Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 12
12 Fréttir Vikublað 1.–3. júlí 2014 Sturtusett Verð frá kr. 66.900 Gæði fara aldrei úr tísku Heimilislaus og jarðar dóttur sína Ragna Erlendsdóttir vonast til að fá húsnæði áður en skólaárið hefst Ragna Erlendsdóttir varð heimilislaus á mánudag. Í dag, þriðjudag, jarðar hún dóttur sína Ellu Dís, sem náði átta ára aldri. Ella hafði barist við veikindi frá fimmtán mánaða aldri. „Ég er akkúrat núna í flutningum, að flytja dótið mitt í geymslu. Frá og með kvöldinu er ég bara heimilislaus,“ segir Ragna í samtali við DV á mánudag. Fer í sumarfrí Ragna segir að hún sé nú á leiðinni til Englands í sumarfrí og vonist hún til að geta fundið húsnæði fyrir sig og sín börn áður en skólaárið hefst næstkomandi haust. „Ég ætla að skreppa í sumarfrí, ferð til útlanda með fjölskyldunni, til Englands í mánuð allavega. Ég verð bara hjá fjölskyldunni og vinum þegar ég kem til baka, bara á flakki. Þetta er ekki skemmtilegt, að fara að jarða dóttur mína á morgun og vera heimilislaus. Manni fallast bara hendur og maður biður til guðs að þetta lagist fljótlega áður en börnin mín fara í skólann. Ég bara neita að trúa öðru en þau finni einhverja íbúð fyrir mig í Reykjavík,“ segir Ragna. Óvissan verst Hún segir eitt það versta við húsnæðis- leysið vera óvissuna. „Ég ætla að reyna að taka á þessu þegar ég kem til baka. Ég er búin að tala við félagsráðgjafann minn og hún sagði að það væri ekkert í boði. Það er ekki mikil von þar. Bara því- lík óvissa. Hvað getur maður gert? Þetta er ótrúlega óþægilegt,“ segir Ragna. „Harður heimur“ Ragna sagði í samtali við DV á fimmtudag að hún væri búin að leita að íbúð á almennum leigumarkaði. Að hennar sögn er það ómöguleg staða fyrir sig þar sem hún sé gjaldþrota eftir lækniskostnað og hún fái hvorki lán né bankatryggingu. „Þegar það eru tíu manns á undan manni með banka- tryggingu á ég ekki von. Þannig að þetta er frekar harður heimur, mér fallast bara hendur og ég veit ekki hvað ég á að gera. En ég veit að ég er ekki sú eina sem er í þessari aðstöðu og mér finnst bara mjög leiðinlegt hvað þetta sé að gerast fyrir marga,“ sagði Ragna þá. Mannréttindi að hafa húsnæði Ragna segir að húsnæðisvandinn á höfuðborgarsvæðinu sé aðkallandi og Reykjavíkurborg verði að bregðast við. „Borgin þarf bara að fara að kaupa meira húsnæði fyrir allt þetta fólk sem á hvergi samastað. Enda stendur það í stjórnarskránni, og eru grunnmann- réttindi, að fólk verður að hafa húsnæði. Það er sérstaklega mikilvægt ef um er að ræða börn. Það er ekkert verið að út- hluta nýjum íbúðum. Það er ekkert flæði á þessu. Þeir kaupa ekki fleiri íbúðir og þær íbúðir sem þau hafa eru fullsettar. Það þarf að gera eitthvað í því. Það eru margir í mínum aðstæðum og það er ekki hægt hjálpa þeim,“ segir hún. „Við erum örugg hér“ Einstæð móðir fluttist út á land með börn sín þegar íbúðarleit bar engan árangur Rúmlega þrítug einstæð móðir þurfti að flytja á milli landshluta vegna þess að hún réð ekki við leiguverðið í bænum og var heimilislaus með tvö börn. „Ég bjó í Reykja- vík en missti húsnæðið sem ég var að leigja í Grafarvoginum. Þar var ég mjög heppin með leigusala því ég fékk íbúðina á sanngjörnu verði og gat verið þar í mörg ár. Hann bjó er- lendis en svo kom að því að hann vildi selja íbúðina. Nýi eigandinn ætlaði fyrst að flytja sjálfur inn en hætti við og bauð mér áfram- haldandi leigusamning, nema hvað hann ætlaði að hækka leiguna um 40 þúsund. Hann vildi meina að annars gæti hann ekki staðið undir afborgunum. Þannig að þegar samningurinn rann út fluttum við út.“ Við tók löng og ströng leit að nýju húsnæði. „Ég leitaði úti um allt. Ég hef verið að vinna og haft nægjar tekjur – eða mátu- legar fyrir okkur. En ég er einstæð og börnin eru tvö. Það veldur því að ég get ekki leigt mjög dýrar íbúðir. Ég vildi bara sanngjarnt leiguverð.