Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 14
14 Fréttir Viðskipti Vikublað 1.–3. júlí 2014 „Það varð smá klikk“ Ný uppboðssíða hrundi á hápunkti uppboðsins Þ að varð smá klikk,“ segir Jóna Heiða Hjálmarsdóttir, einn eigenda Auraboðs sf., en það er nýskráð félag sem heldur úti vefsíðu um uppboð. Vefsíðan var opnuð fyrir um tveimur vikum en að sögn Jónu var þátttakan fyrstu dag- ana langt yfir væntingum sem leiddi til þess að uppboðssíðan hrundi þegar verið var að bjóða upp iPad síðastliðinn miðvikudag. „Það er verið að flytja síðuna núna á stærri hýsingaraðila þannig að þetta á ekki að geta komið fyrir aftur. Þeir sem hýsa síðuna hafa aldrei séð annað eins.“ Hundruð þátttakenda höfðu greitt fyrir að bjóða í vöruna og margir hafa því skiljanlega orðið óánægðir þegar vefsíðan hrundi á síðustu mínútum uppboðsins. Jóna Heiða segir í samtali við DV að allir þátttakendur muni fá endurgreitt. „Þeim verður endurgreitt í inn- eignarformi en ef fólk vill ekki nýta sér þjónustuna lengur þá hefur það heimild til þess að bakfæra.“ Hún segir aðstandendur síðunnar ennþá vera að læra inn á kerfið og því geti ófyrirséð atvik komið upp. „En við tökum sökina algjörlega á okkur og hefðum að sjálfsögðu átt að vera betur undir þetta búin.“ Viðskiptablaðið fjallaði um Auraboð þann 14. júní en þar kom fram að um væri að ræða nýtt við- skiptamódel á Íslandi og að til stæði að bjóða upp ýmsar vörur, svo sem bifreiðar, húsgögn og raftæki á vef- síðunni. n jonbjarki@dv.is Mikil þátttaka Jóna Heiða Hjálmarsdótt- ir, einn eigenda Auraboðs sf., segir þátttök- una hafa verið meiri en búist var verið við. Félag Gríms græddi 1.200 milljónir króna n Framkvæmdastjóri Bláa lónsins malar gull n Ábatasöm viðskipti við Landsbankann E ignarhaldsfélag sem er í meirihlutaeigu Gríms Sæmundsen, fram- kvæmdastjóra Bláa lónsins, hefur hagnast ævintýralega á viðskiptum með hlutabréf í félög- um tengdum lóninu á síðastliðnum árum. Meðal þess sem felst í við- skiptum Gríms við Landsbankann eru kaup á hlutabréfum í Bláa lóninu á hagstæðu verði og svo aftur sala hans á bréfum sem einnig eru á hag- stæðu verði. Félag Gríms heitir Kólfur ehf. og á hann 68 prósenta hlut í því á móti 32 prósenta hlut Eðvarðs Júlíussonar, fyrrverandi bæjarfull- trúa Sjálfstæðis flokksins í Grinda- vík. Árið 2012 hagnaðist félag þeirra um ríflega 1.200 milljónir króna en þá seldi það félag hlutabréf sín í Bláa lóninu til samlagsfélagsins, Hvatn- ingar slhf., og eignaðist ríflega 70 prósent í því félagi á móti Horni II slhf., dótturfélagi Landsbankans, sem átti 29 prósenta hlut í því árið 2012. