Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 11
Fréttir 11Vikublað 1.–3. júlí 2014 Þær eiga hvergi heima Svaf í bílnum í febrúarfrostinu Ásbjörg fékk inni hjá Rúnari Þór Saga Ásbjargar Margrétar Emanúelsdóttur vakti mikla athygli í síðustu viku. Ásbjörg hafði búið í bifreið sinni, litlum fólksbíl, frá því í febrúar. Ásbjörg hefur verið í sambandi við félagsþjónustu Reykjavíkurborgar, en biðlistinn er langur og ljóst að hún þyrfti að bíða lengi. Hún missti íbúð, sem hún keypti fyrir hrun, í maí árið 2013. Hún mátti vera í íbúðinni fram til 1. febrúar á þessu ári. Íbúðarleitin gekk illa og hún hafði enga burði til þess að safna sér fyrir trygging- um eða borga lágt leiguverð. Ásbjörg var lengi til sjós þar sem hún slasaðist. Hún vann í kjölfarið í landi. Þeir sem hana þekkja segja hana „hörkuduglega“ enda vann hún mikla erfiðisvinnu í mörg ár. Eftir umfjöllun DV hafði Rúnar Þór Péturs- son tónlistarmaður samband við Ásbjörgu og bauð henni húsnæði. Hún fær að gista í aukaherbergi í íbúð hans meðan reynt er að leysa húsnæðisvanda hennar varanlega. Skriður hefur komist á málið hjá Reykjavíkur- borg. „Ég er heimilislaus þangað til að við finnum einhverja lausn,“ segir Ásbjörg sem er vongóð og afar þakklát Rúnari Þór. Það var mjög erfitt að vera í bílnum og lýsti hún því hvernig félagsleg einangrun fylgdi í kjölfarið. Hún leitaði til vinkonu sinnar og fékk að nota aðstöðu hjá henni, en hún svaf nánast allar nætur í bílnum frá því í febrúar 2014 og fram undir lok júní. „Mér finnst skömmin eiginlega verst. Maður skríður beint inn í skelina og það er erfitt að rjúfa þá einangrun,“ segir Ásbjörg sem hafðist við í Elliðaárdalnum á daginn og svaf í Breiðholtinu um nætur. Hún notaði bensínstöðvarsalerni til að hátta sig á kvöldin og færði bílinn inn í hverfið þegar líða fór á kvöldið. Hún fór svo aftur snemma á morgnana, áður en morgun- umferðin um hverfið hófst. „Þetta er búið að vera mjög erfiður tími. Í haust verð ég 67 ára og þá lækka tekjurnar mínar aftur. Ég veit bara ekki hvað ég á að gera,“ segir hún. Komst inn hjá Félagsbú- stöðum og fékk taugaáfall Jóhanna Freyja var á götunni í nærri tíu mánuði „Þetta var bara skelfilegt. Ég svaf ekki og nærðist ekki á þessum tíma. Daginn sem ég fékk lykilinn hérna þar sem ég er í dag þá varð bara þvílíkur léttir. Ég var nú ekki lengi að flytja inn. Ég fékk bara taugaáfall eftir þetta. Ég bara skalf og skalf og grét þegar allt dótið var komið hingað inn,“ segir Jóhanna Freyja Benediktsdóttir sem er ein þeirra kvenna sem hafa verið tilneyddar til að búa í bílnum sínum vegna úrræðaleysis. Jóhanna segist hafa varið bróðurparti ársins 2006 í bílnum sínum en á endanum hafi hún farið inn á Konukot og í kjölfar þess fékk hún loksins íbúð hjá Félagsbústöðum. Ástæðan fyrir því að Jóhanna varð heimilislaus er að hennar sögn sú að hún hafi verið að flýja ofbeldi af hálfu þáver- andi sambýlismanns. Sextán ára dóttir hennar fylgdi henni út á götuna. Meðan Jóhanna gisti í bílnum fékk dóttir hennar að vera hjá frænkum sínum. Jóhanna segir að þegar hún fékk loksins íbúð eftir níu mánaða vergang hafi hún fengið taugaáfall. Hún var heimilislaus í nærri tíu mánuði, frá 7. febrúar til 22. nóvember. Varð að flýja Hún hafði