“ Konan er menntaður kennari sem nú starfar á leikskóla. Hún hefur unnið sem kennari í rúman áratug en hefur verið einstæð frá árinu 2007. Íbúðarleitin tók hálft ár. Eftir fjóra mánuði viðruðu aldraðir foreldrar hennar það við hana hvort hún vildi ef til vill flytja með börnin milli landshluta til þeirra. Þar væri íbúð í kjallara og þau væru meira en velkomin þangað. „Ég athugaði með vinnu á svæðinu. Þegar ég sá fram á að standa í þessum slag þarna í borginni þá bara flutti ég,“ útskýrir hún. „Ég fékk trygginguna til baka. Ég lagði hana fram rétt fyrir hrun og þá var hún 100 þúsund krónur. Núna vildi fólk fá frá 300 þúsundum og allt að hálfri milljón í tryggingu fyrir íbúðum. Mér fannst þetta allt of hátt en átti heldur ekki fyrir útborgun í íbúð og fékk ekki greiðslumat til þess að kaupa,“ segir hún. Síðastliðið haust flutti hún til foreldra sinna með börnin. „Ég var mjög lengi reið. Mér finnst þetta ömurlegar aðstæður. Það tengist ekki staðnum sem ég bý á núna, sem er góður staður og allt það. Okkur líður vel og við erum örugg hér. Krakkarnir eru búnir að aðlagast. Ég flutti héðan til þess að fara í menntaskóla og vildi búa í Reykjavík – það var heimili barnanna minna. En vesenið sem ég sá fram á að þurfa að bjóða krökkunum upp á, það var bara allt of mikið.“ „Við erum sem sagt heimilislaus“ „Við erum heimilislaus,“ segir Dagbjört Norðfjörð en hún flutti út úr leiguhúsnæði við Vitastíg í Reykjavík um helgina með níu ára son sinn. „Ég frétti í gegnum þriðja aðila að það ætti að selja húsið, ekki frá leigusalanum mínum. Við ákváðum að fara fyrr vegna þess að í íbúðinni er mikill myglu- sveppur. Við urðum bara að fara,“ segir Dagbjört. „Ég hef þurft að henda stórum hluta af eigum okkar, meðal annars dóti sonar míns, bókum og öðru.“ Íbúðina hafði hún í þrjú ár. Í fyrra var reynt að komast fyrir myglusvepp í íbúðinni án árangurs. Hún hefur ekkert húsnæði fast í hendi og eru eigur hennar komnar í geymslu. Á meðan hún er að finna sér samastað fær hún inni hjá systur sinni. „Við erum sem sagt heimilislaus. Ég trúi þessu varla,“ útskýrir hún og er mjög ósátt. Dagbjört hefur að undanförnu verið að leita sér að húsnæði auk þess sem hún hefur verið í sambandi við félagsþjónustu Reykjavíkur. Enn hefur leitin ekki skilað árangri. Hún segist hafa haft samband út af um fjörutíu íbúðum, en hefur aðeins fengið að sjá fjórar. Íbúðirnar hverfi í rauninni jafnóðum. „Ég vil vera hérna í miðborginni því ég vil að sonur minn geti haldið áfram í sama skóla og búið í sama hverfi og áður. Ég er þess vegna frek,“ segir hún en bætir því við að þótt það sé hennar fyrsti kostur skoði hún vissulega aðra möguleika. Hún starfar í miðborg Reykjavíkur á veitingastaðnum Kryddlegin hjörtu. „Ástandið er bara mjög slæmt og mark- aðurinn skrýtinn,“ segir hún. Hún telur að staða hennar sé langt í frá einstök. Hér má sjá nokkur dæmi um leiguverð á húsnæði Hraunbær , Reykjavík Póstnr: 110 Verð: 145.000 kr. Stærð: 60 fermetrar (Skammtímaleiga) Skerjafjörður Póstnr: 101 Verð: 190.000 kr. Stærð: 90 fermetrar Háaleitisbraut Póstnr: 108 Verð: 135.000 kr. Stærð: 60 fermetrar (skammtímaleiga) Brekkubær Póstnr: 110 Verð: 150.000 kr. Stærð: 80 fermetrar Ásgarður Póstnr: 108 Verð: 120.000 kr. Stærð: 65 fermetrar Ragna Erlendsdóttir Aldur: 34 ára Fjölskyldustaða: Einhleyp Starf: Heimavinnandi Aldur: 35 ára Fjölskyldustaða: Einhleyp, tvö börn Starf: Grunnskóla- kennaramenntuð. Starfar á leikskóla *Upplýsingar fengnar þann 30.6. 2014 af vef Leigulistans Dagbjört Norðfjörð Aldur: 39 ára Fjölskyldustaða: Einhleyp, níu ára sonur Starf: Starfsmaður á veitingahúsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.