áramótin
tóku gildi lög þar sem einstaklingar
geta óskað eftir fresti á nauðungar-
sölu fram til 1. september 2014.
Þeir sem ganga í gegnum slíka sölu
eru oftar en ekki á vanskilaskrá og
eiga því enn erfiðara með að finna
sér húsnæði eða fá fyrirgreiðslu.
Vísitala leiguverðs hækkaði um
8,6 prósent á 12 mánuðum, frá 1.
febrúar 2013 til 1. janúar 2014. Það
þýðir að meðalverð á fermetra í
Reykjavík, vestan Kringlumýrar-
brautar og Seltjarnarnes var 2.220
krónur í febrúar 2013, en 2.421
króna í janúar ári síðar – 60 fer-
metra íbúð á þessu svæði kostaði
því að meðaltali 133.200 krónur í
febrúar 2013, en 145.260 krónur í
janúar 2014.
Engar tölur eru hins vegar til um
meðalupphæð á tryggingu, fyrir-
framgreiðslu og eðli málsins sam-
kvæmt eru litlar upplýsingar til um
íbúðir sem eru leigðar út á svörtum
markaði. Þeir sem fylgjast vel með
leigumarkaðnum og fylgjast með
sérstökum leiguhópum, til dæm-
is á samfélagsmiðlum, sjá hversu
neyðin er mikil. Auglýsingarnar
eftir íbúðum eru talsvert fleiri en
þær þar sem auglýst er til leigu.
Þegar blaðamaður fór yfir einn
slíkan hóp á Facebook, voru aug-
lýsingarnar á tveggja daga tímabili
þannig að tveir þriðju voru að leita
að íbúð, þriðjungur var að bjóða
þær fram.
Erfitt greiðslumat
Bent hefur verið á að erfitt getur
verið að komast í gegnum greiðslu-
mat í bönkum fyrir þá sem hyggjast
fara af leigumarkaði og kaupa sér
fasteign. Það hefur sérstaklega áhrif
á ungt fólk sem er nýkomið á vinnu-
markað. Neysluviðmið gera oftar
en ekki ráð fyrir háum matarreikn-
ingum, rekstri á bifreið og almenn-
ingssamgöngum. Þegar greiðslu-
mat er framkvæmt er horft til tekna
og útgjalda viðkomandi, en líkt og
RÚV greindi frá í liðinni viku er gert
ráð fyrir því að einstaklingur með
260 þúsund krónur í útborguð laun
á mánuði hafi aðeins um 27 þúsund
krónur aflögu til að eyða í húsnæði
þegar allir liðir neysluviðmiðsins
hafi verið dregnir frá.
Búa í bílnum
DV hefur ítrekað fjallað um stöðu
þessa hóps á undanförnum árum,
það er stöðu þeirra sem eru heim-
ilislausir. Sem dæmi má nefna að
fyrr á þessu ári var rætt við Guð-
rúnu J. Svavarsdóttur, tæplega sex-
tuga konu, sem bjó sig undir að
flytja inn í gamla Renault Clio-bif-
reið á meðan hún beið eftir félags-
legu húsnæði hjá Reykjanesbæ.
Guðrún hafði þá beðið í tvö ár eftir
félagslegu húsnæði. Eftir umfjöll-
un DV fékk Guðrún hins vegar boð
um íbúð frá einstaklingi sem vildi
leigja henni litla íbúð á sanngjörnu
verði. n
n Ráða ekki við leiguverð n Óbærileg bið eftir félagslegu húsnæði n Fékk taugaáfall eftir að hafa verið á götunni í tíu mánuði: „Ég bara skalf og grét“ n Dagbjört þurfti að henda eigum sínum„Við erum
heimilislaus
Leiguverðið er of hátt
Sædís hefur loksins fengið vilyrði um íbúð en fær hana ekki fyrr en í haust
Húsnæðismálin eru ekki aðeins erfið í
Reykjavík. Sædís Hrönn Samúelsdóttir
er einstæð móðir í Hafnarfirði sem hefur
beðið frá árinu 2009 eftir félagslegu
húsnæði þar.
DV hefur áður fjallað um mál hennar en
hún missti leiguíbúð, sem hún fékk að
vera í til skamms tíma, í apríl. Síðan hafa
þær mæðgur verið á vergangi meðal
ættingja og vina. „Þetta er allt frá einni
nóttu að tveimur vikum,“ segir Sædís
um það hversu lengi þær hafa verið á
hverjum stað. „Við erum heimilislausar.
Það er bara svo einfalt.“ Þetta ástand
hefur haft mikil áhrif á þær mæðgur og
segist Sædís merkja óöryggi hjá fimm
ára dóttur sinni, sem þoli illa þetta rót.
Hún segist hringja að meðaltali
tvisvar til þrisvar í viku eftir húsnæði.
„Nú hefur umboðsmaður Alþingis haft
samband við mig og ég er að undirbúa
kvörtun vegna málsins,“ segir hún, en
DV hefur undir höndum drög að kvörtun
hennar. Þar er að finna bréfaskriftir
hennar við embættismenn Hafnar-
fjarðarbæjar, bæjarfulltrúa og þing-
menn. Flestir segjast þeir finna til með
þeim mægðum og stöðu þeirra. Málinu
er í kjölfarið vísað áfram innan kerfisins
en ekkert gerist.
Þess má geta að um 250 manns eru á
biðlista eftir íbúðum hjá Hafnarfjarðar-
bæ, en bærinn á rúmlega 200 íbúðir.
Sædís er í hópi þeirra sem hafa leitað
lengi eftir íbúð en án árangurs. Hún er
öryrki og hefur því takmarkaðar tekjur
og treystir á félagsþjónustuna. Síðasta
íbúð sem hún leigði fékk hún á tæpar 175
þúsund krónur í gegnum kunningsskap.
Sædís segist ekki geta leigt sambæri-
lega íbúð eða minni á sama verði eða
lægra í bænum. Leiguverð sé of hátt
og oftar en ekki sé farið fram á svartar
greiðslur. Það þýðir að leigjandinn getur
ekki fengið stuðning sveitarfélagsins,
enda engir skattar greiddir af tekjum
íbúðarinnar.
„Ég hef haft allar klær úti að leita,
en þetta hefur bara ekkert gengið,“
segir hún. Það var svo á síðustu dögum
sem hún fékk þær gleðifréttir að þeim
mægðum hefði verið úthlutuð íbúð frá
Öryrkjabandalaginu. Sædís hefur því
verið tekin af lista hjá Hafnarfjarðarbæ,
þótt hún fái íbúðina ekki afhenta fyrr
en á haustmánuðum, líklega ekki fyrr
en í október. Þær munu því vera áfram á
vergangi þangað til.
Sædís Hrönn Samúelsdóttir
Aldur: 44 ára
Fjölskyldustaða: Einhleyp, eitt barn
Starf: Öryrki
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Hjálmar Friðriksson
astasigrun@dv.is/ hjalmar@dv.is