flutti úr íbúð sinni í Hraunbæ inn til manns sem hún segist hafa verið ástfangin af. „Ég bjó með honum í einn og hálfan mánuð og svo beitti hann mig og dóttur mína andlegu ofbeldi. Við urðum bara að flýja út. Búslóðin varð eftir hjá honum en hann kastaði henni út á stétt og skemmdi marga hluti. Ég tók búslóðina og systir mín reddaði mér, að ég gæti sett hana upp á háaloft,“ segir hún. Jóhanna segir að fyrst hafi hún farið í Kvennaathvarfið þar sem hún var í mánuð. Þá fór hún í aðgerð á Landspítalanum. Hún segist hafa upplifað mikinn kvíða vitandi að hún hefði í engin hús að venda þegar vist hennar á spítalanum lyki. „Ég fékk að vera á Rauðakrossheimlinu, því þar var svo lítið að gera. Síðar flutti hún í bílinn. Með pottaplöntu í bílnum Jóhanna segir þann tíma sem hún svaf í bílnum í Heiðmörk hafa verið hrikalegan. „Ég var með sæng og ég reyndi að hita hann aðeins upp áður en ég fór að sofa, svo tók ég bara svefntöflu fyrir svefninn. Einu sinni varð ég drulluhrædd þegar ég vaknaði hálf níu og það var lögreglubíll akkúrat rétt hjá mér. Ég hélt að þeir færu nú eitthvað að skipta sér af mér en svo var ekki,“ segir hún. Þrátt fyrir allt reyndi hún að gera bílinn heimilislegan og var með pottaplöntur. „Ég skil nú ekki hvernig ég hélt lífi í þeim.“ Ein edrú í Konukoti Hún segir að þrátt fyrir að betra hafi verið að vera í Konukoti en bílnum þá hafi aðstæður þar ekki verið góðar. „Það var líka skelfilegt í Konukoti. Maður fær inni klukkan sjö og máltíðir en það var alveg sama hvernig veðrið var, maður þurfti að vera farinn út klukkan tíu. Þetta var allt fólk sem var í neyslu, nema ég og starfsfólkið. Ég svaf á dýnu niðri í kjallara og svaf mjög illa því það var umgangur þar. Það var þarna aðstaða til reykinga, það var umgangur alla nóttina. Ég svaf eiginlega ekki neitt.“ „Einfaldlega skelfilegt tímabil“ Jóhanna telur að þau úrræði sem heimilislausum bjóðist séu skelfileg. „Guð minn almáttugur, ég hefði aldrei trúað því að þetta væri svona slæmt. Það var alltaf verið að lofa mér íbúð, hún kæmi á næstunni. Þetta var einfaldlega skelfilegt tímabil. Ég skil ekki hvernig ég gat haldið sönsum í þennan tíma, að sofa í bílnum í frosti í Heiðmörk,“ segir hún. Jóhanna segir að þetta tímabil hafi verið dóttur hennar mjög erfitt en þá hafi hún verið sextán ára. Jóhanna segir að meðan hún flakkaði á milli bílsins, ættingja og Konukots hafi dóttir hennar búið hjá frænkum sínum. „Hún leið náttúrulega rosalegar kvalir á þessum tíma – að geta ekki verið hjá mér. Hún spurði mig alltaf hvenær við fengjum íbúð. Hún var algjörlega heimilislaus.“ n Ráða ekki við leiguverð n Óbærileg bið eftir félagslegu húsnæði n Fékk taugaáfall eftir að hafa verið á götunni í tíu mánuði: „Ég bara skalf og grét“ n Dagbjört þurfti að henda eigum sínum Á vergangi Það reynir mjög á fjölskyldur og einstaklinga að hafa í engin hús að venda. Viðmælendur DV segja félags- lega einangrun og skömm vera fylgifisk slíkra aðstæðna. Mynd Sigtryggur Ari JohAnnSSon Ásbjörg Margrét Emanúelsdóttir Aldur: 66 ára Fjölskyldustaða: Einhleyp Starf: Öryrki Jóhanna Freyja Benediktsdóttir Aldur: 62 ára Fjölskyldustaða: Einhleyp Starf: Öryrki Framhald á næstu síðu 

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.