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins. Hvatning er stærsti hlut- hafi Bláa lónsins með um 43 pró- senta eignarhlut. DV reyndi að ná tali af Grími Sæ- mundsen til að spyrja hann út í við- skipti félags hans og Landsbankans en svo virðist sem sambandið hafi slitnað og náði DV ekki í hann eftir það. Keypt og selt til Landsbankans Bláa lónið sjálft, sem og félag Gríms, hafa átt í talsverðum viðskiptum með hlutabréf í Landsbankanum síðastliðin ár. Þannig greindi Stöð 2 frá því í byrjun árs 2013 að Bláa lón- ið sjálft hefði keypt tæplega 25 pró- senta hlut í fyrirtækinu af Lands- bankanum. Sparisjóðurinn í Keflavík hafði leyst hlutinn til sín eftir hrunið 2008 en sjóðurinn rann svo inn í Landsbankann. Þannig var Lands- bankinn orðinn fjórðungseigandi í Bláa lóninu. Grímur Sæmundsen sagði í við- tali við Stöð 2 að Bláa lónið hefði átt forkaupsrétt á hlut Landsbank- ans í Bláa lóninu og að hann hefði nýtt sér hann. Aðspurður gat hann ekki munað hversu hátt kaupverðið var. „Ég bara man það ekki.“ Grímur sagði jafnframt að Bláa lónið hefði nýtt þennan forkaupsrétt „fyrir hönd hluthafa“. Ekki var tilgreint hvaða hluthafa um ræddi en Grímur er einn stærsti óbeini hluthafinn í Bláa lóninu. Nú í maí var svo greint frá því að Horn II slhf. hefði keypt 20 pró- senta hlut í Hvatningu af Kólfi, félagi Gríms og Eðvarðs, en eftir þau við- skipti á Horn 49,5 prósent í félaginu á móti 50,5 prósenta hlut Kólfs. Ljóst má vera að Kólfur hefur hagnast vel á þeim viðskiptum. Landsbankinn selur og kaupir svo aftur Landsbankinn hefur því selt hluta- bréf í Bláa lóninu til hluthafa fyrir- tækisins á liðnum árum en svo keypt bréf aftur. Út frá viðskiptunum má ljóst vera að Landsbankinn hefur selt bréf í Bláa lóninu á hagstæðu verði fyrir kaupandann og keypt hluta- bréf til baka á hagstæðu verði fyrir seljandann. Af hagnaði Kólfs árið 2012 má sjá að stærsti hluti bókfærðs hagnaðar félagsins er tilkominn vegna hækk- aðs verðmats á hlutabréfum í Bláa lóninu, tæpar 900 milljónir króna, en auk þess er tæplega 150 millj- óna króna arðgreiðsla frá fyrirtæk- inu. Félagið á eignir upp á 2,5 millj- arða króna en skuldar aðeins rúman milljarð. Félagið stendur því afar vel, og eigendur þess einnig, og kem- ur fram að tekin verði ákvörðun um arðgreiðslu út úr félaginu á hluthafa- fundi þess. Ekki er hægt að sjá arð- greiðsluna fyrir árið 2012 þar sem ársreikningur 2013 liggur ekki fyrir. Fimm milljarða velta Rekstur Bláa lónsins hefur gengið ótrúlega og má með sanni segja að fyrirtækið sé peningavél. Hagnaður- inn nam 1,3 milljörðum króna eftir skatta árið 2013 og velta fyrirtækis- ins nam um fimm milljörðum króna. Þessi mikli hagnaður Bláa lóns- ins hefur meðal annars leitt til þess að laun stjórnarmanna fyrirtækisins voru hækkuð og nema nú 525 þús- und krónum fyrir almenna stjórnar- menn en stjórnarformaðurinn, Helgi Magnússon, er með 700 þúsund. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Mundi ekki kaupverðið Grímur Sæmundsen mundi ekki kaupverðið á 25 prósenta hlutnum í Bláa lóninu þegar hann var spurður að því. „Ég bara man það ekki Félag Gríms hagnast Félag Gríms Sæmundsen hefur hagnast vel á hlutabréfum í Bláa lóninu, bæði á hækkuðu verðmati þeirra og eins arðgreiðslum út úr fyrirtækinu. Af með tjöruna - á með Aktu inn í sumarið á hreinum bíl! Við erum á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu www.lodur.is - Sími 544 4540

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.